Morgunblaðið - 26.04.1986, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986
„Erum að undir-
búa útimarkað“
— segja krakkarnir í Unglingaathvarf-
inu sem eru að safna fyrir Hollandsf erð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Krakkarnir í Unglingaathvarfinu ásamt Bryndísi og Oddi, starfs-
mönnum athvarfsins.
SUMARIÐ er komið og flestir
farnir að skipuleggja sumarfriin
sín. Þeirra á meðal eru krakk-
amir i Unglingaathvarfinu
Tryggvagötu 12, en þeir em
þessa dagana að skipuleggja ferð
til Hollands sem farin verður 13.
" júni. Undanfamar vikur hafa
þau verið að undirbúa ferðina
og reyna ýmsar leiðir til fjár-
mögnunar.
„Það má segja að þetta sé enda-
punkturinn á dvöl þeirra héma, en
krakkamir eru búnir að vera hér í
athvarfinu a.m.k. 6 mánuði, sumir
verið hér í eitt ár,“ segir Bryndís
Guðmundsdóttir deildarfulltrúi at-
hvarfsins, sem fer út með krökkun-
um auk þeirra Odds Albertssonar
og Sigurborgar Kjartansdóttur
starfsmanna athvarfsins. Krakk-
amir eru á aldrinum 13-16 ára, og
um helmingur þeirra hefur aldrei
áður farið út fyrir landsteinana.
w Krakkamir, sem heita Sigurður,
Marta, Guðrún, Eiríkur, Róbert,
Einar Geir og Bjarki hafa velt ýms-
um ferðamöguleikum fyrir sér og
komist að þeirri niðurstöðu að svo-
kölluð sæluhús í Hollandi væm
hagkvæmasta lausn sumarferðar-
innar. Krakkamir eiga öll heima í
Breiðholti og koma í unglingaat-
hvarfíð þijú kvöld í viku, mánu-
dags-, þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldfrákl. 5-10.
Unglingaathvarfíð er rekið af
Félagsmálaráði Reykjavíkur og
hefur starfað frá því í október 1977.
Athvarfínu er ætlað að styðja ungl-
inga sem eiga við ýmsa félagslega
erfíðleika að stríða og/eða náms-
erfíðleika. Krakkamir fá að vera
fyrst í hálfan mánuð áður en þau
taka ákvörðun um hvort þau ætli
að vera í athvarfínu, og ef sú
ákvörðun verður ofan á er gerður
samningur við þau mánuð fram í
tímann þar sem ákveðið er að takast
á við einhveija af þeim erfiðleikum
sem þau eiga við að stríða og vinna
bót á þeim. Að mánuði liðnum er
samningurinn tekinn fram og end-
urskoðaður, athugað hvort staðið
hafí verið við hann, gerður nýr
samningur þar sem áhersla er lögð
á önnur atriði og svo koll af kolli.
Ef ekki er staðið við samningana
fá krakkamir ekki að vera í at-
hvarfínu, en að sögn þeirra er
aðallega samið um heimanám, þátt-
töku í starfí athvarfsins, og fleiru
þessháttar. Erfíðleikar krakkanna
stafa oft af heimilisaðstæðum
þeirra, og er reynt að bjóða fjöl-
skyldunum upp á viðtöl þar sem
reynt er að fínna rætur vandamál-
anna.
Krakkamir skipuleggja tíma sinn
í athvarfínu mánuð fram í tímann,
þriðjudagskvöld em fundakvöld, en
hin kvöldin er skipst á að taka til
í húsnæði athvarfsins, farið í bæinn
á sýningar, litið inn á kaffihús, farið
í bíó eða annað þessháttar. Undan-
famar vikur hefur mestallur tíminn
þó farið í undirbúning utanlands-
ferðarinnar, „við erum að undirbúa
útimarkað," segir Marta og segir
þau vera að safna gömlum fötum
og hlutum til að setja á markaðinn.
