Morgunblaðið - 26.04.1986, Side 23

Morgunblaðið - 26.04.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986 23 Fegurðardrottningin fékk sigurinn í afmælisgjöf í dómnefnd voru Ólafur Lauf- dal, formaður, Alice Jóhanns, Friðþjófur Helgason, Berglind Johansen og Sigurður Þ. Sigurðs- son. Eftir að strengjasveit, sem sett var saman sérstaklega vegna Hrafnhildur Hafberg, til vinstri, afhendir Helgu Björgu Jónasdóttur viðurkenningu en hún var kjörin ljósmyndafyrirsæta ársins og vinsælasta stúlkan. Morgunblaöið/Skapti Hallgrímsson Ólafur Laufdal, formaður dómnefndar, smellir kossi á kinn hinnar nýkrýndu Fegurðardrottningar Akureyrar. Til hægri er Sigurður Þ. Sigurðsson sem einnig átti sæti í dómnefndinni. hátíðarinnar, hafði leikið fyrir matargesti voru stúlkumar sex kynntar í sportfatnaði. Því næst frumsýndu fjórar stúlkur frá dansstúdíói Alice dansinn New York, New York við mjög góðar undirtektir. Tískusýningarflokk- ur frá Akureyri sýndi sumarlín- una frá versluninni Perfect og eftir það voru stúlkumar sex kynntar í kvöldklæðnaði. Spennan var nú að komast í hámark — menn biðu í ofvæni meðan dómnefndarmenn réðu ráðum sínum að tjaldabaki og síðan rann stóra stundin upp. Hrafnhildur Hafberg, Ungfrú Akureyri í fyrra og heiðursgestur kvöldsins á miðvikudag, fékk það hlutverk að afhenda Vinsælustu stúlkunni og Ljósmyndafyrirsæt- unni viðurkenningu en Berglind Johansen, Ungfrú ísland 1984, kiýndi Fegurðardrottningu Ak- ureyrar. Gígju var vel fagnað eins og áður sagði. Akureyringar vom greinilega ánægðir með þessa nýju „drottningu" sína. Einhver líkti henni við „Hófí“ — og varla er hægt að neita því að talsvert minnti hún á Ungfrú Heim þetta kvöld. Það er svo sannarlega ekki leiðum að líkjast. - SH. Akureyri. GÍGJA Birgisdóttir var á miðvikudagskvöld kjörin Fegurðardrottning Akur- eyrar 1986 og krýnd á miðnætti við mikinn fögn- uð áhorfenda sem fjöl- menntu í Sjallann. Gígja öðlaðist þar með rétt tíl að taka þátt I keppninni Feg- urðardrottning íslands sem fer fram í Broadway í lok maí. Gígja var 17 ára þegar hún var krýnd — en er nú orðin “ári“ eldri, varð 18 ára í gær. Sannar- lega ánægjuleg afmælisgjöf að sigra í keppninni. Þátttakendur í keppninni á Akureyri vom sex, auk Gígju Sólveig Guðmundsdóttir, Helga Margrét Bjartsdóttir, Kristín Sveinsdóttir, Margrét Sigurðar- dóttir og Helga Björg Jónasdótt- ir, en sú síðastnefnda var kjörin Vinsælasta stúlkan og Ljós- myndafyrirsæta ársins. Það vom ljósmyndaramir Friðþjófur Helgason og Kristján G. Am- grímsson sem völdu ljósmynda- fyrirsætuna. Gigja Birgisdóttir Fegurðar- drottning Akureyrar 1986. Ýmsir höfðu á orði að hún líkt- ist mjög núverandi alheims- drottningu, Hólmfríði Karls- dóttur. Nýr kynning'arbækling-- ur Iceland Review: Reykavík — spennandi borg AÐ MINNSTA kosti 24 ástæður valda því að Reykjavík er æsi- spennandi borg og eru þær til- greindar í nýútkomnum bæklingi sem Iceland Review hefur gefið út í samstarfi við Reykjavíkur- borg. Bæklingurinn er litprent- aður og gef inn út á ensku.þ Efninu var upphaflega ætlað að vera sjálfstæður þáttur í Iceland Review og birtist ásamt fjölbreyttu efni í fyrsta tölublaði tímaritsins á þessu ári. En fulltrúar samstarfs- nefiidar um ferðamál í Reykjavík vom fullkomlega sammála ritstjóm Iceland Review um ástæðumar fyrir ágæti borgarinnar og af þeim sökum var samið við útgáfuna um að sérprenta efnið í 20.000 eintök- um til dreifíngar og kynningar er- lendis á vegum borgarinnar. Titillinn á ensku er. „24 Reasons Why Reykjavík Is a Terrific Town.