Morgunblaðið - 26.04.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 26. APRÍL1986
I
Jöfnunarhluta-
bréf Flugleiða
eftir Kristjönu
Millu Thorsteinsson
Aðalfundur Flugleiða hf. var
haldinn þ. 20. mars sl. að Hótel
Loftleiðum. Fyrir fundinum lá til-
laga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa
og hafði hún legið frammi í hluta-
bréfadeild félagsins í tilskilinn tíma.
Sigurður Helgason, stjómarfor-
maður, talaði fyrir þessari tillögu á
aðalfundinum og mælti með sam-
þykkt hennar. Ólafur Agnar Jónas--
son, flugvélstjóri, tók einnig til máls
um tillöguna og mælti með því að
hún yrði felld. Hann kvaðst vera á
móti því að gefa ,út jöfnunarhluta-
bréf núna á þessu ári. Hann rök-
studdi mál sitt með því að slíkt
myndi efla hlutdeild stórra hluthafa
í félaginu á kostnað þeirra minni.
Tillagan um jöftiunarhlutabréfin
var síðan felld með 24,5% atkvæða
á móti 75,5%. Það er næstum 5%
meira en þurfti til að fella tillöguna,
en samkvæmt hlutafélagalögunum
þarf aukinn meirihluta eða 80% til
að samþykkja breytingar á sam-
þykktum hlutafélaga, en útgáfa
„Það var náttúrulega
góðra gjalda vert að
gefa hluthöfunum val,
ef ekki hefði fylgt með
áðurnefnt bréf frá for-
manni stjórnarinnar
þar sem hann lýsir því
skýrt yfir að stjórnin
mæli eindregið með út-
gáfu j öfnunarhluta-
bréfa og hið eina rétta
sé að samþykkja tillög-
una nú.“
jöfnunarhlutabréfa flokkast undir
það.
Þessi niðurstaða sýnir vilja hlut-
hafa Flugleiða á ótvíræðan hátt en
þeir eru æðsta vald í félaginu.
Liggur því beint við að þeir sem
voru á annarri skoðun sættu sig
við úrslitin, eins og menn verða að
gera, þegar kosið er samkvæmt
lýðræðislegum reglum og lögum.
En því var ekki að heilsa í þessu
tilfelli. Óánægjuraddir ónafn-
greindra manna heyrðust og óskum
um annan hluthafafund var komið
á framfæri við stjóm Flugleiða.
Meirihluti stjómarinnar samþykkti
því að hluthafafundur skyldi hald-
inn þ. 15. maí nk. og tillagan um
jöfnunarhlutabréfin tekin fyrir á ný,
tæpum tveimur mánuðum eftir að
hluthafar höfðu látið vilja sinn í ljós
á aðalfundinum. Jafnframt því að
boðaður var nýr hluthafafundur,
var hluthöfum sent bréf um málið
ásamt umboði, sem átti að senda í
áður frímerktu umslagi til stjómar
Flugleiða og gefa henni umboð til
að greiða atkvæði í málinu. í
umboðinu vom hluthöfum gefnir
þeir kostir að segja já eða nei við
tillögunni um jöfnunarhlutabréfin.
Það var náttúrulega góðra gjalda
vert að leyfa hluthöfunum að velja,
ef ekki hefði fylgt með áðumefnt
bréf frá formanni stjómarinnar þar
sem hann lýsir því skýrt að stjómin
mæli eindregið með útgáfu jöfnun-
arhlutabréfa og hið eina rétta sé
að samþykkja tillöguna um þau.
Kristjana Milla Thorsteinsson
Einnig segir formaðurinn að álitið
sé að þeir sem greiddu atkvæði
gegn tillögunni, hafi ekki gert sér
fulla grein fyrir eðli málsins. Eftir
lestur þessa bréfs er erfitt að
ímynda sér að nokkur gangi á móti
vilja stjómarinnar og láti þar með
líta svo út, að hann hafi ekki vit á
málum. Þetta er því eins konar
þvingun undir yfirskyni lýðræðis.
Nú er það svo, að mörg hlutafé-
lög gefa út jöfnunarhlutabréf ef vel
gengur og hef ég hvergi séð þess
merki, að útskýra þyrfti hvað jöfn-
unarhlutabréf væm og hvaða áhrif
þau hefðu. Hluthafar Flugleiða
virðast því ekki vera álitnir eins
klókir í fjármálum og hluthafar
annarra félaga. Ef til vill hefði það
verið eðlilegt að tillagan væri sam-
þykkt, en þá þyrftu aðrir hlutir í
félaginu einnig að vera eðlilegir.
Þar koma ýmis önnur sjónarmið til
athugunar, sem em vegna mismun-
andi skoðana um stjómun félagsins
og einnig vegna þess hvemig hluta-
bréfaeign er háttað innan þess.
