Morgunblaðið - 07.02.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
21
Neydd til að lenda
ísraelar neyddu fyrr í vikunni líbýska flugvél til þess að lenda á flugvelli í norðurhluta ísraels.
Flugvélin var á leið frá Líbýu til Sýrlands, er ísraelskar herþotur birtust og skipuðu henni að
lenda. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum ísraela var sú, að þeir töldu, að vélin væri með leiðtoga
Paiestinumanna um borð, er bæru ábyrgð á árásum hryðjuverkamanna á ýmsa staði jafnt í ísrael
sem í öðrum löndum. Svo reyndist þó ekki vera. Mynd þessi var tekin á herflugvelli í ísrael, áður
en áhöfn vélarinnar fékk að halda áfram ferðinni til Sýrlands.
Páfa vel tekið
í Goahéraði
Pariaji. Indlandi, 6. febrúar. AP.
PALL PÁFI II hélt ræðu á samkomu um 200 þúsund manna í Goa-
fylki á Indlandi þar sem honum var vel tekið. í ræðu sinni sagði
Páfi m.a.: „Þó að kirkjan sé ein, þá er óeining meðal kristinna
manna og það verður sífellt þýðingarmeira að koma á einingu meðal
þeirra sem játa trú á Krist.
Klofningurinn innan kirkjunnar
er hneyksli og í hróplegu ósamræmi
við vilja Krists. Óeining kristinna
manna er alvarleg hindrun gegn
boðun fagnaðarerindisins um allan
heirn," sagði hann. Páfí ók í opnum
bíl gegn um mannfjöldan sem fagn-
aði honum ákaft.
Kennedy hrósar
Andrei Sakharov
Líbanon:
„Skylda mín að sitja
út þetta kjörtímabil“
— segir Gemayel forseti
Beirút, Líbanon, 6. febrúar. AP.
AMIN Gemayel, forseti Líbanon,
Iýsti því yfir í dag, að hann
hyggðist ekki segja af sér þrátt
fyrir aukinn þrýsting andstæð-
inga sinna, sem njóta stuðnings
Sýrlendinga og vilja koma hon-
um úr embætti. „Hér er ekki um
persónulegan metnað að ræða,
heldur er það skylda min að sitja
í embætti út kjörtimabilið," sagði
Gemayel.
Forsetakosningar í Libanon
verða í september 1988 en vinstri-
sinnar hafa ásamt andstæðingum
Gemayels lagt að honum að segja
af sér. Baráttan gegn Gemayel
hófst fyrir alvöru eftir að sveitum
hans og Elie Hobeika hershöfðingja
lenti saman í 12 klukkustunda
löngum bardaga. Bardagi þessi
leiddi óbeint af sér friðarsamning-
ana sem undirritaðir voru fyrir til-
stuðlan Sýrlendinga í Damaskus
milli Hobeika, Walid Jumblatt og
Nabih Berri.
Yfírlýsing Gemayels er hin fyrsta
sem hann lætur frá sér fara um
hina auknu pólitísku spennu í Líb-
anon síðan aðalkeppinautur hans,
Hobeika, undirritaði friðarsamning-
ana hinn 28. desember sl.
Moskvu, 5. febrúar. AP.
EDWARD Kennedy öldunga-
deildarþingmaður hrósaði í dag
andófsmanninum og eðlisfræð-
ingnum Andrei Sakharov fyrir
þátt hans sem vísindamanns í að
hindra allsherjareyðileggingu af
völdum kjarnorkustyrjaldar.
Kom þetta fram í ræðu, sem
Kennedy flutti í Moskvu fyrir
hópi manna úr sovézku vísinda-
akademíunni.
Kennedy er í þriggja daga heim-
sókn í Moskvu í boði æðsta ráðsins.
í ræðu sinni í dag komst hann svo
að orði, að skoðanir Sovétmanna
og Bandaríkjamanna um, hvemig
binda skyldi enda á vígbúnaðar-
kapphlaupið, væru mismunandi, en
samt kynni samkomulag á þessu
sviði að vera skammt undan.
Kennedy kvaðst vera ánægður
með, að nóbelsverðlaunin í eðlis-
fræði 1985 skyldu hafa verið veitt
Alþjóðasamtökum lækna gegn
kjamorkuvá, en tveir læknar, annar
fiá Sovétríkjunum en hinn frá
Bandaríkjunum, veittu verðlaunun-
um móttöku.
