Morgunblaðið - 26.04.1986, Síða 17
Húnvetningar og Breiðfírðingar
mótmælt samsæri sjávarútvegsráð-
herra og hringormanefndar. Einnig
hafði blossað upp réttlát reiði yfir
athæfi þáverandi hlunnindaráðu-
nauts, sem samdi frumvarpið ásamt
höfuðpaur hringormanefndar og
brást málstað selveiðibænda ger-
samlega og vann honum óbætan-
legt tjón útávið meðal þeirra sem
mark tóku á ráðunautnum. Virðist
jafnvel ekki stoða í því efni, þótt
hann hafi hrökklast úr starfi eftir
að upp komst um afglöp hans.
Árið 1985 veifaði Halldór enn
sjóræningjafána sínum: Selveiði-
ftumvarpinu. Enn hugðist hann
svipta selveiðibændur allri laga-
vernd. Þingmenn flestra flokka
andmæltu frumvarpinu í neðri deild
Alþingis. Búnaðarþing samþykkti
rökföst og eindregin mótmæli gegn
yfirráðum sjávarútvegsráðherra.
Benti jafnframt á með hvaða fyrir-
komulagi ætti að hindra að selum
fjölgaði. Því miður sinnti Alþingi
ekki þeim ágætu rökum. Sjávarút-
vegsnefnd n.d. var of stór upp á
sig til þess.
í örtröð síðustu þingnæturinnar
ætlaði Halldór ráðherra að ská-
skjóta frv. gegnum e.d. með af-
brigðum og framhjá nefnd. Þá
reyndust bændur eiga þann mann
á Alþingi úr sínum hópi, sem stóð
á verði. Egill Jónsson hvikaði
hvergi, heldur reyndist sá höfuð-
skörungur að bjóða Halldóri byrg-
inn, snúa hann niður með sjóræn-
ingjafána og öllu tilheyrandi. Sel-
veiðafrumvarpið varð ekki að lögum
annað árið í röð. Þessum atburði
fylgdi lærdómsríkt dæmi. Sérstak-
lega er það eftirminnilegt fyrir
okkur í Vestíjarðakjördæmi, kjör-
dæmi Steingríms forsætisráðherra.
Við þinglokin 22. júní síðastliðinn
búri, hnyklar vöðvana (sem er
talsvert verk þegar Schwarzen-
egger á í hlut) og skýtur eitthvað
á annað hundrað manns áður en
yfir líkur. Svo undarlega vill til
að allir hermennimir sem hann
berst við eru rangeygir og skjóta
bara út í loftið, a.m.k. hitta þeir
hann ekki þó hann labbi yfír þá.
En það besta við Matrix er hinn
kaldhæðnislegi húmor sem hann
hefur fengið í vöggugjöf og kemur
fram í því að hann getur ekki
stillt sig um að grínast svolítið
með fómarlömb sín áður en hann
drepur þau. „Heyrðu,“ segir hann
við einn ofbeldismanninn, „ég
kann vel við þig. Ég ætla að drepa
þig síðast." Og stuttu seinna áður
en hann hendir honum fram af
fjallháum björgum segir Matrix:
„Manstu þegar ég sagðist ætla að
drepa þig síðast?" „Já, já,“ emjar
fómarlambið og biður um náð og
miskunn. „Ég laug,“ segir þá
Matrix og lætur hann gossa.
Þó að þeir séu ekki góðir leikar-
ar, Schwarzenegger og Stallone,
sem minnst var á hér áðan, em
þeir ágætir kvikmyndagerðar-
menn, hafa gott fjármálavit og
vita uppá hár hvað almenningur
sækist eftir í bíó. Og núna em
það stríðsmyndir, núna vinna þeir
hin töpuðu stríð, núna leika þeir
hetjumar sem aldrei vom. Og al-
menningur, sérstaklega í Banda-
rikjunum, er yfír sig hrifínn eins og
vonlegt en þeir hafa vakið þjóðem-
iskennd með fólki, sem svæfð var
með Víetnam og Watergate á átt-
unda áratugnum. Bíómyndir
deildu þá hart á þjóðfélagið og
höfðu svosem úr nógu að spinna.
Nú er öldin önnur. Nú er eins og
Bandaríkjamönnum sé mikið í mun
að byggja upp hið horfna þjóðar-
stolt, þeir em orðnir langþreyttir
á barlóminum og það em Stallone
og hans kumpánar Iíka. Hinar nýju
stríðsmyndir em allar dýrðaróður
til einstaklingsframtaksins. ímynd
hins sterka, ofurmennisins, ræður
ferðinni og Matrix er sannarlega
ofurmenni í besta skilningi þess
orðs. Það vantar bara að hann
borði tóm skothylki í morgunmat.
'\oo ► Ttrm * r»r> r»TT r> > <~r»» t iatt . . «-r»V» » T»-T• TJT-^
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRIL1986
17
var honum eitt öðm ofar í huga.
Hann hringdi til Morgunblaðsins
og jós sér yfír Egil Jónsson fyrir
að hafa stöðvað aðförina að okkur
selveiðibændum. „Ég tel það ákaf-
lega sorglegt og raunar stórskað-
legt íslenskum hagsmunum, að
einum manni skyldi takast að koma
í veg fyrir að selafrumvarpið færi
í gegn. Það er náttúrlega alveg
hroðalegt að menn skuli ekki skilja
það, að selurinn veldur okkur ekki
bara 500 milljóna króna tjóni í
auknum vinnslukostnaði, heldur
margfalt þeirri upphæð í lakari
nýtingu og tjóni sem við verðum
fyrir á mörkuðum."