Hluthafar Flugleiða em nú rúm-
lega 3.700 og em flestir þeirra
mjög smáir. Margir eiga um 1000
krónur og aðeins um 10 hluthafar,
félög og einstaklingar, eiga það sem
gæti kallast stór hlutur. Augljós-
lega fá allir þessir hluthafar hlut-
fallslega jafna aukningu á eign
sinni við útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
en það er ekki eins augljóst hversu
gífurlegur munur er á þessum hlut-
föllum. Til dæmis fengi sá sem á
nú eitt þúsund króna hlutabréf í
aukningu upp í þrjú þúsund krónur
og 300 króna arð á næsta ári í stað
100 króna nú, en hlutafé þess sem
á eina milljón nú yrði þijár milljónir
og arður hans yrði þijú hundmð
þúsund næsta ár í stað eitt hundrað
þúsund, ef hagur félagsins verður
það góður að það geti greitt 10%
arð næsta ár, sem engin trygging
er fyrir.
Þeir hluthafar sem fá mesta
aukningu gætu því notað aukinn
arð frá Flugleiðum til að fjármagna
frekari kaup á hlutabréfum í félag-
inu sjálfu, sem er nú til sölu. Það
er þetta sem átt er við þegar talað
er um að stórir hluthafar hagnist
mest á útgáfu jöfnunarhlutbréfa.
Hlutabréf þau sem ríkissjóður
átti í Flugleiðum standa nú hlut-
höfum og starfsmönnum til boða
þar sem stjóm félagsins eignaðist
þau eftir að hafa gert tilboð í þau
þegar henni bámst fréttir um
Stórmótið í London:
Ein óvæntustu úr-
slit skáksögunnar
Skáte
Margeir Pétursson
ÞAÐ sannaðist að allt er mögu-
legt í skák á stórmótinu í London,
sem lauk fyrir nokkru. 27 ára
gamall enskur alþjóðameistari,
Glenn Flear að nafni, var boðið
á siðustu stundu á mótið, eftir
að sovézkur stórmeistari boðaði
forföll. Flear þáði boðið, þótt
hann yrði eini keppandinn sem
ekki bæri stórmeistaranafnbót.
Það kom ekki að sök og þrátt
fyrir algjöran skort á undir-
búningi, sigraði hann á mótinu.
Flear hafði náð sínum fyrsta
áfanga að stórmeistaratitli
tveimur umferðum áður en mót-
inu lauk.
Svo sem sézt af meðfylgjandi
töflu nýttu Englendingamir heima-
völlinn vel og þeirra menn röðuðu
sér í efstu sætin. Það er engin til-
viljun að enska sveitin á síðasta
Ólympíumóti hreppti silfurverð-
launin, iíklega eru Englendingar
næststerkasta skákþjóð heims í
augnablikinu.
Þeir frægu stórmeistarar sem
raða sér um miðja töfluna mega
muna sinn fífil fegurri. Þeir Spas-
sky, Polugajevsky og Portisch eru
af kynslóð sem er farin að láta
mikið undan síga. Vaganjan er
hrokkinn í mikið óstuð eftir ófarim-
ar í einvíginu við Sokolov og Elo-
stigin hrynja af honum og Larsen,
sem fór beint frá London til New
York þar sem tók betra við.
Þessi stórkostlegi sigur var ekki
eini eftirminnilegi viðburðurinn sem
henti Flear fyrir páskana, því í
miðju móti gekk hann í hiónaband
með ungri franskri skákkonu,
Christine Leroy. Flear fékk að
fresta skák sinni þann dag, en
mætti síðan tvíefldur til leiks og
vann landa sína Plaskett og Speel-
man. Hann gat jafnvel leyft sér tvö
stutt jafntefli í lokin til að tryggja
sigurinn.
Við skulum líta á dæmigerða
skák fyrir sigurvegarann og jafn-
framt skoða tízkuafbrigði af katal-
ónskri byijun, sem sennilega er
hagstætt svörtum.
Hvítt: Dlugy (Bandaríkjunum)
Svart: Flear (Englandi)
Katalónsk byrjun.
1. d4 - d5, 2. c4 - e6, 3. Rf3 -
Rf6,4. g3 — dxc4,5.Bg2
Hér má einnig vinna peðið strax
til baka með 5. Da4+ en leikur
Dlugys leiðir til athyglisverðari
stöðu. Flear velur skarpasta svarið,
hann reynir að hanga á peðinu á c4.
5. - a6, 6. 0-0 - b5, 7. Re5 -
Rd5,8. a4 - Bb7,9. e4
Hér er einnig oft leikið 9. b3, en
gegn þeim leik hafa sovézkir meist-
arar nýlega beitt merkilegri hug-
mynd: 9. — c3! og eftir t.d. 10. e4
— b4!, 11. exd5 — Bxd5, hefur
svartur þær bætur fyrir manninn
að hvítur getur ekki þróað drottn-
ingarvæng sinn án þess að gefa
manninn til baka.
9. — Rf6, 10. axb5 — axb5, 11.
