Morgunblaðið - 19.12.1985, Qupperneq 88
BTT KDRT AIIS SIIMR
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Hæstu til-
boðin í
Helga S. 70
milljónir
- Mörg tilboðanna
talin óraunhæf
AF ÞEIM 13 tilbodum, sem Fisk-
veidasjóði bárust í fiskiskipið Helga
S, eru þau hæstu upp á tæpar 70
milljónir króna. Mörg tilboðanna
eru talin óraunhæf. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins koma
tvö þeirra helst koma til greina.
Fiskveiðasjóði var slegið skipið
á nauðungaruppboði fyrir rúma
61 milljón króna eða svipaða upp-
hæð og hvíldi á skipinu. Stjórnend-
ur Fiskveiðasjóðs og stjórnarmenn
sjóðsins hafa ekki viljað tjá sig
um tilboðin, en afstaða til þeirra
verður hugsanlega tekin á fundi
stjórnar sjóðsins í dag, fimmtu-
dag. Ekki hefur fengizt uppgefið
hvaðan tilboðin eru, en í flestum
þeirra er gert ráð fyrir því að gera
skipið út á rækjuveiðar.
Tilboðsfrestur í annað skip Fisk-
veiðasjóðs, Kolbeinsey, sem gerð
var út frá Húsavík, rennur út í dag.
Borgin kaupir
húsnæði fyrir
MS-sjúklinga
Konan komin til meðvitundar
Akureyri, 1H. desenber.
KONAN, sem slasaðist í bruna á Akureyri, er á batavegi og líður eftir Akureyri, kviknaði ekki í af völdum rafmagns.
atvikum vel, að sögn lækna. Hún komst til meðvitundar í morgun. Á myndinni vinna slökkviliðsmenn að því að hreinsa til eftir
Eldsupptök eru enn ekki Ijós, en að sögn rannsóknarlögreglunnar á brunann.ogsvosemsjámáeríbúðinstórskemmd.
Borgarráð synjar erindi Kópavogsbæjar varðandi breytingar á aðalskipulagi:
Umferðaræð í Fossvogs-
dal virðist óhjákvæmileg
- segir í bréfí borgarstjóra til bæjarstjórnar Kópavogs
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
kaupsamning, milli borgarsjóðs og
Arnar Isebarn, byggingameistara,
um kaup á húsnæði að Alalandi 13,
þar sem rekin verður stofnun fyrir
sjúklinga sem þjást af mænusiggi
eða svokölluðum MS-sjúkdómi.
Kaupverð er rúmar 4,6 millljónir
króna og greiðist að fullu á tveimur
árum.
Húsnæðið að Álalandi 13 þykir
henta vel til þessarar starfsemi,
en MS-félagið hefur ekki bolmagn
til kaupanna nú, en á hins vegar
von á fjárframlögum úr opinber-
um sjóðum til slíkra kaupa, en
fjárframlögin myndu greiðast fé-
laginu á nokkru árabili. Þvl var
lagt til að borgarsjóður festi kaup
á húsnæðinu og jafnframt var lagt
til að borgarsjóður gerði leigu-
samning við MS-félagið, þar sem
félaginu er jafnframt gefinn kost-
ur á kaupum á umræddu húsnæði
á framreiknuðu því verði, sem
borgarsjóður kaupir það á. Var það
samþykkt á fyrrnefndum fundi
borgarráðs.
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt að synja erindi bæjar-
stjórnar Kópavogs þess efnis, að
skipulag svæðisins { Fossvogsdal
innan bæjarmarka Kópavogs verði
fellt út af aðalskipulagi Reykjavík-
ur.
