Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 22
m MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986 Flugslysið í Ljósufjöllum Morgunblaðið/JúIIua Slösuðu mennirnir fluttir úr þyrlu Landheigisgæslunnar um borð i sjúkraflugvél Leiguflugs Sverris Þóroddssonar á Stykkishólmsflug- velli. Benóný Ásgrímsson, flugsfjóri TF-SIF, er á innfelldu myndinni. Hitamyndsjáin réð úrslit- um um að hægt var að lenda - segir Benóný Ásgrímsson, flugstjóri á þyrlu Landhelgisgæslunnar BENÓNÝ Ásgrímsson flugstjóri á nýju þyrlu Landhelgisgæslunn- ar telur að hitamyndsjáin sem Gæslan eignaðist nýlega hafi ráðið úrslitum um það að þyrlan gat lent á fjallinu um nóttina og tekið upp farþegana tvo sem komust lífs af úr flugslysinu. bands hjálparsveitar skáta. Tryggvi sagðist meta það svo að leitin og björgunin hefði gengið eins hratt og vel og kostur var á. Skipu- iagið hafi verið gott, sett var á laggimar svæðisstjóm með full- trúum leitaraðila, Slysavamafélags íslands, Landsambands hjálpar- sveita skáta og Flugbjörgunarsveit- arinnar. „Slíkt skipulag er iðulega viðhaft þegar um flugslys er að „Þótt veður hafi verið orðið þokkalegt um nóttina var svarta- myrkur og útilokað að sjá fjöllin í Álftafirði án myndavélarinnar. Ég tel þvi að hún hafi gert útslag- ið,“ sagði Benóný í samtali við Morgunblaðið. Benóný segir að þetta hafi verið erfiðasta flug ræða,“ sagði Tryggvi. „Samkvæmt lögum er það Flugmálastjóm sem er ábyrg fyrir svona aðgerðum, og hún hefúr alltaf sett á laggimar heildarstjóm þessara aðila. En yfir- stjómin er að sjálfsögðu í flugtum- inum.“ Sex snjóbflar voru notaðir við ieitina, allir nýir utan einn. Tveir sem hann hafi lent í. í áhöfn þyrlunnar voru ásamt Benóný Hermann Sigurðsson flugmaður og Sigurður Steinar Ketilsson og Kristján Þ. Jónsson stýrimenn, sem unnu við siglingafræði og hitamyndsjána. Benóný lýsti ferðum þyrlunnar fóru sunnanmegin og komust ekki á leiðarenda, en fjórir komu að fjöllunum norðanmegin. „Það verð- ur að segja þá sögu eins og hún er, að bílamir björguðu okkur í þessu tilfelli. Þetta hefði varla tekist á gömlu bflunum, sem hvorki eru búnir eins og góðum ieitartækjum, né geta ekið á grjóti og möl, eins og þeir nýju. Aðstæður voru slíkar að það var engin Ieið að koma við bflum sem aðeins geta ekið á snjó," sagði Tryggvi. Að sögn Tryggva eru snjóbflamir, sem heita Flex- mobile, á sérstökum gúmmíbeltum, sem gerir það að verkum að þeir geta ekið á möl og gijóti, sem snjó. slysdaginn svo: „Við lögðum af stað úr Reykjavík um þijúleytið eftir hádegi á laugardeginum og stefnd- um á slysstaðinn. En það var ljóst strax og við komum að Haffjarðará að við myndum ekki eiga möguleika á að komast upp í fjallgarðinn. Við vomm með lækni með okkur og björgunarsveitarmann með miðun- artæki fyrir neyðarsendi svo við ákváðum að setja þá út við Vega- mót og snúa svo aftur til Reykjavík- ur til að sækja fleiri sérþjálfaða ijallamenn. Við fórum í tvær slíkar ferðir, en lentum svo á Vegamótum og bíðum átekta ef veður skyldi eitthvað lagast. Það rofaði aðeins til rétt fyrir níu um kvöldið og þá fórum við í loftið aftur og komumst upp í 800 feta hæð við Kerlinga- skarð, en þá lokaðist allt og við urðum að snúa við aftur. Við biðum við Vegamót næsta klukkutímann og töldum þá ráðleg- ast að snúa aftur til Reykjavíkur til að hvfla áhöfnina, þar eð ljóst var að við gætum ekki gert meira að svo komnu máli. Við kömum til Reykjavíkur um hálf tólfleytið, en 20 mínútum síðar er hringt í okkur og við fáum þær fréttir að fundist hafi fólk með lífsmarki. Áhöfnin var ræst út og við vorum komnir í loftið aftur klukkan eitt eftir miðnætti. Þá höfðum við fengið fréttir af skárra veðri og ætluðum að reyna að komast yfir Heydali yfir í Hvammsflörðinn. En þegar við komum uppundir Mýrar sáum við að það var ófært ennþá, svo við ákváðum að fara útfyrir nesið. Við fórum því út fyrir Malarrif og Öndverðames, og síðan inn Breiða- fjörðinn. Þá höfðum