Eiríkur bætir við að þau hafí tekið
að sér ýmis verkefni svo sem dreif-
ingu á auglýsingabæklingum í
Breiðholtinu og lagt launin fyrir í
ferðasjóð. Þá hafa þau skrifað ýms-
um fyrirtækjum bréf og fengið góð-
ar undirtektir. „Hótel Holt, Kassa-
gerðin, Kamabær, Esso, Elliheimil-
ið Grund og fleiri fyrirtæki hafa
lagt okkur lið og lagt talsvert í
ferðasjóðinn," segir Bryndís, „en
auk þess hafa Samvinnuferðir, sem
skipuleggja ferðina fyrir okkur
gefíð okkur afslátt á ferðunum. Nú
erum við að safna fyrir útimarkað-
inn og tökum fúslega á móti göml-
um fatnaði og hlutum."
Píanóverk
á tónleik-
um í Garði
TÓNLISTARFÉLAG Gerða-
hrepps heldur tónleika í Sam-
komuhúsinu Garði, sunnudaginn
27. april, kl. 14.00.
Hjónin Martin Berkofsky og
Anna Málfríður Sigurðardóttir,
munu leika píanóverk eftir Beet-
hoven, Schubert og Liszt.
Aðalfundur Sögu-
félagsins í dag
Á AÐALFUNDI Sögufélags sem
haldinn verður i dag, laugardag
26. apríl, flytur Þórunn Valdi-
marsdóttir sagnf ræðingur erindi
sem nefnist Aldamótabærinn
Reykjavík.
Þómnn er höfundur bókar sem
nefnist Sveitin við Sundin og er
væntanleg frá Sögufélagi í maí-
mánuði. Bókin, sem fjallar um bú-
skap í Reykjavík, er gefín út í ritröð-
inni Safn til sögu Reykjavíkur sem
Sögufélag gefur út með tilstyrk
Reykjavíkurborgar. Með bókinni og
erindinu vill Sögufélag minnast 200
ára afmælis Reykjavíkur.
Aðalfundurinn verður haldinn í
veitingahúsinu Duus við Fischers-
sund og hefst kl. 14.00.
Aðalfundur
Heilaverndar
Aðalfundur Heilaverndar, fé-
lags áhugamanna til styrktar
rannsóknum á arfgengri heila-
blæðingu, verður haldinn í Iðnað-
arhúsinu við Hallveigarstíg 1,
Reykjavík á morgun, sunnudag.
Fundurinn hefst kl. 15.00 og er
hann jafnframt framhaldsstofn-
fundur félagsins.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Sumarnámskeið í ensku
Bournemouth
International School
Úrvalsskóli — Áratuga reynsla.
Vildarkjör miðað við innifalda þjónustu.
Upplýsingar hjá Sölva Eysteinssyni,
Kvisthaga 3, 107 Reykjavík, sími 14029.
Akureyringar
Almennur fundur
um stjórnmálaviö-
horfið með alþingis-
mönnunum Halldóri
Blöndal og Birni
Dagbjartssyni verð-
ur haldinn þriðju-
daginn 29. apríl nk.
kl. 20.30 í Kaupangi
við Mýrarveg.
Fundarefni:
Kjaramál — hús-
næðismál — málefni
skipasmiðaiðnaðar
— háskóli á Akureyri. Framsögn Halldór Blöndal.
Sjávarútvegsmál — atvinnumál. Framsögn Björn Dagbjartsson.
Halldór og Björn munu svara fyrirspurnum eftir því sem tími leyfir.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri.
Landsmálafélagið Vörður
Hlutavelta
Landsmálafélagið Vörður heldur hlutaveltu fimmtudaginn 1. maí nk.
kl. 14.00 i Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1. Glæsilegir
vinningar m.a. utanlandsferð og matarkörfur. Engin núll.
Landsmálafélagið Vörður.
Garðabær
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ er að Lyngási 12
og er opin daglega frá kl. 16.00-18.00, simi 54084. Uppl. um kjörskrá.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
i Garðabæ.
Garðabær
Almennur fundur um bæjarmálin i Garðalundi mánudaginn 28. april
kl. 20.00.
