Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 23
LANDSEANKINN BÝÐUR ÖRUGG SKULDABRÉF Hjá öllum afgreiðslum bankans eru til sölu: kuldabréf Mjólkursamsölunnar, skuldari Ríkissjóður íslands. Bréfin eru að upphæð kr. 100.000.- og 200.000.- til 7 ára, með 13 afborgunum. Arsávöxtun umfram vísitölu er 10,5%. kuldabréf Sambands íslenskra samvinnufélaga. Bréfin eru til 5 ára að upphæð kr. 10.000.-, 50.000.- og 100.000.-. Arsávöxtun er 10% umfram vísitölu. Vegna endursölutryggingar Landsbankans er ávallt hægt að innleysa bréfin með mánaðar fyrirvara. Hjá fjármálasviði bankans að Laugavegi 7 eru til sölu: kuldabréf Sveins Egilssonar hf. s> að upphæð kr. 100.000.- til 2ja og 3ja ára með 11-11,3% ársávöxtun umfram vísitölu. Vegna endursölu- tryggingar Landsbankans er ávallt hægt að innleysa bréfin með mánaðar fyrirvara. pariskírteini Ríkissjóðs í gegnum Verðbréfaþing íslands. Nánari upplýsingar veita verðbréfadeildir bankans um land allt og fjármálasvið Laugavegi 7, símar 621244 og 20825. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 Morgunblaðið/Július Sameiginleg leitarstjóm í stjórnstöðinni á Vegamótum. F.v. Eðvarð Jónsson yfirlögregluþjónn i Stykkis- hólmi; Pétur Einarsson flugmáiastjóri; Engelhart Björnsson í leitarstjórn fyrir Slysavamafélag íslands; Jón Grétar Sigurðsson í leitarstjóm fyrir hjálparsveitir skáta; Amgrímur Hermannsson í leitarstjóra fyrir Flugbjörgunarsveitina og Karl Eiríksson formaður Rannsóknaraefndar flugslysa. Eina leiðin að brjótast upp fjallið á snjóbílum * - segir Engelhart Björnsson í leitarstjórn fyrir SVFI „í grófum dráttum held ég að það hafi ekki verið hægt að vinna þetta verk á betri máta. Það gekk eins vel og við var að búast við þessar slæmu aðstæður. Það varð fljótlega ljóst að þyrlur yrðu að litlu gagni á fjallinu vegna veðurhæðar og slæms skyggnis, svo eina leiðin var að bijótast þetta á snjóbílum. Vélsleðar komu að engu gagni við þessar aðstæður og það verður að segjast eins og er að þótt gangandi menn hefðu fundið flakið hefðu þeir ekki gert stóra hluti í þessu veðri,“ sagði Engelhart Björasson, sem stjórnaði leitinni fyrir hönd Slysavarnafélags Islands, þegar hann var spurður hvort stytta hefði mátt þann tíma sem það tók björgunarmenn að komast á slysstaðinn. Engelhart sagði að við venjulegar aðstæður tæki 3 V2 tíma að keyra frá Reykjavík vestur á Snæfellsnes og síðan hefði ferðin upp í fjallið var reynst geysilega seinleg þótt vegalengdin væri ekki nema fáeinir kílómetrar. „Það eru engir bílar til á Snæfellsnesi sem höfðu mögu- leika á að fara upp 'fjallið, svo það það hlaut að fara tími í að koma bílum af Reykjavíkursvæðinu vest- ur. Og við fjallið voru aðstæður voru hrikalegar. Neðst í því var þykkt lag af blautum jarðvegi, þar á eftir tók við nokkur hundruð metra krapabelti og síðan blautur snjór. Þegar veðurhæðin bættist við var þetta nánast ófært fyrir bílana, enda eru þeir allir mjög skemmdir. Það tók tvo tíma að keyra frá vegi upp í snjóbeltið. Ófærðin var svo mikil að það nánast þurfti að ganga á undan bílunum til að leita að leið,“ sagði hann. Engelhart sagði að miklu hefði skipt að bílamir voru nýir og allur búnaður góður: „Loran-staðsetn- ingarbúnaðurinn breytti miklu. Án hans hefði bíll Flugbjörgunarsveit- arinnar varla ratað ratað rétta leið svo fljótt," sagði hann. Þegar stjómarmenn Slysavama- félagsins vom komnir upp að Vega- mótum á laugardagskvöldið höfðu leitarflokkar gangandi manna lagt af stað upp í fjöllin bæði að sunnan- og norðanverðu. „Það vom strax sendir flokkar frá þremur stöðum með snjóbílum og gangandi. Fyrst vom sendir úrvals skíðamenn, aðal- lega að sunnanverðu, og höfðu meðferðis tvo snjóbíla til styrktar. Þeir höfðu mjög skýr fyrirmæli um að brjótast þama upp hvemig sem gengi, en aðstæður vom geysierfið- ar, ekkert skjól, 8-10 vindstig og skyggni í lágmarki. Nokkm síðar tókum við þá ákvörðun senda bfla norður á nesið, því allt benti til að vélin væri norðarlega á nesinu og því var lögð meiri áhersla á að senda fleiri tæki þangað. Við sendum því fjóra snjóbíla á það svæði. Þrátt fyrir hrikalega færð þræluðu sér allir upp, og bíll Flugbjörgunar- sveitarinnar koma á slysstaðinn rétt fyrir miðnætti," sagði Engelhart Björnsson. , NÝRSKOOA FRAKR.139.900 JÖFUR HF NÝBÝLAVECI 2 • SÍMI 42600 , / l' ( P/íi Þóra Dal, auglýsingastofa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.