Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
Bamafataverslun
Til sölu bamafataverslun í verslana-
miöstöö í austurtxjrginni. Verslunin
er í fullum rekstri og meö sfvaxandi
veltu. Góöur lager — góðar vörur.
Markarflöt — einb.
190 fm vandaö einlyft hús á góöum
staö. 5 svefnherb. 56 fm bílskúr. Verö
5,8 millj. Skipti á hæö í Rvk. koma
vel til greina.
Fifusel — raðhús
Ca. 220 fm vandað raöhús ásamt
staeöi í bilhýsi. Verö 4 millj.
Mosfellssvert — einb.
215 fm mjög velstaðsett einbýli utan
þéttbýlis. Glæsilegt útsýni.
Mosfellssveit — einb.
Glæsilegt 233 fm einbýlishús ásamt
bilskúr. Húsiö er allt hið vandaöasta
m.a. með góöri sundlaug, nuddpotti,
sauna o.fl.
Kársnesbraut sérh.
140 fm 4ra herb. efri sérhæö ásamt
40 fm bilskúr. Verö 3-3,2 millj.
Furugrund — 4ra
100 fm góö ibúö á 2. hæö ásamt
stæði i bilhýsi. Verö 2,5 millj.
Vesturberg — 4ra
110 fm björt ibúö á 3. hæö. Verö
2,1-2,2 miilj.
Fiskakvísl — 6 herb.
160 fm glæsileg ibúð á efri hæö sem
ertilb. u. tróverk. Gottútsýni.
Dunhagi — 5 herb.
120 fm björt endaíbúö á 3. hæö.
Glæsilegt útsýni. Verö 2.800 þús.
Stigahlið — 5 herb.
135 fm vönduð ibúö á jaröhæö
skammt frá nýja miöbænum. Sér inng.
og hiti. Laus fljótlega. Verö 3,1 millj.
Efstihjalli — 2 íb.
4ra herb. glæsileg 110 fm íbúö ó 2.
hæð ásamt 30 fm einstakl.íb. i kj.
Glæsilegt útsýni.
Álfheimar — 3ja
90 fm glæsileg ibúö á 3. hæö. Parket
á gólfum. Verö 2,1 millj.
Teigar — 5herb.
106 fm efri hæð ásamt bílskúr (m.
gryfju). Verö 2,4 millj.
Miklabraut — 3ja
65 fm kjallara íbúö. Laus strax. Verö
1,7 millj.
V í D D I R
IWyndlist
Bragi Ásgeirsson
Á minna en einu ári hefur
Krístin Þorkelsdóttir haldið
tvær sýningar á vatnslitamyndum
hér í borg, hina fyrri í Gallerí
Langbrók svo og þá er nú stendur
yfír í Gallen' Borg.
Kristín er auglýsingahönnuður
að atvinnu en hlaut þó alla undir-
stöðumenntun sína í myndlistar-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands á árunum 1951—54. Á
þeim tíma var hún staðráðin í
því að ganga braut málarans, sem
var æskudraumur hennar, en
atvik höguðu því að hún snéri sér
alfarið að auglýsingafaginu. Það
er nú fyrst að Kristín fær tíma
til að líta upp úr erli dægranna
og grípa til pentskúfsins en það
hefur hún líka gert af þeirri at-
orku og ósérhlífni sem hún er
þekkt fyrir.
Þetta er nokkuð dæmigert um
auglýsingahönnuði af gamla skól-
anum, sem flestir voru myndlist-
armenn að upplagi en lifíbrauðið
tók svo tíma þeirra allan. Einnig
má segja að það sé albesti undir-
búningur sem til er fyrir þetta fag
og ótal önnur, að hafa lokið við
myndlistardeildamám áður en
menn innrita sig í hönnunardeild-
ir. Allt frá því að farið var að
kenna fagið í sérdeildum innan
skólans hefur þeim fækkað sem
hafa í sér listrænan metnað og
fylgjast vel með í listheiminum
a.m.k. að tiltölu. Auglýsingahönn-
unin er í það ríkum mæli orðin
að sérstöku fagi á síðari árum,
en vel gerðar auglýsingar geta
þó náttúrulega verið mikil list út
af fyrir sig en á öðru sviði en í
greinum frummyndlista ...
Kristín Þorkelsdóttir virðist
eftir öllu að dæma hafa ágæta
listræna hæfileika, sem hefur og
oft komið fram í verkefnum henn-
ar og þá einkum teikningu. Ein-
föld og stór form virðast styrkur
hennar sbr. Þjóðhátíðarmerkið
sem hún fékk fyrstu verðlaun fyrir
og margur man ábyggilega.
