Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 9
8
9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
Innilegar þakkir til vina og vandamanna er
glöddu mig meÖ heimsóknum, gjöfum ogskeyt-
um á 60 ára afmœli minu 26. aprílsl.
LifiÖ heil.
Hrefna Valdimarsdóttir, •
Efstasundi 48.
SAUMANÁMSKEIÐ
Viltu læra að sauma? Eða bæta kunnátt-
una? Hjá okkur eru að hefjast námskeið í
fatasaumi. Morgun-, miðdegis-, síðdegis-
og kvöldtímar. Fagfólk leiðbeinir.
Upplýsingar og imiritun í símum:
15511,21421 og 83069.
SPor i rétta átt
saumaverkstœdi
Hafnarstrœti 21
S: 15511
A GÓÐU VERÐI - BENSÍNDÆLUR
ACDelco
Nr.l
BiLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Símanúmer okkar er
27809
þatuflug hf.
Grandagarði 1 b, Reykjavík
Hrukkur!
D
2)
Ert þú með hrukkur eða er farið að bera á línum
andlitinu?
Við í Heilsumarkaönum getum hjálpað.
Hrnkkur em Irffræðileg þróun sem snúa má við í
mörgum tilfellum.
■ Við höfum næringarefnaformúlu sem gefist hefur vel
§ og er fljótvirk. Árangur á mánaðarfl'ma.
Lítið við í Heilsumarkaðinum og fáið allar upplýsingar.
HEILSUMARKAÐURIIMN,
Hafnarstræti 11, sfmi 622323.
Sundurlyndi
vinstri manna
Kjósendur vinstri flok-
kanna vita ekki hvað
gerist, ef meirihluti sjálf-
stæðismanna fellur og
sundraðir vinstri menn
taka við. Það væri þá
helst, að þeir litu til
áranna 1978-1982, þegar
vinstri menn fóru með
völd í Reykjavík, en það
er athygiisvert að á fund-
inum í sjónvarpinu
minntust frambjóðendur
vinstri flokkanna ekki á
afrek sín á þessum árum.
Kannski eru þeir farnir
að skammast sin. En það
er engin ástæða til að
gieyma þessum tíma,
heldur draga af honum
lærdóma eins og kjósend-
ur gerðu i kosningunum
1982, þegar þeir veittu
Sjálfstæðisflokknum
umboð til að stjóma
borginni á ný.
Haldi kjósendur, að
vinstri menn hafl sjálfir
eitthvað Iært af mistök-
um sínum, þá ættu þeir
að snúa sér til Siguijóns
Péturssonar, oddvita
Aiþýðubandalagsins,
stærsta stjómarand-
stöðuflokksins í borgar-
arstjóm. Hann segir, að
samstarf vinstra manna
sé enn verra nú, en á
árunum 1978-1982. Orð-
rétt sagði Siguijón í við-
tali við DV 23. mai 1985:
„í fyrsta lagi er enginn
vafl á þvi, að hann
[vinstri meirihlutinn]
hefur verið meira sundr-
aður á þessu lgörtimabili,
heldur en nokkum tima
áður frá þvi ég kom fyrst
i borgarstjóm. Hann á
mjög erfitt með að sam-
einast, jafnvel um mál
sem hann er sammála
um.“
Virða ber heiðarlegt
svar Siguijóns Péturs-
sonar, en auðvitað felst
í því dauðadómur yfir
hugmyndinni um vinstra
samstarf í Reykjavík.
Ábyrgir kjósendur geta
einfaldlega ekki stuðlað
að meirihluta vinstri
flokkanna í borgarstjóm,
þegar þeir vita fyrirfram
að við tekur sundurlyndi,
sem leiðir til þess að
borgin okkar verður eins
og stjómlaust rekald.
Vanhugsuð
flugvallar-
stefna
Athyglisvert var, hve
Siguijóni Péturssyni,
Framboðsfundur í sjónvarpssal
Það kom skýrt í Ijós á kosningafundinum í sjónvarpssal s.l.
mánudag, að kjósendur vinstri flokkanna í Reykjavík renna blint
í sjóinn með atkvæði sín. Frambjóðendur þessara flokka eru á
móti öllum sköpuðum hlutum, en hafa næsta fátt uppbyggilegt
til málanna að leggja. Málflutningur þeirra er allur í neikvæðum
tón. Þeir segjast að vísu ætla að hækka laun og leysa öll félags-
leg vandamál í höfuðborginni, en það hefur hins vegar ekki
komið fram hver töframeðulin eru. Að þessu efni er m.a. vikið
í Staksteinum í dag.
borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, brá, þegar
hann var spurður að þvi
í fyrmefndum sjónvarps-
þætti, hvort Alþýðu-
bandalagið myndi flytja
Reykjavíkurflugvöll á
næsta kjörtímabili, ef
það fengi völd til þess.
