Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 31

Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986 31 Afganistan: Harðar loft- árásir Sovét- manna Islamabad. AP. FJÖLDI nýjustu orrustuþotna og sprengjuflugvéla Sovétmanna hefur sést í Afganistan á undan- förnum vikum og mánuðum og telja vestrænir sendiráðsstarfs- menn að þær séu notaðar til loftárása á þarlenda skæruliða, sem beijast gegn stjórnvöldum í Kabúl. Fregnir herma að um sé að ræða fullkomnar MIG-25-orrustuþotur, auk flugvéla af gerðunum MIG-23s, MIG-25s og SU-22s. Hermenn Sovétstjómarinnar og stjómar- hermenn í Afganistan, hafa haldið uppi hörðum árásum að undanfömu á stöðvar skæruliða í Austur-Afg- anistan, einkum í Paktia-héraði og Ningrahar-héraði, og foringjar skæmliða segjast hafa misst tugi manna í þessum árásum. V estur-Þýskaland: Atök lögreglu og andstæð- inga kjarnorku Wackerdorf, Vestur-Þýskalandi. AP. HÖRÐ átök urðu milli lögreglu og andstæðinga kjarnorku í Vestur-Þýskalandi í Wackers- dorf um helgina. Beitti lögreglan háþrýstivatnssprautum og tára- gasi í baráttu við mannfjölda og að sögn lögreglunnar særðust 157 lögreglumenn í þessum átök- um. Í Wackersdorf er verið að reisa fyrstu endurvinnsluverksmiðju kjamorkuúrgangs í Vestur-Þýska- landi. Um 5 þúsund manns söfnuð- ust saman á byggingarsvæðinu á laugardaginn og bmtust út átök er lögregla reyndi að dreifa mannfjöld- anum. Varð hið sama raunin bæði á sunndag og mánudag. Talmenn lögreglunnar sögðu liðsmenn sína ekki alvarlega slas- aða eftir átökin. í flestum tilfellum hefði verið um smávægileg meiðsl að ræða, en nokkrir lögreglumenn væm þó ennþá í sjúkrahúsum. AP/Símamynd Yfirmenn í flugher Pakistan með hluta af stéli afganskrar orustu- þotu, sem skotin var niður innan pakistönsku landamæranna á laugar- dag eftir að hún hafði rofið lofthelgi Pakistan. Líbýskur ræðis- maður sakaður um sprengjuáform Ankara, AP. RÍKISSAKSÓKNARI í Tyrklandi hefur ákært líbýskan ræðismann í Istanbul fynr hlutdeild í meintu samsæri um að koma sprengju fyrir í næturklúbbi bandarískra liðsforingja í borginni. Maðurinn, sem heitir Ali Mansur Musbah A1 Zayyani, er næst æðsti sendistarfs- maður Líbýu í Tyrklandi og er hann ákærður ásamt fimm öðrum Líbýumönnum. Samkvæmt frásögn tyrkneska utanríkisráðuneytisins verður þó ekki unnt að draga Zayyani og tvo hinna Líbýumannanna fyrir rétt, sökum þess að þeir njóta friðhelgi sendistarfsmanna. Saksóknarinn, Ulku Coskun, kvaðst hins vegar hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að friðhelgi sendistarfsmanna næði ekki til hryðjuverka. Coskun heldur því fram, að sprenginguna hafi verið fyrirhugað að framkvæma í næturklúbbnum, er hann var þéttskipaður fólki vegna brúðkaups, sem þar fór fram. „Ef áformin hefðu tekizt, þá hefði þama átt sér hópmorð,“ var haft eftir Coskin í gær. Mugabe harðorður í garð Suður-Af ríku: Skorar á þjóðir heims að ffrípa til refsiaðfferða Harare. AP. V. J J ROBERT Mugabe, forsætisráðherra Zimbabwe, skoraði í gær á þjóðir víða um heim að gripa þegar í stað til um- fangsmikilla efnahagsrefsiaðgerða gagnvart