Morgunblaðið - 08.01.1986, Qupperneq 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
5. tbl.-72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sýrlendingar
skjóta á her-
þotur Israela
Beirút/Nes Ziyyona, ísrael, 7. janúar. AP.
SYRLENDINGAR skutu í morgun tveimur sovéskum SAM-6-loftvarn-
arskeytum á ísraelskar orrustuþotur í lágflugi yfir Beka-dal í Líban-
on. Hvorugt skeytanna hæfði skotmark sitt. Israelar neita að árásin
hafi átt sér stað. Miklar deilur hafa staðið um það undanfarið að
Sýrlendingar skuli hafa sett upp eldflaugaskotpalla í Líbanon og
meðfram landamærum Sýrlands.
Hermt hefur verið að ísraelskar
orrustuþotur, sem vörpuðu sprengj-
um á bækistöðvar skæruliða í Líban-
on þrettán sinnum á síðasta ári,
Afganistan:
Uppljóstr-
anir valda
reiði Rússa
Islamabad, 7. janúar. AP.
FIMM hershöfðingjar afganska
hersins voru handteknir nýverið
fyrir að veita skæruliðaforingja
upplýsingar um herflutninga
Sovétmanna í Afganistan og
önnur leynileg mál, að þvi er
ónafngreindir heimildarmenn
sögðu í dag.
Einn heimildarmaður sagði að
fjórir herforingjar hefðu verið hand-
teknir í Kabúl 5. desember og annar
sagði að sá fimmti hefði einnig verið
handtekinn þegar afgönsk yfírvöld
létu til skarar skríða gegn uppljóstr-
urum.
Herforingjar þessir voru að sögn
háttsettir í vamarmálaráðuneytinu
áður en þeir voru handteknir og
bendir allt til þess að þeir hafi gefíð
skæruliðaforingjanum Ahmadashah
Massoud upplýsingar. Ekkert er
vitað um örlög herforingjanna.
Massoud er einn nafntogaðasti
skæruliði Afgana og stjómar hann
sveitum skæruliða í Panshjer-dal
norðaustur af Kabúl. Þar hafa farið
fram einhveijir mestu bardagar í
styijöldinni í Afganistan og hafa
skæruliðar Massouds unnið þar
mikla sigra á heijum Afgana og
Sovétmanna.
Sovétmenn voru æfir jrfir upp-
ljóstrunum herforingjanna og er
haft eftir áreiðanlegum heimildum
að framvegis fái yfirmenn stjómar-
hersins aðeins að vita um liðsflutn-
inga Sovétmanna með fjögurra
klukkustunda fyrirvara.
Fyrstu viku ársins var barist á
götum úti í Kabúl. Stríðandi öfl í
kommúnistaflokknum, sem stendur
að leppstjóm Sovétmanna í Afgan-
istan, börðust með vélbyssum og
handsprengjum í miðbæ höfuðborg-
arinnar.
Kommúnistaflokkurinn í Afgan-
istan skiptist í tvo vængi, Pachram
og Khalq, og árum saman hefur ríkt
ágreiningur milli þeirra um það
hvemig koma skuli á kommúnisma
í Afganistan. Babrak Karmal, leið-
togi afgönsku stjómarinnar, tilheyrir
Pachram-vængnum og ágerist nú (
Kabúl orðrómur um að andstæðing-
ar hans í Khalq-vængnum séu
ákveðnir í að bola Karmal frá völd-
um.
hafí í dag sett á svið loftárás á
herstöðvar í Beka-dal.
í útvarpsstöð kristinna manna í
Beirút sagði að ísraelsku þotumar
,hefðu sleppt purpurarauðum belgj-
um, sem skeytin hefðu elt uppi.
Onnur sprengjan sprakk yfir þorpi
kristinna manna í Beka-dal án þess
að valda tjóni. Skeytunum var skotið
á loft í Jdeitat Yabous við sýrlensku
landamærin.
Síðar í dag flugu tvær ísraelskar
orrustuvélar yfír Beirút, Beka-dal
og suðurhluta Líbanons og heyrðust
miklar drunur, þegar þær sprengdu
hljóðmúrinn.
ísraelar neita að skotið hafí verið
á ísraelskar orrustuvélar, en viður-
kenna að þotur sínar hafí flogið
könnunarflug yfír Líbanon.
Sýrlendingar, sem hafa margoft
varað ísraela við að fljúga í líbanskri
lofthelgi, hafa varist sagna af at-
burðinum í dag.
AP/Símamynd
Flugræningi leiddur fyrir rétt
Valletta, Möltu, 7. janúar. AP.
LÖGREGLAN á Möltu bar í dag vitni fyrir rétti
í málinu, sem höfðað hefur verið á hendur Omar
Mohammed Ali fyrir að ræna Boeing 737-flugvél
egypska flugfélagsins Egyptair í nóvember. Þrír
flugræningjar rændu vélinni og létust tveir þeirra
þegar storms veitir Egypta gerðu áhlaup á flugvél-
ina með þeim afleiðingum að 58 manns létu Iffið.