Flokkurinn hefur sem
kunnugt er sett brott-
flutning flugvallarins á
stefnuskrá sina. „Nei,“
svaraði Siguijón vand-
ræðalega. Það ætti eftir
að finna nýjan stað fyrir
flugvöll. Þetta svar er
umhugsunarefni. Al-
þýðubandalagið stefnir
að þvi að flytja Reykja-
víkurflugvöll út úr borg-
inni, en hefur ekki hug-
mynd um hvar nýjan völl
á að leggja! Raunar er
þetta borgarmála- og
landsmálastefna flokks-
ins í þverskum. Alþýðu-
bandalagið er á mótí og
vUl gera Iiiutina öðmvisi.
Vandinn er bara sá, að
það veit ekki hvemig og
klúðrar þess vegna hlut-
unimi, þegar það kemst
í valdastöðu, svo sem
timabiUð 1978-1982 er tíl
marksum.
Afstaða Alþýðubanda-
lagsins tíl flugvallarins
er líka íhugunarverð út
frá hreinu atvinnusjónar-
miði Reykvíkinga. Ef
flugvöUurinn yrði fluttur
á brott, myndu nokkur
hundmð manns í borg-
inni missa atvinnu sína.
Hefur Alþýðubandalagið
ekki áhyggjur af þessu
fólki? Myndum við ekki
fá atvinnuleysisfréttir
með stríðsletri í Þjóðvifj-
anum eftir slikt högg?
Skiptir það kannski máli,
hver það er sem missir
vinnuna?
Um hvað ef
kosið?
Frambjóðendur flok-
kanna i Reykjavík vom
spurðir að þvi i sjón-
varpsþættínum, um hvað
væri kosið í borgar-
stjómarkosningunum.
Það er athyglisvert, að
vinstri flokkamir vildu
helst láta kjósa um lífs-
kjör í landinu. Með þess-
ari afstöðu opinbera þeir
að sjálfsögðu málefnafá-
tækt sína á sviði borgar-
mála, og geta sjálfstæðis-
menn verið ánægðir með
það. Hins vegar er það
vitaskuld réttmæt ósk,
sem borgarstjóri og aðrir
frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins hafa sett
fram, að kosið verði um
sjálfa stjóm borgarinnar.
Þessu lofuðum við fyrir
síðustu kosningar, þetta
höfum við gert og við
viljum láta dæma okkur
af verkunum, segja sjálf-
stæðismenn.
Það þarf enginn að
halda, að lífskjörin í
landinu batni, ef vinstri
menn komast tíl valda í
Reykjavík, enda ráðast
þau ekki þar. Það er Iíka
ástæða til að efast um
heilindi þeirra vinstri
manna, sem segjast ætla
að hækka laun borgar-
starfsmanna. Það er
auðvelt að tala um 30
þúsund króna lágmarks-
laun í kosningaáróðri og
þurfa ekki að upplýsa
hvaðan peningamir eiga
að koma. Forystumenn
Alþýðubandalagsins á
Alþingi og í verkalýðs-
hreyfingunni stóðu að
síðustu kjarasamningum,
þar sem ekki er gert ráð
fyrir slíkum lágmarks-
launum. Og Alþýðu-
bandalagið fer eitt með
völd á Neskaupsstað, og
hefur veruleg ítök í bæj-
arfélögum eins og Akur-
eyri og Kópavogi. Þar
er aðstaða til að efna
loforðin. Af hveiju er
það gert? Af hveiju em
verkin ekki látín tala svo
kjósendur fái trú á mál-
flutningnum?
Þrýstimælar
Mlar stæröir og geröir
Vesturgötu 16, sími 13281}
Þjóðhátíð
Vestmannaeyja 1986
Vegna þjóðhátíðar Vestmannaeyja sem
haldin verður 1., 2. og 3. ágúst auglýsir
þjóðhátíðarnefnd Þórs eftirfarandi:
1. Óskað er eftir tillögum að þjóðhátíðar-
lagi og Ijóði 1986. Tillögum skal skilað á
snældum og vera merkt dulnefni, en nafn
og heimilisfang höfundar fylgi með í lok-
uðu umslagi. Tillögum skal skilað fyrir 15.
júní.
2. Óskað er eftir tilboðum frá hljómsveit-
um að leika fyrirTiýju og gömlu dönsunum
á hátíðinni.
Tilboðum skal skilað fyrir 1. júní. Tillögur
og tilboð sendist í pósthólf 175, 902
Vestmannaeyjum, merkt: Þjóðhátíðar-
nefnd Þórs. Allar nánari upplýsingar veitir
Þór Vilhjálmsson í síma 98—1816 á kvöld-
in.
Þjóðhátíðarnefnd Þórs 1986.