Kristín hugsar einnig í stórum
heildum er hún útfærir vatnslita-
myndir sínar og opinberar hér
mikla leikni og handafími en slíkt
hefur einmitt verið mikil íþrótt
meðal mjmdlistarmanna hin síðari
ár, — jaftivel að á stundum er lík-
ast sem verið sé að teikna með
vatnslitum frekar en að mála.
Þetta á einnig fullan rétt á sér í
sumum tilvikum en vill verða full
eintóna sé það gert í síbylju.
Það fer og ekki hjá því að
maður kenni á stundum hinn
snjalla hönnuð á bak við myndir
gerandans og þá einkum er hann
leitast við að ná sérstæðum áhrif-
um með leiftursnöggum pensil-
dráttum. Eðli vatnslitatækninnar
liggur í hárfínum blæbrigðum og
möguleikum á mikilli dýpt og rými
svo sem sér stað í bestu myndum
Ásgríms Jónssonar og t.d. Hol-
lendingsins Anton Mauve
(1838—1888), en sá var vel þekkt-
ur fyrir kristaltærar akvarellur
af landslagi um sína daga — var
m.a. einn af leiðbeinendum Van
Goghs.
Þessir tveir komu upp í huga
mér við skoðun sýningarinnar og
svo einnig austurlenzk viðhorf í
vinnubrögðum og stærðarhlutföll-
um. Það voru að öllu samanlögðu
myndir sígildra stærðarhlutfaila
og blæbrigðaríkra vinnubragða,
er hrifu mig mest á sýningunni
og hér tel ég vettvang listakon-
unnar öðru fremur. Vil ég einkum
nefna hér myndir svo sem Kvöld
í Álftaverum, Vatnajökull (16),
Súld í nánd (19) og Regn á Þing-
völlum Amarfell (31). Af myndum
á langveginn skal og nefna Kvöld
í Hvalfirði (9) og Fjarlægðin frá
Langá. Skarðsheiði (33).
Sýningin er mjög samstæð en
einnig nokkuð eintóna og full
margar myndir eru á veggjunum,
sem eru hengdar þannig upp að
þær draga athygli hvor frá ann-
arri eða renna saman.
Flókagata — 3ja
90 fm vönduð íbúö í kj. Sér inng. ibúö-
in hefur öll verið endurnýuö m.a. allar
innr. gluggar, gólfefni, raflagnir, þak
o.fl. Verð2,2 millj.
Nökkvavogur — 3ja
75 fm falleg risíbúö. Verö 1750 þús.
Fannborg — 105 fm
Glæsileg ibúö á 3. hæö meö 17 fm
SV—svölum. Gott útsýni.
Selás í smíðum
Höfum til sölu 2ja 89 fm og 3ja 119
fm ib. viö Næfurás. íbúðimar afhend-
ast fljótlega. Fallegt útsýni. Teikn. ó
skrifst. Hagstæö greiöslukjör.
Hraunbær — 2ja
Ca. 70 fm vönduð íb. í 5 ára húsi. Verð
1800 þúe.
Krummahólar — 2ja
72 fm góö íbúö á 2. hæö. Bflhýsi.
Skeiðarvogur — 2ja
75 fm björt íbúð í kjallara (í raðhúsi).
Verö 1600 þús.
EiGnpmiDLunin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SiMI 27711
Söluttjófi: Sverrir KrietinHon.
Þorloitur Guðmundi.on, sölum
Unnsteinn Beck hrl., sfmi 12320
Þöróllur Halldórsson, löglr.
28444
Fjöldi nýrra eigna á skrá.
NÚSEIGMIR
VELTUSUNDI 1 Q
SIMI 28444 WL
DsnM Árnsson, lögg. fssl.
Tilfinningaríkar sögnr
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
D.H. Lawrence:
Refurinn.
Þýtt hefur Garðar Baldvinsson.
Bókhlaðan 1985.
D.H. Lawrence (1885—1930) er
meðal kunnari rithöfunda Englend-
inga, um margt brautryðjandi í
sagnagerð, ekki síst fyrir skáldsög-
umar Sons and Lovers og Elskhuga
lafði Chatterleys. Fleiri mætti vissu-
lega nefna, til að mynda The Rain-
bow sem var bönnuð vegna þess
að hún þótti of klámfengin. Elsk-
hugi lafði Chatterleys var fyrst
gefin út á Englandi 1960, en áður
á meginlandi Evrópu 1928, ártölin
segja sína sögu. Ljóðabækur eftir
Lawrence voru gerðar upptækar í
pósti og hann varð fyrir ýmsum
óþægindum og jafnvel ofsóknum
vegna verka sinna heima fyrir.
Julian Meldon D’Arcy, lektor í
enskum bókmenntum við Háskóla
íslands, skrifar í inngangi Refsins:
„Án efa munu hugmyndir D.H.
Lawrence um ást og kynlíf enn um
sinn verða tilefni deilna, en dulúðin
og krafturinn í verkum hans mun
lifa til frambúðar." Það sem Julian
Meldon D’Arcy hefur m.a. um D.H.
