Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986
55
Baldur lagaður
fyrir sumarið
Stykkishólmur.
M.b. Baldur, flóabátur Breið-
arfjarðar, var tekinn í slipp til
lagfæringar og undirbúnings
áætlunarferða í sumar og var
meðfylgjandi mynd þá tekin.
Nú er báturinn kominn úr slipp
og ekki langt í sumarferðimar sem
hafa verið vinsælar. Flestar ferðir
eru í júní og júlí. Eins og áður gefst
þeim sem þess óska að dvelja í
Flatey í 3 tíma meðan farið er til
Bijánslækjar og hafa margir not-
fært sér það. Þar er margt að sjá
frá gömlum tíma sem rifjar upp
sögu Flateyjar sem var ein merk-
asta verslunarmiðstöð á seinustu
öld. Þar var Matthias Jocumsson
þjóðskáldið okkar verlunarmaður
um miðja seinustu öld og þar réðust
hans örlög með því að höfðingjar
Flateyjar styrktu hann til náms.
Saga Flateyjar er til í handriti. Gísli
Konráðsson þjóðsagnaritari bjó
seinustu ár sín í Flatey. Ámi.
Spítalastíg 8. Símar 14661 — 26888.
Califomia x2
i meira en hálfa ðld
^ Doid/i in/^uo rclnnin
ÆÐISLEG
BMX
hjól
(Torfæruhjól)
Ný áætlunarbifreið
til Stykkishólms
Stykkishólmi
NÝ áætlunarbifreið er komin til
Stykkishólms. Eigandi er Hóp-
ferðir Helga Péturssonar sf. Er
þessi bifreið ein hin allra vandað-
asta. Keypt hjá Merc Benz og eru
37 sæti fyrir farþega. Bifreiðin
reyndist ágætlega í fyrstu ferð-
um og eru eigendur mjög ánægð-
ir með allan útbúnað og þægindi
fyrir farþega. Bílsljóramir láta
mjög vel af þessum ágæta far-
kosti.
Eins og áður hefir verið sagt
hefir bifreiðastöð Helga Pétursson-
ar haft hér umfangsmikinn áætlun-
arrekstur bifreiða í rúm 50 ár og
var þess áfanga minnst á viðeigandi
hátt hér í blaðinu í fyrra. Bifreiða-
kosturinn hefir aukist jafnt og þétt
og þægindin um leið. Auk þess að
hafa daglegar áætlunarferðir á
Snæfellsnes halda þeir úti hópferð-
um um land eftir því sem aðstæður
leyfa.
Bræðumir Haukur, Hilmar og
Halldór eru aðaldriffjaðrimar í
þessari þjónustu og reka hana af
dugnaði. Ámi
Félagsstarf aldraðra;
Yetrardagskrá að ljúka
VETRARDAGSKRÁ félagsstarfs
aldraðra í Reykjavík fer nú senn
að Ijúka.
Gróskumikið starf hefur farið
fram í öllum félagsmiðstöðvum
aldraðra í vetur og nær fullbókað
í flestar greinar.
Vetrardagskránni lýkur með sýn-
ingu og opnu húsi í 3 félagsmið-
stöðvum, þar sem sýndir verða
munir sem unnir hafa verið í tóm-
stundastarfinu. Sýningin verður
dagana 24., 25. og 26. maí nk. í
Norðurbrún 1, Lönguhlíð 3 og
Fumgerði 1.
Ný félagsmiðstöð verður tekin í
notkun nk. miðvikudag fyrir íbúa
Vesturbæjar í KR-heimilinu við
Frostakjól og verður þar opið hús
tvisvar í viku, á miðvikudögum og
föstudögum.
Sumardagskráin kemur út um
þessar mundir og verður send öllum
íbúum Reykjavíkurborgar, 67 ára
og eldri. Fyrsta tölublað fréttabréfs
aldraðra var sent út fyrir páska.
(Fréttatílkynning)
sf ■!
1
M || r|
hueber
£ §1 5?ll
3|
NAMS
BÆIOJR
OKKAR FAG
Pöntun erlendra námsbóka
er fastur liður íundir-
búningi hverrar námsannar.
Jafnt hjá kennurum
sem hjá okkur.
Við útvegum allar
fáanlegar erlendar námsbækur
á besta, fáanlega verði.
Skjót og örugg pöntunarbj ónusta.
Við leggjum áherslu á
að hafa á boðstólum
allar þær námsbækur
sem kenndar eru
í framhaldsskólum landsins,
jafnt sem grunnskólum.
Pantið bækurnar á einum stað
— það er hagkvæmara fyrir alla.
EYMUNDSSON
Austurstræti 18, s. 13522.
t-
oB
•11
v p
p
Gylmir