Þegar yfírheyrslumar hófust í gær bannaði Gino
Camilleri, dómari, birtingu sönnunargagna að ósk
veijanda Omars Mohammeds Alis, sem sagði að það
kynni að hafa áhrif úrskurð tilvonandi kviðdómenda.
Réttarhöldin fara fram í virkinu St. Elmos, sem
reist var á sextándu öld. Ali gengur fyrir miðju á
myndinni hér að ofan með jámaðar hendur í skauti
sér.
Reagan bannar öll
viðskipti við Líbýu
Washin^ton, 7. janúar. AP.
SEINT I kvöld lýsti Ronald Reag-
an, Bandaríkjaforseti, yfir þvi að
bandariskum borgurum og fyrir-
tækjum yrði skipað að hætta öll-
um viðskiptum við Líbýumenn.
Forsetinn sagði að þetta hefði
verið ákveðið vegna þess að óræk-
ar sannanir lægju fyrir þvi að
leiðtogi Líbýu, Moammar Kad-
hafy, hefði lagt hryðjuverka-
mönnunum lið í árásunum á flug-
vellina í Róm og Vín.
Reagan sagði að fyrirtækjum,
sem brytu bannið, yrði refsað harð-
lega. Allir bandarískir borgarar,
utan blaðamenn, verða að yfírgefa
Líbýu. Hver sá, sem dvelur áfram í
Líbýu og stundar þar viðskipti —
þar með talin kaup á matvöm —
getur átt yfír höfði sér allt að 10
ára fangelsisdóm.
Utanríkisráðherrar ákváðu á ráð-
stefnu samtaka 45 þjóða múham-
eðstrúarmanna að gefa út stuðn-
ingsjrfírlýsingu við Líbýumenn, sem
telja landi sínu ógnað af bæði Banda-
ríkjamönnum og ísraelum.
Vestur-Evrópuríki eru treg til að
taka undir efnahagsþvinganir
Bandaríkjamanna gegn Líbýumönn-
um vegna þess að þúsundir Vestur-
Evrópubúa vinna þar og einnig
kaupa Evrópumenn mikla olíu frá
AP/Símamynd
Flugmóðurskipið Coral Sea er nú statt skammt frá Líbýu ásamt öðrum
bandarískum herskipum.
Líbýu. Það eru helst Bretar, sem
hafa beitt Líbýumenn efnahags-
þvingunum. Bretar bönnuðu vopna-
sölu til Líbýu eftir að lögreglukona
var skotin til bana úr líbýska sendi-
ráðinu í London 1984.
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands, sagði
á blaðamannafundi með Roland
Dumas, utanríkisráðherra Frakk-
lands, að stjómin í Bonn hefði ávallt
farið gætilega þegar um viðskipta-
bönn væri að ræða. Dumas sagði
að Frakkar vildu fá að vita hvaða
aðgerðir Reagan myndi leggja til
áður en þeir tækju afstöðu til þess
hvort grípa ætti til efnahagsþving-
aha.
ítalar hafa um langt skeið haft
náin samskipti við Líbýumenn og
flytja mikið inn af olíu þaðan. Bett-
ino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu,
sagði í dag að endurskoða þyrfti
samskipti þjóðanna ef sannaðist að
Líbýumenn legðu hryðjuverkamönn-
um lið.
Leopold Gratz, utanríkisráðherra
Austurríkis, sagði eftir ríkisstjómar-
fund að stefna Austurríkismanna
gagnvart Líbýu mjmdi haldast
óbreytt, en það gæti breyst á
skömmum tíma. Bent var á það að
engar sannanir lægju fyrir um aðild
Líbýumanna að árásinni á flugvöll-
inn í Vín og Fred Sinowatz, kansl-
ari, sagði að stefna stjómarinnar í
Miðausturlöndum réðist ekki af
verkum glæpamanna.
Caspar W. Weinberger, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, varaði á
mánudag við því að nota Bandaríkja-
her til hefndaraðgerða fyrir hryðju-
verk.
Afstaða bandarískra yfírvalda til
þess hvort gripið verði til hemaðar-
legra hefndaraðgerða gagnvart
Líbýumönnum er mjög óljós. Larry
Speakes, talsmaður Bandaríkja-
stjómar, segir hyggilegast að halda
Líbýumönnum milli vonar og ótta
um það til hvaða hemaðaraðgerða
verði gripið - og hvort til slíks komi.
Khadafy, leiðtogi Líbýu, hélt því
fram í dag að ísraelskar herþotur
væm um borð í bandaríska flug-
móðurskipinu Coral Sea, sem nú er
með öðmm bandarískum herskipum
við heræfingar skammt undan
Líbýu.