Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1986 41 Út apríl fær 10, hver viðskiptavinur ÓkeypÍS brúsa af ULTRA FAST. Ultra Fast er frábær felguhreinsir, enda framleitt af sama aðila og bílabónið ULTRA GLOSS G F SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88 Og nýja bragðið - það svíkur engan! Sögumar sem hann sagði af æsku sinni og uppvexti, af stríðsárunum og árunum milli stríða, baráttu- Björn Grímsson Þegar við systkinin ásamt for- eldrum okkar renndum í hlað í Aðalstræti 17 hér á Akureyri, stóðu amma og afí úti á tröppum og tóku á móti okkur. Það voru hlýjar mót- tökur. Við vorum föðmuð og leidd í garðinn þeirra sem var fegursti garður Akureyrar og hafði að geyma hin fjölskrúðugustu blóm og stærsta tré í heimi að því er okkur fannst. Þó svo að árin séu orðin allmörg frá þessum heimsóknum, til ömmu og afa, er minningin um þær ljóslif- andi í hugum okkar. Ljúfar minn- ingar vakna nú er við kveðjum afa, Bjöm Grímsson, hinstu kveðju, en elsku ömmu okkar, Vilborgu Soffíu Lilliendahl, kvöddum við í septem- ber árið 1974,86 ára gamla. Þegar við hugsum til afa koma upp í hugann orð eins og friður, jöftiuður, réttlæti og manngæska. Afí var alla tíð einlægur sósíalisti og baráttumaður og studdi heils- hugar jafnréttisbaráttu kynjanna. Þau eru ófá skrefín sem hann steig í þágu verkalýðsins. Undanfarin ár áttum við margar og góðar stundir með afa á sunnu- dögum á heimili foreldra okkar í Kópavoginum. Afi var ljóðelskur maður og kunni ógrynni ijóða sem við nutum að heyra hann fara með. Fæddur 15. maí 1891 Dáinn 26. mars 1986 Að kynnast Bimi Grímssyni var ekki eins og að kynnast gömlum manni sem var að nálgast nírætt. Bjöm bar árin vel og reyndar virtust þau ekki skipta máli. Hann var síungur og fylgdist með öllu af áhuga. Hann fylgdist með lífí og kjömm alþýðunnar um allan heim. Hann fylgdist með þessu fólki sem hann var hluti af. Hann hafði þjónað sinni stétt og hafði áhyggjur af því hvert stefndi. / Bjöm var gæddur mikilli skarp- skyggni og átti auðvelt með að sjá orsakir féiagslegs ranglætis. Hann hafði líka ákveðnar hugmyndir um það hvemig hægt væri að vinna gegn ranglætinu. Hann skipaði sér í flokk með baráttuliði verkalýðsins og ég er sannfærður um að aldrei hafí hann hvikað eitt augnablik frá þeirri háleitu hugsjón sem er sam- eign sósíalisma og verkalýðs um allan heim — að gera veg vinnandi manna meiri og betri og að skapa nýtt og betra þjóðfélag. Eitt er víst að ekki varð Bjöm ríkur maður á peninga, enda þótt hann stundaði kaupmennsku og síldarsöltun. Það var ekki gróða- hugsjón sem stýrði Bimi kaup- manni á Húsavík og Akureyri. Og ekki var það eigin gróði sem hann hugsaði um er hann veitti forstöðu Söltunarfélagi Verkamanna. Þessi athafnasemi var sprottin af öðmm hvötum. Þegar fólkið átti ekki fyrir vömnum í verslunum tók það málin í sínar eigin hendur og stofnaði pöntunarfélög. Þar var Bjöm Grímsson í forystu og hagsmunir verkafólksins vom þeir hagsmunir sem hann setti ofar öllu öðm. Ég átti þess kost að hitta Bjöm öðm hvom á undanfömum árum. Frásagnir hans af æskuslóðunum í Héðinsfírði og svo starfínu í verka- lýðshreyfíngunni og pólitíkinni veittu mér goða innsýn í líf og starf alþýðunnar. Bjöm hafði góðan hæfíleika til að skýra frá því sem máli skipti og á þann hátt að eftir var tekið. Eg þakka Bimi fyrir þessar samvemstundir og allan fróðleikinn. Minningin um einlægan mannvin lifír. Albert Einarsson fundum og atburðum sem gerðust eftir stríð, og fleiri sögur varðveit- um við í hugum okkar og segjum bömum okkar og væntanlega bamabömum á góðri stund. Við kveðjum elskulegan afa okkar með söknuði, en minningin um hann lifír með okkur. Þóra, Bjöm, Lísbet, V. Soffía, Margrét og Magnús Orri, Gríms- og Margrétarbörn. Vissir þú að nú hefur Goða-vörunum verið gefið nýtt og spennandi bragð - og ekki bara það: Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að róttækum breytingum á framleiðsluvörum Goða undir kjörorðinu „breyttir tímar - betra bragð“, enda var tilgangurinn sá að koma til móts við nútímakröfur neytenda um gæði og bragð. Nýjar vörutegundir • nýjar og spennandi vörutegundir hafa iitið dagsins ljós, svo sem sérrí-skinka, graflamb og raftaskinku- paté • hafin er framleiðsla á fitusnauðu áleggi, m.a. hangi- áleggi með minna en 5% fituinnihald. Meiri gæði * nákvæmari flokkun hráefnis tryggir að frávik frá innihaldslýsingu einstakra vörutegunda séu í lágmarki * nýjar og vandaðar pakkningar varðveita bragðið alla leið á matborðið Betra bragð * valinkunnir sælkerar hafa gefið einstökum vöruteg- undum nýtt og spennandi bragð með notkun ferskra kryddjurta í ■ ■ -■'®. - ■ • : —-■ Ate« , k iaÉBfes>Æ3 ■ r \ (■ p v': ."•■ ’sr i ' . ébermMk- -• •. •. ■'SfT ' v ■• . tr&k'-v ■■■■ ' ■ • » - ■ V %.. -V\a TlUARÆR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.