Morgunblaðið - 07.02.1986, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
HOLLUSTUBYLTINGIN / Jón Óttar Ragnarsson
sem umbreytast í meltingarvegin-
um í eiturefni sem geta verkað
sem krabbameinsvaldar.
Næring og krabbamein
Um það bil fjórðungur allra
íslendinga ferst úr krabbameinum
að jafnaði. Eru þau á eftir hjarta-
sjúkdómum helsta dánarorsök Is-
lendinga.
Um það bil 90% alls krabba-
meins hefjast í frumum í slím-
himnum. Eru krabbamein í
blöðruhálskirtli, bijóstum, lung-
um, maga og ristli algengust.
Eins og á mynd A má sjá er
magakrabbamein á undanhaldi,
en krabbamein í bijóstum (konur),
blöðruhálskirtli (karlar) og lung-
um og ristli í sókn.
Hvað er krabbamein?
Frumorsök alls krabbameins er
talin vera sköddun á kjamasýrum
(erfðaefni) einnar frumu sem
breytir henni varanlega í krabba-
meinsfrumu.
Sköddunin raskar stýrikerfi
frumunnar með þeimn afleiðing-
um að hún tekur að fjölga sér
meira eða minna stjómlaust og
æxli myndast.
Fyrst er æxlið oftast góðkynja.
Það vex að vísu jafnt og þétt og
þrýstir á aðra vefí, en skaðar ekki
önnur líffæri umfram það.
Hættan margfaldast hins vegar
um leið og æxlið verður illkynja,
þ.e. gefur frá sér dótturfrumur
sem dreifast út um líkamann og
m}mda ný æxli.
Er hægt að fyrir-
byggja krabbamein?
Rannsóknir benda til að í fram-
tíðinni megi fyrirbyggja 85—90%
alls krabbameins með bættum
lífsvenjum, einkum með að bæta
mataræði og hætta að reykja.
Stærsti áhættuþátturinn er lé-
legt mataræði sem er talið eiga
sök á um 30-40% alls krabba-
meins í körlum og um 60% alls
krabbameins í konum (sjá mynd
B).
Næst mikilvægasti þátturinn
er reykingar, sem eiga sök á um
25% krabbameins í körlum og 10%
í konum. Aðrir þættir skipta litlu
máli nema e.t.v. streita.
Mataræði og
krabbamein
Enda þótt margt sé enn á huldu
um tengsl mataræðis og krabba-
meins er ljóst að lélegt fæði ýtir
undir krabbamein á þijá mismun-
andi vegu.
í fyrsta lagi: Lélegt fæði er
oftast auðugt að eiturefnum,
þ.á m. krabbameinsvöldum úr
reyktum, söltuðum, brösuðum,
djúpsteiktum og menguðum mat.
I öðru lagi: Lélegt fæði er yfír-
leitt feitt og getur ýtt undir
krabbamein m.a. vegna eiturefna,
svonefndra „sindurefna", sem
myndast í fítu við ofhitun.
I þriðja lagi: Lélegt fæði er
fátækt af bætiefnum (vítamínum
og steinefnum) og treíjaefnum
sem gætu verkað sem kröftug
vöm gegn krabbameini.
Eiturefni og
krabbamein
Frumkveikja flestra krabba-
meina er talin vera sérstök eitur-
efni, þ.e. krabbameinsvaldar í
fæðu, sígarettureyk og loftmeng-
un sem skaða kjamasýrur frum-
anna.
Þekktastir em svonefnd NNS,
FAK og ýmis sindurefni (sjá töflu)
sem eru í sígarettureyk svo og í
reyktum, söltuðum, brösuðum og
djúpsteiktum mat.
Aðrir flokkar krabbameins-
valda eru m.a. aflatoxín í mygluð-
um jarðhnetum og sojabaunum
og fjöldamörg geislavirk efni (t.d.
eftir kjamorkutilraunir).