Suður-Afríku og svara þannig árásum þeirra á stöðvar Afríska þjóðar- ráðsins (ANC) á mánudag. Muagabe skýrði svo frá, að fjór- ir menn hefðu verið handteknir í Zimbabwe í tengslum við árásirn- ar, en sagði ekki, hveijir það hefðu verið. Þá sagði hann, að með „til- gangslausum árásum sínum er stjóm Suður-Afríku augljóslega orðin að hryðjuverkasamtökum. Hún hikar ekki við að gera villi- mannlegar árásir á nágrannaríki sín til vamar og réttlætingar því illa og ómannúðlega stjómkerfí, sem hún berst fyrir." Árásir Suður-Afríkumanna beindust að stöðvum ANC í höfuð- borgum Zimbabwe, Zambíu og Botzwana og beittu þeir bæði sprengjuþotum og víkingasveit- um, sem komu flugleiðis í þyrlum. í Zimbabwe ollu þeir tjóni á skrif- stofubyggingu í miðborg höfuð- borgarinnar Harare og íbúðarhúsi í úthverfi borgarinnar. I árásinni særðist einn varðmaður. í Bots- wana beið einn maður bana og þrír særðust. í Zambíu týndu tveir menn lífi, en 10 manns særðust. Árásir Suður-Afríkumanna nú á stöðvar skæruliða ANC í öðmm löndum em þær fyrstu sinnar tegundar í um 12 mánuði. Á lönd- in Zambíu og Zimbabwe hafa þeir aldrei gert árásir áður. Stjómin í Pretoríu hefur hins AP/Símamynd Robert Mugabe, forsætisráðherra Zimbabwe, kannar skemmdir þær, sem urðu á stöðvum Afríska þjóðarráðsins í Harare í árás Suður-Afríkumanna á mánudag. vegar haldið því fram um langt skeið, að ýms nágrannaríki henn- ar styðji skæmliðasamtök blökku- manna með margvíslegum hætti. Að hennar áliti em ANC, sem gerð vom útlæg 1960, hryðju- verkasamtök undir stjóm komm- únista. Þau standi fyrir stórfelld- um skemmdarverkum og hvetji blökkumenn til óeirða, svo að ekki verði unnt að stjóma landinu og með því verði kommúnistum gert kleift að taka völdin þar í sínar hendur. Sir Geoffrey Howe, utanríkis- ráðherra Bretlands, lýsti í dag árásum Suður-Afríkumanna á þann veg, að þær væm „gróft brot á fullveldi þriggja aðildar- landa Brezka samveldisins." Javi- er Perez de Cuellar, aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sagði, að þær væra „enn frekari aukning á ofbeldinu í Suður-Afríku, sem á rót sína að rekja til hinnar óréttlátu aðskiln- aðarstefnu, er fordæmd hefur verið um allan heim.“ Sænska stjómin fordæmdi í gær aðgerðir Suður-Afríku og lýsti þeim sem „sönnun um enn grófari ofbeldisaðferðir stjórnar- innar þar til varnar aðskilnaðar- stefnunni.“ ÚTSÝNARFERÐ ER L YKILL AÐ FARSÆLU FERÐALAGI FLUG OG BÍLL UMALLA EVRÓPU LONDON - KAUPMANNAHÖFN - BERGEN - OSLO- SALZBURG - LUXEMBURG - AMSTERDAM - ZÚRICH Utsýn býður frábær kjör á flugi og bílaleigubíl. Með sér- samningi við flugfélögin og traustar, ódýrar bílaleigur, býður Utsýn ótrúlega hagstætt verð á flugi og leigu á bíl af þeirri stærð og gerð sem þér hentar best. Síðan geturðu tengt þetta hvort tveggja við dvöl í 1—2 vikur á gististöðum Útsýnar í Þýskalandi, ferðum um Kaup- mannahöfn eða Salzburg eða dvöl á Ensku Rivierunni svo dæmi séu nefnd. íslenskt ökuskírteini gildir alls staðar i Vestur-Evrópu. Austurstræti 17, sími 26611 Iferð frá kr. 14.120

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.