“ Mörgum finnst sennilega fysilegt að kynnast því hvaða 24 ástæðúr ristjóm Iceland Review telur gera borgina svona spennandi — og má ætla að sumar komi heimamönnum á óvart. En hér er borgin litin með gestsauga, enda er efnið ætlað lesendum á alþjóðamarkaði. Textinn er unninn af Haraldi J. Hamar, Sólveigu K. Jónsdóttur og Bemard Scudder. Ljósmyndimar eru eftir Pál Stefánsson og hönnun var í höndum Guðjóns Sveinbjöms- sonar. (Fréttatilkynninjf) „Elstu myndlistarmenn- irnir í yngsta hópnum“ Á MORGUN lýkur samsýningu myndlistarmannanna Daða Guð- bjömssonar, Helga Þorgils Friðjónssonar og Kristins Guðbrands Harðarsonar, en þeir hafa sýnt verk sín á Kjarvalsstöðum frá 12. þessa mánaðar. Sýningin hefur fengið jákvæða dóma gagnrýnenda og aðsókn hefur verið góð. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir félagar sýna saman, en áður hafa þeir tekið þátt í nokkram sýningum með öðrum auk einkasýninga. „Fólki finnst þetta jákvæð sýn- ing, glaðlynd og létt,“ segir Daði. „Það getur varla heitið að við höfum verið skammaðir fyrir þessa sýn- ingu. Sumum finnst þó að við séum með of mörg verk á sýningunni og þau njóti sín ekki fyrir vikið." Daði hefur sýnt oft áður, nú síðast í haust var hann með einkasýningu. rÞað er jákvætt og gott að sýna á Islandi. Það er mikill hraði í ís- lensku þjóðfélagi og hann er hvetj- andi og kemur fram í listsköpun," segir Helgi Þorgils Friðjónsson. „Utlendingar undrast flestir þá grósku sem hér er í myndlist. Þýsk- ur listamaður, sem er við kennslu í Myndlistarskólanum og er raunar að undirbúa sýningu á verkum sín- um, segir að hér sé meira að gerast í myndlist en víða annars staðar." Helgi sýndi síðast fyrir tveimur árum í Listmunahúsinu og hefur öðru hveiju sýnt verk sín erlendis. „Handbragð myndlistarmanna er mismunandi eftir þjóðlöndum. Það er til dæmis mikill munur á mynd- list íslendinga og ítala. Sunnar er meiri „elegance" í listinni, en hér er stífnin meiri," segir Kristinn Guðbrandur Harðarson. „íslensk mjmdlist er annars mjög svipuð annarri myndlist á Vesturlöndum, við erum þáttur í alþjóðlegri mynd- list. Verst er þó er við tökum þátt í myndlistarsýningum erlendis þá búast menn frekar við þjóðlegri list frá okkur, í ætt við útskurðarlist, eins og við fáum að sjá frá Græn- lendingum." Þijú ár eru síðan Krist- inn hélt einkasýningu. Listamennimir þrír eru á þeirri skoðun að sýning þeirra sé forvitni- leg fyrir hina almennu listunnendur Daði Guðbjörnsson, Kristinn Guðbrandur Harðarson og Helgi Þorgils Friðjónsson. hér á landi og því sé ástæða fyrir fólk að líta inn á sýninguna. „Áhugi á myndlist hér á landi er mjög almennur. Víða á alþýðu- heimilum hér má sjá myndir eftir marga góða listamenn. Slíkt gerist ekki erlendis," segir Helgi. Þremenningamir voru spurðir að því, hvar megi flokka list þeirra meðal íslenskra listamanna. Þeir töldu erfitt að setja þá á einhvern sérstakan bás, en þó mætti segja að þeirra list væri ekki svo ýkja langt frá hinu svokallaða „nýja málverki" sem mikið var rætt um fyrir nokkmm ámm. Þeir væm með önnur sjónarmið af því tagi, sjónar- mið sem hafa ekki verið mjög áber- andi í listumræðunni.“ „Ef við skiptum íslenskum mynd- listarmönum í þijá aldurshópa, þá emm við líklega með þeim elstu í yngsta hópnum," segir Kristinn. „Við emm ekki mjög ungir en varla svo gamlir að hægt sé að búast við „gráa fiðringnum" nærri strax." Daði, Helgi og Kristinn em ólíkir listamenn, en þó em þeir sammála um ýmis gmndvallaratriði í mynd- iist og þess vegna var sýningin ákveðin. Á samsýningunni em „skúlptúrar“ og málverk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.