Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
5
Akureyri:
Kvöldverðurinn brann
Akureyri.
SLÖKKVILIÐIÐ á Akureyri var kvatt að húsi við Hrafnagilsstraeti um kvöldmatarleyti á Iaugar-
dag. Mikinn reyk lagði þá um efri hæð hússins.
I ljós kom að hluti kvöldmatar heimilisfólksins var í ofninum, hafði gleymst við of mikinn hita, og var
þar komin skýring á reyknum. Slökkviliðsmönnum tókst að blása reyknum út úr íbúðinni á skammri
stundu og urðu skemmdir mjög óverulegar.
Dómsmálaráðuneytið:
Stöðvar innf lutning
barna frá Sri Lanka
— Vegna „ákveðins atviks“ er þar kom upp
Dómsmálaráðuneytið hefur
stöðvað afgreiðslu beiðna um
ættleiðingar barna frá Sri Lanka
um óákveðinn tíma. Samkvæmt
upplýsingum frá ráðuneytinu er
það gert á meðan rannsókn fer
fram vegna atviks, sem þar kom
upp fyrir nokkrum vikum, en
ekki fengust í ráðuneytinu nán-
ari skýringar á málsatvikum.
Drífa Pálsdóttir, deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, sagði að
ekki væri unnt að greina frá því á
þessu stigi hvað gerðist í þessu
ákveðna tilviki, sem varð til þess
að innflutningur barna frá Sri
Lanka var stöðvaður. „Við höfðum
heyrt ummæli fólks, sem fór þama
út, en þetta ákveðna tilvik varð til
þess að það þótti ástæða til að
Sauðárkrókur:
kanna þessi mál nánar, áður en
fleiri bömum yrði heimilað að koma
til landsins. Við bíðum eftir nánari
skýringum og svörum að utan,“
sagði Drífa.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur umsóknum um
ættleiðingar bama ijölgað nokkuð
á undanfömum árum fyrir milli-
göngu samtakanna Islenskrar ætt-
leiðingar, en hátt á íjórða tug hjóna
hér á landi biða nú eftir að umsókn-
ir þeirra um ættleiðingu hljóti af-
greiðslu. Flest bamanna, sem hing-
að hafa komið á undanfömum
árum, eru frá Sri Lanka, og að
sögn Drífu Pálsdóttur er hin tíma-
bundna stöðvun á innflutningi
bama aðeins bundin við Sri Lanka
enn sem komið er.
Tónleikar í
Safnahúsinu
Sauðárkróki.
TVEIR ungir tónlistarmenn frá
Bretlandi, Timothy Beilby fiðlu-
leikari og Christopher Collis
píanóleikari, héldu tónleika í
Safnahúsi Skagfirðinga á sunnu-
daginn við góða aðsókn og ágæt-
ar undirtektir. Á efnisskránni
voru verk eftir Handel, Beet-
hoven, Copland, Brams, Prokofi-
ev og Sarasate.
Þeir félagar hafa báðir stundað
nám við Birmingham School of
Music og hlotið verðlaun og viður-
kenningar fyrir frammistöðu sína.
Timothy Beilby, sem útskrifaðist
árið 1984, er kennari við Tónlistar-
skólann á Sauðárkróki, en Chri-
stopher Collis er enn við nám. Tón-
leikamir í Safnahúsinu vom þriðju
tónleikar þeirra hér á landi, áður
hafa þeir leikið á Akureyri og
Blönduósi. Þeir halda tvenna tón-
leika í Reykjavík, í Norræna húsinu
í gærkvöldi og í Gerðubergi þriðju-
daginn 8. apríl kl. 20.30.
Kári
Einar Þ. Mathiesen:
Öskar eftir fundi
í fulltrúarráðinu
í Hafnarfirði
EINAR Þ. Mathiesen hefur óskað
eftir því að Morgunblaðið birti
bréf, sem hann hefur ritað stjórn
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði, þar sem hann
óskar eftir fundi í fulltrúaráðinu
vegna ummæla Arna Grétars
Finnssonar í Morgunblaðinu.
Bréf Einars er svohljóðandi:
Hafnarfírði, 5. april 1986.
Stjórn Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna
í Hafnarfirði,
c/o Þór Gunnarsson,
Lindarhvammi 8,
Hafnarfírði.
í Morgunblaðinu 23. marz sl. er
haft eftir Áma Grétari Finnssyni
orðrétt:
„Hvert málið á fætur öðm hefír
komið upp þar sem Einar hefur án
nokkurs samráðs við okkur hina
bæjarfulltrúa flokksins tekið
ákvarðanir þvert á vilja okkar. Oft
hefur hann gert þetta án þess að
láta svo mikið sem vita áður um
að hann hefði aðrar skoðanir á
málum en við. Slík vinnubrögð geta
að sjalfsögðu ekki gengið í sam-
starfí flokksmanna,“
Hér er um að ræða svo alvarlegar
ásakanir í minn garð, og það stað-
hæft án rökstuðnings, að ég hafí
bmgðist skyldum mínum sem bæj-
arfulltrúi flokksins, að ég sé mig
knúinn til þess hér með að óska
eftir því við stjóm fulltrúaráðsins
að kallaður verði saman fundur nú
þegar, eða svo fljótt sem auðið er,
í fulltrúaráðinu, þar sem þetta mál
verður tekið fyrir og Ámi Grétar
Finnsson fínni orðum sínum stað.
Ég tel að fulltrúaráðið, kjósendur
flokksins og ég sem sakfelldur eigi
þá lágmarkskröfu að þessar fullyrð-
ingar verði rökstuddar.
Því miður hafði ég ekki tækifæri
á að koma þessari ósk minni á
framfæri fyrr, þar sem ég var er-
lendis þegar frétt Áma Grétars var
birt og kom ekki til landsins fyrr
en fyrir tveim dögum.
Virðingarfyllst,
Einar Þ. Mathiesen.
Háskólatónleik-
—ar a morgun
O
INNLENT
Á morgun, miðvikudaginn 9. apríl,
verða háskólatónleikar í Norræna
húsinu. Kjartan Óskarsson leikur á
klarinett og Hrefna Eggertsdóttir
á píanó verk eftir Dario Castello,
Jenö Takács og Bohuslac Martinu.
Tónleikamir hefjast kl. 12.30 og
standa u.þ.b. hálftíma.
(Fréttatil kvnnini^)
„GOÐSÖGN í LIFENDA LÍFI“
í Broadway
17.—22. apríl
Ótrúlegt en satt, Fats Domino kemur nú loksins til islands.
Fats er einn af hinum fjórum frægustu í rokkinu. Hinir eru
auðvitað Elvis, Little Richard og Jerry Lee. Sagt hefur verið
um Fats aö hann hafi gert píanóið að rokkhljóðfæri. Hver man
ekki eftir þessum lögum: Blueberry Hill, Jambalaya, Ain’t
That a Shame, l’m Walking, Let the Four Winds Blow, My
Girl Josephine, My Blue Heaven, When the Saints, Red
Sails in the Sunset, l'm Ready Kansas City, I Wanna Walk
You Home o.fl. o.fl.
Nú er allt að verða uppselt. Tryggið
ykkur því miða strax í dag og missið
ekki af stórkostlegum tónleikum með
þessum frábæra listamanni.
MIÐASALA OG BORÐAPANT-
ANIR í BROADWAY DAGLEGA
FRÁ KL. 11.00, SÍMI 77500.
BECADWAy