Fita og krabbamein
Rannsóknir sýna að náin fýlgni
er á milli fituneyslu og ýmissa
krabbameina, þ.á m. í bijóstum
og legbol (konur), blöðruhálskirtli
(karlar) og ristli.
í íyrsta lagi er fíta, sérstaklega
ofhituð, helsta uppspretta sindur-
efna sem eru svo virk að þau ráð-
ast á hvaðeina á vegi þeirra,
þ.á m. kjamasýrur.
í öðru lagi myndar kólesterol í
líkamanum svokallaðar gallsýrur,
Bætiefni og
krabbamein
Rannsóknir sýna að skortur á
vissum bætiefnum í fæði getur
stuðlað að krabbameini í lungum,
maga, vélinda, þvagblöðru o.fl.
Oll bætiefni sem eyða sindur-
efnum (kölluð andoxarar) hafa
reynst krabbameinsvöm: þ.á m.
karotenoíð (mynda A-vítamín),
A+, C- og E-vítamín og selen.
Þá hafa A-vítamín og karoteno-
íð (undanfarar A-vítamíns) bein
áhrif á heilbrigði slímhúða og
því eðlilegt að þau hafí öflug
vamaráhrif.
Þá sýna rannsóknir að a.m.k.
tvö vítamín: C og E-vítamín koma
í veg fyrir myndun NNS (sjá töflu)
og ef til vill fleiri tegunda krabba-
meinsvalda.
Nýlegar rannsóknir sýna einnig
að sum steinefni, þ.á m. selen
(vöm gegn sindurefnum) og kalk
(e.t.v. vöm gegn ristilkrabba)
hafa vemdandi áhrif.
Er líklegast að kalkið bindi
hinar umbreyttu gallsýmr og
komi í veg fyrir að þær skaði slím-
húð ristilsins og stuðli þannig að
myndun krabbameins.
Aðrir þættir
í mataræði
Rannsóknir sýna að trefjaefni
geta verkað sem vöm gegn ristil-
krabbameini, sennilega þó frekar
TIÐNI KRABBAMEINA
ÁRLEGUR FJÖLDI NÝRRA
ÁR
Mynd A
Krabbameins- -valdur -vörn
N-Nítrososambönd (NNS) og A-vítamín
Fjölhringa kolvatnsefni (FAK): Karotenoíð
í reyktum/söltuðum mat og reyk E-vítamín
Sindurefni í fitu C-vitamin
Umbreyttar gallsýrur Selen
Aflatoxín Kalk
Geislavirk efni Trefjaefni
spurt og svarað
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
SKATTAMÁL
HÉR FARA á eftir spurningar, sem lesendur Morgun-
blaðsins hafa beint til þáttarins, Spurt og svarað, um
skattamál, og svörin við þeim.
Bj örgrinarlaun
Anna Marta Valtýsdóttir spyr:
Hvar á að færa björgunarlaun
á skattskýrslu og hvemig em þau
skattlögð?
Svar:
Björgunarlaun skal færa í lið T
6. Heimilt er skattstjóra, skv.
umsókn gjaldanda, að skipta á
fleiri ár skattlagningu björgunar-
launa sem áhafnir skipa, annarra
en björgunarskipa, hljóta.
Tekjur barna
Rúnar Júlíusson spyr:
Hvemig er hagkvæmast að
gefa tekjur bama upp til skatts?
Ef bam hefur t.d. 35 þúsund krón-
ur í tekjur, hvort er þá hag-
kvæmara að senda sérstaka
skýrslu fýrir bamið eða færa
tekjur þess á skýrslu foreldra?
Svar:
Launatelcjur bams yngra en 16
ára á tekjuárinu skal gefa upp á
skattframtali bams og reiknast
tekjuskattur 5% af þeim tekjum.
Aðrar tekjur er bam hefur, s.s.
eignatelg'ur, skal telja fram með
tekjum forráðanda. Hefur for-
ráðamaður ekkert val um fram-
talsgerðina.
