Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Að g*efnu tilefni eftir Ólaf Björnsson Marklaus laga- bókstafur Siglingamálastx)fnun auglýsir nú aðvaranir til þeirra sem kaupa skip og báta að ganga eftir að lög- bundnar skoðanir fari fram áður en kaup eru gerð. Af þessu tilefni tel ég ástæðu til að vekja athygli á dómi sem upp var kveðinn í Hæstarétti þann 23. mars sl. Mál þetta var fyrst og fremst höfðað til þess að láta reyna á hvort Siglingamálastofnun og starfsmenn hennar bæru einhveija ábyrgð á störfum sínum og hvert gildi lög um eftirlit með skipum hefur í reynd. í þeim segir m.a.: „Við aðalskoð- un skulu að minnsta tveir sérfróðir menn framkvæma skoðun." Kaupandi taldi meðal annars að „Þess má svo geta að viðgerð á bát og búnaði kostaði meira en kaup- verð þrátt fyrir að skoðunarmaður Sigl- ingamálastof nunar teldi „bát, búnað og vél í lagi“.“ nýtt haffæmisskírteini hafi verið gefið út á skoðun sem ekki var í samræmi við lög, aðeins fram- kvæmd af einum skoðunarmanni auk þess sem í ljós kom við fram- haldsskoðun að honum hafði sést yfir milli 30 og 40 atriði varðandi búnað og frágang í vél. Auk þessa reyndist bolur skipsins nánast flak, en máski mátti deila um á hvað löngum eða stuttum tíma sú þróun hafði orðið, ef vilji til að líta fram- hjá öllu venjulegu var nægur, sem hann vissulega reyndist. Kaup miðuð við að bát ur standist aðalskoðun Við umræddum bát var tekið í höfn úti á landi þann 19. des. 1980. Áhöfnin hafði dvalið þar nokkra daga áður og ekki orðið vör við skoðunarmann. Skoðun töldu þeir eiga að fara fram þegar suður kæmi og töldu sig hafa loforð selj- anda um að þar yrði bætt úr því sem aðfinnsluvert myndi reynast sem þeim þótti augljóslega vera sitt af hveiju. Strax og suður kom voru slökkvi- tæki hlaðin og yfirfarin. Beðið var um skoðun og búnaðarskoðun fór fram 2. janúar. Þá kom meðal annars í ljós að línubyssa var ólög- leg og rakettur og blys voru orðin allt of gömul. Vitað var að dráttartaug og leguvír vantaði en nú kom í ljós að akkeriskeðjan var aðeins smábútur og keðjuklemmumar ryðgaðar fastar. Messasegl var rifíð og ónýtt og lúgusegl sömuleiðis. Öryggi við netaspil hafði verið sagað af og ventill við það óvirkur. Geymasett við talstöð var ónýtt og fleira reynd- ist ekki í lagi. Það dróst til loka janúar að skoðunarmaður kæmi til að skoða vél og það sem þar undirheyrir. Sá gaf út skýrslu 2. feb. 28 atriði taldi hann upp aðfínnsluverð. Mikið slit reyndist í bómubolta, sogrör að sjó og austurdælum voru sett saman með „hosum". Sami frágangur á eldsneytislög undir gólfi í vélarrúmi. Nokkrar bogastoðir undir hval- bak voru brotnar (síðar kom í ljós að þar var um hluta af stórtjóni að ræða). Mikið vantaði af varahlut- um með vél og þannig mætti áfram telja þau 28 atriði sem þessi skoðun- armaður vildi fá bætt úr. Þegar farið var að kvarta við fyrri eigendur töldu þeir sér allt þetta óviðkomandi og hér væri aðeins um vankunnáttu kaupanda og skemmdarstarfsemi að ræða. Það kom reyndar í ljós að þann 16.12. 1980 hafði verið skrifað í eftirlitsbók skipsins: „Bátur, búnað- ur og vél í lagi.