Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 19
„Við viljum ekki, að innra öryggi okkar sé ógnað af erlendum eða innlendum undirróð- urs- og hryðjuverka- mönnum, sem geta vals- að hér um án eftirlits. En við viljum ekki held- ur eftirlitskerfi, sem misbýður frelsi okkar og hinu lýðræðislega samfélagi á íslandi. andi árum. Vel er hugsanlegt að óvandaðir aðilar, innlendir eða er- lendir, nái að bijótast inn í gagna- söfnin og hagnýta sér þau. Tölvunjósnir eru vaxandi neðan- jarðarstarfsemi víða erlendis. Nú þegar hafa verið sett lög um kerfís- bundna skráningu á upplýsingum er varða einkamál, þar sem þriggja manna nefnd, skipuð af dómsmála- ráðherra, sér um að hafa eftirlit með framkvæmd laganna. Þetta bendir okkur á ný atriði í gæslu innra öryggis íslenska ríkisins sem taka þarfa alvarlegt tillit til. Frelsi og lýðræði Ef það er eitthvað sem við getum lært af aðgerðum hryðjuverka- manna þá er það, að þeir vilja að ríkisstjómir svari aðgerðum þeirra MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 19 á þann veg, að þær tapi trausti þegna sinna og falli þar með. Við íslendingar, eins og önnur lýðræðisþjóðfélög, metum mest frelsi einstaklingsins, frelsi til einkalífs, frelsi til ferða og ekki síst frelsi til að tjá okkur um hvað sem er. Það þjóðskipulag sem gerir okkur þetta fært er okkur kærast. En það er engan veginn auðvelt að gæta þeirra grundvallarréttinda lýðræðisins að fá að vera í friði og fá að vera ömggur og öjáls. Það viðkvæma jafnvægi sem tryggir annars vegar réttindi einstaklings- ins og hins vegar öiyggi þegnanna almennt er vandfundið. Það jafn- vægi hvílir ekki síst á löggæslunni. Rösum ekki að neinu Það er viðurkennd staðrejmd að íslendingar em mjög meðvitaðir um ógnir sem steðja að landinu á sviði efnahags- og menningarmála. Ógn- un við innra öryggi íslenska ríkisins er að sama skapi ekki svo skýr í vitund almennings og margra ráða- manna. Þó hefur morðið á Olof Palme ömgglega valdið umtals- verðum breytingum á því. Athafnir fálkaþjófa hér á landi undanfarin ár, sem vart em alvar- leg ógnum við innra öryggi Islands, sýna svo ekki verður um villst að óæskilegir einstaklingar geta laum- ast inn í landið. Það liggur í hlutarins eðli að smáríki eins og ísland getur ekki alfaríð hermt eftir stærri ríkjum í þessum efnum. Önnur smáríki hafa her sem gegna þessu hlutverki að miklu leyti og nægir hér að nefna þijú dæmi: Möltu, með 380.000 íbúa sem hefur 775 manna herlið; Grænhöfðaeyjar með 360.000 íbúa, sem hefur 1.185 manna herlið; Costa Rica, sem hefur verið nefnt í sömu andrá og ísland sem land án hers, hefur öryggissveitir, sem telja 8.000 manns. Er þetta leiðin sem við viljum fara? Rösum ekki að neinu og látum ekki erlenda atburði, þó válegir séu trufla dómgreind okkar. Þessi mál þarf að skoða vel, eins og vilji utanríkisráðherra sýnir. í þessum málum þarf örugglega að taka til hendinni. Samræma þarf skilmerki- lega þá starfsemi sem nú þegar snertir okkar innra öryggi og annað sem þar þarf til að koma. Helst þarf að setja allt starf er snertir innri öryggisgæslu undir einn hatt til að forðast árekstra og