við sett upp vegakerfi með Loran-tæki til að fara eftir inn Álftafjörðinn. Við sveimuðum aðeins í Álftafirðinum til að kanna útbúnaðinn og sjá hvemig myndavélin kæmi út. Þegar við vorum vissir um að tækin væru í góðu lagi, og í ljósi þess að snjóbfl- amir höfðu staðnæmst til að valda þeim slösuðu sem minnstu hnjaski, ákváðum við að fara upp á fjall. Björgunarmenn á landi voru búnir velja góðan lendingarstað og lýsa hann vel upp. Við lendum þama í 1500 feta hæð, um tveimur kfló- metrum frá slysstaðnum, og tókum upp sjúklingana. Síðan var flogið til Stykkishólms, þar sem vélar Sverris Þóroddssonar biðu tilbúnar til að fljúga með þá til Reykjavík- ur,“ sagði Benóný Ásgrímsson og bætti því við að leitin öll og björgun- arstörfín hefðu að sínum dómi tekist eins vel og hægt var að búast við miðað við aðstæður. Aðstæður til f lugs mjög slæmar yfir Ljósufjöllum: Hávaðarok, geysilegt nið- urstreymi og mikil ísing — segir Sigurjón Einarsson, flug- sljóri flugvélar Flugmálastj órnar BEECHCRAFT King-flugvél Flugmálastjórnar gegndi þýðing- armiklu hlutverki við leitina í Ljósufjöllum. Rúmum 20 mínút- um eftir að flugvélin TF-ORM hvarf út af ratsjárskermi að- flugsstjórnar á Keflavíkurflug- velli var Beechcraft-vélin komin út yfir Snæfellsnes og tókst að miða út slysstaðinn með svo mikilli nákvæmni að það skeikaði aðeins rúmum 500 metrum. Og allan tímann meðan á leit og björgim stóð flaug vélin yfir Ljósufjöllum og aðstoðaði við fjarskipti, og var samtals í um 13 klukkustundir á flugi. Flugstjóri á flugvél Flugmála- stjómar var Siguijón Einarsson, en með honum var Snæbjöm Guð- bjömsson flugmaður. Siguijón sagði í samtali við Morgunblaðið að aðstæður til flugs hefðu verið mjög slæmar yfír fjöllunum, háv- aðarok, geysilegt niðurstreymi og mikil ising. „Þetta er stutt flug, og ég giska á að það hafí liðið svona 20-25 mínútur frá því við lögðum af stað frá Reykjavík þar til við heymm fyrst í neyðarsendinum," sagði Siguijón. „Þessi miðunartæki sem við emm með em mjög ná- kvæm undir eðlilegum kringum- stæðum, en í fjalllendi geta frávikin orðið meiri vegna endurkasts fjall- anna. Því er betra að geta verið sem lægst við miðunina, en vegna geysi- legs niðurstreymis urðum við að vera í 12.000 fetum, og ísing var einnig mjög mikil." Siguijón sagði að öll skilyrði til myndunar niðurstreymis og ísingar hefðu verið fyrir hendi: „Þegar . vindur blæs yfír fjallgarð myndast niðurstreymi hlémegin. Isingar- Siguijón Einarsson flugstjórí á TF-DCA. hætta er hins vegar mest þegar rakt er í lofti og hitastigið í kringum 5 gráður undir frostmarki. Það má segja að öll þessi skilyrði hafí verið til staðan mikill vindur og raki í lofti, en ekki mjög kalt.“ Eftir að hafa miðað út vélina var flugvél Flugmálastjómar send aftur til Reykjavíkur til að sækja endur- varpstæki til að auðvelda fjarskipti á landi. Þetta endurvarpstæki er nokkurs konar „fljúgandi fjar- skiptahnöttur", að sögn Siguijóns. Þeir flugu síðan yfír fjöllunum í um það bil 7 V* tíma, sóttu einu sinni eldsneyti í millitíðinni og lentu svo loks í Reykjavík um hálf fjögurleyt- ið um nóttina, skömmu á eftir sjúkravélinni. Morgunblaðið/Júlíus Frá slysstað TF-ORM í Sóldýjadal. Flugvélin stefndi á klettana í Botna-Skyrtunnu og hefði væntanlega lent í þeim ef hún hefði náð að komast 200 metrum lengra. SnjóbUl Flugbjörgunarsveitarínnar er fjær. Ekki að sjá að hægt hefði verið að flýta björguninni — segir Tryggvi Páll Friðriksson, framkvæmdastjóri hjálparsveita skáta „Maður hefur veríð að fara yfir skipulag leitarínar i huganum eft- irá til að kanna hvort hún hefði getað tekið skemmri tíma en raun bar vitni, en það er ekki að sjá. Menn gerðu sér strax grein fyrir því að þetta værí verk sem leystist ekki öðruvísi en með snjóbílum, og það voru gerðar allar ráðstafanir til að koma þeim á staðinn sem fyrst,“ sagði Tryggvi Páll Friðríksson framkvæmdastjóri Landsam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.