Lawrence að segja í greinargóðum
inngangi sínum er það „að við
stöndum í meiri þakkarskuld við
hann en nokkum annan rithöfund
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^íöum Moggans!
fyrir skelegga og linnulausa baráttu
hans fyrir mikilvægi og þýðingu
mannlegra tilfinninga."
Refurinn sem kom út fyrir jólin
í þýðingu Garðars Baldvinssonar
kynnir smásagnahöfundinn Law-
rence, en tvær sagnanna, Refurinn
og Brúða höfuðsmannsins, eru mjög
langar. Styttri eru Blindi maðurinn
og Hvíti silkisokkurinn.
Hinn sérkennilegi, tilfinningaríki
heimur þessara sagna hefur að vfsu
fjarlægst nokkuð þá sagnagerð sem
við erum vön nú á tímum, en er
engu að síður magnaður í sálrænu
innsæi sínu.
í sögunum er lögð áhersla á að
lýsa hvötum manna. Ást og afbrýði
eru efst á blaði, samband og sam-
bandsleysi milli manna. Lawrence
kafar djúpt í vitund mannsins,
bersýni hans getur orðið allt að
því óþægileg á köflum því að við
þekkjum aftur leyndar hugsanir
okkar við lestur sagnanna.
En sögur hans eru um margt
dæmigerðar fyrir enskan hug-
myndaheim, enskt umhverfí. Vitan-
lega þoldu menn illa að sjá sjálfa
sig í spegli skáldsins, þótti of langt
gengið í heimi þar sem skinhelgi
réði ríkjum og menn áttu fyrst og
fremst að bæla sig til að sýnast
nógu siðmenntaðir. Gegn þessari
lífsskoðun snerist Lawrence, af-
hjúpaði sjálfan sig og aðra. í Sons
and Lovers er hann til dæmis að
lýsa sjálfum sér og sínum nánustu,
átökum milli hins siðfágaða og
dýrslega og draga fram rótgróinn
stéttamismun.
Refurinn og Blindi maðurinn eru
vægðarlausar kannanir á frumskógi
kendanna, einkennilega nærgöng-
ular sögur. Hvfti silkisokkurinn lýsir
vandamálum sem koma upp í hjóna-
bandi ungs fólks sem ekki er farið
að átta sig enn á því hvað í sambúð-
inni felst, hið fyíra frelsi er orðið
að engu. í þessari sögu er í senn
dramatík og kímni. Léttast er yfir
Brúðu höfuðsmannsins sem er í
D.H. Lawrence
rauninni fyndin saga þótt undir-
tónninn sé háalvarlegur eins og
jafnan hjá Lawrence.
Þannig gefa þessar fjórar sögur
góða og fjölbreytilega mynd af
skáldinu. Þær síðamefndu höfða
sterkast til nútímalesenda vegna
þess að þær eru ekki eins tilfínn-
ingasamar og hinar tvær.
Garðar Baldvinsson gæti eflaust
þýtt betur ef hann vandaði sig. Það
eru ýmsir góðir sprettir í þýðingu
Garðars, orðaforða skortir hann til
dæmis ekki. En óíslenskuleg setn-
ingaskipun og enskuskotið orðalag
lýta víða. Hugsanlegt er að þýðand-
inn hafi unnið verk sitt í flýti, en
það er engin afsökun.
Það er vissulega ekki heiglum
hent að þýða D.H. Lawrence, texti
hans er afar vandasamur. Forlaginu
ber skylda til að bera á borð góða
þýðingu þegar um slíkan úrvals-
höfund er að ræða.
Siglingamálastof nun:
Skipaskráin
er komin út
KOMIN er út hjá Siglingamála-
stofnun ríkisins „Skrá yfir ís-
lenzk skip,“ miðað við 1. janúar
1986. í skránni er að finna ýmsan
fróðleik um íslenzkan skipastól,
svo sem nðfn skipanna, skipa-
skrárnúmer, heimahöfn, eigend-
ur, smíðastað, gerð skips, smíða
ár og aldur.
Þá eru einnig í skipaskránni
upplýsingar um breytingar á ís-
lenzkum skipastól á arinu 1985,
skip í smiðum og fleira. í formála
skipaskrár segir siglingamálastjóri,
Magnús Jóhannesson, að nokkur
breyting hafí orðið á færslu skipa-
skrárinnar og seja megi að hún sé
nú að fullu tövluvædd. Skráin sé
varðveitt og færð jafnóðum í tölvu
Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavík-
urborgar um útstöð hjá Siglinga-
málastofnun. Þessi breyting ætti
meðal annars að geta bætt þjónustu
stofnunarinnar við þá aðila, sem
þurfa á að halda nýjum upplýsing-
um úr skipaskrá um leið og þær
koma fram.