pólitískar deilur um yfirráð. Að forsætisráðuneyti, samgönguráðu- neyti, dómsmálaráðuneyti og utan- ríkisráðuneyti séu öll að vasast í þessum málum kann ekki góðri lukku að stýra er fram í sækir. Við viljum ekki, að innra öryggi okkar sé ógnað af erlendum eða innlendum undirróðurs- og hryðju- verkamönnum, sem geta valsað hér um án eftirlits. En við viljum ekki heldur eftirlits- kerfí, sem misbýður frelsi okkar og hinu lýðræðislega samfélagi á ís- landi. Þar höfum við víti til að varast, eins og Sovétríkin, þar sem ekki minni áhersla er lögð á að fínna, beija niður og uppræta þá sem setja sig upp á móti alræðis- valdi kerfísins en að kljást við „óvini" utan landamæranna. Innri öryggisgæsla er ný hug- mynd í vitund flestra íslendinga og því ríður á að fara að öllu með gát. Aðgerða er tvímælalaust þörf og það fyrr en seinna. Það má benda á margt sem betur má fara í þessum málum. í þessum málum er ekki til hið fullkoma kerfi, en markvissar fyrirbyggjandi aðgerðir hljóta að verða okkur öllum til góðs í óvissri framtíð. Verum á varðbergi. Höfundur er stjórnmálafræðing- ur. Greinin erað meginstofni erindi sem hann flutti A ráðstefna Varðbergs ogSUS um innra ör- yggi 19. mars sl. Ný íslenzk barnabók Kóngar i riki sinu heitir barna- bók eftir Hrafnhildi Valgarðs- dóttur sem Mál og menning hefur gefíð út. Þetta er fyrsta bók Hrafnhildar en áður hefur hún birt smásögur og greinar i blöðum og tímaritum. „í fréttatilkynningu frá útgef- anda segir m.a.: „Sagan segir frá tveim strákum í íslensku sjávarþorpi og ýmsu sem þeir taka sér fýrir hendur í sum- arfríinu sínu. Þeir eru bestu vinir í heimi og báðir níu ára en þó eru þeir ólíkir eins og dagur og nótt. Lalli er alltaf hreinn og strokinn, en Jói er óttalegur drullusokkur eins og hann segir sjálfur. Samt er það Jói sem fær allar bestu hugmyndimar, hann má líka oftast gera það sem hann langar til. Lalli getur ekki hugsað sér neitt skemmtilegra en vera með Jóa allan daginn, hugsa um villikettlinga, veiða fisk, byggja kofa og slást við Hrafnhildur Valgarðsdóttir stóm strákana. Þetta er ævintýra- legt sumar.“ Kóngar í ríki sínu er 104 bls. kilja myndskreytt af Brian Pilkinton sem einnig teiknaði kápumjmd. Prentstofa G. Benediktssonar prentaði bókina en Bókfell sá um kiljuband. Lamb fæðist á Kálfsstöðum Áin Þríla bar tveimur lömbum öllum að óvörum 20. mars sl. á bænum Kálfs- stöðum, Vestur- Landeyjum í Rangárvalla- sýslu. Annað lambið fæddist dautt en hitt lambið er gimb- ur. Kindin, sem er þrevetla, bar tveimur lömbum sl. vor. Á mjmd- innier Þríla ásamt nýfæddu afkvæmi sinu. Moi^unblaðið/Guðmundur Gfslason Ný svínalæri 245 kr. kg Nýr svínabógur 247 kr. kg Svínakótilettur 490 kr. kg Svínahamborgarhryggur 508 kr. kg Úrb. svínahamb.hnakki 455 kr. kg Svínahamborgarbógur 295 kr. kg Svínahnakkafillet 420 kr. kg Svínalundir 666 kr. kg Svínagullasch 475 kr. kg Svínasnitchel 525 kr. kg Frí úrbeining á öllu ŒTraMi Viðtökum við pöntunum og sendum hvert á land sem er Verið velkomin Sjáumst JE, r KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 686SII

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.