Morgunblaðið - 21.05.1986, Page 18

Morgunblaðið - 21.05.1986, Page 18
18 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Sænskt Islandsrit Békmenntir Erlendur Jónsson Gardar heitir ársrit Islendingafé- lagsins í Lundi og Málmey og hefur þess verið getið hér áður. Nýverið hefur félagið sent frá sér myndar- lega bók fýrir síðastliðin tvö ár og er hún auðkennd með tölunum XVI-XVII (112 bls.). Ritstjóri er sem fyrr Lars Svensson. Þessi tvöfalda árbók er með nokkuð nýju sniði. Áður hefur ritið verið helgað íslenskum fræðum mest eins og þau blasa við frá sjón- arhóli erlendra fræðimanna. Efni þessa rits ber hins vegar yfirskrift- ina: Islendingar um ísland. Fimmt- án íslendingar rita hver sinn þáttinn um land og þjóð. Fyrstur ritar t.d. Páll Imsland um jarðsögu landsins. Stuttur er sá þáttur en gagnorður; og vafalaust hæfílega ýtarlegur fyrir útlendinga sem hafa ekki jafn- mikinn áhuga á jarðfræði og við; enda ekki aldir upp á slóðum þar sem sköpun heims er enn fyrir augum svo að segja daglega. Meðal annars efnis nefni ég sérstaklega þáttinn íslensku handritin eftir Jónas Kristjánsson. Menntaður Norðurlandabúi veit að íslendingar færðu í letur sögumar. En hversu mikið veit hann að öðru leyti um íslenskar fombókmenntir? Mundi það ekki vera nokkuð gloppótt? Jónas Kristjánsson lýsir því hvemig bókfell var gert og rekur sögu handritanna — hrakningasögu þeirra og endurheimt. Sá útlending- ur sem les þennan þátt og festir í minni skilur íslendinga betur eftir en áður. Erfíðara er hlutverk Þórs Magn- ússonar að rita um íslenskar fom- minjar sem útlendingi hljóta að sýn- ast hér bæði fáar og smáar. Ef til vili er þáttur þjóðminjavarðar samt gagnlegri en annað efni þessarar bókar því útlendingar, sem hingað koma, fá sínar fyrstu og síðustu upplýsingar um fortíð þjóðarinnar á söfnunum. Þór Magnússon segir auðvitað frá Þjóðminjasafninu en getur líka um byggðasöfnin sem sprottið hafa upp víðs vegar um land, og greinir frá menningar- hlutverki því sem þau gegna. Sveinn Einarsson ritar um leiklist á Islandi. Getur Sveinn um hinn mikla vöxt sem hér hefur orðið í leiklistinni hin síðari ár; og ekki síður í leikritun. Til dæmis upplýsir hann að síðustu fímm árin eða svo hafí hvorki fleiri né færri en fímm- tíu höfundar sent frá sér sín fyrstu leikrit — fyrir útvarp, sjónvarp eða leiksvið. Aðalsteinn Davíðsson skrifar um íslenskt mál og bókmenntir í léttum rabbstíl og kemur víða við. Auðvitað stiklar hann á stóru, annars er ekki kostur í stuttu yfírliti. Hann ræðir fyrst fram og aftur um fslenska málþróun og gildi fombókmennt- anna fyrir viðleitni þjóðarinnar að varðveita tunguna og nefnir síðan Hallgrím Pétursson og Jónas Hall- grímsson. Þannig er farið fljótt yfír sögu. Minnt er á brautryðjandaverk Jóns Thoroddsens í íslenskri skáld- sagnaritun. Og þá er komið að Halldóri Laxness. Einar Benedikts- son er ekki að fínna í yfírliti þessu, ekki heldur Davíð Stefánsson né Stefán frá Hvítadal. Komu hinir síðamefndu þó sannarlega af stað glæsilegri sveiflu í íslenskri ljóðlist og mörkuðu tímamót. En tímabil þeirra var stutt. Með Rauðum penn- um kom skömmu síðar fram harð- snúinn og samstæður hópur ungra rithöfunda. Hver sá, sem utan hans stóð, átti á hættu að einangrast. Þeim megin var Davíð Stefánsson meðal annarra. Það er því tæpast að ástæðulausu að síðan hafa ís- lenskir rithöfundar óttast fátt meira en einangrun. Þeir hafa dæmin fyrir sér. Tómasi