Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
51
heilsufræðikvikmyndir eitt kvöld f
viku.
í svona starfi fær maður tækifæri
til að kynnast lífí fólksins, sérstak-
lega þegar maður fer í heimsóknir
til þess. Það er gestrisið og þykir
vænt um að við, „ríka, hvíta fólkið",
skulum vilja heimsækja það. Á slík-
um ferðum uppgötvar maður ýmis
mannleg vandamál og sjúkdóma.
Sumir hafa þjáðst árum saman án
þess að fá nokkra verulega hjálp.
Orsakirnar eru margar, oft ófull-
komin sjúkraþjónusta ríkisins, sem
er ókeypis, fjárskortur til að fara
til dýrra lækna eða á einkaspítala,
fáfræði eða hreint og beint hirðu-
leysi hinna nánustu. Náungakær-
leikurinn er því miður ekki alltaf
mikill, sérstaklega þegar hann
kostar peninga! Það er því afar
þakklátt verk að hafa frumkvæðið
að því að koma sjúklingum til
læknis svo að þeir fái varanlegan
bata.
Ný kenning
Þegar við vorum beðin um að
koma á fót fullorðinsfræðslu, sögð-
um við skýrt frá því að við værum
kristniboðar og að við myndum
ekki hafa skóla, nema Biblíusögur
væru kenndar líka. Ef það væri í
lagi, væri okkur ekkert að van-
búnaði. Það var samþykkt.
Þegar skriftar- og reiknings-
kennslunni var lokið, var röðin
komin að kristnifræðunum. Kennsl-
unni er líkt háttað og í sunnudaga-
skóla á íslandi. Kennarinn heldur á
stórri mynd og kennir síðan söguna,
sem myndin á við. Nemendumir fá
síðan alveg eins mynd, bara litla,
sem þeir líma síðan inn i stílabók.
Það var undarlegt að standa
frammi fyrir þessum hópi og rasða
við hann um Guð. „Þekkið þið Guð?
Vitið þið hvort Allah gefur ykkur
eilíft líf?“
„Hver getur þekkt Guð?,“ var
strax svarað. „Ef við erum dugleg
að fara í moskuna, biðjum 5 sinnum
á sólarhring og föstum í föstumán-
uðinum, getur verið að Allah geri
okkur hólpin."
En ekkert er vitað með vissu.
Múhameðstrúin gengur út á að
hlýða ákveðnum boðum og bönnum.
En þótt menn geri það af mikilli
samviskusemi, geta þeir aldrei verið
vissir um sáluhjáip sína, því Allah
hefur ákveðið allt slíkt fyrirfram.
Hann er ópersónulegur og óraflar-
lægur.
Það var stórkostlegt að geta sagt
fólkinu frá því, að það gæti þekkt
Guð, vegna þess að hann kom sjálf-
ur inn í mannheim í Jesúm Kristi
til þess að segja okkur hug sinn til
okkar, að hann sé faðir, sem við
getum leitað til með allt, vanda og
gleði vegna þess að hann þekkir
okkur og elskar og ber umhyggju
fyrir velferð okkar. Hann vill ekki,
að neinn glatist, heldur þráir hann
að gefa öllum sáluhjálp og eilíft líf.
Hann vill vera þátttakandi í lífí
okkar.
Nei. Þetta hafði fólkið aldrei
heyrt. Gat þetta verið satt? Var það
einnig satt, að Guð mæti konumar
jafn mikils og mennina? Það var
merkilegt.Þetta er nýr boðskapur í
Dígó-landi. Fólkið þarf að kynnast
honum betur áður en það tekur
afstöðu til hans.
Kristni bróðir og systir! Verum
öll þátttakendur í því að greiða
skuld okkar gagnvart þeim, sem
enn hafa ekki kynnst kærleika
Krists og því nýja lífí, sem hann
einn getur gefið.
Höfundur er kristniboði í Kenýa
og skrifar greinar í Morgunblaðið
um land og þjóð.
m
Morgunblaðið/KJ.
I heimsókn hjá Dígófjölskyldu, en Dígómenn eru gestrisnir. Þessi
kona, sem er nemandi f fullorðinsfræðslunni, brýtur korn og býr á
þann hátt til mjöl í matinn. Áhöldin sem hún notar, eru lurkur og
ker, sem búið er til úr tijástofni.
minni flarvistir...
fc>akverkurinn horfinn
öllum ITöur vel...
ekki kvartaö síöan ..
lydrtaBM aru moAd Þotrra
hoto koypt Drabwt
SWMigu
Sjónvorptð
Hogmólartföm
BETRI
HEILSA,
STUÐNINGUR I STARFI
„Minni flawistir..., bakverkurinn horfinn..., öllum
Ifður vel..., ekki kvartað sfðan...“.
Þannlg eru ummœli ánœgðra viðskiptavina
okkar. Þelr eiga pað alllr sameiglnlegt að vera f
hópi þeirra sjö þúsund sem keypt hafa DRABERT
stóla á undanfömum árum.
Það er liðin sú tfð, þegar œttast var ttl að
skrifstofustólamir vœru notaðir þangað til menn
sœtu heilsulausir á gólfinu. Sflómendur fyrirtœkja
gera sér nú greln fyrir mikllvœgi þess að sifla f
góðum stól. Þelr bera nú meiri umhyggju fyrir
starfsfólkinu og velja þvf DRABERT, sem er
vandaðasti skrifstofustóil sem völ er á.
í húsgagnadelld okkar f Hallarmúla 2 er ávallt
mikið úrval DRABERT stóla. Litið við og setjlst f
DRABERT eða fáið hann lánaðan til reynslu. Vlð
sendum elnnig myndallsta og verðlista sé þess
óskað.
Sérfrœðingur Pennans kemur og stillir DRABERT
stóla hjá öllum sem þess óska, f samrœmi við þarfir
hvers og eins. Við viljum standa við kjðrorðin:
AUKIN VELLÍÐAN, MEIRI AFKÖST
ALLT i EINNI FERÐ
C
Hallarmúla 2 Sími 83211