Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 nlÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLÆNDS Staðallinn sem beðið hefur verið eftir: ÍST 117 raftækni- tákn ÍST 117, íslenskur staðall fyrir raftæknitákn, er kominn út hjá Staðladeild Iðntæknistofnunar ís- lands. Staðallinn skiptist í 16 efnishluta á sviði raf-, rafeinda-, síma- og radíótækni auk formála og efnisyfirlits. Einnig fylgja atriðaskrár, ensk- íslensk og íslensk-ensk, og millivísanahlutar til ogfrástaðlinum IEC617. Staðallinn er til sölu hjá Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti, 112, Reykjavík, sími (91)—68-7000 og hjá Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Bladburöarfólk óskast! AUSTURBÆR ÚTHVERFI Þingholtsstræti Birkihlíð. fHfttguilI’laftfö Metsölublað á hvetjum degi! Tækniframfarir og íslenskt sjónvarp eftirKarl Garðarsson Umræðan um ftjálsar útvarps- og sjónvarpsstöðvar hefur verið hávær síðustu árin. Eins og alltaf þá hafa verið skiptar skoðanir. í kjölfar nýrra útvarpslaga hafa sprottið upp fjöldi fyrirtækja sem hyggjast reyna fyrir sér í fjölmiðlun. Flest þeirra eru einungis til á papp- írunum og mörg þeirra munu eflaust aldrei komast lengra. Fram- haldið byggist á ýmsu, ekki síst á útvarpsréttamefnd. Þó er það fjár- málahliðin sem eflaust sér til þess að mörg hinna nýstofnuðu fyrir- tækja verða skammlíf. Ætla mætti að hægt væri að reka útvarpsstöðvar með tiltölulega litlum kostnaði. Margar erlendar útvarpsstöðvar, sem byggja t.d. dagskrá sína á tónlist, eru starf- ræktar með litlum mannafla og lág- marks tækjakosti. Mikið af efninu er aðkeypt í pökkum frá fyrirtækj- um sem sérhæfa sig í framleiðslu efnis fyrir útvarp. Flestar þessara stöðva byggja afkomu sína á aug- lýsingum. Þrátt fyrir að útvarpsstöðvar á íslandi muni hvorki geta. nýtt sér aðkeypt pakkaefni eða treyst á auglýsingatekjur, þá er ekki ólík- legt að ríkisútvarpið muni fá ein- hverja samkeppni á næstunni. Vafalaust munu flestar þær út- varpsstöðvar sem koma upp byggja dagskrá sína á tónlist og stuttum fréttum, svipað og rás 2 gerir núna. Flestar munu eflaust verða stað- bundnar við ákveðin héruð, eða byggðalög. Þær stöðvar sem hafa fjársterka aðiia á bak við sig eiga möguleika á að spjara sig, fleiri munu eflaust ekki gera það. Starfræksla sjónvarpsstöðva er annað mál. Stofnkostnaður er mik- ill, ekki síst vegna þess að tækja- búnaður er afar dýr. Jafnvel þó að sú hindrun sé yfirstigin þá er erfítt að koma auga á hvernig hægt sé að treysta fjármagnsgrundvöll sjón- varpsstöðva á íslandi. Flestir eru sammála um að auglýsingamarkað- urinn muni stækka afar lítið á næstu árum. Komandi útvarps- og sjónvarpsstöðvar munu því slást um þá bita sem fyrir eru. Niðurstaðan verður óhjákvæmilega sú að það verður harla lítið sem kemur í hvers hlut. ísland er lítill markaður og það er takmarkað hvað hægt er að treysta á auglýsingar í fjáröflunar- skyni. Áskriftargjöld er annar mögu- leiki sem nefndur hefur verið. Til að geta safnað áskrifendum yrðu komandi sjónvarpsstöðvar að fjár- festa í afar dýrum brenglunarút- búnaði. Sá búnaður er svo dýr að eigendur þess efnis sem fer í gegn- um gervihnetti Evrópu og Banda- ríkjanna hafa hingað til veigrað sér við slíkri Qárfestinu. Sú spuming vaknar óhjákvæmi- lega hvort ekki sé hægt að bjarga málinu með kapalkerfum. Kapal- Karl Garðarsson „Stofnkostnaður er mikill, ekki síst vegna þess að tækjabúnaður er afar dýr. Jafnvel þó að sú hindrun sé yfir- stigin þá er erfitt að koma auga á hvernig hægt sé að treysta fjár- hagsgrundvöUsjón- varpsstöðva á Islandi.