Morgunblaðið - 05.04.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.04.1986, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 74. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 5. APRIL1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Danmörk: Fólk varað við ítölskum víntegundum Tréspíritus finnst 1 innfluttum Vermouth Kaupmannahöfn, AP. DANSKIR víninnflytjendur hafa fundið tréspíritus i ítölsku Vermouth-víni og af þeim sökum hefur danska heilbrigðismála- ráðuneytið sent út tilkynningar í útvarpi og sjónvarpi þar sem fólk er varað við þvi að drekka ítölsk vin af öllum tegundum. Á Ítalíu hafa nokkrir menn látist af því að drekka eitruð vin. Italski Vermouth-inn var fluttur til Danmerkur í tankskipum og átti að setjast á flöskur þar en sem betur fer fannst tréspíritusinn áður enafþvívarð. Danska heilbrigðismálaráðuneyt- ið brást við með því að hvetja fólk til að drekka ekki ítölsk vín, hverrar tegundar sem væri og bannaði jafn- framt sölu þeirra. Landamæraverðir í Sviss lögðu á miðvikudag hald á 40.000 lítra af Sprengingin í TWA-þotunni: Grunaða kon- an þekkt fyr- ir hryðjuverk, segja ítölsk yfirvöld Aþenu. AP. TALSMAÐUR TWA-flugfélags- ins sagði í dag, að líbönsk kona, May Elias Mansur, sem kom flug- leiðis til Aþenu frá Kaíró á mið- vikudag, væri grunuð um að vera höfuðpaurinn að baki sprenging- unni í farþegaþotu félagsins, þar sem fjórir Bandarikjamenn týndu lífi. ítöisk yfirvöld segjast hafa stað- festingu fyrir því að konan sé þekktur hiyðjuverkamaður. Henni er lýst sem konu um þrítugt, sem sé aðeins hölt. Talsmaður TWA sagði í dag, að það færi ekki á milli mála, að sprengjunni hefði verið komið fyrir undir eða nærri sæti 10-F, en þar hefði líbanska konan setið á leiðinni til Aþenu frá Kaíró. Fréttastofnun í borginni Tripoli í Norður-Líbanon birti í gær yfírlýs- ingu, sem sögð var undirrituð af May Elias Mansur. Þar var því harðneitað að hún væri á nokkum hátt viðriðin sprenginguna og sagt, að hún myndi „lögsækja hvem þann, sem bæri á hana rangar sakir". ítölsku rauðvíni, sem reyndist inni- halda tréspíritus en ekki hefur verið skýrt frá um hvaða víntegund var aðræða. Tréspíritus getur valdið blindu, dái og dauða og ljóst er að sumir ítalskir vínkaupmenn hafa notað hann til að auka áfengismagnið f víninu. í síðasta mánuði létust 15 menn á Norður-ftalíu eftir að hafa drukkið þessa ólyfjan og um 50 manns eru á sjúkrahúsi. Egon Susset, næringarsérfræð- ingur og ráðgjafí Kristilega demó- krataflokksins í Vestur-Þýskalandi, hvatti til þess í gær í viðtali í Köln- arblaðinu Express, að sala ítalskra vína yrði bönnuð þar í landi þar til ljóst væri hvaða tegundir væri um aðræða. Heilbrigðismálaráðuneytið í Bonn bætti í gær flórum ítölskum víntegundum við listann yfír eitmðu vínin. Voru þau þessi: 1984 Barbera D’Asti Doc Pippione; Vino Friz- zantino Gassifícate; Weisser Tafel- wein og Vino Da Tavola Bianco. Waldheim ber af sér sakir AP/Sfmamynd KURT Waldheim, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sem nú sækist eftir forsetaembættinu i Austurríki, hefur verið sakaður um stríðsglæpi í síðari heimsstyijöldinni er hann gegndi her- þjónustu á Balkanskaga. I gær fór ísrael form- lega fram á það við Sameinuðu þjóðirnar að fá aðgang að skýrslu Stríðsglæpanefndar samtak- anna um Waldheim. Waldheim hélt blaðamanna- fund í gær i austurrísku borginni Linz, þar sem hann vísaði ásökunum um að hann hefði verið nasisti á bug og sagðist hafa verið fórnarlamb striðsins eins og svo margir aðrir. Myndin sýnir hann á blaðamannafundinum. Honum til vinstri handar situr Josef Ratzenboeck, sem er fylkis- sljóri í þessum hluta Austurrikis. Sjá ennfremur „Er sjálfur fórnarlamb ...