“ Fyrir rétti var Kasparov er að rótbursta Miles Skák Margeir Pétursson í síðustu viku hófst í Basel í Sviss sex skáka einvígi heims- meistarans í skák, Gary Kasp- arovs og enska stórmeistarans Anthony Miles. Þetta verður vafalaust síðasta keppni Kasp- arovs áður en hann mætir Anatoly Karpov í einvígi um heimsmeistaratitilinn sem hefst í London í lok júlí. Honum virð- ist ekkert að vanbúnaði fyrir að mæta Karpov, því nú þegar einvígið við Miles er hálfnað þykur sýnt hvor fer með sigur af hólmi. Kasparov vann fyrstu og þriðju skákirnar, en önnur skákin fór í bið og virðist heimsmeistarinn eiga þar unna stöðu. Þar eru þvi allar likur á að staðan verði 3-0 og spurn- ingin því aðeins hvort Miles tekst að bjarga andlitinu i seinni hlutanum. Það munaði ekki miklu að ein- vígi þetta yrði haldið hér á Is- landi, en eftir að Svisslendingar gerðu tilboð í það þótti mönnum sýnt að ekki borgaði sig að fara að bjóða í kapp við þá. Þá verður því enn bið á að Kasparov tefli hér á landi, en hún ætti ekki að þurfa að vera löng, því hann hefur lýst því yfir að hann vilji tefla hér næsta vetur, þegar heimsmeist- araeinvíginu er lokið, og þá við íslenska skákmenn. Það er líka kominn tími til að heimsmeistari sæki okkur heim, en það hefur ekki gerst síðan 1972, er Fischer og Spassky tefldu einvígi aldar- innar. Anatoly Karpov var marg- oft boðið hingað til lands á meðan hann var heimsmeistari, en af- þakkaði jafnan kurteislega. Þetta var útúrdúr og við skul- um hverfa aftur til Basel, þar sem dagblaðið Basler Zeitung stendur fyrir æfingaeinvígi heimsmeistar- ans. Fyrsta skákin var dæmigerð fyrir Kasparov. Hann blés strax til sóknar gegn þunglamalegri bytjun Miles. Lengi vel virtist sem varnir Englendingsins myndu standast áhlaupið, en í tímahraki kiknaði hann undir pressunni og gafst upp í 42. leik. I annarri skákinni náði Miles sér mun betur á strik og tókst að halda frumkvæðinu þrátt fyrir bráðskemmtilegar tilraunir Kasp- arovs til að flækja taflið. Miles gat tekið þráskák hvemær sem honum sýndist, en hann hunzaði ávallt jafntefli og brá á það ráð að fóma manni í 51. leik. Það hefði hann betur látið ógert, því í biðstöðunni er sýnt að Miles getur ekki haldið frípeðum sínum og eftir að þau falla vinnur svartur auðveldlega. Biðstaðan er þannig: Svart: Kasparov Hvítt: Miles Hvítur lék biðleik í 61. leik. í þriðju skákinni tefldi Miles byijunina frumlega að vanda, en Kasparov náði þó ekki að refsa honum fyrir það. I miðtaflinu tefldi Englendingurinn veikt, Kasparov náði fmmkvæðinu og þar með vom úrslitin ráðin. Miles gafst upp eftir 31 leik. Svo framarlega sem þessar einvígisskákir geta talist mark- tækar virðist um ótrúlegan styrk- leikamun að ræða á milli Kasp- arovs og stórmeistara með yfír 2600 stig. Þetta minnir mesta á þá daga þegar Fischer vann þá Taimanov og Larsen báða 6-0. Hér á eftir sigurskákir Kasparovs: 1. einvígisskákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anthony Miles Benoni byrjun 1. d4 - Rf6, 2. c4 - c5, 3. d5 — e5, Venjulega er hér leikið 3. — e6 sem leiðir til hálfopinnar stöðu, en Miles velur hið tékkneska afbrigði Benoni byijunarinnar þar sem miðborðið er harðlokað. 4.Rc3 - d6, 5. e4 - Be7, 6. Rf3 — 0-0, 7. h3 — Rbd7, 8. g4. Tvímælalaust hvassasta leiðin sem hvítum stendur til boða. Hann nær nú peðasókn á kóngsvæng, en staða hans er afar vandmeð- farin, ekki sízt vegna þess að hvíti kóngurinn verður að halda sig á miðborðinu. 8. - Re8, 9. Bd3 - a6, 10. a4 — Hb8,11. Hgl — Rc7. I þessari byijun hefur nærri ávallt verið leikið g7-g6 í byijun- inni og þessum riddara síðan valinn staður á g7. Hugmynd Miles er nokkuð athyglisverð, hann setur allt sitt traust á mót- spil á drottningarvæng og veikir ekki peðastöðuna fyrir framan kónginn. 12. b3 - He8, 13. h4 - b5, 14. g5! Kasparov ætlar að halda drottningarvængnum lokuðum en sprengja upp á kóngsvængnum. Sú áætlun hans heppnast vonum framar. 