Borgarráð hefur fjallað um bréf
borgarstjóra frá 10. desember
varðandi umrætt erindi Kópavogs-
bæjar þar sem segir meðal annars
að engar forsendur séu til þess að
verða við óskum Bæjarstjórnar
Kópavogs. Hvergi hafi verið sýnt
fram á, að sveitarfélögin tvö geti
verið án þeirrar umferðaræðar,
sem staðfest aðalskipulag geri ráð
fyrir. Þvert á móti bendi flest til
þess, að þróun umferðar geri hana
óhjákvæmilega. Fyrirliggjandi
samningar Reykjavikur og Kópa-
vogs gefi þar að auki ekki tilefni
til að þessi ákvörðun verði úr gildi
felld.
Borgarráð samþykkti synjunina
með 3 samhljóða atkvæðum.
Kristján Benediktsson, Framsókn-
arflokki, og Sigurjón Pétursson,
Alþýðubandalagi, óskuðu eftirfar-
andi bókunar: „Þar sem við teljum
ótímabært að taka á þessu stigi
afstöðu til Fossvogsbrautar, þá
sitjum við hjá við þessa atkvæða-
greiðslu. í þeirri hjásetu felst
engin afstaða til réttarstöðu í
málinu." Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
„Bókun Sigurjóns Péturssonar og
Kristján Benediktssonar er á mis-
skilningi byggð, þar sem hér er
ekki verið að taka afstöðu til þess,
hvort Fossvogsbraut verði lögð eða
ekki. Hins vegar er ekki hægt að
fórna hugsanlegum framtíðar-
hagsmunum borgarinnar og höf-
uðborgarsvæðisins í umferðarmál-
um nú.“
5DAGAR
TILJÓLA
Álitsgerð um útflutn-
ingsráð í burðarliðnum
NEFND i vegum viöskiptaráöuneytisins er að ganga frá álitsgerö um stofnun
útflutningsráös, sem yröi sameiginlegur starfsvettvangur allra atvinnugreina
sem standa aö sölu á vörum og þjónustu erlendis. Matthías Á. Mathiesen
þáverandi viöskiptaráöherra skipaöi nefndina í janúar sl. og mun hún, aö
sögn Ólafs Davíðssonar framkvæmdastjóra Félags íslenskra iönrekenda,
skila áliti sínu til Matthíasar Bjarnasonar núverandi viöskiptaráöherra á
na-stu dögum.
„Það á ennþá eftir að hnýta
ýmsa lausa enda, svo það er ekki
tímabært að skýra í smáatriðum
frá huwnyndum nefndarinnar,”
3agði Olafur Davíðsson. „En í
meginatriðum er gert ráð fyrir að
útflutningsráðið verði vettvangur
fyrir allar atvinnugreinar sem að
útflutningi standa. Hlutverk ráðs-
ins yrði að skipuleggja sameigin-
legar sýningar erlendis, gera
markaðsáætlanir, og reyna að
styðja við bakið á nýjungum í út-
flutningi. í nefndinni eiga sæti
aðilar frá helstu útflutningsaðil-
um okkar og eru allir sammála um
að nauðsynlegt sé að koma á fót
slíkum samstarfsvettvangi. Við
höfum hins vegar verið að reyna
að sameina sjónarmið um hvernig
best verði að slíku staðið og hvern-
ig fjármögnun yrði hagað,“ sagði
Ólafur Davíðsson.
ólafur sagði að ekki væri endan-
lega ákveðið hvað yrði um Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins, en líklegt
væri að sú stofnun kæmi inn í
heildarráðið.
Arnarflug hefur flug
til Hamborgar í vor
ARNARFLUG hefur fengiö leyfi
samgönguráðherra til að hefja flug
til Hamborgar í V-Þýskalandi. Fyrir-
hugað er aö fljúga fyrst um sinn
einu sinni í viku en síðan tvisvar og
hefst flug þann 10. apríl næstkom-
andi.
Þá hefur félagið fcekið að sér
leiguflug á næstu fjórum vikum
milli Kaupmannahafnar og Spán-
ar fyrir danska flugfélagið Conair,
sem er í eigu hinnar þekktu ferða-
skrifstofu Spies. Flogið verður
föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga milli Kaupmannahafnar og
þriggja staða á Spáni.