Hxa8 - Bxa8, 12. Rc3 - c6, 13.
Bg5 — Be7!?
í skákinni Scheeren — Bryson,
Ólympíumótinu 1984, náði hvítur
vinningsstöðu eftir 13. — Db6?, 14.
d5! - Be7, 15. dxe6 - fxe6, 16.
Bxf6 - Bxf6, 17. Dd6! Hins vegar
kemur 13. — Bb7 vel til greina í
stöðunni. Skák stórmeistaranna
Smejkals og Chandlers í v-þýzku
deildakeppninni í vetur tefldist: 14.
d5 — Be7, 15. dxe6 — fxe6, 16.
De2 (16. Bh3 á svartur að svara
með 16. — Rbd7! og stendur þá
betur að mati Sosonko) 0-0, 17.
h4!? De8, 18. h5 - Rbd7, 19. Rxd7
— Rxd7, 20. Bxe7 — Dxe7, 21. e5
— Rc5 og bætur hvíts fyrir peðið
reyndust ekki nægilegar og Chandl-
er vann skákina. Eftir 13. — Bb7
hefur svartur þó ástæðu til að óttast
14. Rxf7!? með flókinni stöðu.
14. Dal - Bb7, 15. Da7 - Dc8,
16. Rf3
Alfræðibókin um skákbyijanir
gefur upp 16. d5 — 0-0, 17. dxe6
— fxe6, 18. Bh3, en í nýlegri og
vandaðri bók um katalónsku byij-
unina eftir Rússana Moiseyev og
Ravinsky er svartur talinn hafa
ágæta stöðu eftir 18. — Ra6! í
þessari bók er stungið uppá 16. Rf3
og þangað hefur Dlugy væntanlega
gengið í smiðju.
16. - h6, 17. Bxf6 - Bxf6, 18.
e5 - Be7, 19. Rd2 - 0-0!, 20.
Rxb5 — cxb5,21. Bxb7
Eftir 21. Dxb7 - Dxb7, 22.
Bxb7 - Hd8, 23. Rf3 - Hd7 nær
svartur a-línunni og frumkvæðinu.
21. - Dc7, 22. Hal - Bb4, 23.
Rf3?
Eftir þennan slaka leik nær
svartur óstöðvandi frumkvæði.
Nauðsynlegt var 23. Re4 og eftir
t.d. 23. — Rc6, 24. Bxc6 — Dxc6,
25. Rc3 heldur hvítur í horfinu. A
Rf3 stendur riddarinn hins vegar
hörmulega illa, gegnir ekki öðrum
starfa en að valda eigin peð.
23. — c3!, 24. bxc3 — Bxc3, 25.
Be4 — Dc4, 26. Ha3 — Rc6, 27.
Bxc6
STIG- 1 2 3 H 5 6 7 S 9 10 11 12 /3 1H VINN. RÖB
1 FLEfiR ÍEnglandk) ZiSS m '/z 'lz 'k /z •k Yz O 1 i /z 1 i 1 Vk i.
2 SHORTCEwlaU) 2SÍ5 'h ///V Y/Y/ 0 /z !/z ‘k /z <1 /z /z 1 i i /z 9> 2-2,.
3 CHRNDLER CEnglaaái) 2S35 'k i i /z /z /z Ö /z i /z i 0 1 i 9 2-3.
H NUNN (Englandi) % /z 'k ///A /z /z 0 ’/z i /z 0 i i i 7/z H-T
5 RII3LI (Unqvtrja-landi) 2SÍS A 'k 'k •k (/// /z 'A 'k 'k /z /z i 1 'k l'/z /s
<o SPFtSSUY (Fr*kkl*ndli) 2 Í10 /z /z /z /z /z 7/// ’k /z /z /z /z 1 <k ‘k 7 u.
T PORTISCHCUwerjal.) 2(,10 /z /z 1 1 /z /z V//y '//// /z /z /z 0 i 0 /z 7 u.
% POLUGR7FVSKy(So/eir) 2S7S 1 0 /z /z /z /z /z /// /z /z 1 0 /z i 7 u
°l VAGRNJPN(Sovéir) 0 /z 0 0 /z /z /z 'k I 1 /z 0 i i b 9-fÐ.
10 SPEELMPN (Eng/arJi) 2 S(,0 0 /z /z /z •k /z 'k /z 0 W/ /z i /z /z G 9-/Ö
11 LRRSEN (Uanrrribrku) 2s7S /z 0 0 i 'k /z 1 0 /z /z y//z 0 0 i 5</z 11
12 PL OSKETT(Ený/oncf) 2735* 0 o i 0 0 o o i i o 1 z/Zc, i o 5' 12
15 MPSTEL (EnglanJi) 2.S2S 0 O o o 0 /z 1 /z o /z i o y/// Æ /z 7 hH
1H DLU&y (föandaHltj) 2SHS o /z 0 o /z </z </z o o /z o i /z z/zz 7 im