“ kerfí opna möguleika á áskrifend- um, ekki ósvipað og Videosón gerði um árið í Breiðholtinu. Vegna kostnaðar yrðu slíkir kaplar að vera fjölrása, þ.e.a.s. að áskrifendum yrði boðið upp á fleiri en eina rás. Kaplar með aðeins einni rás yrðu afar óhagkvæmir í rekstri. Kostnaðarhliðin er helsta vanda- málið við kapalkerfín. Það er óhemju dýrt að leggja kaplana og mikinn íjölda áskrifenda þarf til að kerfín geti borið sig. Einnig er hætt við að hljóð heyrðist úr horni ef fara ætti að grafa upp all höfuð- borgarsvæðið til að leggja kapla. Kapalsjónvarp virðist þó eiga framtíð fyrir sér víða um heim. Eigendur kapalstöðva hafa í aukn- um mæli tekið gervihnetti í þjónustu sína. Risamir á bandaríska mark- aðnum nota t.d. slíka hnetti til að senda efni á milli þeirra kapalkerfa sem þeir eiga víðsvegar um landið. Einn meginkosturinn við kapalsjón- varp virðist vera fjölbreytni í efnis- vali sem fjölrása kapalkerfí bjóða upp á. Áskrifendur geta keypt þær rásir sem bjóða efni sem höfðar mest til þeirra. Það nýjasta í þessum efnum em fréttarásir sem bjóða upp á stanslausar fréttir allan sólar- hringinn. NBC-sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum hugðist svara í sömu mynt með eigin fréttarás, en gafst upp á öllu saman er ljóst varð að þeir þyrftu 13 milljónir áskrif- enda til að slíkar fréttasendingar stæðu undir sér. Möguleg lausn á kostnaðar- vandamáli kapalsjónvarpsins er svokallað MMDS-kerfi (Multi- ehannel Multipoint Distribution Systems). Munirinn á því og venju- legum kapalkerfum er að merkið er ekki sent í gegnum kapal, heldur með örbylgju á hárri tíðni. Hægt er að senda nokkrar rásir í einu og hægt er að brengla sendinguna, þó nokkur kostnaður sé því samfara. Á MMDS-kerfmu em viss vand- kvæði. Það helsta er að aðeins er hægt að senda merkið stuttar vega- lengdir, eða um 25 kílómetra. Einn- ig er það afar viðkvæmt fyrir tmfl- unum. Jafnvel tré sem em í sjónlínu milli sendis og viðtakanda geta valdið truflunum. MMDS-kerfíð hefur þó vakið athygli í Bandaríkj- unum og nokkrir aðilar hafa ýmist bytjað slíkar útsendingar eða hafa þær í undirbúningi. MMDS-kerfí em vissulega möguleiki á íslandi líka. Málið er að í raun er ríkjandi mikil óreiða í sjónvarps- og útvarps- málum í heiminum í dag. Fram- þróunin er gífurlega ör og ný kerfí em sífellt að koma fram á sjónar- sviðið. Flest þessara kerfa eiga það sameiginlegt að vera gífurlega kostnaðarsöm og aðeins á færi auðugra vestrænna ríkja. Undan- tekningalítið tengjast þau notkun gervihnatta. Hvað viðvíkur sjónvarpsdag- skrám frá öðmm löndum þá er hið svokallaða DBS-kerfi (Direct Bro- adcast Satellites) sennilega það sem koma mun, jafnt á íslandi sem annars staðar. í stuttu máli er DBS ekkert annað en beinar sendingar frá gervihnöttum til heimahúsa. Sjónvarpsstöðvar senda merkið upp til svokallaðra DBS-sjónvarps- hnatta, sem breyta tíðni merkisins, magna það og senda síðan beint til heimahúsa. Til að slíkt sé mögulegt þarf almenningur að fjárfesta í móttökudiskum, sem kæmu í stað þeirra sjónvarpsloftneta sem við emm vön. Stærð móttökudiskanna fer eftir styrkleika DBS-hnattanna. Því sterkari sem þeir em þeim mun minni diska þarf. Vandamálið er að því sterkari sem hnettimir em því dýrari em þeir. Hönnuðir DBS-hnattanna full- yrða að myndgæði þeirra séu mun betri en þau sem sjónvarpseigendur eigi að venjast. í sambandi við DBShnettina hafa átt sér stað til- raunir með nýjar myndupplausnir sem gætu tekið við af þeim litakerf- um sem em við lýði í dag. Tækni- menn CBS hafa t.d. gert tilraunir með að fjölga línunum sem em á venjulegum sjónvarpsskermi úr 525 (625 á PAL-kerfínu sem notað er á íslandi) í 1125. Sony-fyrirtækið hefur einnig gert slíkar tilraunir. Niðurstaðan hefur verið mun betri myndgæði en við eigum að venjast. Eins og með flest annað hefur íjármálahliðin verið helsti þrándur í götu DBS-gervihnattanna. Kostn- aðurínn við að koma þeim á loft hefur tafíð framþróun þeirra. Einn- mothercare BARNAFATAVERSLUN KERRU- 0G VAGNAVERSLUN LEIKFANGAVERSLUN RÚMFATAVERSLUN BARNAÖRYGGISBÚNAÐARVERSLUN TÆKIFÆRISFATNAÐARVERSLUN MOTHERCARE ERÁ LAUGAVEGI 13 SÍMI 26560 ----------------
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.