Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 7. PEBRÚAR1986
• Bjarni Friftriksson í kröppum dansi viö einn andstæðinga sinna.
Afmælismót Júdósambandsins:
Morgunblaöiö/Bjarni
Bjarni vann opna flokkinn
— Dalvíkingar stóðu sig vel
SEINNI hlutl Afmælismóts Júdó-
sambands íslands fór fram í
íþróttahúsi Kennaraháskólans
laugardaginn 1. febrúar og var
þá keppt í opnum flokkum kvenna
og karla og í þyngdarflokkum
karla yngri en 21 árs. Keppendur
voru 40 frá 7 félögum. Nú voru í
fyrsta sinn keppendur frá UMF
Svarfdæla, Dalvík, og er þaö
gleðiefni aö sjá ný andlit á dýnun-
um. Úrslit einstakra flokka urðu
eftirfarandi:
Opinn flokkur kvenna:
Auður Helgadóttir Dalvík
Agnes Matthíasdóttir Dalvík
Lilja Sigurðardóttir Gerplu
Opinn flokkur karla: Bjarni Ásg. Friðriksson Ármanni
Magnús Hauksson UMFK
Gísli Wiium Ármanni
Arnar Marteinsson Ármanni
Karlar yngri en 21 árs: - 55 kg flokkur Helgi Júlíusson Ármanni
Höskuldur Einarsson JR
Ríkarður Rúnarsson Gerplu
Júlíus Sigurðsson UMFG
- 65 kg flokkur Eiríkur Ingi Kristinsson Ármanni
Arnar Harðarson ÍBA
Þór Kjartansson Ármanni
Magnús Kristinsson Ármanni
- 71 kg flokkur
Karel Halldórsson Ármanni
Hjálmar Hallgrímsson UMFG
Jón Helgi Egilsson Gerplu
Baldvin Þórisson Ármanni
- 78 kg flokkur
Örn Sveinsson Dalvík
Júlíus Júlíusson Dalvík
RúnarÁrnason UMFG
- 86 kg flokkur
RögnvaldurGuðmundss. Gerplu
Páll M. Jónsson Ármanni
Sovétmenn til Mexíkó
LANDSLIÐ Sovétríkjanna í knatt-
spyrnu kom á miövikudaginn til
Mexíkó þar sem liðiö ætlar aö
leika viö heimamenn og Austur-
Þjóðverja en leikir þessir eru liður
í undirbúningi liðanna fyrir
heimsmeistarakeppnina sem
f ram f er í Mexíkó í júnf.
Leikurinn vð Mexíkó verður ekki
fyrr en eftir hálfan mánuð og því
greinilegt að Sovótmenn leggja
mikið kapp á að æfa við þær
aðstæður sem leikið verður við í
heimsmeistarakeppninni.
Þjálfari Sovétmanna, Edoard
Maloffev, sagði við komuna til
Mexíkó að hann teldi allar fjórar
þjóðirnar í sínum riðli, Frakkland,
Kanada og Ungverjaland, ættu
jafna möguleika á sigri í riðlinum.
Umtalaður
fótur
Annar fóturinn á Þorgils Óttarl
Mathiesen, sá hægri, er umtal-
aðasti fótur á íslandi um þessar
mundir. Þorgils Óttar slasaðist
sem kunnugt er f leik með
landsliðinu f Baltic-kepninni f
Danmörku, og sfðan hafa borist
stöðugar fregnir af ástandi
meiðslanna. Undanfarna viku
hefur hann gengið við hækjur
og einnig haft fótinn f spelkun-
um sem sjást hér á myndinni.
í dag klukkan fimm er svo að
vænta nýrra tíðinda; þá verður
hækjunum kastað og látið reyna
á það hvort fóturinn þolir átök —
eða hvort hann bólgnar upp að
nýju. Um helgina ræðst það síö-
an hvort Þorgils Óttar getur verið
með landsliðinu í heimsmeistara-
keppninni.
LEIKA Ragnar Olafsson og Sig-
urður Pétursson golf f Svfþjóð í
sumar? Svar við þeirri spurningu
fæst Ifklegast um aðra helgi en
þá kemur liðsstjóri sænsku at-
vinnumannanna hingað til lands
f tengslum við golfþingið og þá
munu línurnar skýrast varðandi
þá félaga.
Þeir Ragnar og Sigurður hafa
unnið að því nú í nokkurn tíma að
fá einhvern bakhjarl til að styðja
við bakið á sér þannig að þeir
geti einbeitt sér að því að leika
golf. Ef það tekst þá eru allar líkur
á því að þeir leiki í Svíþjóð í sumar.
