Morgunblaðið - 08.04.1986, Side 56

Morgunblaðið - 08.04.1986, Side 56
-á Smárí Ferdinandsson flug- maður, 34 ára, fæddur 28. júni 1951, til heimilis að Hjallabraut 31 f Hafnarfirði. Hann lætur eftir sig- unnustu, Grímu Huld Blængsdóttur. Sigurður Auðunðson hag- ræðingarráðunautur, 56 ára, fæddur 12. desember 1929, til heimilis að Efrí-Hvoli í Mos- fellssveit. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Ingunni Vfgmunds- dóttur, og 3 börn. ÞAU FÓRUST MEÐ TF-ORM Auður Erla Albertsdóttir, 26 ára, fædd 15. september 1959, til heimilis að Isafjarðarbraut 4 í Hnífsdal. Hún lætur eftir sig unnusta, Pálmar S. Gunn- arsson, og eitt barn. Kristján Sigurðsson bóndi, 49 ára, fæddur^ 2. mars 1937, til heimilis að Armúla í Naut- eyrarhreppi við ísafjarðardjúp. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Gerði Kristinsdóttur, og 6 börn. fc áÚ Erla Björk Pálmarsdóttir, tæplega ársgömul, fædd 16. apríl 1985, dóttir Auðar Erlu og Pálmars. Tillögur nýrra hluthafa í Arnarflugi: Flug’leiðir selji hlut sinn í félaginu Þjóðleikhúsið: Tosca eftir Puccini svið- sett í haust ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ undirbýr nú uppfærslu á óperunni Tosca eftir Puccini. Gert er ráð fyrir að verkið verði frumsýnt i október næstkomandi. Ríkisstjórnin beiti sér fyrir fjárhagslegri fyrirgreiðslu STJÓRN Arnarflugs ákvað í gær að framlengja frest vegna kaupa á viðbótarhlutafé í félaginu fram til 15. apríl næstkomandi, en rætt hefur verið við tíu aðila að undanförnu um kaup á viðbótarhlutafé. Stefnt hefur verið að tæplega 97 milljóna króna hlutafjáraukningu og hafa þessir aðilar nú lýst sig reiðubúna til að skrifa t sig fyrir verulegum hluta þess, ef tiltekin skilyrði verða uppfyllt. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er eitt þessara skil- yrða það að núverandi hlutafé Arnarflugs verði afskrifað að hluta eða selt þessum nýju hlut- höfum þannig að eignarhluti núverandi hluthafa yrði mjög lítill. Markmið hinna nýju hlut- hafa með þessu mun vera það að draga svo sem kostur er úr áhrifum Flugleiða hf. innan Amarflugs. Jafnvel svo að Flug- leiðir selji allan hlut sinn í Amar- flugi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa þessi atriði verið kynnt stjómvöldum og em þau þar til skoðunar. Onnur skilyrði þessara nýju hluthafa munu vera þau að samningar takist við helstu lán- ardrottna Amarflugs um að skuldir fyrirtækisins verði lækk- aðar eða á annan hátt fáist íviln- anir frá lánardrottnum í formi greiðslufrests og ennfremur að ríkisstjómin beiti sér fyrir fjár- hagslegri fyrirgreiðslu til hins endurskipulagða fyrirtækis. Þessir tíu aðilar sem rætt hefur verið við em Samvinnu- ferðir-Landsýn, Pétur Bjömsson forstjóri Vífílfells hf., Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Sölusambands íslenskra físk- -^•amleiðenda, Böðvar Valgeirs- *ARNáRFLUGi son forstjóri Ferðaskrifstofunn- ar Atlantik, Hótel Holt, Hótel Saga, Hörður Einarsson fram- kvæmdastjóri og útgáfustjóri Fijálsrar Qölmiðlunar og Sveinn R. Eyjólfsson stjómarformaður og útgáfustjóri Fijálsrar Qöl- miðlunar, Guðlaugur Bergmann forstjóri Kamabæjar hf. og Jón Snorrason forstjóri Húsasmiðj- unnar