Sambýlísfólk —
valkostir
Þorbjörg Jónsdóttir spyr:
a) Hvort er hagkvæmara fýrir fólk
sem er í sambúð að gefa upp
tekjur sameiginlega eins og hjón
eða sitt í hvom lagi? Getur fólk
sem er í sambúð ekki valið um
hvom kostinn það tekur?
Ef fólk í sambúð skilar
skattaskýrslum hvort í sínu lagi,
skiptast þá skuldir vegna íbúða-
kaupa og frádráttarbærir vextir
jafnt á milli þeirra þó annar
aðilinn sé tekjuhærri?
b) Hvemig er réttindum til frá-
dráttar vegna náms eftir tvít-
ugt háttað?
Svar:
a) Það getur verið hagstæð-
ara fyrir karl og konu, sem
búa saman í óvígðri sambúð
og uppfylla skilyrði lag-
anna um samsköttun, að
velja þann kostinn að telja
fram og vera skattlögð sem
hjón ef annað þeirra er með
það lágan tekjuskattstofn
að reiknaður tekjuskattur
verður lægri en persónuaf-
sláttur og um er að ræða
óráðstafaðan persónuaf-
slátt eftir að hluti hans
hefur gengið til greiðslu á
álögðum eignarskatti,
sjúkratryggingagjaldi og
útsvari. Við samsköttun
millifærist óráðstafaður
persónuafsláttur til hins
makans og dregst frá
reiknuðum skatti hans. Enn
fremur nýtur tekjuhærri
sambýlisaðilinn hækkunar
í 1. skattþrepi hafí tekju-
lægri aðilinn lægri tekju-
skattsstofn en 272.000 kr.,
sbr. svar 2) til Olgu Marin-
ósdóttur 1. febr. sl. Hins
vegar fellur niður við sams-
köttun heimild til að nota
lágmarksfrádrátt sem er
47.600 kr. í stað 10% frá-
dráttar.
Við samsköttun er eignar-
skattsstofni skipt jafnt milli
aðila og nýtist þá hvoru um
sig lágmark eignarskattsá-
lagningar.
b) Heimilt er að draga frá tekjum
á næstu fímm árum eftir að
námi lýkur fjárhæð er svarar
til heildarupphæðar þess hluta
námsfrádráttar sem honum
eða maka hans (eða foreldri)
nýttist ekki til lækkunar tekju-
skatti frá og með því ári er
námsmaðurinn varð 20 ára.
Fylla skal út eyðublaðið „Um-
sókn um ákvörðun eftirstöðva
námsfrádráttar" E3.07 og
senda með fyrsta framtali sínu
eftir að námi lýkur.
Tekjur má ekki færa
milli hjóna
Sveinn Eiríksson spyr:
Þegar þannig er að annar
makinn aflar heimilinu einn tekna
en hinn (í þessu tilfelli konan) er
sjúklingur, sem þó hefur ekki
örorkubætur, er þá hægt að færa
hluta af tekjum mannsins yfír á
konuna og ef svo er, hversu mikið?
Svar:
Nei. Það má ekki færa fjár-
hæðir á milli framtala (bls. 2 og
3) hjá hjónum. Við útreikning
tekjuskatts reiknast í þessu tilviki
20% af 408.000 kr. tekjuskatts-
stofni, 31% af næstu 136.000
kr., en 44% af afgangi.
Flutningur tekna
milli hjóna
Þorvaldur spyr:
Ég las það einhversstaðar að
hægt væri að flytja 136 þús. kr.
á milli hjóna. Er þetta rétt, og
við hvaða tekjumörk miðast þetta
hjá þeim makanum sem lægri
hefur tekjumar? Hvemig á að
gera grein fyrir þessu á skatta-
skýrslu?
Svar:
Vísað er til svars 2) til Olgu
Marinósdóttur er birtist 1. febrúar
sl. og til Sveins Eiríkssonar er
birtist 7. febrúar.