Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 21 ig endast þeir ekki nema í vissan árafjölda og ekki hjálpar það upp á kostnaðarhliðina. Geimskutlan Challenger átti að koma bandarísku DBS-hnöttunum á braut, en eyði- legging hennar hefur að sjálfsögðu tafið allar framkvæmdir sem áætl- aðar voru á þessu ári. Þó er talið að tafir verði ekki eins miklar og áætlað var í fyrstu. Ýmis Evrópulönd hafa eigin áætlanir í sambandi við DBS-gervi- hnetti. Þjóðveijar og Frakkar eru þar framarlega í flokki og ætla mætti að íslendingar hefðu mestan áhuga á þeim framkvæmdum. Væntanlega eru ýmsir nú þegar famir að hugsa um þá möguleika sem gervihnötturinn Olympus býð- ur upp á, en evrópska geimferða- stofnunin hyggst senda hann upp á næsta ári. Sá hnöttur verður út- búinn DBS-sendum. Lega íslands gerir það að verkum að tiltölulega stóra móttökudiska þarf til að ná merkjum frá þeim DBS-sjónvarpshnöttum sem á döf- inni eru í Evrópu. Framfarir á þessum vettvangi eru þó svo örar að innan fárra ára verða eflaust komnir fram smáir og ódýrir diskar sem verður á færi flestra að eignast. Eignarréttur á því efni sem fer í gegnum DBS-hnettina er einnig viðkvæmt mál sem verður að leysa áður en langt um líður. Hver á að borga hveijum og hvað mikið .fyrir það efni sem sent verður í gegnum DBS-hnetti á milli landa? Ef engar reglugerðir ríkja í þessum efnum þá Ieiðir það til öngþveitis. Slíkt hefur einmitt skeð í Bandaríkjunum Mannleg tengsl til umræðu í Bern Bern. Island er meðal ríkja sem hófu undirbúningsfund fyrir sérfræð- ingafund um mannleg tengsl í Bern i Sviss á miðvikudag. Undir- búningsfundurinn mun standa í tvær vikur. Hann á að skipu- leggja málefnaskrá og dagskrá fyrir sérfræðingafundinn sem hefst 15. apríl og stendur í sex vikur. Gunnar Snorri Gunnars- son, sendiráðunautur í íslenska sendiráðinu í París, situr fundinn fyrstu vikuna, Gunnar Pálsson, sendiráðsritari í utanríkisráðu- neytinu, situr hann 9. til 24. apríl en Hjálmar W. Hannesson, sendifulltrúi í utanríkisráðuneyt- inu, mun sitja sérfræðingafund- inn allan. Svisslendingar buðu til sérfræð- ingafundarins í Bem á Ráðstefn- unni um öryggi og samvinnu í Evrópu í Madrid 1983. Þeir vilja aukna umræðu um mannréttindi í anda Helsinki-sáttmálans og stuðla að því að fá því framgengt sem aðildarlönd sattmálans sættust á í Helsinki. Sérfræðingafundurinn í Bem mun leita leiða til að auðvelda mannleg tengsl milli þjóða í austri og vestri og undirbúa umræður um mannréttindamál á þriðju Ráðstefn- unni um öryggi og samvinnu í Evrópu sem hefst í Vínarborg 4. nóvember nk. Bandaríkin, Kanada og 33 Evr- ópulönd taka þátt í Bemarfundin- um. Fulltrúar frá öllum ríkjum nema Malta voru mættir í Bem í dag. Gunnar Snorri sagði að ísland tæki þátt í fundinum frá upphafi til að sýna áhuga þjóðarinnar á fijálsari og auðveldari mannlegum tengslum milli þjóða, en þau felast m.a. í ferðafrelsi einstaklinga og hópa. Hann sagði að erfitt væri að spá nokkra um árangur af fundin- um en Edouard Brunner, aðstoðar- utanríkisráðherra Sviss, sagði á blaðamannafundi á þriðjudag að hann vonaðist til að þjóðimar myndu ganga lengra í lokasam- þykkt sinni í Bem en þær gerðu í Helsinki. Hrafnkell Alexandersson í verzlun sinni, Húsinu í Stykkishólmi. á síðustu áram. Almenningur hefur í auknum mæli sett upp eigin mót- tökudiska og náð efni frá gervi- hnöttum; efni sem er í eigu dreifing- arfyrirtækja fyrir kapalkerfí. Þetta