Morgunblaðið - 08.04.1986, Page 27
iser, nm /■ g nun Atn naifl<í .nrtrA jhmtjdjiom
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRIL1986
Myrði ekki
saklaust
fólk og börn
- sagði May Elias Manssour í samtali
við fréttamenn, en hún hefur verið
sökuð um að hafa komið fyrir
sprengju í flugvél TWA-flugfélagsins
Trípólí, Líbanon. AP.
MAY ELIAS Manssour, konan sem grísk lögregluyfirvöld gruna um
að hafa komið fyrir sprengjunni í þotu bandariska flugfélagsins TWA
í siðustu viku er fjórir fórust, ræddi við fréttamenn í Trípólí um
helgina og neitaði því staðfastlega að hún hefði átt nokkrun þátt í
sprengjutilræðinu. „Ég tek ekki þátt í slikum glæp, að myrða sak-
laust fólk og börn . . . ekki stjórnmálamann, ekki sendiráðsmann
eða hermann," sagði Manssour við fréttamenn.
Sænska lögreglan setti morðið á Palme á svið á laugardag. Sviðsetningin fór fram á þeim stað i Stokk-
hólmi þar sem Palme var myrtur í febrúarlok. í gær sagði sænska lögreglan að allt benti til þess að
morðstaðurinn hafði verið valinn af handahófi. AP/stmamynd
May Elias Mansso-
ur
Manssour við-
urkenndi að hún
hefði flogið með
umræddri þotu frá
Karíó til Aþenu
fyrr þann dag sem
sprengjan sprakk.
Hún sagðist ekki
hafa setið í sæti
10F, eins og grísk
lögregluyfirvöld
halda fram, en í
nágrenni þess sætis kom gat á búk
vélarinnar vegna sprengingarinnar.
Það sæti er framarlega í vélinni
vinstra megin, en sjálf sagðist hún
hafa setið aftarlega í vélinni hægra
megin. Hún sagði að farangur
hennar hefði verið vandlega rann-
sakaður á flugvellinum í Karíó og
leitað hefði verið á henni þrívegis
áður en hún fékk að stíga um borð
í vélina.
Manssour sagðist hafa beðið í
flughöfninni í Aþenu í sjö klukku-
stundir eftir að fá flugfar til Beirút,
en hún hafði ekki gríska vega-
bréfsáritun. Skömmu áður en hún
hafi stigið upp í vélina til Beirút,
hafi hún orðið vitni að miklu uppi-
standi á vellinum, en hún hafi ekki
vitað út af hveiju. Þá var vélin að
lenda eftir að sprengjan hafði
sprungið, en frá Aþenu hélt hún
áfram til Rómar til að sækja þangað
farþega og sneri síðan við aftur til
Aþenu.
Manssour er 31 árs gömul, eig-
andi snyrtivörubúðar í Beirút. Hún
Skála
fen
eropið
öllkvold
og eiginmaður hennar, Atef Danaf,
sem nú er látinn, voru meðlimir í
hinum vinstri sinnaða Sýrlenska
þjóðemisjafnaðarflokki ogtóku þátt
í árásum á ísraelsmenn eftir að
þeir gerðu innrásina í Líbanon árið
1982. Maður hennar féll í bardögum
við kristna menn fyrir tveimur árum
og þá fékk hún hjartaáfall með
þeim afleiðingum að hún lamaðist
að nokkru hægra megin. Hún getur
ekki hreyft fingur hægri handar,
hún haltrar og á erfitt um mál.
„Eg ferðast talsvert vegna þess
að ferðalög hjálpa til þess að lækna
lömunina og ég þarf einnig að
kaupa vörur fyrir verslunina," sagði
hún. Hún sagðist hafa búið hjá
foreldrum sínum í Beirút frá því
maður hennar dó, með dóttur sinni
níu ára gamalli.
