Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
49
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Helgi Bergs, bæjarstjóri, mælir fyrir fjárhagsáætlun næsta árs á bæjarstjórnarfundi á þriðjudagskvöld. Til vinstri
á myndinni er forseti bæjarstjórnar, Sigurður Jóhannesson, Framsóknarflokki, og hægra megin er Sigurður J.
Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki.
Fjárhagsáætlun líklega 40 milljónir fram úr áætlun:
Óskhyggja og rangar
áætlanir meirihlutans
— urðu til þess að ekki var meiru veitt
til Síðuskóla, segir Gunnar Ragnars
Akureyri, 18. deaember.
GUNNAK Ragnars, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðum um
fjárhagsáætlun í gærkvöldi að eitt aðaleinkenni stöðu bæjarins væri að
harðnað hefði á dalnum hjá bæjarsjóði. „Fjárhagsáætlun fer verulega úr
skorðum á þessu ári — líklega 40 milljónir fram úr áætlun. Þetta er stór
upphæð — um 10%af fjárhagsáætlun ársins,“ sagði Gunnar.
„hefði ekki verið farið í þessa för“.
Gunnar sagði einnig að auðvitað
væri óþolandi að bæjarfélag eins
og Akureyri þyrfti nánast að
byggja grunnskóla sína upp á eigin
spýtur. „Mér sýnist ríkið munu
hafa greitt 3,6 milljónir af 40 sem
farið hafa í Síðuskóla," sagði hann,
en ríkið á að greiða helming af
kostnaði.
Akureyri:
Bæjarfulltrú-
ar vilja halda
verðjöfnunar-
gjaldinu í bænum
Akurcvri. 18. desember.
VILJI ER fyrir því í bæjarstjórn
Akureyrar að fellt verði niður verð-
jöfnunargjald af hitunarkostnaði eða
að gjaldið fari a.m.k. ekki úr bæjarfé-
laginu. A fundí bæjarstjórnar í gær-
kvöldi kom fram að Akureyringar
eigi að greiða ríflega 20 milljónir í
verðjöfnunargjald á næsta ári.
„Við höfum ekki efni á að greiða
niður hitunarkostnað annars stað-
ar á landinu. Ég vil ná í okkar
framlag. Það yrði gott fyrir Hita-
veitu Akureyrar að fá þessa fjár-
upphæð," sagði Jón Sigurðarson,
Framsóknarflokki, sem vakti máls
á þessu.
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, tók undir prð Jóns
og sagðist vilja að kannað yrði
hvort hægt væri að fá gjaldinu
aflétt eða það yrði fært til innan
bæjarfélagsins. Að það færi ekki
úr bænum eins og nú væri. „Ég
er ekki að kasta rýrð á verðjöfnun
orku í landinu en það eru engin
rök sem mæla með því að Akur-
eyringar, sem búa við eitt hæsta
INNLEN-T
orkuverð landsins, greiði milljóna-
tugi í verðjöfnunargjald á ári. Við
greiðum t.d. V/i til 2-falt verð
miðað við sveitarfélögin í kringum
okkur," sagði Sigurður.
Sigurður sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að
fengi hitaveitan verðjöfnunar-
gjaldið til sín gæti það jafnvel
komið í veg fyrir miðsárshækkun
á gjaldskrá hennar á næsta ári.
Bæjarsjóður 1986:
Heildar-
tekjur
559.520
milljónir
Akureyri, 18. desember.
í FRUMVARPI að fjárhags-
áætlun Bæjarsjóðs Akureyrar
fyrir 1986 er gert ráð fyrir að
heildartekjur verði 559,520
milljónir króna. Það er 35,8%
hækkun frá því í fyrra. Tekjun-
um er þannig skipt: 410,658
milljnir fara í rekstrargjöld,
60,281 milljón í gjaldfærðan
stofnkostnað og 88,581 milljón
er færð á eignabreytingar 1986.