14. cxb5 — axb5, 15. Rxb5 — Rxb5, 16. Bxb5 var glapræði vegna 16. — Ba6! 17. Bxa6 — Da5+ og svartur hefur frumkvæðið. 14. - Rf8, 15. h5 - Bd7, 16. Rh2! Rýmir til svo drottningin kom- ist yfir á kóngsvænginn. 16. — bxc4,17. Bxc4 — f5. Tekur af skarið áður en Kasp- arov nær að undirbúa sóknina enn betur. 18. exf5 - Bxf5, 19. Rfl - Dd7,20. Re3 — e4, 21. Bb2 Kasparov er kominn með yfír- burðastöðu, hann hefur yfírburði í rýmni, sem þýðir aftur það að svörtu riddaramir komast ekki á góða reiti. Það er þó hægara sagt en gert að finna snöggan blett á svörtum. 21. - Bd8, 22. Re2 - Df7, 23. Rf4 - Bc8, 24. Hg4! Kasparov gefur frekar skipta- mun en hörfa. Eftir 24. — Bxg4, 25. Dxg4, myndu yfirráð hvíts yfír e6 reitnum verða mjög mikil- væg. 24. - De7, 25. Hg3 - Df7, 26. Rfg2 - Ra8. Kasparov teflir vel og andstæð- ingurinn hjálpar líka til. Þessi stöðumynd segir alla söguna. Það eina sem Miles hefur náð að áorka í fyrstu 26 leikjunum er að láta menn sína skipta um stöður á 8. reitaröðinni. Það er jafnvel spuming hvort þeir séu ekki betur komnir á upphafsreit- um sínum. Það er stundum ver farið af stað en heima setið! 27. a5 - Rc7, 28. Rh4 - Rb5, 29. g6?! - hxg6, 30. Rxg6 - Bf6? Hér missti svartur af góðu tækifæri. Fyrst Kasparov gaf honum kost á að leika 30. — Rd4! hefði hann átt að loka skálín- unni al-h8 á þann hátt. Þá hótar hann t.d. 31. — Rf3+ með gagn- sókn. Kasparov gefur Miles ekki annað tækifæri: 31. Bxb5! - Hxb5 32. Dc2 - Bxb2, 33. Dxb2 - Rxg6, 34. Hxg6 — He5, 35.0-0-0! Betra seint en aldrei. Með g-lín- una og riddarastórveldi á e3 stendur hvítur með pálmann í höndunum. 35. - Hxh5, 36. Hdgl - Hh7, 37. Rc4 Nú fellur mikilvægt peð á d6 og svarta staðan hrynur um leið. 37. - Df4+ 38. Kbl - Hb7, 39. Rxd6 - Bf5, 40. Hf6! - Dh2, 41. Hg3 - Dhl+ 42. Ka2 og svartur gafst upp. Mjög athyglis- verð skák. 3. einvígisskákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anthony Miles Drottningarpeðsbyijun 1. d4 - Rf6, 2. Rf3 - c5, 3. d5 - b5!?, 4. Bg5 - Re4, 5. Bh4 - Da5+, 6. Rbd2 — Bb7, 7. a4! Eftir þennan öfluga leik má Miles kallast góður að sleppa lif- andi út úr þessari fmmlegu byijun sinni. 7. — Bxd5,8. axb5 — Dc7 Auðvitað ekki 8. — Dxb5?, 9. c4 og vinnur mann. Nú ætlar Kasparov að refsa Miles fyrir létt- úðina og hafnar því rólegum leikj- um á borð við 9. e3. Enn sem komið er gegnir Miles aðeins hlutverki fallbyssufóð- urs. 9. Ha4!? - Db7, 19. c4 - Rxd2, 11. cxd5 Eftir 11. Dxd2 — Be4 má svartur vel við una, því 12. e3 og 12. g3 tapa peði. 11. -Rxfl, 12. Dd3! Kasparov leggur áherslu á að missa ekki hrókunarréttinn. 12. - d6,13. e4 - Rd7,14. Dxf 1. 14. -h6? Miles ofmetur möguleika sína. Mun betra var 14. — Hb8, eða 14- — g6. 15. De2 - g5, 16. Bg3 - Bg7, 17. e5! Þarna er gallinn við 14. leik svarts kominn. Auk þess sem þetta uppbrot er mögulegt hefur svartur veikt kóngsvæng sinn alvarlega. 17. - 0-0, 18. h4! - Dxd5, 19. hxg5 — Rxe5, 20. Bxe5 — dxe5, 21. gxh6 - Bf6, 22. Hh5 - Kh8, 23. Rxe5! Vinnur peð, því svartur er glat- aður eftir 23. — Dxg2, 24. Hg4 - Db7, 25. Hg7! 23. - Db3, 24. Ha3 - Db4+, 25. Kfl — Had8. Nú lendir svartur í vonlausu endatafli, en stöðu hans varð tæplega bjargað. Hann hafði lak- ari kóngsstöðu, menn heimsmeist- arans virkari og þar að auki átti hann peði minna. 26. Rc6 - Dxb2, 27. Dxb2 - Bxb2, 28. Hxa7 - Hc8, 29. Hxe7 - c4, 30. Ke2 - c3, 31. Kd3 og Miles gafst upp. Einvíginu lýkur í þessari viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.