Þama er forsætisráðherrann
dæmi um slíkt ofstæki, að helst
minnir á mestu öfgar á galdra-
brennuöldinni. Það var eins gott
fyrir Egil Jónsson, að þeir vom
ekki uppi þá og Steingrímur í dóm-
arasæti.
Selveiðibændur stofna
landssamband
Selabændur sáu nú sína sæng
upp reidda. Sótt að þeim úr öllum
áttum og málstaður þeirra afflutt-
ur. Þeir fóm að tala sig saman um
að vetja eigur sínar og mannrétt-
indi. Einnig að huga að möguleikum
til að gera kópaskinn á ný að eftir-
sóttri markaðsvöm. Á haustmánuð-
um var haldinn undirbúningsfundur
og ákveðið að boða til stofnfundar
undir vorið.
Eins og vænta mátti af sjávarút-
vegsráðherra, er hann enn að
lúmskast með áform sín um að lýsa
seli réttdræpa að lögum hvarvetna
utan 115 metra línu frá stór-
straumsfjöruborði. Nú dró hann það
fram yfír búnaðarþing, að bera
málið fram á Alþingi, svo ekki yrði
hægt að rísa þar til vama á ný.
Nú er það nýtt, að talað er um
„samráð" við landbúnaðarráðuneyt-
ið. Það er aðeins yfírskin. Það
minnir á hvalveiðar í vísindaskini,
sem íslendingar em orðnir víð-
frægir fyrir. Japanir hafa ekki þótt
kalla allt ömmu sína í hvalveiðum
fram að þessu og í viðskiptum við
þjóðir vesturlanda. Nú þykir þeim
tryggast að stinga við fótum til að
fá ekki á sig sama stimpil og þeir
Halldór Ásgrímsson og Kristján
Loftsson. Því er þetta nefnt bér,
að „vísindarannsóknir" em einmitt
settar á oddinn í selafrumvarpinu,
til að þykjast. Sama er um „samráð-
ið“. Allt eingöngu til að þykjast.
Væri óskandi að sem flestir al-
þingismenn sæju í gegnum það.
Verður íslensku selun-
um útrýmt?
Komið er á elleftu stund fyrir
selabændur að ná vopnum sínum.
Á undanfömum ámm, eftir að sela-
dráp hringormanefndar komst í
algleyming, hefur orðið gífurleg
röskun á vissum svæðum. Dæmin
hafa verið að koma fram eitt af
öðm. Útselur er nær alveg horfínn
þar sem dauðasveitir hringormam-
afíunnar hafa haft sig mest í
frammi. Það er einfalt mál að skjóta
foreldrana þar sem þeir em á verði
hjá kópunum fyrstu vikumar.
Drepa svo kópana. Eftir tvær slíkar
„haustvertíðir" sést varla ljós depill
í neinni eyju, hvað þá eftir þijár,
enda em nú að koma spurnir af
stómm svæðum þar sem svona er
orðið ástatt. En hvað verður langt
þangað til þetta verður uppvíst utan
landsteinanna? Hvenær kemst út-
lenda selfriðunarfólkið að raun um
íslenskar afleiðingar verka sinna?
Og hvað verður þá uppi á ten-
ingnum, til að mynda á mörkuðum
utanlands?
Meðan landið er ekki allt tekið
fyrir, getur sel enn fjölgað á stöku
stað. Um landselinn gegnir öðm
máli. Honum hefur hvergi getað
§ölgað sem neinu nemur, þar sem
grásleppa er veidd. Þegar net liggja
um allan sjó fram á sumar, farast
kópamir í þeim unnvörpum, eftir
að urtumar em búnar að bíta þá
undan. Við þetta bætist svo stað-
bundið seladráp á vegum hring-
ormanefndar. Enda er svo komið í
sumum landskunnum selaplássum,
að þar má kalla ördeyðu. Trúlega
er sunnlenska brimströndin helsti
hugsanlegi griðastaðurinn fram að
þessu. Þama eiga uggvænlegir
hlutir eftir að koma í ljós. Því er
nú verr og miður.
íslenskir selabændur eiga fáa að,
eiga við illskeytt ofurefli að etja og
er ömurlegast til að vita, ef Alþingi
á eftir að verða þar fremst í flokki.
Hvort sem svo fer eða ekki, eiga
þeir mikið starf fyrir höndum, að
veija rétt sinn og stöðu og gera
alþjóð kunnugt hvernig þeir hafa
verið órétti beittir.
Höfundur er bóadi á Miðjanesi í
Reykhólasveit, A-Barðastrandar-
sýslu.
ICY f Fálkanum
8
WD
EX: 2078 FASTAL !S
ICELANDiC EUROViSION
SONG CONTEST
ENTRY 1986
GLEÐIBANKINN
(ORIGINAL ICELÁNDIC VERSION)
BANK OF FUN
(ENGLISH VERSION)
áríta Gleðibankann
í versluninni Suðurlandsbraut 8í dag, laugardag, 26. aprílkl. 13—14.
Aðeins þetta eina tækifæri.
Þú verður að eignast þennan safngrip strax.
Póstkröfur
sími 685149.
FÁLKINN