Hann tók undir það sem Sigríður
Stefánsdóttir (Abl.) sagði að fagna
bæri því að hægt væri að greiða
starfsmönnum bæjarins góð laun
en stærsti þáttur framúrkeyrsl-
unnar væri þó Síðuskóli. „Það er
ekki vitað hvernig slíkt gerist en
það hlýtur að hafa verið vitað
miklu fyrr að fjárhagsáætlun færi
svo langt fram úr áætlun og ég tel
það gagnrýni vert að ekki skuli
hafa verið reynt að koma í veg
fyrir þetta fyrr á árinu," sagði
Gunnar.
Gunnar sagðist hins vegar telja
að menn þyrftu ekki að vera svo
undrandi því ljóst væri að fjár-
hagsáætlun meirihlutans hefði
verið röng. „Það er ekki hægt að
koma skólanum í kennsluhæft
ástand fyrir 16 milljónir króna. Ég
er sannfærður um að rangar álykt-
anir og óskhyggja meirihlutans
hafi orðið til þess að ekki var veitt
meira fé til skólans."
Gunnar taldi upp ýmis atriði
sem virtust hreinlega hafa gleymst
— svo sem byggingargjöld (2,5
milljónir), stjórnun og hönnun
(um 2 milljónir), verðbætur á
samninga og á samninga og tengi-
gjöld hitaveitu og rafveitu svo
nokkuð sé nefnt.
Sjálfstæðismenn vildu fara aðr-
ar leiðir en meirihlutinn til að
Akureyri:
Ókeypis
í strætó
Akareyri, I8.deaember.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ókeypis
verði í strætisvagnana á Akureyri
á Þorláksmessu og aðfangadag.
Er þetta gert í því skyni að fá fólk
til að nota vagnana meira og til
að létta á umferð. Vagnarnir
ganga fram undir miðnætti á
Þorláksmessu og til hádegis á
aðfangadag.
útvega skólahúsnæði í Síðuhverfi
fyrst um sinn. Gunnar sagði: „Við
vildum leggja kirkjubyggingu í
hverfinu lið og nota kjallara henn-
ar til grunnskólakennslu. Ég er
næstum viss um að við hefðum
ekki leyst málið verr þannig og við
hefðum getað notað þessa aðstöðu
í 2—3 ár. í staðinn töldum við að
hægt hefði verið að ráðast í gerð
sundlaugar í Glerárhverfi — sem
lengi hefur verið á dagskrá — og
að setja meira fé í Verkmennta-
skólann. Mér sýnist að 40 milljónir
króna verði komnar í Síðuskóla
eftir næsta ár og þrjár kennslu-
stofur verði nýttar. Það er varla
góð nýting." Gunnar sagðist halda
að ef óskhyggja og rangar áætlanir
meirihlutans hefðu ekki verið uppi
Hvað tekjuhliðina varðar sagði
Gunnar ljóst að ekki kæmi til
greina að innheimta meiri skatta
en gert væri. „Álagning á útsvar
nú, og jafnvel fasteignagjöld líka,
er mjög svipuð því sem við lögðum
til í fyrra og er verulega komið til
móts við bæjarbúa."
Gunnar sagði það vekja menn
mjög til umhugsunar hve rekstrar-
gjöld færu upp á við. „Hvar endar
þetta?“ spurði Gunnar, og bætti
við: „Nánast öllum beiðnum um
nýmæli á næsta ári er hafnað. Það
þarf að fara á gagnrýnan hátt ofan
í rekstur bæjarins og taka hann
að ýmsu leyti til endurskoðunar
ef takast á að framkvæma eitthvað
hér á næstu árum af því sem þarf.“
Gjaldskrárhækk-
unin samþykkt
Akureyri, 18.de»ember.
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gærkvöldi var samþykkt 16% gjaldskrár-
hækkun Hitaveitu og Rafveitu Akureyrar. Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu er hér ekki um grunnhækkun að ræða, einungis er verið
að meta verðlagsþróun í landinu. Hækkun þessi tekur gildi um áramót.
