Morgunblaðið - 19.12.1985, Side 62

Morgunblaðið - 19.12.1985, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 Samodan er vel viö DawP Þeir framleiða rauðrófur. rauðkál og fleira á dönsku steikurnar. Nu stendur þér það einnig til boöa: I Samodan. ss Evrópumeistarakeppnin í rallakstri: Ekkert varð úr íslenzkri þátt- •töku vegna slyss „ÞETTA var eins og slæmur draum- ur, þad gekk alit á afturfótunum. Það gerði útslagið að aðstoðaröku- maðurinn, Frakkinn Christian Gil- bert lenti í bílslysi á leiðinni í keppn- ina og við lögðum því aldrei af stað,“ sagði Gunnlaugur Rögnvaldsson, í samtali við Morgunblaðið. Hann er nýkominn frá Frakklandi, þar sem hann ætlaði að keppa í Evrópumeist- arakeppninni í rallakstri á Opel Manta, með frönskum aðstoðaröku- manni. „Keppnin hófst í Saint Maxime á Rivierunni. Ég kom þangað eftir j- tæplega tveggja sólahringa bram- bolt. Bíll sem ég fékk að láni í Þýskalandi til að komast til Frakk- lands, bilaði í byrjun og ég ók 1500 km á þremur cylindrum, eftir að hafa ekið erfiðustu leiðina á stað- inn, vegna rangra leiðbeininga svissnesks landamæravarðar. Svaf ég m.a. í bílnum einhverstaðar í Ölpunum. Þegar ég loks komst á keppnisstað, var aðstoðarökumað- urinn ókominn. Ég frétti ekkert af honum fyrr en sólarhring síðar, nagaði bara neglurnar ... Hann hafði þá lent í umferðarslysi á leið- v inni. Stöðvaði hann bíl sinn fyrir aftan oltinn flutningabíl, en fékk þá bil á fullri ferð í skottið. Brákaði hann þrjá hryggjarliði á hálsi og gat ekki keppt." „Ég vildi ekki fá annan aðstoðar- ökumann i hans stað, enda erfitt að finna enskumælandi mann þarna. Dró ég þátttökuna því til _haka, áður en Opel í Belgíu sendi Keppnisbílinn á staðinn. Þetta hefði getað orðið góð reynsla, en Gilbert Aðstoóarökumaöurinn Christian Gil bert gat ekki keppt í rallinu eftii umferðarslys. Hann mætti með kraga um hálsinn á keppnisstað, merktui Opel, en hann er samningsbundinn þeim og varð franskur meistari í ár. er franskur meistari með Opel og gjörþekkir leiðirnar. Hann hafði unnið umrædda rallkeppni árið áð- ur ásamt ökumanninum Guy Frequelin, sem hann keppir venju- lega með. Það voru fjögur hundruð keppendur í rallinu og við höfðum fengið rásnúmer átta. Það virðist óheillanúmer, þvi við Birgir Viðar duttum út með sama rásnúmer nokkrum vikum áður af fáranlegum orsökum," sagði Gunnlaugur. Timman veitir Kasparov ekki viðnám Skák Margeir Pétursson GRAY Kasparov, heimsmeistari í skák, hefur unnið tvær fyrstu skákirnar í einvígi við hollenska stórmeistarann Jan Timman, sem nú stendur yfir í Hollandi. f annarri einvígisskákinni, þar sem Kasparov hafði hvítt, náði hann mjög öflugu frumkvæði eftir mistök Timmans í 14. leik. Hollendingurinn lenti í mikilli klemmu og er hann hugðist koma kóngi sínum í skjól fyrir sókn Kasparovs, tapaði hann riddara bótalaust. Þar með var taflið gjörtapað, en Timman gafst þó ekki