Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
76. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRIL 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Júiius
Rannsóknarmenn rannsaka flakið af TF—ORM í Ljósufjöllum á sunnudag-. Flugvélin stefndi í klettabeltið sem sést framan við vélina en skall til jarðar áður en að þvf kom.
mzr * Í f
W.
Lýsing annars þeirra sem lifðu af flugslysið:
Flugvélin nötraði og
kastaðist til í loftinu
— skömmu áður en hún skall á jörðinni
GREINILEGT er að nokkur aðdragandi hefur verið að því þegar
ísafjarðarflugvélin TF-ORM fórst í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi á
laugardag. Annar mannanna sem bjargað var úr flakinu, Pálmar
S. Gunnarsson lögreglumaður á ísafirði, sagði við björgunarmenn
að mikill hristingur hefði komið á vélina, að hún hefði kastast til
og nötrað í loftinu og síðan sveigt. Honum fannst flugvélin vera að
ná sér á strik á ný þegar hún brotlenti. Líklegt er talið að flugvélin
hafi lent í niðurstreymi við fjöllin og jafnframt geti ísing hafa
hiaðist á hana og drepið á öðrum hreyfli hennar. Ekki er hægt að
slá neinu föstu um ástæður slyssins fyrr en niðurstöður rannsóknar
liggja fyrir.
TF-ORM var á leiðinni frá
ísafírði til Reykjavíkur í leiguflugi
með 7 manns þegar hún brotlenti
norðan til í Ljósufjöllum á Snæfells-
nesi um klukkan 13.30. Með henni
fórust fímm manns: Sigurður Auð-
unsson, Kristján Sigurðsson, Smári
Ferdinandsson, Auður Erla Alberts-
dóttir og Erla Björk Pálmarsdóttir,
tæplega eins árs dóttir Auðar Erlu.
Tveimur mönnum var bjargað mikið
slösuðum og hröktum eftir að hafa
verið fastir í flaki flugvélarinnar í
tíu og hálfa klukkustund, en þeir
eru: Pálmar S. Gunnarsson, unnusti
Auðar Erlu, og Kristján Guðmunds-
son. Auður Erla var með lífsmarki
þegar björgunarmenn komu á vett-
vang en lést skömmu síðar á leiðinni
niður fjallið. Haft er eftir Pálmari
að flugmaðurinn, Smári Ferdin-
andsson, hafí lifað af brotlending-
una og þeir hafí ræðst við, en Smári
var látinn þegar björgunarmenn
komu á vettvang.
Pálmar og Kristján voru fluttir
með snjóbíl tvo kílómetra niður
fjallshlíðina. Þar tók þyrla Land-
heigisgæslunnar við og flutti þá til
Stykkishólms þar sem þeir voru
fluttir um borð í sjúkraflugvél sem
flaug með þá til Reykjavíkur. Þeir
voru lagðir inn á gjörgæsludeild
Borgarspítalans og gengust þar
undir aðgerð. Um 14 klukkustundir
liðu frá því slysið varð þar til sjúkl-
ingamir voru lagðir inn í Borgar-
spítalann. Kristján hlaut mikla
áverka í andliti, brotnaði á ökkla
og fór úr mjaðmarlið. Pálmar fót-
brotnaði, handleggsbrotnaði og
nefbrotnaði, fékk auk þess miklar
innvortis blæðingar og missti mikið
blóð. Báðir eru mennimir úr lífs-
hættu og á batavegi að sögn lækna.
Umfangsmiklar björgunarað-
gerðir voru hafnar strax eftir slysið
við mjög erfiðar aðstæður. Veður
og færð voru afleit og um erfítt
brattlendi að fara. Einu tækin sem
hægt var að nota til að komast á
slysstað, sem miðaður hafði verið úr
ÞEIR BJÖRGUÐUST ÚR TF-ORM
Kristján Guðmundsson sjó-
maður frá Bolungarvík, 29 ára,
til heimilis að Hjallaseli 9 í
Reykjavík.
Pálmar S. Gunnarsson lög-
reglumaður, 36 ára, til heimilis
að ísafjarðarvegi 4 i Hnifsdal.
Hann missti unnustu sína, Auði
Erlu Albertsdóttur, og Erlu
Björk, dóttur þeirra, í flugslys-
inu.
flugvél Flugmálastjómar sam-
kvæmt sjálfvirkum neyðarsendi
flugvélarinnar, voru snjóbflar en
þeir komust hægt áfram vegna
aðstæðna. Veðrið lagaðist heldur
þegar leið á kvöldið og tókst þá að
bijótast að slysstaðnum á snjóbfl.
Rannsókn slyssins stendur yfír
og liggja ekki fyrir niðurstöður um
ástæður þess. Flugmaðurinn lækk-
aði flugið úr 8 þúsund fetum í 5
þúsund fet, sem er lágmarksflug-
hæð í blindflugi á þessari flugleið.
Hann tilgreindi ekki ástæður fyrir
lækkuninni. Sterkur mótvindur var
og er líklegt að hann hafí lækkað
flugið til að komast í minni mótvind
eða hlýrra loft vegna ísingar. Svo
virðist sem flughæðin hafí ekki
dugað til að koma flugvélinni yfír
íjallgarðinn vegna mikils niður-
streymis sem myndast hlémegin við
fjöll í sterkum vindi og niðurstreym-
ið hafí fært hana niður fyrir fjalls-
brúnina. Einnig er hugsanlegt að
jafnframt hafi ísing hlaðist á vængi
vélarinnar og orsakað stöðvun
annars hreyfíls hennar. Skrúfuspaði
hreyfilsins benti til þess, en hreyfíll-
inn hefur ekki verið rannsakaður.
Sjá frásögn, viðtöl og myndir
á bls. 22, 23, 52, 53, 54 og 55
og myndir af þeim sem létust
í slysinu á baksíðu.