í kvöld
i
EINN leikur verður í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í kvöld. Njarð-
vfkingar taka á móti Valsmönnum
og hefst viðureign þeirra klukkan
20. Búast má við hörkuleik eins
og venja er þegar þessi félög
eigast við. Njarðvíkingar eru með
forystu f deildinni en Valsmenn
eru nokkumveginn tryggir að
komast f lokakeppnina sem verð-
ur á milll fjögurra efstu liða deild-
arinnar.
„Það væri óneitanlega gaman
ef að þessu yrði," sagði Sigurður
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann bætti því við að jafnvel þó
svo þeir stæðu sig ekkert sérlega
vel þá fengju þeir mikla reynslu
af þessu og það væri mikilvægt.
„En við verðum að standa okkur
vel ef við eigum að eiga einhverja
möguleika á að lifa af þessu, en
það er draumurinn," sagði Sigurð-
ur.
Þeir Sigurður og Ragnar gerðu
tilraun til að verða atvinnumenn í
íþrótt sinni síðastliðið sumar en
það mistókst að þessu sinni þó
litlu munaði, sérstaklega hjá Sig-
urði. Þeir eru báðir í Golfklúbbi
Reykjavíkur og hafa verið meðal
okkar bestu kylfinga í nokkur ár.
Sigurður var ósigrandi síöastliðið
sumar og varð meðal annars ís-
landsmeistari með fáheyrðum yfir-
burðum.
Ekki er að efast um að ef af
þessu æfintýri þeirra fólaga verður
þá væri það mikil lyftistöng fyrir
þá sem kylfinga. Þeir fengju meiri
athygli á erlendri grund og ef menn
ætla sér að lifa af golfinu þá er
nauðsynlegt að hafa geysilega
reynslu og auðvitað þurfa menn
að leika vel.
Morgunblaðifi/Bjarni
# „Hvernig er hægt að mata hana þannig að maður skori alltaf,“ gæti Sigurður Gunnarsson landsliðsmað-
ur verið að hugsa þegar þessi mynd var tekin f gær. Brynjar Kvaran er þá væntanlega að velta því fyrir
sér hvernig hann geti komist að því hvernig hann eigi að verja alltaf.
Landsliðið á tölvunámskeið
því væri þetta námskeið kærkom-
ið.
Það er fleira á dagskránni hjá
íslenska landsliðinu og HSÍ því nú
er verið að vinna í því að fá leyfi
hjá öllum hópnum frá vinnu þannig
að þeir geti gefið sig alla í undir-
búninginn. HSÍ hefur ritað vinnu-
veitendum þeirra bréf þar sem
farið er fram á að fyrirtækin veiti
þeim stuðning með því að gefa
þeim frí frá störfum fram yfir
heimsmeistarakeppnina.
Á sunnudaginn leika A- og
B-landsliðin í Keflavík. Leikurinn
hefst klukkan 20 og er enn einn
þátturinn i undirbúningi liðsinsfyrir
lokaslaginn í Sviss en nú styttist
óðum í stóru stundina.
ÍSLENSKA landsliðið f handknatt-
leik karla hefur í nógu að snúast
þessa dagana. Tvær æfingar á
hverjum degi og þess á milli er
hlaupið f vinnuna. „Erlendu leik-
mennirnir" sem eru f liðinu byrj-
uðu í gær á tölvunámskeiði sem
verður nokkra daga og stendur
það allan daginn nema hvað leik-
menn fá frf til að fara á æfingar.
Þeir leikmenn sem leika hér
heima ætla einnig að sækja þessi
námskeið.
Handknattleikssambandið
skipulagði þetta námskeið ásamt
Stjórnunarfélaginu sem sér um
það og þegar Morgunblaðið leit
við á námskeiðinu í gær var gott
hijóð í strákunum.
„Þetta er alveg eins og í skóla.
Maður er kominn með stundaskrá
og allt. Mest er þetta þó leikfimi,"
sagði Atli Hilmarsson niðursokkinn
í tölvuna. Hann og Sigurður Gunn-
arsson sögðust lítið hafa átt við
tölvur áður en þeim líkaði þetta
vel. Það væri nauðsynlegt að
kunna eitthvað smávegis á tölvur.
Bjarni Guðmundsson starfar við
tölvur í Þýskalandi en hann sagðist
ekki vera vanur einkatölvum og
Leika Ragnar
og Sigurður
í Svíþjóð?