upp fyrr en í 35. leik. Þar með ættu úrslit einvígis- ins að vera ráðin, því aðeins verða tefldar sex skákir. Skýr- ingin á slakri frammistöðu Timmans kann að vera sú að hann sé þreyttur eftir einvígið við Mikhail Tal í Frakklandi, en Kasparov hefur teflt tvær fyrstu skákirnar gríðarlega vel og ekki gefið nokkurn höggstað ásér. Einvíginu lýkur um næstu helgi og á Þorláksmessu mun Kasparov halda blaðamanna- fund á Schipholflugvelli í Amsterdam. Blaðamenn hugsa sér þá gott til glóðarinnar, því í blaðaviðtölum sl. sumar var Kasparov mun opinskárri en sovézkir borgara leyfa sér almennt við slík tækifæri. Nú er þess vænst, að Campoma- nes, forseta FIDE og sovézka skáksambandinu verði hressi- lega sagt til syndanna. Önnur einvígisskák Kasp- arovs og Timmans gekk þannig fyrir sig: Hvítt: Gary Kasparov. Svart: Jan Timman. Drottingarindversk vörn 1. d4 — Rf6,2. c4 — e6,3. Rf3 í heimsmeistaraeinvíginu við Karpov í haust, bauð Kasp- arov venjulega strax upp á Nimzoindverska vörn með 3. Rc3. — b6, 4. Rc3 — Bb4, 5. Bg5 — Bb7, 6. e3 — h6, 7. Bh4 — g5, 8. Bg3 — Re4,9. Rd2!? Dæmigert fyrir Kasparov. Hann hafnar algengasta leikn- um, 9. Dc2, en fórnar peði fyrir frumkvæðið. Rxc3, 10. bxc3 — Bxc3, 11. Hcl — Bb4,12. h4 — gxh4,13. Hxh4 — Bd6,14.Dg4-Bxg3? Upphafið að erfiðleikum svarts. í skákinni Plaskett- Short, Brighton 1984 lék svart- ur 14.... De7 og eftir 15. c5 — Bxg3, 16. Dxg3 — Rc6, náði hann fljótlega að langhróka, en það er einmitt lífsspursmál fyrir svart í þessu afbrigði að koma kóngnum í örugga höfn á drottningarvængnum. Það hefði verið fróðlegt að sjá hvernig Kasparov ætlaði að svara 14 ... De7. 15. Dxg3 — Rc6, 16. d5! — Re7,17. Bd3 — d6 Líklega var skárra að hleypa hvítu drottningunni ekki til g7, en leika 17... Hg8,18. Dh3 — Rg6. 18. Dg7! — Hg8,19. Dh7 19.. .. Hf8 Ömurlegur leikur, en hvíta sóknin var orðin óstöðvandi. T.d. 19 ... Hxg2, 20. Hf4! og ekki er hægt að valda f7 peðið á sómasamlegan hátt. Eða 19 ... exd5, 20. cxd5 — Bxd5, 21. Re4 — Bxe4, 22. Hxe4 o.s.frv. 20. Re4 — Rf5 20. - Rg6 21. Hxh6 De7 22. dxe6 var skárra, en hefði varla breytt neinu um úrslitin. 21. Hh3 — De7, 22. g4 — Rh4, 23. Dg7 0-0-0 Loksins nær svartur að hróka, en það kostar heilan mann og þar með er skákinni í raun lokið. 23 ... Rg6, 24. Rf6+ — Kd8, 25. Hxh6 var einnig vonlaust, t.d. 25.. .. Re5,26. Hh8! 24. Rf6 — exd5, 25. cxd5 — Kb8, 26. Hxh4 — Bxd5, 27. g5 — Bxa2, 28. gxh6 — d5, 29. h7 — Da3, 30. Hdl — Hh8, 31. Rg8! — Bb3, 32. Hal — Dc5, 33. Dxh8 — d4, 34. Hxd4 — Dc3+, 35. Ke2 og Timman gafst upp. Gimilcgur ostabakki gerir ávallt lukku. Við óvænt innlit vina, sem ábætir í jólaboðinu eða sér- réttur síðkvöldsins. OSTABAKKI-GÓÐ TILBREYTING ORÐIÐ Láttu hugmyndaflugið ráða ferð- inni, ásamt því sem þú átt af ostum og ávöxtum. Sannaðu til, árangurinn kemur á óvart. BINU 06 SÚKKULAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.