Guðmundssyni var aldrei stjakað til hliðar eins og Davíð. Enda er nafn hans að fínna hér. Af síðari ljóðskáldum nefnir svo Aðalsteinn: Snorra Hjartarson, Stein Steinarr og Jón úr Vör. Sundurleit er ljóðlist þeirra og ekki öll jafn nútímaleg. Hún á sér þó sama stuðnings- mannahópinn ef svo má segja og varla tilviljun að þeirra er getið þama öðrum fremur. En hvað um Ólaf Jóh. Sigurðsson sem hlaut Norðurlandaverðlaun fyrir Ijóðlist? Hann er hér hvergi að fínna. Nú er að vísu almennt álitið — og að mínum dómi með réttu — að hann hefði átt skilið verðlaun fyrir skáldsagnaritun fremur en ljóðlist. Lars Svensson En sagna hans er ekki getið hér að heldur. Auk Halldórs Laxness em ekki nefndir hér aðrir núlifandi lausamálshöfundar er Thór Vil- hjálmsson og Guðbergur Bergsson. Engan höfund nefnir Aðalsteinn sem er ekki þess verður að vera kynntur fyrir Svíum. En úrtak af því tagi sem hann velur er alltaf viðkvæmt mál meðal íslenskra höf- unda — og ekki að ástæðulausu. Reynslan hefur sýnt að hveijum þeim íslenskum rithöfundi, sem tekst að gera út á Norðurlönd, veitist upp frá því auðveldara að njóta sannmælis hér heima og verða aflakóngur í styrkjakerfínu hér. Þá em í þessum Gardari (heitir eftir Garðari Svavarssyni) þættir um náttúm íslands, efnahagsmál, trúarlíf og sögustaði og er því efni góð skil gerð í ekki stærra riti. Margar litmyndir piýða ritið, aðal- lega landslagsmyndir, en einnig myndir af málverkum til stuðnings við þátt sem Aðalsteinn Ingólfsson ritar um íslenska myndlist. Svíi, sem les rit þetta og leggur síðan upp í íslandsreisu, má teljast nokk- uð vel undir þá ferð búinn. íslendingi, sem kynnir samtfma- málefíii okkar erlendis, er hins vegar ærinn vandi á höndum þar sem reynslan sannar að álitamálin em mörg og stundarmat er oft á einhliða rökum reist. Kór Fjölbrauta- skóla Suðurlands Tónlist Jón Ásgeirsson Jón Ingi Sigurmundsson, sem starfað hefur á Selfossi hefur nú fært sig um set og frá því að æfa stúlknakór, hefur hann nú tekið til við að ná saman blönduðum kór ungmenna við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Jón hefur oft sýnt að hann kann vel til verka í söng- stjórn og með tónleikum þeim, er hann stóð fyrir, ásamt þeim ung- mennum er hlýtt hafa kalli hans, hefur hann sýnt að hann er frábær stjómandi og má líklega eiga von á því, að Selfyssingar bætist í hóp þeirra er með söngvum sínum munu sanna fólki, að á íslandi býr menningarþjóð. Bestu lögin á tónleikunum vom Cum decore eftir Susato, Berhöfðaður burt ég fer, í útsetningu Jónasar Tómas- sonar eldra, norrænu þjóðlögin Smá vinir fagrir, eftir Jón Nordal, negrasálmurinn Swing low og Exultate Deo eftir Alessandro Scarlatti. Tvö lög vom frumflutt af kómum, og Hulin blóm eftir Björgvin Þ. Valdimarsson, við texta eftir Ingólf Jónsson frá Prestbakka, og Þú sem gafst mér þessa skál, eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Lag Gunnars er nokk- uð erfitt í söng en vel samið og bregður þar auðvitað fyrir ýmsu í meðferð texta og hljóðfalls, sem Gunnar gerir flestum íslenskum tónhöfundum betur. Nokkrir sóngfélagar sungu einsöng og þar mátti heyra mjög fallegar raddir og styrkir söngur þeirra hlustend- ur í þeirri trú, að söngstjórinn Jón Ingi Sigurmundsson kunni ýmis- legt fyrir sér og að unga fólkið njóti leiðsagnar, sem trúlega á eftir að vera þeim heilladijúgt veganesti. Lítil aðsókn að þessu sinni má ekki taka svo að fólk Reykvíkingar kunni ekki