„En ég votta einnig öðruir. fram-
úrskarandi nóbelsverðlaunahafa,
dr. Andrei Sakharov, virðingu
mína,“ sagði Kennedy, sem bætti
síðan við: „hið ómetanlega gildi vís-
indanna liggur ekki sízt í því að
geta sagt sannleikann þeim, sem
með valdið fara.“
Indland:
Veður
víða um heim
Lœgst Hœst
Akureyri +2 hálfskýjað
Amsterdam +7 +3 heiðskírt
Aþena 5 9 skýjað
Barcelona 8 léttskýjað
Berlín +10 +3 skýjað
Brússel vantar
Chicago 13 18 skýjað
Dublfn +2 2 heiðskfrt
Feneyjar 2 littskýjað
Frankfurt +3 0 snjókoma
Genf +3 1 skýjað
Helsinkl +16 +8 skýjað
Hong Kong 8 13 skýjað
Jerúsalem vantar
Kaupmannah. +9 +1 skýjað
Las Palmas 7 vantar
Llssabon 8 12 rigning
London +1 0 snjókoma
Los Angeles 12 19 heiðskfrt
Lúxemborg +3 snjókoma
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Miami 22 25 skýjað
Montreal +11 +3 snjókoma
Moskva +22 +11 heiðskirt
NewYork 1 7 snjókoma
Osló +14 +6 heiðskírt
Paris vantar
Peking +8 +0 heiðskírt
Reykjavik 3 skúrir
Rió de Janeiro i 19 28 skýjað
Rómaborg 2 10 skýjað
Stokkhólmur +12 +3 heiðsklrt
Sydney 21 26 skýjað
Tókýó 0 7 heiðskírt
Vfnarborg +7 +1 snjókoma
Þórshöfn 4 léttskýjað
Mótmæla benzínverði
með allsherjarverkfalli
Delhl, 6. febrúar. AP.
STJÓRNARANDSTAÐAN í Ind-
landi ætlar að láta til skarar
skríða og efna til allsheijarverk-
J.C. Hempel
látinn
JÖRG Christian Hempel, stofn-
andi Hempel-verksniiðjanna í
Danmörku, lézt í síðustu viku.
Hann var 91 árs að aldri.
Hempel, sem var fæddur á Fjóni,
hóf ungur atvinnurekstur í Oðinsvé-
um og síðan í Þýzkalandi. Þegar
árið 1915, er hann var aðeins 21
árs gamall, fékk hann einkaleyfí á
framleiðslu skipamálningar þeirrar,
sem síðan var kennd við hann.
Hempel stofnaði síðan sitt eigið
fyrirtæki, sem hann stjómaði í nær
70 ár. Hélt hann uppi geysi um-
fangsmiklum rekstri og kom á fót
27 málningarverksmiðjum víða um
heim.
Árið 1948 kom hann á fót
Hempel-stofnuninni og er hún nú
aðaleigandi að hlutabréfunum í
fyrirtækjum hans.
falls í mótmælaskyni við verð-
hækkanir á olíuvörum.
Ríkisstjómin lækkaði verð á gasi,
steinolíu, dísilolíu og benzíni í gær.
Að sögn V.P. Singh, fjármálaráð-
herra, var sú ákvörðun tekin í ljósi
mikillar andstöðu almennings við
hækkanimar.
Verðlækkunin í gær var svo lítil
að verð á olíuvörum er eftir sem
áður miklu hærra en það var fyrir
hækkunina 1. febrúar sl. Hefur
stjómarandstaðan því í engu hvikað
frá því að blása til allsheijarverk-
falls í landinu nk. mánudag.
Gas hækkaði í verði um 20,3%
1. febrúar, en í gær voru 8,1 pró-
sentustig af hækkuninni afturkall-
að. Benzín var hækkað um 7,7%
en 1,6 stig afturkallað í gær.
Aðmíráll
myrtur
í Madríd
Madríd, 6. febrúar. AP.
TALIÐ ER AÐ hryðjuverkamenn
úr röðum baska hafi verið að
verki þegar aðmíráll í spænska
sjóhernum og bílstjóri hans voru
myrtir í Madríd í morgun.
Aðmírállinn, Cristobal Colon Y
Carvajal, var á leið til vinnu sinnar
er þrír menn vörpuðu skyndilega
handsprengju og hófu samtímis
vélbyssuskothríð á bifreið hans.
Aðmírállinn, sem er kominn í beinan
karllegg frá Kristófer Kólumbus,
beið bana í árásinni. Hann var 61
árs og leitaði sér nýlega lækninga
í bandaríkjunum vegna krabba-
mejns.
í árásinni særðist flotaforinginn
Antonio Rodriguez Jouve-Nunez og
er hann í lífshættu. Tveimur stund-
um eftir árásina fannst bifreið
hryðjuverkamannanna í miðborg
Madrídar, en lögreglan var ekki
komin á spor ræningjanna í kvöld.
Sjónvarvottar sögðu eina konu og
tvo karlmenn hafa framið ódæðið.
iregna flutninga. Opið til kl. 16 laugardag.
Við rýmum
Peysur á 450 kr.
Uliarpeysurá 850 kr.
Gallabuxur á 790 kr.
Vinnuskyrtur á 395 kr.
og margt á óvenju lágu verði.
Fólk brosti af prísunum
áður nú skellihlær það.
Sendum i póstkröfu — s. 29190.
ERLENT
Grandagaröi og ísafirði