hf. Agnar Friðriksson fram- kvæmdastjóri Amarflugs sagði í samtali við Morgunblaðið að ríkisvaldinu hefði verið sent erindi í desember sem fjallaði um ríkisábyrgð vegna hluta- íjáraukningar félagsins, en það hefði ekki verið afgreitt. Hann sagði jafnframt að það gæti komið til greina að fleiri bættust við í hóp kaupenda viðbótahluta- fjárins, það mundi skýrast á næstu dögum. Konumynd á5000 króna seðli SEÐLABANKI íslands hefur látið hanna nýjan peningaseðil, 5000 króna seðil, sem gefin verður út í júní. A seðlinum er í fyrsta sinn konumynd á ís- lenskum peningaseðli en á fram- hlið seðilsins er mynd af Ragn- heiði Jónsdóttur biskupsfrú á Hólum í Hjaltadal, sem uppi var 1646 til 1715. Allt myndefni seðilsins er tengt Ragnheiði sem þekkt var fyrir hannyrðir og kennslu. Útsaumsletur úr sjóna- bók Ragnheiðar er í bókstöfun- um sem sýna verðgildi seðilsins og á bakhlið seðilsins er mynd af henni ásamt tveimur nemend- um að virða fyrir sér altaris- klæði. Breski leikstjórinn Paul Ross hefur verið ráðinn til að setja verkið upp og hljómsveitarstjóri verður ítalinn Maurizio Barbacini. Þá mun Gunnar Bjamason annast gerð leik- myndar. Ekki hefur enn verið geng- ið endanlega frá ráðningu söngv- ara, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Kristján Jó- hannsson verið ráðinn í eitt af aðalhlutverkunum. Skákmótið í New York: Helgi missti af sigri HELGI Ólafsson gerði jafntefli í síðustu umferð alþjóðaskák- mótsins í New York í gærkvöldi og missti þar með af sigrí í mót- inu. Helgi hlaut 6 ‘/z vinning. Smejkal frá Tékkóslóvakíu og Sax frá Ungveijalandi urðu efst- ir og jafnir með 7 vinninga. Helgi varð í 2. til 6. sæti, en nokkrum biðskákum var ólokið er síðast fréttist um miðnætti í gærkvöldi. Flugleiðir ræða við S AS um breytingu á loftferðasamningi FLUGLEIÐIR reyna nú að fá skandinaviska flugfélagið _SAS til að mæla með endurskoðun á loftferðasamningnum milli íslands og Skandinavíu. Samkvæmt samningnum, sem er frá samkeppnistíma- bili Loftleiða og SAS, mega farþegar á lággjöldum aðeins hafa viðdvöl á einum stað innan Skandinavíu. Að sögn Sigfúsar Erlingssonar, framkvæmdastjóra markaðssviðs Flugleiða, var þetta upphaflega gert til að hindra að að önnur flug- félög en SAS gætu boðið lág far- gjöld á þessari leið. Sigfús sagði að Flugleiðir væru að fara fram á að geta keppt við bandarísk flugfélög og SAS um farþega sem fara til Skandinavíu yfír Atlandshafíð. Eins og málum sé nú háttað megi farþegar á lág- gjöldum ekki hafa viðdvöl á íslandi. „Þar sem farþegar sem ferðast á lággjöldum til Skandinavíu mega ekki millilenda á íslandi missum við og ferðamannaþjónustan í landinu af viðskiptum við stóran hóp ferða- manna. Verði loftferðasamningnum breytt getum við keppt um þennan hóp og væntanlega aukið streymi ferðamanna til íslands," sagði Sig- fús. Sigfús sagði að Flugleiðir hefðu á fundi með SAS-mönnum í febrúar óskað eftir því að að SAS legðist ekki gegn því að þessi samningur yrði endurskoðaður. Hann sagði að SAS íhugaði nú þessa hugmynd Flugleiða, og hvemig mætti útfæra hana, en formlegur viðræðufundur um málið hefði ekki verið boðaður enn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.