Vertu með — Hafðu áhrif!
Umræður — Fyrirspurnir — Stef numörkun
Sjálfstæöismenn í Garöabæ hvetja alla bæjarbúa til aö taka þátt í
almennum umræðufundum um malefni Garðabæjar nk. mánudags-
kvöld í Garöalundi. Fundurinn er öllum opinn og tilgangur hans að
fá sem flesta til að leggja frambjóöendum okkar lið i mótun framtíöar-
stefnu i bæjarmálum Garðabæjar.
Ráðstefnustjórar:
Pétur Stefánsson og Sverrir Hallgrimsson.
Atvinnu-, skipulags- og húsnæðismál
Frummælandi: Lilja Hallgrímsdóttir. Framsögumaöur umræðuhópa:
Árni Ól. Lárusson.
Skóla- og menningarmál
Frummælandi: Benedikt Sveinsson. Framsögumaöur umræöuhópa:
Sigurveig Sæmundsdóttir.
Æskulýðs-, fþrótta- og umhverfismál
Frummælandi: Erling Ásgeirsson. Framsögumaður umræðuhópa:
Tryggvi G. Árnason.
Félags- og heilbrigðismál
Frummælandi: Dröfn H. Farestveit. Framsögumaður umræðuhópa:
Jón Bjarni Þorsteinsson.
Gatnagerð og sarngöngumál
Frummælandi: Agnar Friðriksson. Framsögumaður umræðuhópa:
Andrés B. Sigurðsson.
Hrttumst f Garðalundi á mánudag.
Gerum góðan bæ betril
Reykjaneskjördæmi
Formenn fulltrúaráða og sjálfstæðisfélaga svo og starfsmenn á
kosningaskrifstofum Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjördæmi eru
boðaðir til fundar þriðjudaginn 29. april kl. 20.30 að Lyngási 12,
Garðabæ.
Stjórn kjördæmisráðs.
Kópavogur - spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæöisfélaganna í Kópavogi verður í sjálfstæðishúsinu
Hamraborg 1, 3. hæö, þriöjudaginn 29. apríl kl. 21.00 stundvíslega.
Mætum öll.
Stjórnin.
Hvöt og Landssamband
sjálfstæðiskvenna
halda hádegisverðarfund i kjallarasal Val-
hallar miðvikudaginn 30. april kl. 12.00.
Gestur fundarins veröur Erna Hauksdóttir
formaður hverfanefndar fyrir borgarstjórn-
arkosningar 1986 og ræðir hún um undir-
búning og skipulag kosninganna. Allar sjálf-
stæðiskonur velkomnar en trúnaðarráðs-
konur eru sérstaklega beðnar að mæta.
Veitingar á boðstólum.
Stjórnirnar.
Akurnesingar
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi boða til umræöufundar um stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitastjórnarkosningum i Sjálfstæðis-
húsinu Heiðargeröi sem hér segir: Mánudaginn 28. apríl kl. 20.30:
Málefni aldraðra og fatlaðra. Viðmælendur: Hörður Pálsson og Ás-
mundur Ólafsson. Mánudaginn 28. april kl. 20.30. Skipulagsmál.
Viðmælendur: Guðmundur Sigurðsson og Gunnar Ólafsson. Mánu-
daginn 28. apríl kl. 17.00. Heilbrigðismál. Viðmælendur: Jónina
Ingólfsdóttir og Elln Sigurbjörnsdóttir. Þriðjudaginn 29. apríl kl.
20.30. Skóla- og menningarmál. Viðmælendur: Viktor Guðlaugsson
og Helga Höskuldsdóttir. Þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30. Fram-
kvæmdir og fjármál bæjarins. Viðmælandi: Guðjón Guðmundsson.
Allt sjálfstæðisfólk er hvatt til að koma á þessa fundi og taka þátt
í stefnumótun flokksins. Muniö fundina um bæjarmálefni sem nú
eru haldnir hvern sunnudagsmorgun kl. 10.30.
Kossninganefndin.
Geymið auglýsinguna.