Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 44
MORGUNBLAPID, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
t
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR JÓNASSON,
deildarstjóri,
Grýtubakka 24,
Reykjavfk,
erlátinn.
Hildur Bjarnadóttir:
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR LÚÐVÍK ÞORSTEINSSON,
Ólafsvegi 19,
Ólafsfirði,
andaöist á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, sunnudaginn 6. apríl.
Jónfna Þorsteinsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Faöir minn og fósturfaðir,
JÚLÍUS DAVÍÐSSON,
dvalarheimilinu Hlfö,
Akureyri,
andaðist sunnudaginn 6. apríl.
Sigrún Júlfusdóttir,
Valdfs Þorkelsdóttir.
t
MAGNÚS SIGURJÓNSSON,
úrsmiður,
Neshaga14,
lóst í Landspítalanum 4. apríl.
Katrfn Ólafsdóttir,
Bryndfs Magnúsdóttir, Magnús Geirsson,
Sigurbjörg Magnúsdóttir, Ole Serve.
t
Faðir okkar og tengdafaðir
GUÐMUNDUR KONRÁÐSSON
andaðist á Hvítabandi 6. apríl.
Hilmar, Gretar,
Heiðrún, Inga,
tengdabörn og barnabörn.
Bróðir okkar t EINAR ÞORGEIRSSON,
Lambastöðum Garði,
er látinn. Systkinin.
t
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR AUÐUNSSON,
hagrœðingarráðunautur,
Efra Hvoli,
Mosfellssveit,
lést af slysförum laugardaginn 5. aprfl.
Ingunn Vígmundsdóttir.
t
Útför ömmu okkar,
EINURU A. JÓNSDÓTTUR,
saumakennara,
Þórsgötu 21,
er lést 27. mars, verður gerð frá Fossvogskirkju miövikudaginn
9. apríl kl. 13.30.
Inga Vala Jónsdóttir,
GuðniÞórJónsson,
Einar Kristinn Jónsson,
Hjörtur M. Jónsson.
Eggert Olafsson,
Skarði II - Minning
Fæddur 1. apríl 1907
Dáinn 13. desember 1985
Góðir og mætir samferðarmenn
vilja oft gleymast þegar þeir kveðja
hið jarðneska líf og halda á braut
til nýrri heimkynna.
Því vil ég með þessum fáu orðum
minnast góðs drengs, sem vann
sveit sinni og sýslu trúnað og þegn-
skap, var hvers manns hugljúfi,
trúrækinn, góður heimilisfaðir og
fyrirvinna.
Eggert Ólafsson fæddist að
Bakka í Geiradal þann 1. apríl 1907.
Foreldrar hans voru hjónin Ólaf-
ur Indriðason á Ballará og kona
hans Guðrún Lýðsdóttir. Eggert
ólst upp með foreldrum sínum og
systkinum og varð fljótt á unga
aldri eftirsóttur vinnumaður, sem
leysti öll störf sín vel og samvisku-
samlega af hendi og vann sér traust
og trúnað sinna húsbænda. Hann
stundaði sjómennsku á yngri árum
og var m.a. 5 vertíðir í Vestmanna-
eyjum.
Hann bar alltaf hlýjan hug til
Breiðaflarðar og ungur batt hann
tryggðarbönd við heimilið að Skarði
á Skarðsströnd.
Á þessu rausnar- og merkis-
heimili var margt manna og í mörgu
að snúast. Húsráðendur voru
sæmdarhjónin, Kristinn Indriðason,
hreppstjóri og kona hans Elinborg
Ingibjörg Bogadóttir Magnúsen.
Skarð er eins og kunnugt er fom-
frægt höfuðból og hefur verið leng-
ur í eign sömu ættar en nokkurt
annað býli á íslandi, eða um
800—900 ár og er ættin rakin til
Húnboga Þorgilssonar, sem talinn
var bróðir Ara fróða, en 25—26
ættliðir frá Húnboga hafa nú setið
að Skarði. Við Skarð er kennd
Skarðsbók, meiriháttar skinnhand-
rit, rituð á 14. öld. Á Skarði er
Skarðskirkja, bændakirkja. Eru þar
margir merkir kirkjugripir, m.a.
útskorin og máluð altaristafla frá
15. öld.
Kristinn og Elinborg áttu 3
dætur, Bogu, Guðborgu og Ingi-
björgu. Guðborg er nú látin, en
Ingibjörg býr að Skarði ásamt
manni sínum Jóni Gunnari Jónssyni
og Kristni syni sínum. — Fljótt
felldu þau hugi saman Boga og
Eggert og bundust órjúfandi
tryggðarböndum.
Árið 1937 vom Skarðsveijar í
selafari, m.a. Kristinn og Eggert.
Þegar komið var uppundir miðjan
ál, sjá þeir að íbúðarhúsið á Skarði
stendur í björtu báli, en heima var
Elinborg húsfreyja, dætur hennar
og annað húsfólk. Brann bærinn til
kaldra kola, en slys urðu ekki á
heimilisfólki. Frá þeirri stundu vann
Eggert alfarið að búi tengdafor-
eldra sinna eða þar til þau stofna
nýbýlið Skarð II úr landi Manheima.
Fýlgdi því landi grasigróin ræma,
sem kölluð var Solveigarflöt eða
Solluflöt. Þar reistu þau myndarlegt
íbúðarhús árið 1951, sem enn
stendur og er húsráðendum til sóma
fyrir sérstaka umgengni og snyrti-
mennsku. Heyjað var á útengjum
fyrst en síðar var bytjað að rækta
og túnin uxu og bústofninn stækk-
aði að sama skapi.
