Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 17 „A fæðingardegi sínum gátu íbúarnir búist við að verða 70 ára en þeir ein- staklingar sem eru nú 45 ára og halda fast við slæmar matarvenjur, reyk- ingar og áfengis- neyslu og fást ekki til að stunda líkams- rækt, mega búast við skemmri ævi- degi.“ segja að fólk greiði atkvæði með fótunum." Þetta kemur í rauninni heim og saman við það sem fólk segir, þegar það ræðir um daglegar gönguferðir eða líkamsrækt, sem það segir bæta líðan sína og telur sig ekki geta verið án. Milljónir manna hlaupa á hveijum morgni; í Kalkútta má sjá húsmæður skokka og í Central Park i New York skokka skrifstofumenn. Það má því með sanni segja að það sem nú er sagt um líkamsrækt sé aðeins það sem sagt var forðum á latínu: „Mens sana in corpore sano“, eða „Heilbrigð sál í heilbrigðum lfk- ama“. Við höfum fundið gömul sannindi. Við verðum að varast að halda að heilsa sé bundin við vöðvamikinn líkama eða þá tegund líkamsrækt- ar, sem krefst mikils erfiðis eða álags. Skrifstofumaðurinn getur gert teygjuæfingar, farið í jóga í fimm mínútur eða stundað júdó einn eða með öðrum. Hér er um að ræða að bæta vellíðan sína með því að hagnýta sér eins og hægt er líkam- lega og andlega getu og möguleika. Enginn skyldi heldur gleyma því að sú hreyfing sem manninum er hvað eðlilegust, gangan, getur orðið grundvöllur góðrar heilsu og komið í veg fyrir offitu. Það eru meira að segja til sérstakar líkamsæfingar fyrir fólk sem er í hjólastólum. Þeir sem teknir eru að reskjast geta komið í veg fyrir stirðleika og við- haldið sjálfstæði sinu innan og utan fjölskyldunnar með skynsamlegum æfingum og allir skyldu hafa í huga að slæmur matur og of miklar æfingar draga úr styrk og þoli og gera menn móttækilegri fyrir sjúk- dómum en annars væri. Skynsamlegar ákvardanir Það má oft ná takmarkinu án mikils erfiðis. Heilsurækt og fyrir- byggjandi aðgerðir eru þess eðlis að unglingar geta kjmnt þær bæði heima og að heiman. Skólar ættu hins vegar að kenna bæði verklegu og bóklegu hliðina. í indverska hér- aðinu Kerala var gerð heilsuáætlun fyrir þorpin og var markmiðið sjö- falt. Eitt af því sem börnum var falið að gera var að fá hvert um sig 10 önnur börn til að láta bólu- setja sig; annað var að koma upp matjurtagarði hjá fimm fjölskyldum sem engan áttu; og það þriðja að kynna tannhirðu hjá 10 fjölskyld- um. Bætt heilsa átti að gera lífið ánægjulegra og betra. Árangurinn varð ótrúlega góður og flest bömin gerðu meira en ætlast hafði verið tilafþeim. í löndunum 35 sem eru á Evr- ópusvæði Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, hafa verið sett sameiginleg markmið, þar sem ekki er aðeins stefnt að einstaklings- framtaki heldur hópátaki. Meðal annars er stefnt að því að útrýma mengun og að fá tekin úr matvæl- um skaðleg aukaefni; jafnframt var ákveðið að vinna að því að allir geti fengið menntun og störf sem eru þjóðfélaginu mikilvæg. f öllum þessum áætlunum er leitast við að tryggja velmegun einstaklingsins. Sá sem vaknar til vitundar um góða heilsu er fljótur að skynja þau svið, sem koma heilsurækt við. Þannig má nefna, að löngunin í góða heilsu og andlegan og líkamlegan styrk er eitt beittasta vopnið í baráttunni við tóbak og áfengi. Geri einstakl- ingurinn áætlun um heilsurækt, þá getur hann fundið mótvægi við því fargi og þeirri streitu sem kann að íþyngja honum bæði í einkalífinu og á vinnustað. Daley Thompson sem vann til gullverðlauna í tug- þraut á Ólympíuleikunum segin „ÞEGAR ÞU ERT EKKIVEIKUR GEFÐU ÞÁ LÍKAMANUM AÐEINS ÞAÐ SEM HANN ÞARFNAST. HANN ÞARFNAST EKK3 ÁFENGIS. HANN ÞARFNAST EKKITÓBAKS: HANN ÞARFNAST EKKI VERKJADEYFANDILYFJA. ÞAÐ ER AÐ RENNA UPP NÝR DAGUR í HEILSURÆKT OG ÁHERSLAN ER LÖGÐ Á: AÐ LÁTA SÉR LÍÐA VEL OG VERA HRAUSTUR." ósvikinn íslenskur matur sem eflirættjardarástina -bregstaldrei! gæðanm wgna! • • • • • •* • Ókeypis SUMARLISTinrt i riY SEriDING AF LISTUM MÚ KR. 190 + BURÐARGJALD YEIR 1000 SÍÐUR AF nÝJUSTU SUMARTÍSKUnni rA ULUR OG FERSKJULITIRmR) '^ OSiTc Ho3I§)© taiiFagfl BUSAHÖLD LEIKFÖNG VERKFÆRI 5 ■■•I r.t 22.4% U-BIX VERÐLÆKKUN U-BIX 120 Ijósritunarvélin ereinstök í sinni röö-fjölhæf, ódýr og tekur lítið pláss. U-BIX120 er þurrduftsvél, Ijósritar á allan venjulegan pappír og glærur, tekur allt að B4 frumrit, skilar 12 A4 Ijósritum á mínútu og fullnægir öllum þeim kröfum sem gerðar eru til góðrar Ijósritunarvélar. Kynntu þér U-BIX 120 - og gerðu reyfarakaup á meðan tækifærið gefst! yWJtHf. 'P v % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 - Sími 91 -20560 nýjum samningum hefur okkur tekist að lækka verðið á U-BIX 120 um Kr 9fí tfífí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.