Á fundinum var einnig sam- að álagningarprósenta til útsvars
þykkt að álagsprósenta á fast- hækki úr 10,4% í 10,8% milli ára.
eignagjöld verði 15% á næsta ári Segja bæjarfulltrúar það nauðsyn-
í stað 25% síðast. legt til að fylgja verðbólgu.
Því má bæta við að lagt er til
Sérstakt rannsóknarefni
hvernig þetta getur gerst
— segir Helgi Bergs bæjarstjóri um 100 % „framúrkeyrslu“ við framkvæmdir í Síðuskóla
Akureyri, 18. desember.
FYRRI umræða um fjárhagsáætlun
Bæjarsjóðs Akureyrar fyrir næsta
ár var á fundi bæjarstjórnar í
gærkvöldi. Allt stefnir í að fjár-
hagsáætlun þessa árs fari 40 millj-
ónum króna fram úr áætlun. Helgi
Bergs, bæjarstjóri, hafði framsögu
um fjárhagsáætlun — og sagði
hann einkum þrjár ástæður fyrir
því hve hún fari fram úr áætlun
nú: í fyrsta lagi hefðu verðlags-
forsendur sem áætlunin hefði verið
gerð eftir ekki staðist, í öðru lagi
hefðu kjarasamningar sem gerðir
voru í sumar mikið að segja og í
þriðja lagi hefði töluvert meira fé
farið til nýbygginga en gert hefði
verið ráð fyrir.
Eins og áður hefur komið fram
í Morgunblaðinu er nokkuð ljóst
að framkvæmdir við Síðuskóla í
Glerárhverfi fara 16 milljónum
króna fram úr áætlun — eða um
100%. Helgi sagði það sérstakt
rannsóknarefni hvernig slíkt
gæti gerst. „Ég get ekki skýrt
það nú — það eina sem ég get
sagt, og það með fyrirvara, í
fyrsta lagi að áéætluð upphæð til
framkvæmda við skólann hafi
verið of lág, í öðru lagi að verð-
hækkanir á árinu hafi verið
meiri en við gerðum ráð fyrir —
og það veit ég að er rétt — og í
þriðja lagi að verkið hafi verið
unnið á þann hátt að ef til vill
sé búið að vinn meira en við
gerðum ráð fyrir. Og það kann
að vera að búið sé að greiða sem
því nemi. Verktaki réði því hvort
hann ynni meira en gert var ráð
fyrir á árinu — ef hann fjár-
magnaði það sjálfur fyrst í stað,
og fengi það síðan greitt á næsta
ári. En svo gæti verið að hann
hefði þegar fengið greitt fyrir
það,“ sagði Helgi.
Þess má geta að 25 milljónir
króna eru ætlaðar til Síðuskóla
á næsta ári.
Sigríður Stefánsdóttir, Al-
þýðubandalagi, sagði meiri
óvissuþætti í frumvarpinu en
áður. „Frumvarpið ber þess
merki að bærinn býr við erfiða
greiðslustöðu," sagði Sigríður.
Hún sagði það skoðun sína að
slæmt væri að ekki væri hægt
að halda áfram af fullum krafti
við uppbyggingu Síðuskóla. Sig-
ríður upplýsti að greiðslur frá
ríkinu vegna byggingar Síðu-
skóla hefðu dregist verulega
saman — 1984 hefði rikið greitt
2,1 milljón, á þessu ári 1,6 millj-
ón og á næsta ári væri gert ráð
fyrir 1 milljón króna frá ríki til
framkvæmda við Síðuskóla.
„Framlög ríkis til sveitarfélaga
eru orðin þannig að það er ekki
hægt að sitja þegjandi,” sagði
Sigríður. Hún sagðist ekk: ánægð
með þessa fjárhagsáætlun en
taldi hana skynsamlega miðað
við ástandið í dag.