gott að meta, heldur er vorið þeim sem og öðrum íslendingum erfitt til inniveru og hvítasunnan mikil hátíð og vorferðahelgi. Þegar kór Fjölbrautaskóla Suðurlands á leið til Reykjavíkur öðm sinni, munu Reykvíkingar vita að von er á góðum söng og fjölmenna til að njóta góðrar listar unga fólksins. Sinfóníutónleikar Efnisskrá: Þorkell Sigurbjörnsson, Læti Carl Ph. E. Bach, Flautukon- sert í d-moll Sergei Prókofféff, Sinfónía nr. 5 Einleikari: Manuela Wiesler Stjórnandi: David Robertsson Ifyrsta verkið á tónleikum, Læti, eftir Þorkel Sigurbjömsson var mjög vel flutt undir nákvæmri stjóm David Robertsson. Flautu- konsertinn eftir Carl Philipp Emanúel, er fallega gerð tónsmíð en hann er sá tónhöfundur er mikil áhrif hafði á Haydn og Beethoven. Hann hafði afgerandi áhrif á þróun píanósónötunnar og afstöðu manna til tóntúlkunar. Þrátt fyrir margar nýjungar, sem rekja má til hans, bera verk hans sterk barokkeinkenni. Manuela Wiesler lék konsertinn mjög vel, einkum síðasta þáttinn, sem er leikandi fjömgur. Síðasta verkið á efnisskránni var sú fimmta eftir Prókofféff, sem þykir einkar glæsilegt verk. David Robertsson stjómaði þessu erfiða verki mjög vel og á köflum lék hljómsveitin verkið glæsilega, þó síðasti hljómurinn yrði slagverk- inu erfiður. David Robertsson er ungur Bandaríkjamaður og stjómar sinfóníuhljómsveit í ísrael og væri vel til fundið að fá þennan ágæta stjómanda til að leiða hljómsveitina á nokkmm konsert- um, því „lengi má manninn reyna" og „einn kemur þá annar fer“. Af spámannlegu fólki Þrjár nýjar bækur frá Fount CrlonHar - ■ bættan heim en fengu fólkinu ekki cnenoar f hendur neitt vald og hugmyndin Torfi Ólafsson um eigna- og tekjujöfnun fór fyrir lítið. Veraldarhyggjan tröllríður einnig vestrænum þjóðum, þar hlað- A Prophetic People eftir Clifford Hill ast upp komQöll, smjörfjöll og kjöt- Clifford Hill er prestur í ensku kirkjunni og starfaði lengi í London, þar af allmörg ár í East End. Lögregla og fangaveðir leituðu til hans í málum sem snertu m.a. kynþáttaárekstra og ofbeldi og hann var til ráðgjafar þingnefnd sem fjallaði um takmarkanir á sölu ogdreifíngu ofbeldismyndbanda. Clifford Hill finnst samtíð okkar ekki beinlínis hólsverð en þó telur hann nokkur straumhvörf hafa orðið í trúmálum upp úr 1970 en fyrir þann tíma hafi verið alger lægð á því sviði. Marga trúnaðar- menn kirkjunnar, presta ekki síður en aðra, telur hann svo slappa og undanlátssama að söfnuðimir væm betur komnir ánþeirra. Hann bendir á ýmis vandamál okkar tíma, svo sem náttúrueyð- ingu, ofnotkun auðlinda og meng- un, skrifræði og stöðlun þar sem maðurinn er frekar verkfæri en skyni gædd vera. Höfuðvandann telur hann vera efnishyggju og veraldarhyggju, jafnt í austri og vestri. Menn eru haldnir þeirri blekkingu að þeir geti keypt sér hamingju með eignum og efnalegri velgengni. Kommúnistar boðuðu fyöll meðan milljónir svelta til bana og það háttalag á eftir að koma þeim þjóðum í koll. Allir heimta meira en þeir hafa og erkióvinurinn nýr saman krumlunum af ánægju því hann veit hvað þeirra bíður sem trúa á efnishyggjuna. Þegar menn hætta að trúa á Guð, hætta þeir ekki að trúa yfir- leitt, heldur fara að trúa allskonar hjátrúarkjaftæði. Ofbeldið er eitt höfuðeinkenni okkar tíma, viðmiðunin hefur breyst og menn hafa ekki neinn gildan mælikvarða lengur. En lögmál Guðs verða ekki brotin endalaust án þess að sökin bíti hinn seka. Letrið stendur á veggnum: þú ert veginn og léttvægur fundinn, og aðvörunarmerki Guðs er hvar- vetna að sjá, eins og spámenn fyrri tíma sögðu ævinlega. Þeirra er mikið getið í bókinni og bent á hversu spásagnir þeirra hafí reynst réttar í tímans rás. Nú er mest þörf á einlægu trausti á Guði og vilja til að fara eftir boðum hans. Kirkjan nú á dögum er furðu ólík hinni fyrstu kirkju. við þörfnumst ekki „stjömuleið- toga“ heldur trúaðs samfélags, efnahagsleg velsæld er engan veg- inn merki um velþóknun Guðs. Óvinurinn er staðreynd en það eram ekki við sem eigum í baráttu við hann, heldur Guð. Undansláttur og „fíjálslyndi" í trúmálum er aðeins til bölvunar en bókstafstrú leiðir ekki heldur til góðs. Sjálfsagt er að rannsaka og kanna en trúarat- riðum verður ekki breytt. Meðal þeirra er kenningin um meyfæðing- una, kraftaverkjn, upprisu Jesú og guðdóm hans. Á því leikur enginn vafí að ýmsir munu hafa sitthvað að athuga við staðhæfíngar höfúnd- ar en fullyrða má að flestum sem áhuga hafa á kristnidómi fínnist hressandi að fínna mann sem stend- ur föstum fótum í kristnum sið, mitt í lognmollu nútímans á því sviði. Bókin er 156 blaðsíður í stærra vasabrotinu. The Perfection of Love, safn smákafla úr ritum margra þeirra sem kunnastir eru fyrir ritverk sín um kristna trú. Tony Castle valdi kaflana. Flestir kaflamir era stuttir, sumir tvær til þijár línur og aðrir heil blaðsíða eða meira. Höfundam- ir era margir heimskunnir, svo sem Ágústínus, Bemarður af Clairvaux, Katrín frá Siena, Meister Eckhart, Frans af Sales, Jóhannes af krossin- um, C.S. Lewis, Tómas Merton, Blaise Pascal, Teresa frá Avila, Simone Veil og margir fleiri. Þessir kaflar era mjög hentugir til að lesa þegar hlé gefst milli daglegra athafna eða áður en maður fer að sofa, lesa þá einn kafla og hugleiða efni hans. Með þeim hætti efla menn og styrkja trúarlíf sitt, enda er vandséð hvem- ig menn eiga að taka framförum á því sviði án þess að glæða það á einhvem hátt, ýmist með lestri eða viðtölum við menn sem einhverju geta miðlað. Bókin er 188 blaðsiður í stærra vasabrotinu. Like Wind on the Grasses eftir Ritu Snowden, kunnan rithöfund og fyrirlesara Meþódistakirkjunnar. Rita hefur samið bænir og skrif- að fjölmargt um kristnidóm. Þessi bók er safn stuttra kafla um eitt og annað sem dregið hefur að sér athygli hennar í daglegu lífí, stund- um það sem við sjáum öll og heyram en okkur sést engu að síður yfír. Þessar stuttu greinar hafa sama kostinn og kaflamir í The Perfec- tion of Love, að þeir era fljótlesnir og handhægir en að djúphygli standa þeir hinum fyrrtöldu ekki jafnfætis. Þó er hveijum manni hollt að ganga um graslendið með Ritu og nema þær hugsanir sem hóglátur blærinn hvíslar í eyra henni og leyfa þeim að kveikja nýjar hugsanir hjá okkur sjálfum. Bókin er 160 blaðsíður í venju- legu vasabroti. Torfl Ólafsson Framkvæmdir hafnar við fyrsta áfanga hol- ræsagerðar í Reykajvík FRAMKVÆMDIR við safnræsi frá Klöpp á Skúlagötu inn að Snorrabraut eru hafnar og er það fyrirtækið Miðfell hf. sem annast þær. Tilboð Miðfells hljóðaði upp á 16,6 milljónir króna, en kostnaðar áætlun hljóðaði upp á rúmlega 18 milljónir króna. Alls gerðu 6 aðilar tilboð í verkið. Á næstunni verða boðnir út 2. og 3. áfangi holræsagerðar í Reykjavík og er annar áfangi frá Snorrabraut að Kringlumýrarbraut og sá þriðji frá Kringlumýrarbraut að Laugalæk. m lnrgminl Gódtm daginn!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.