Morgunblaðið - 21.05.1986, Page 30

Morgunblaðið - 21.05.1986, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl 1986 Dómíníkanska lýðveldið: Tveir af þremur í yf irkj örstj órn segja af sér Santo Domingo, Dómíníkanska lýðveldinu. AP. TVEIR af þremur meðlimum yfirkjörstjómar í Dómíníkanska lýð- veldinu hafa sagt af sér eftir að hafa verið gagnrýndir harðlega af forsetaefni ráðandi stjórnmálaaflsins í landinu, Jacobo Majluta. Talningu í forsetakosningunum í landinu var hætt á sunnudagsmorg- un og hefur ekki verið tekin upp aftur. Skömmu síðar lýsti Majluta sig sigurvegara þeirra og krafðist endurtalningar. Síðustu kosninga- tölur sem kynntar voru á sunnudag frá 92% kjörstaða, sýndu að leiðtogi stjómarandstöðunnar, Joaquin Bal- aguer, hafði forustu í kosningunum, hafði hlotið 799.968 atkvæði eða 40,04%, en Majluta 764.509 at- kvæði eða 38,26%. Þá hafði Juan Bosch hlotið 17,61% atkvæða og aðrir minna. I útvarpi voru lesnar tilkynningar frá vamarmálaráðuneytinu í landinu, þar sem skorað var á fólk að halda ró sinni og sagt að herinn myndi virða lýðræðið í landinu. Nýr sendiherra Sovétríkjanna í Bandaríkjunum . AP/Símamynd Fyrsti spænski forsætisráðherra heimsækir Sovétríkin Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, er í opinberri heimsókn í Sovétríkjunum og hitti í gær að máli, þá Mikhail Gorbachev, aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, Nikolai I. Ryzkov, forsætisráðherra, og Andrei Gromyko, forseta. sem sést hér á myndinni ásamt Gonzaiez. Gonz- ales er fyrstur spænskra forsætisráðherra til að fara í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna. í för með honum eru ráðherrar utanríkis-, við- skipta- og menningarmála. Moskvu. AP. YURI I. Dubinin hefur verið útnefndur sendiherra Sovétríkjanna í Bandaríkjunum í stað Anatoly F. Dobrynin, sem fyrir fáum mánuðum var gerður að ritara sovéska kommúnistaflokksins, en hann hafði verið sendiherra Sovétríkjanna í Bandarikjunum í 24 ár. Dubinin var gerður að sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir Sovétmenn styðja Sýr- lendinsra Damaskus. AP. SOVÉSKI hershöfðinginn, Alex- ei Lizitchev, lýsti yfir stuðningi Sovétríkjanna við „réttláta og heilaga baráttu Sýrlands fyrir frelsi sínu og sjálfsvirðingu,“ að sögn því er sýrlenska ríkisfrétta- stofan hermdi i gær. Hershöfð- ingin er í Damaskus í boði Sýr- lendinga. Hann er yfirmaður stjórnmáladeildar hers og flota Sovétríkjanna. Fréttir þessa efnis koma í fram- haldi af fregnum um aukin þrýsting Bandaríkjanna á Sýrlendinga að láta af stuðningi við hryðjuverk og hjálpa til við lausn bandarískra og franskra gísla í Líbanon. Sovét- menn eru fremstir í flokki þeirra ríkja, sem hafa undanfarin ár séð Sýrlendingum fyrir vopnum og hergögnum. ísraelska útvarpið skýrði frá því á mánudag, að Sovét- menn myndu láta Sýrlendingum í té sínar fullkomnustu herþotur og flugskeyti áður en þetta ár væri úti. aðeins tveimur mánuðum, en gegndi áður sendiherrastöðu á Spáni í sjö ár. Ekki kom fram í opinberri tilkynningu um þessa skipun, hver tekur við af Dubinin hjá Sameinuðu þjóðunum. Dubinin fæddist árið 1930 og hóf störf f utanríkisráðuneyti Sovétríkj- anna árið 1955. Hann er sérfræð- ingur í málefnum latneskumælandi þjóða. Hann var yfirmaður deildar sovéska utanríkisráðuneytisins, sem fer með málefni Suður-Evrópu og var sérlegur ráðgjafi sendiherra Sovétríkjanna í París árin 1964-68. Dubinin er kvæntur og á þijú böm. Miklar óeirðir í Suður-Kóreu Ungur maður lézt eftir að hann kveikti í sér og varpaði sér ofan af fjórðu hæð Seoul. AP. HÁSKÓLASTÚDENT beið bana, eftir að hann bar eld að sjálfum sér og stökk ofan af fjórðu hæð á einni af byggingum háskólans í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Hrópaði hann mótmæli gegn heimsvaldastefnu Banda- ríkjamanna og nærveru lög- regluliðs á háskólasvæðinu. Suður-Afríka: 16 blökkumenn hafa dáið í hörðum átökum Jóhannesarborg. AP. SEXTÁN hafa nú látist í