Manssour sagðist hafa orðið
mjög undrandi er hún heyrði nafn
sitt nefnd í fréttum í sambandi við
sprengjutilræðið og það væri ekki
sanngjamt að ásaka fólk um svona
nokkuð án allra sönnunargagna.
Hún sagðist ennfrmur íhuga að
lögsækja ríkisstjórn Bandaríkjanna
vegna þessa máls, hún gæti til
dæmis ekki ferðast fyrr en hún
hefði verið hreinsuð af þessum
áburði.
Morðið á Palme:
Morðstaðurinn val-
inn af handahófi
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
MORÐSTAÐURINN á Sveavagen í Stokkhólmi, þar sem Olof Palme,
forsætisráðherra, var ráðinn af dögum 28. febrúar sl., var valinn
af handahófi, að því er Hans Holmer, lögreglustjóri, fullyrti á blaða-
mannafundi í gærmorgun.
Holmer lýsti enn eftir morðvopn-
inu og minnti á að 500.000 sænskra
króna, eða jafnvirði tæpra þriggja
milljóna íslenzkra króna, biðu þess,
sem veitt gæti upplýsingar er leiddu
til þess að morðvopnið fyndist.
Lögreglan gengur út frá því sem
gefnu að morðvopnið sé skamm
ERLENT
byssa af gerðinni Smith og Wesson,
með hlaupvíddinni .357, og að notað
hafi verið skot af Winchestergerð.
Laugardaginn fyrir páska fékk
lögreglan könnunarflugvél hersins
til þess að taka loftmyndir af Stokk-
hólmi í þeirri von að þær auðvelduðu
leitina að morðvopninu og undan-
komubifreið banamannsins. Rann-
sókn á myndunum hefur enn ekki
borið neinn árangur. Holmer var
hvassyrtur í garð blaða, sem fjöll-
uðu um loftmyndatökuna sem
aprílgabb, og sagði lögregluna ekki
vilja hafa rannsóknina á morðinu í
flimtingum. Hann sagði að loft-
myndatakan hefði verið ákveðin að
höfðu nánu samráði við flugherinn
og veðurskilyrði hefðu fyrst verið
ákjósanleg um páskahelgina.
Við rannsókn á frakka Áke
Gunnarsson, sem hnepptur var í
varðhald vegna gruns um aðild að
morðinu, fundust púðuragnir á flík-
inni. Rannsóknin var gerð hjá vest-
ur-þýzku lögrglunni í Wiesbaden
en óljóst er hvort samband sé á
mnilli púðuragnanna og skotsins,
sem varð Palme að bana.
Hans Holmer sagði í gærmorgun
að ef morðvopnið fyndist gæti það
afhjúpað morðingjann. Af þeim
sökum leggur lögrelan nú mesta
áherzlu á að finna morðvopnið.
Lögreglan hefur fengið 12.000
ábendingar frá fólki vegna rann-
sóknarinnar og tæplega 8 þúsund
menn hafa verið yfirheyrðir á þeim
röska mánuði er liðin frá því Palme
var myrtur.
Líkamsrœkt J. S.B.
Vornámskeið 14. apríl
6 vikna
Bolholt
3ja vikna 3x í viku mánud.,
þriðjud., miðvikud.
Morgun-, dag- ogkvöldtímar.
Hörkupúl og svitatímar kl. 5.30-
6.30.
Sturtur — Sauna — Ljós.
Sími 36645.
Hraunberg
Kerfi 1. Fyrir konur á öllum aldri, flokkar
sem hæfa öllum.
Kerfi II. Rólegir tímar fyrir eldri konur
eða þær sem þurfa að fara varlega með
sig.
Kerfi III. Sérstakur megrunarkúr.
Kerfi IV. Aerobic J.S.B.
Okkar útfærsla af þrektímum með góð-
um teygjum. Eldfjörugir „púl“-tímar fyrir
stelpur og stráka.
Sturtur — Sauna — Ný og glæsileg að-
staða.
Sími 83730.
Allir finna flokk við sitt hæfí hjá J.S.B.