Á haustdögum 1943 fara þau
Boga og Eggert í verzlunarferð með
Ms. Baldri til Stykkishólms ásamt
sveitungum sínum og vinum. Var
þetta árleg viðskiptaferð þeirra
Skarðsstrendinga þar sem verslun
þeirra og viðskipti fóru þá alfarið
fram í Stykkishólmi. Glatt var á
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNfNU EYÞÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hringbraut 73,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. apríl kl. 13.30. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Guðríður Þórhallsdóttir,
Guðmundur Þórhallsson, Björk Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
frá Vestmannaeyjum,
Álfhólsvegi 153,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 9. apríl kl.
15.00.
Sigrfður Kristjánsdóttir,
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Egill Ingvi Ragnarsson,
Kristján S. Guðmundsson, Ólöf Bárðardóttir,
Grátar G. Guðmundsson, Anna Guðrún Hafsteinsdóttir,
Rannveig Guðmundsd. Freni, Joseph Freni,
Guðný H. Guðmundsdóttir, Björn Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Kveðjuathöfn um föður okkar, tengdaföður og afa,
FINN ÞORLEIFSSON,
sem lést 29. mars fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 10.
apríl kl. 10.30. Jarðsett verður frá Staðarhólskirkju föstudaginn
11. apríl kl. 14.00. Vestfjarðaleiö fer frá Umferðamiðstööinni kl.
8.00.
Kristinn Finnsson,
Þorleifur Finnsson, Ásdfs Arnfinnsdóttir
og börn.
t
Mágkona mín,
GERÐA ÓLAFSSON,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 10. apríl kl.
13.30. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Maja Ólafsson.
t
Móðirokkar,
GEIRRÚN ÍVARSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju miðvikudaginn 9. apríl kl.
14.00.
Dœtur hinnar látnu.
hjalla og fengu þau óskabyr að
heiman og heim. Þegar landi var
náð í Stykkishólmi gekk unga parið
á fund sr. Sigurðar Lárussonar,
prófasts. Gaf hann þau saman í
hjónaband þennan dag, 16. nóvem-
ber 1943. Var það mikill heilla- og
hamingjudagur í lífi þeirra. Eggert
og Boga eignuðust 2 mannvænleg
böm, en þau eru; Ólafur, fæddur
20. okt. 1947. Kona hans er Svava
Hjartardóttir frá Vífílsdal og eiga
þau 2 böm, Eggert fæddan 1.
apríl 1980 eða sama dag og afi
hans og dreng, óskírðan, fæddan
25. ágúst 1985. Ólafur býr nú í
návist móður sinnar að Manheim-
um; Elinborg, fædd 20. sept. 1955.
Maður hennar Kristinn Thorlacíus.
Böm þeirra eru, Boga fædd 12.
ágúst 1975, Dagbjört Drífa, fædd
7. júlí 1980 og Silja Rut, fædd 12.
marz 1985. Arið 1978 misstu þau
dreng, sem andaðist við fæðingu. —
Kristinn er trésmiður og búa þau
hjón í Búðardal.
Eggert gegndi ýmsum störfum
fyrir sveit sína. Hann tók við starfí
hreppstjóra af Kristni tengdaföður
sínum og gegndi því um árabil eða
þar til lög um aldur opinberra
starfsmanna gengu í gildi. Við
hreppstjórastarfínu tók Ólafur son-
ur hans í ágúst 1984. Eggert var
formaður áfengisvamamefndar
Skarðshrepps í mörg ár og sat í
hreppsnefnd um lengri tíma. Hann
miklaðist ekki af störfum sínum og
hélt þeim lítt á lofti en vann þau
öll af samviskusemi ogtrúmennsku.
Hann var gleðimaður í góðra vina
hóp og tók söngurinn hug hans
allan ef því var að skipta. Ungur
söng hann efstu rödd með „kerling-
unum í Saurbænum" eins og hann
orðaði það stundum með bros á vör
og um langan tíma sungu þau hjón-
in í kirkjukómum og síðar í Þorra-
kómum í Dalasýslu undir stjóm
Halldórs Þorgilsar á Breiðabólstað
á Fellsströnd.
Eggert var gæfumaður. Ung
bundust þau óijúfandi tryggðar-
böndum, heimasætan á höfuðbólinu
Skarði og hann. Var hann alla tíð
heilsuhraustur og hafði aldrei í
sjúkrahús komið fyrr en hann lagð-
ist á Landakot til rannsóknar í
febrúar 1985. Ég heimsótti hann
þá. Var hann eftir atvikum hress
og þakklátur öllu starfsfólki spítal-
ans og þeim er heimsóttu hann, —
en hann kunni ekki við sig og þráði
að komast heim. Hann var ekki
lengi í þetta sinn á sjúkrahúsinu
og kom heim með bjartar vonir og
bata í huga. Hann var síðar lagður
inn með stuttu millibili og andaðist
með illkynja sjúkdóm 13. des. sl.
Síðustu sjúkdómslegu var Boga
alla daga hjá manni sínum og vék
ekki frá sjúkrabeði hans fyrr en
yfír lauk. Hann var jarðsunginn
frá Skarðskirkju við fjölmenni þann
22. des. sl.
Minningin um mætan og merkan
mann lifír í hugum okkar sem hann
þekktu. Hann heldur með gott
veganesti til nýrra heimkynna. Sá
byr er hann fékk á Breiðafírði í
brúðkaupsferð sinni á haustdögum
1943 fylgir honum á nýjar slóðir.
Hann horfír til baka og lítur þakk-
látur á liðin ár, því hann varðveitti
það sem er hveiju heimsláni dýr-
mætara, manngildi sitt, og með þá
trú lagði hann heill og óbugaður
upp í sína síðustu siglingu.
Blessuð sé minning Eggerts frá
Skarði. Slíkum manni var hollt og
gott að kynnast.
Skjöldur Stefánsson