hefur leitt til þess að Qársterkustu fyrirtækin, s.s. Cinemax og Home Box Offíce, hafa lagt út í mikinn kostnað við að brengla útsendingar- merkin, þannig að einungis sjálf kaplakerfin geti náð þeim. En hvað sem öllu líður þá er almenningur í Bandaríkjunum þeg- ar farinn að skreyta garða sína með móttökudiskum; slíkt er varla langt undan á íslandi heldur. Reglugerðir í þessum efnum virðast almennt vera á undanhaldi. Þannig að jafn- vel þó að sjónvarpsstöðvum á ís- landi fjölgi kannski ekki, þá er að öllum líkindum skammt í að erlend- ar stöðvar fari að berast inn fyrir landsteinana. Höfundur er nemi i fjölmiðlafræði við Minnesota-háskóla. Verslunin Hús- ið í Stykkis- hólmi f lytur í ný húsakynni Stykkishólmi. Um páskana opnaði Hrafnkell Alexandersson verslun sína Hús- ið í nýjum húsakynnum við Aðal- götuna í Stykkishólmi, þar sem áður var bensínstöð Olíufélag- anna. Hrafnkell varð fyrir 9 árum verslunarstjóri hjá JL hús- inu, er JL í Reykjavík opnaði hér verslun með húsgögn, rafmagns- vörur o.fl. Síðar keypti Hrafnkell verslunina og hefir rekið hana fram til þessa í húsakynnum JL. Hrafnkell heldur áfram verslun með gjafavörar, blóm, rafmagns- vörar o.fl., en húsnæðið leyfir ekki að hafa húsgögn á boðstólum enda fyrirferðamikil. Hinsvegar sagði Hrafnkell fréttaritara Mbl. er hann leit þar inn að hann myndi áfram aðstoða menn í kaupum á hús- gögnum, hann héldi umboðunum og hefði myndir til sýnis ásamt upplýsingum um verð. Hann sagðist vera mjög ánægður með að vera kominn með verslunina við aðalgötu bæjarins, því hún hefði áður verið á stað þar sem erfiðara hefði verið fyrir viðskiptavini að komast að. —Árni Urval býður nú frábæran barna- afsláttá3ja vikna sólarferðum til sumarleyfisstað- arins Cap d’Agde á Miðjarðarhafs- strönd Frakk- lands Verð fyrir fullorðna er frá kr. 30.800.- Börn 0-1 árs greiða aðeins 10% af því verði. Börn 2-11 ára greiða 50% og 12-15 ára krakkar greiða 75% af fullorðinsverði. Þannig geta hjón með tvö börn 2-11 ára sparað heilt fargjald. Aukavika kostar aðeins frá kr. 3.000.- Innifalið í þessu verði er flugfar; Keflavík - Montpellier - Keflavík, akstur milli flugvallar og gististaðar við komu og brottför, gisting án fæðis og íslenskur fararstjóri. Cap d’Agde Sumarleyfisbærinn Cap d’Agde er mikið ævin- týraland. Þar er frábær aðstaða fyrir alla fjölskyld- una að njóta iífsins í sólinni: Falleg strönd, volgur sjór, endalausar vatnsrennibrautir og öldusundlaugar, tennis, „gokart“-braut, torfæru- hjólarall, mini-golf, frá- bærir lygilega ódýrir matsölustaðir, verslanir, ísbarir, hringekjur, diskó- tek, næturklúbbar og einstaklega sjarmerandi nágrannabyggðir. Brottfarir - gisting - París Úrvalsfarþegar gista á glæsilegu íbúðahóteli á besta stað. Brottfarir eru 11. júnf, 2. júlí, 23. júlíog 13. ágúst. Hægt er að hafa viðdvöl í París á heimleið. Lágt verðlag - engirtungumála- erfiðleikar. Verðlag í Frakklandi er mjög hagstætt. Þar ert.d. sérlega ódýrt að snæða konunglega veislurétti. í Cap d’Agde tala flestir eitthvað í ensku og jafnvel heyrist hrafl á íslensku með áberandi frönskum hreimi! Þaul- kunnugur íslenskur fararstjóri er þér innan- handar. Allar nánari upplýsingar veita sölu- og umboðsmenn um land allt. Munið að panta tímanlega. Það borgar sig að bóka sem fyrst. * Miðað við hjón með tvö börn 2-11 ára. FERMSKRIFSTOFAN ÚRVAL GOTT FÚLK / SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.