Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
57 r
Hljómplata
úr Eyjum
ÚT er komin hljómplata med 10
lögum tengdum Vestmannaeyjum,
sem ber heitið „Ég vildi geta sungið
þér“. Lögin eru eftir Oddgeir Krist-
jánsson, Gísla Helgason og Gylfa
Ægisson, en Ijóð eru eftir Asa í Bæ,
Árna úr Eyjum, Loft Guðmundsson,
Jón Sigurðsson og Gylfa Ægisson.
Meðal laga eru „Eg veit þú kemur“,
„Kvöldsigling" og „Minning um
mann“ sem var upphaflega flutt af
hljómsveitinni Logum frá Vest-
mannaeyjum.
Flytjendur á plötunni eru m.a.
tveir fyrrverandi meðlimir í Log-
um, bræðurnir Hermann Ingi og
Helgi Hermannssynir, Einar klink
Sigurfinnsson, Runólfur Dag-
bjartsson og Jónas Þórir. Hljóð-
færaleikarar á plötunni eru Frið-
rik Karlsson, Þorsteinn Magnús-
son, Bjarni Sveinbjörnsson, Stein-
grímur óli, Pétur Grétarsson,
Bernard Wilkinson, Jónas Þórir
og strengjasveit.
Upphaf plötunnar má rekja til
skemmtikvölds á Gestgjafanum í
Vestmannaeyjum, svokölluð Eyja-
kvöld með undirtitlinum „Ég vildi
geta sungið þér“. Þessi kvöld
mæltust svo vel fyrir að uppselt
var í 18 skipti og fyrirhugað er að
taka þráðinn upp að nýju næsta
haust.
Með plötunni fylgir lítil bók þar
sem Runólfur Dagbjartsson skrif-
ar um höfunda þá sem eiga lög á
plötunni ogöll ljóðin fylgja. Einnig
er lagið Kvöldsigling skrifið á nót-
ur.
Útgefandi er Skans-útgáfan, en
dreifingu annast Skífan.
280 meðlimir
íVélprjóna-
sambandinu
AÐALFUNDUR Vélprjónasambands
íslands var haldinn nýlega á Hótel
Hofi í Reykjavík.
Vélprjónasamband fslands eru
samtök einstaklinga sem eiga heim-
ilisprjónavélar. Meðlimir sam-
bandsins eru 280 talsins hvaðanæva
af landinu.
Námskeið hafa verið í gangi innan
sambandsins um hönnun og frágang
á prjóni en Sigrún Gunnarsdóttir
og Lovísa Aðalsteinsdóttir hafa séð
um. í nýkjörinni stjórn sitja Ingi-
björg Jónsdóttir formaður, Lovísa
Aðalsteinsdóttir gjaldkeri, Sæunn
Sigurgeirsdóttir ritari, Hólmfríður
Gestsdóttir meðstjórnandi og Svan-
fríður Jónasdóttir meðstjórnandi.
Minningar
Huldu A.
Stefánsdóttur
— bemska
Hulda Á. Stefánsdóttir er ein þeirra kvenna sem sett
hafa svip á öldina og þjóðin öll þekkir og ann.
Frásögn hennar stendur djúpum rótum í þjóðlífl og
sögu. Mannlýsingar eru skýrar og hispurslausar,
yljaðar kímni og næmum skilningi.
Minningar Huldu rnunu, efað líkum lætur, skipa henni
á bekk með nokkrum þeim löndum hennar sem samið
hafa merkastar minningabækur á síðustu áratugum.
í HC
1 merkustu
MIIHIHIIHGABOKA
KNUT 0DEGÁRD
JÓLALJÓS
SÍGILDAR JÓLASÖGOR
! VÍSNA
GÁTUR
fyrír fullordna
eftir SIGURKARL STEFANSSON
Arnungar
eftir tinut 0degaard, fors(jóra riorræna
hússins, i þýðingu Heimis Pálssonar
Ari, ungur drengur af Arnungaættinni,
fékk nisti í arf eftir föður sinn sem myrtur
var af Eiríki konungi blóðöx og fjölkunn-
ugri drottningu hans, Gunnhildi.
Arnungar er fyrsta skáldsagan í flokki
sem greinir frá örlögum drengsins með
nistið.
Jolaljos
Helgiblær jólanna í sígildum jólasögum
og listaverkum Snorra Sveirts listmálara
í bókinni eru sígildar sögur og ævintýri
um jólin — úrval þess helsta sem birst
hefur af slíku efni á íslensku. Sumar
sögurnar eru góðvinir úr æsku ömmu og
afa og pabba og mömmu, aðrar eru fáum
kunnar.
Litmyndir Snorra Sveins Friðrikssonar
flytja sérstakan helgiblæ og gera bókina
einstæða.
Vísnagátur
fyrir fullordna
eftir Sigurkarl Stefánsson
fyrrum menntaskóiakennara
Þetta er skemmtileg bók sem þroskar mál
og hugsun og svo er einnig til nokkurs
að vinna því verðlaun eru í boði fyrir réttar
ráðningar á tíu gátum af þeim 157 sem
eru f bókinni.
TÍU VERDLAUNAGATUR
BÓKAÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR
Síðumúla 11. sími 84866