Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 55 W Flugslysið í Ljósufjöllum REYKJAVIK var í leitarstjóm fyrir Flugbjörgun- arsveitina sagði að sjúkraflutning- urinn hefði gengið mjög vel, hann hefði ekki getað gengið betur miðað við aðstæður. Flugbjörgunarsveit- armennimir sögðu að það hefði verið besti kosturinn að fá þyrluna til að ná í fólkið, það hefði tekið marga klukkutíma að flytja fólkið landleiðina til Stykkishólms. Friðrik Jónsson var þessu sammála. Hann sagði að það hefði verið erfitt að bíða eftir þyrlunni en það hefði samt sem áður verið besta leiðin að fá hana. 260 bj örgnnarmenn komnir á staðinn Amgrímur Hermannsson sagði að leitin í heild hefði gengið vel fyrir sig. Leitin hefði í fyrstu beinst að því að komast á þann stað sem flugvélin var staðsett út frá sjálf- virka neyðarsendinum. Ekki væri hægt að treysta staðarákvörðuninni fullkomlega og hefði leitarstjóm því orðið að vera tilbúin með 400- 500 manns til leitar á sunnudag ef slysstaðurinn hefði ekki fundist. Hann sagði að 110 menn hefðu tekið þátt í þeirri aðgerð að komast að staðnum. Ekki hefði verið vitað hvaða leiðir væm færar þangað og því hefði orðið að senda snjóbíla upp frá sem flestum stöðum. Á svæðinu hefðu verið tilbúnir um 150 manns til viðbótar frá björgunar- sveitum á Reykjanesi, höfuðborgar- svæðinu og nágrenni og öllu Vest- urlandi. Sagði Amgrímur að ef slysstaðurinn hefði ekki fundist hefði orðið að kalla fleiri menn út aðfaranótt sunnudagsins. Hinir látnu vom fluttir í sjúkra- húsið í Stykkishólmi aðfaranótt sunnudagsins og síðan til Reykja- víkur á sunnudag. Rannsóknar- nefnd flugslysa fór á slysstað á sunnudag og rannsakaði vettvang ásamt mönnum frá Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Karl Eiríksson for- maður nefndarinnar sagði þegar rannsóknarmenn komu frá slysstað 2. TF ORM stödd við Stykkishólm kl. 13.19. Allt virðist í lagi. Skömmu síðar er farið að óttast um vélina. 3. Sendingarfrá neyðarsendi flug- vélarinnar heyrast og þær staðsett- ar nærri Gullkistu í Ljósufjöllum. Morgunblaðið/Pétfcr Johnson Flugvélin TF-ORM var af gerðinni Piper Aztec. Hún var í eigu Flugf élagsins Emis hf. á ísafirði. ,/^Lstykkishólmur Gullkista. v | / ^ Kistufell. © 986' \ ' / . 995 Botn^ \ 063 Skyrtunna> [, / % , 5. Flugbjörgunarsveit frá Reykjavík heldur upp frá Örlygsstöðum í snjóbfl og kemur að flaki TF ORM kl. 23.57 í um 700 m hæð. 6. Þeir halda síðan strax til baka með hina slösuðu um 2. km leið. ÞargeturTF SIF þyrla Landhelgisgæslunnar lent og flutt hina slösuðu til Stykkishólms, en þaðan voru þeir fluttir í flugvél til Reykjavikur og komu þangað um kl. 3.30 á aðfararnótt sunnudags. 4. Stjórnstöð er sett upp við yegamót og leit hafin. Leitar- flokkar halda upp frá Svelgsá, Örlygsstöðum og Kársstöðum að norðan og frá Svarfhólskoti að sunnan. Flugvél flugmála- stjórnar hnitaryfirog leiðbeinir leitarmönnum. 10 km ... Kristján Guðmundsson fluttur úr sjúkraflugvélinni sem flutti hann og Pálmar frá Stykkishólmi til Reykjavíkur. Morgunbla«ið/RAX á sunnudag að nefndin hefði safnað þeim upplýsingum sem nauðsynleg- ar væru við rannsókn málsins. Hann sagði að veður hefði verið mjög vont þegar slysið átti sér stað, menn vissu um það, en sagði að lítið annað væri hægt að segja um ástæður slyssins á þessu stigi máls- ins. Karl sagði að mikill snjór væri á svæðinu og snjóflóðahætta. Hann sagði að flugvélin væri furðanlega heilleg, enda virtist sem hún hefði lent í skafli þama í brekkunni. Flak flugvélarinnar verður fjarlægt síðar og mun Flugbjörgunarsveitin að- stoða við það. Fékk lækkun um 3.000 fet TF-ORM var á algengustu flug- leið frá ísafirði til Reykjavíkur. Eftir að vélin var komin upp úr Skutulsfirði var hún í um 8 þúsund feta hæð. Skömmu áður en hún tilkynnti sig við Stykkishólm fékk flugmaðurinn heimild til lækkunar í um 6.000 feta hæð (fluglag 60) og við Stykkishólm bað hann um og fékk heimild til lækkunar í 5.000 feta hæð, sem er lágmarksflughæð á þessari flugleið. Hæstu hindranir * em um 3.500 fet og er lágmarks- flughaeðin því 1.500 fetum yfir hæstu fjöllunum. Flugmaðurinn til- greindi ekki ástæður fyrir óskum sínum um lækkun, það er hann sem velur sér hæðina með tilliti til að- stæðna og þarf ekkert alvarlegt að vera að þó beðið sé um lækkun. Vélin virðist missa hæð snögglega og brotlenti síðan í fjallinu í 2.000 feta (640 metra) hæð. Um ástæður þess er ekki vitað. ísing var í loftinu og niðurstreymi við fjallið og gæti það verið ástæða slyssins. Spaði vinstra hreyfils vélarinnar var lítið skemmdur og er það talið benda til að hann hafi stöðyast áður en vélin . brotlenti. Karl Eiríksson sagði að veðurskilyrði væri líkleg meðorsök, en hvort eða hváð annað hefði komið fyrir lægi ekþi fyrir. HBj 1. TF ORM fer á loft frá ísafirði kl. 12.30 á laugardag. Sést á ratsjá eftir að hafa náð uppgefinni flug- hæð. Áætluð koma til Reykjavíkur umkl. 14.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.