“ á bls. 20. Gjaldeyrismarkaðir lokaðir í Evrópu í gær: Gengislækkun yfirvofandi í Frakklandi og á Ítalíu Briissel. AP. ^ Briissel, AP. VIÐSKIPTI með átta evrópska gjaldmiðla féllu næstum niður í gær, eftir að tilkynnt hafði verið, að fjármálaráðherrar aðildar- rikja Evrópubandalagsins (EB) myndu halda fund um helgina og semja um nýja samræmingu á gjaldmiðlum þeirra innbyrðis. Fundur þessi verður haldinn að beiðni Frakka og er talinn undan- fari að minnsta kosti 5% gengis- fellingar franska frankans gagn- vart vestur-þýzka markinu og sumum öðrum gjaldmiðlum í Vest- ur-Evrópu. Þá er talið, að gengi ítölsku lírunnar verði einnig fellt. Það var ljóst strax í gærmorgun, að mikið var á seyði í fjármálaheim- inum, er franski seðlabankinn til- kynnti, að bæði hann og seðlabank- ar þeirra ríkja, sem aðilar væru að evrópska peningakerfinu (EMS), hefðu fellt niður þær reglur, sem verið hafa í gildi um skráningu á gjaldmiðlum þeirra. „ Aðgerðir Frakka nú koma okkur á óvart, þar sem spennan á peninga- mörkuðum Evrópu vegna frönsku þingkosninganna var hjöðnuð," sagði Mark Eyskens, Qármálaráð- þerra Belgíu, í dag. Sagði hann engin haldbær rök fyrir gengis- lækkun franska frankans vera fyrir hendi nú. Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, lýsti því yfír í gær, að það væri ekki ætlunin að lækka gengi dönsku krónunnar. „Danska krónan mun standa traust áfram,“ sagði Ellemann-Jensen í gær, er hann var spurður að því, hvort gengi dönsku krónunnar yrði fellt í hlutfalli við hækkun á vestur- þýzka markinu. Ekki þótti hins vegar ijóst af umælum hans, hvort danska kronan yrði hækkuð í sam- ræmi við væntanlega hækkun á markinu. Samræmingaraðgerðir á EMS hafa átt sér stað níu sinnum áður, en þetta kerfí var sett á fót í marz 1979. Var það þáttur í þeirri við- leitni Evrópubandalagsins að treysta gengi gjaldmiðla þeirra ríkja, sem aðild eiga að EMS, en þau eru Frakkland, Lúxemborg, Danmörk, írland, Vestur-Þýzka- land, Ítalía og Holland. Af 12 ríkj- um Efnahagsbandalagsins nú eiga Bretland, Portúgal, Grikkland og Spánn ekki aðild að EMS. Óvissan í gengismálum olli ferða- mönnum miklum erfíðleikum á Ital- íu í gær. Bankar opnuðu á venjuleg- um tíma, en lokuðu síðan fljótlega aftur og var eftir það hvergi hægt að skipta erlendum peningum og ferðatékkum. Vegna yfirvofandi gengislækk- unar á frankanum og lírunni snar- hækkaði Bandaríkadollar gagnvart báðum þessum gjaldmiðlum í gær. Sjá gengi gjaldmiðla á bls. 20. Bretland: Dótturdóttur Stalíns veitt vegabréfsáritun Hoskvu, AP. BREZKA sendiráðið í Moskvu lét í gær Olgn Peters, 14 ára gamalli dótturdóttur Josefs Stalín, í té vegabréfsáritun til Bretlands. Var þetta gert samkvæmt ósk sovézkra stjórnvalda. Skýrði tals- maður sendiráðsins frá þessu í dag. Olga er dóttir Svetlönu Alliluyevu, dóttur Stalíns, og bandarísks arki- tekts, William Peters. Hún er fædd í Bandaríkjunum, en var við nám í heimavistarskóla í Bretlandi, er móð- ir hennar tók hana með sér til Sovét- ríkjanna í október 1984. Haft var eftir brezkum embættis- manni í dag, að telja mætti víst, að móðir Olgu hefði samþykkt umsókn- ina, þar sem hún væri enn undir lögaldri og þyrfti því samþykki lög- ráðanda síns. Engin umsókn hefði hins vegar borizt frá Svetlönu sjálfri um vegabréfsáritun til Bretlands. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Olga Peters væri óánægð með dvöl sína í Sovétríkjunum og vildi fara þaðan. Gert er ráð fyrir að hún muni halda áfram námi sínu í Saffr- on Walden í grennd við Cambridge í Englandi, en þar hafði hún verið við nám í 18 mánuði áður en hún fór með móður sinni til Sovétríkj- Samkvæmt vegabréfsárituninni fær Olga 12 mánaða dvalarleyfi í Bretlandi, en ekkert er því til fyrir- stöðu að það verði framlengt eftir þörfum, þegar sá tími er liðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.