hörðum átökum blakkra í Crossroads fátækrahverfinu í nágrenni Höfðaborgar í Suður-Afríku. Að mati lög- reglu skiptir það fólk tugum sem slasast hefur í átökun- um, 800 heimili hafa verið brennt til grunna og ætlað er að um 10 þúsund manns Bretland: Thatcher lýsir yf ir ugg vegna atvinnuleysisins London. AP. FRÚ Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði í ræðu í Perth í Skotlandi fyrir helgina, að hún hefði miklar áhyggjur af þeim meira en 3 millj. manns, sem væru atvinnu- lausir á Bretlandi. Er talið, að með ræðu sinni hafi hún viljað blása kjarki í flokksbræður sína í Skotlandi, en íhalds- flokkurinn hlaut þar víða slæma útreið í bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum fyrr í þessum mánuði. Um helgina varð enn vart við gangsverkefni, jafnvægi í stjórn- ágreining innan Ihaldsflokksins, er ijórir fyrrverandi ráðherrar í stjóm Thatcher hvöttu til breyt- inga á stjómarstefnunni. Michael Heseltine, fyrrum vamarmála- ráðherra, hvatti Thatcher til að gefa út yfírlitsskýrslu um „for- arstefnunni, þar sem ekki er bara lögð áherzla á skattalækkanir, heldur einnig komi fram viður- kenning á réttmætum kröfum þeirra, sem minna mega sín í þjóðfélaginu." Leon Brittan, fyrrverandi við- skipta- og iðnaðarráðherra, sem lengi hefur verið ákveðinn stuðn- ingsmaður Thatcher, sagði í ræðu, að stjómin yrði að vera „sveigjanleg í viðbrögðum sínum gagnvart vandamálum þjóðarinn- ar.“ Roy Hattersley, varaformaður Verkamannaflokksins, lýsti hins vegar Thatcher í fréttaviðtali um helgina sem „harðbrjósta skassi“, sem hefði ekki áhyggjur af neinu öðru en því, hvort hún kynni að tapa fylgi og þar með forsætis- ráðherraembættinu. séu heimilislausir vegna þessa. Átökin eiga sér stað milli íhaldssamra og róttækra hópa blökkumanna. Þau brutust út á sunnudag og héldu áfram á mánudaginn. Hundruðir af hvor- um tveggja börðust með öxum, eldsprengjum og skotvopnum. Róttæki hópurinn samanstendur einkum af yngri mönnum, en hinir íhaldssömu eru eldri. Lögregla reyndi á mánudag, með því að beita táragasi og skotvopnum að aðskilja hinar stríðandi fylkingar og hjálpar- stofnanir hafa sett á stofn mið- stöðvar til þess að aðstoða hjálp- arþurfí. „Það er ómögulegt að átta sig á því hversu margir þarfnast hjálpar, það ríkir þvílík- ur glundroði þarna. Það er stríð,“ sagði talsmaður Rauða krossins, Red Morris, í samtali við frétta- menn. Að sögn fréttamanna héldu bardagar áfram í gær, en lög7 regla bannaði þeim að vera í grennd við átökin. Að sögn vitna, studdi nokkur hluti lögreglunnar, hina íhaldsömu í átökunum. Til mikilla óeirða kom eftir þennan atburð, þar sem námsmenn köstuðu bensín- sprengjum að lögreglunni, en hún svaraði með táragas- sprengjum. Þetta er í þriðja sinn frá því í marz sl., sem stúdent við háskól- ann í Seoul kveikir í sjálfum sér. Einn stúdent lézt nú í byijun maí af þessum sökum og annar er mjög illa á sig kominn á sjúkra- húsi vegna brunasára. Um 3000 námsmenn horfðu á, er stúdentinn bar eld að sjálfum sér í gær, en hann hét Lee Tong- Soo og var 22 ára gamall. Gerðist þetta, er útifundur stóð yfir, þar sem kunnur andófsmaður, séra Moon Ik-Hwan, flutti ræðu. Til óeirða kom við háskóla víða í Suður-Kóreu í gær, en ekki voru þó bein tengsl milli þeirra og óeirð- ahna við háskólann í Seoul. Greenpeace: Ráðist um borð 1 skip London. AP. TVEIR félagar umhverfisvernd- arsamtakanna Greenpeace réð- ust í leyfisleysi um borð í breskt skip á Miðjarðarhafi með kjarn- orkuúrgang innanborðs. Til- gangur athæfisins var að sýna fram á hversu auðvelt væri fyrir utanaðkomandi aðilja að vinna spellvirki á slíkum flutningaskip- um með óbætanlegu tjóni. Skipið var á vegum Sellafield, stærstu endurvinnslustöð kjarn- orkuúrgangs á hnattkúlunni. Greenpeace-samtökin hafa barist fyrir því að Verksmiðjunni, sem er á norðvesturhluta Englands verði lokað vegna þess að þar hefur leki verið þrálátur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.