Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 56

Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Stígur Guðjóns- son — Minning Fæddur 28. júlí 1903 Dáinn 12. maí 1986 í dag er til moldar borinn Stígur Guðjónsson frá ísafirði. Stígur fæddist á Oddsflöt í Grunnavík á heimili móðurafa síns. Foreldrar Stígs voru hjónin Ingibjörg Eiríks- dóttir bóndadóttir á Oddsflöt og Guðjón Sigurðsson frá Múla í Þorskafirði. Stígur fluttist til ísafjarðar kom- ungur með foreldrum sínum. Sjó- mennsku hóf Stígur með Karvel Ingimundarsyni, skipstjóra og út- gerðarmanni í Hnífsdal og stundaði sjómennsku mestan hluta ævi sinnar sem vélstjóri á fískibátum og flutningabátum þar á meðal Djúpbátnum. Einnig sigldi hann sem vélstjóri á vélskipunum Rík- harði og Gróttu á stríðsárunum, Stígur giftist Björgu Þorsteins- sem Björgvin Bjamason gerði út dóttur ekkju með þrjú böm. Björg frá ísafirði. er látin og dætur hennar tvær, Efemia og Elín, en Hilmar Theo- dorsson, sonur Bjargar býr í Kefla- vík. Stígur og Björg vom bamlaus. Björg og Stígur fluttust til Reykja- víkur í stríðslokin á Dyngjuveg 17. Eftir lát Bjargar giftist Stígur Jóhönnu Þorsteinsdóttur og eignuð- ust þau tvö böm, Björgu og Eirík. Stígur hætti sjómennsku eftir að bömin fæddust og vann hjá Bæjar- útgerð Reykjavíkur meðan heilsa entist. Stígur var einstaklega bam- góður og nutu stjúpböm hans í báðum hjónaböndum þess, svo og systkinaböm hans. Björg og Eiríkur vom sólargeislar í lífí hans. Stígur missti Jóhönnu seinni konu sína frá bömunum komung- um. Hann reyndi að halda saman heimilinu með aðstoð ráðskvenna, en það rejmdist honum of erfítt en hann var svo heppinn að koma þeim í fóstur hjá hjónum Gisellu og Paul Oddgeirssyni, Ásvallagötu 14. Þau reyndu Björgu og Eiríki sem bestu foreldrar. Það má segja að þeirra verk sé einstakt og fagurt og margir standi f þakkarskuld við þau GiselluogPaul. Við kveðjum Stíg með söknuði ogþökkum samfylgdina. Selma og Indriði Stykkishólmur: Fundur um ferðamannaþjónustu Stykkishólmi. FRAMKVÆMDANEFND ferða- málaráðs hélt nýlega fund á Hótel Stykkishólmi með ferð- málasamtökum Vesturlands og síðar opinn fund þar sem áhuga- menn og hagsmunaaðilar í ferða- málum Vesturlands, sveitar- stjómarmönnum og þingmönn- um kjördæmisins var boðið til umræðu og átaka í ferðamálum. Kjartan Lárusson, formaður Ferðamáiaráðs, flutti spjall um ferðamál á íslandi og starfsemi ferðamálaráðs. Kvað hann mikið hafa áunnist og sagði að merkir áfangar hefðu unnist. Hann kvað mikið starf framundan og margt væri hægt að gera til að auka ferða- mannastreymi bæði frá erlendum svæðum og eins innanlands. Vel skipulögð ferðamannaþjónusta skil- aði árangri og tekjum. Með tilliti til þess sem unnist hefði og eins hvað mætti til að auka og efla þessi mál, kvaðst hann vera bjartsýnn á framtíðina. Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri ræddi um samstarf alira hér á landi sem ynnu að ferðamálum. Öll tengsl sköpuðu meiri árangur og sameig- inleg átök væru nauðsyn. Samstarf á milli landsfjórðunga hefði þegar sýnt þörfina. Hvatti hann til enn meiri átaka og samstarfs. Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri í Stykkishólmi, ræddi þýðingu ferðaþjónustu fyrir hin einstöku byggðarlög og sagði frá ávinning- um hér á svæðinu. Óli J. Ólason, feðamálafulltrúi Vesturlands, greindi frá stöðu ferðamála á Vesturlandi og tók í sama streng og Sturla og kom fram að ferðamálastarfsemi skapaði sveitarfélögum bæði tekjur og álit. Því væri mikil nauðsyn að hlúa sem best að þessum málum og vinna þau upp á arðvænlegan hátt öllum til gagns. Það kom fram á fundinum að ferðamálaráð býr við mjög þröngan starfskost hvað fjármál snertir. Var talið að áætlun sem gerð hefír verið væri mjög raunhæf en hún gerir ráð fyrir að til umhverfísmála þyrfti 8 milljónir en í dag væri aðeins til þessara mála til ráðstöfunar 400 þúsundir. Það fer ekki á milli mála að stjóm ferðamálasamtaka Vesturlands hefír orðið mikið ágengt og það ekki síst að þakka ötulli forystu Sigurðar Skúla Bárðarsonar for- manns og Óla J. Ólasonar og eiga þeir þakkir skilið fyrir góð störf að þessum málum. Að áliti þeirra sem fundinn sóttu var fundurinn bæði gagnlegur og áhugaverður og þeir sem ég ræddi við eftir fundinn gerðu sér grein fyrir því að fleiri slíkra funda ætti að efna til, bera þar saman bækur sinar og örva til átaka. Það fer ekki milli mála að sam- göngur eru stór þáttur í ferðamála- þjónustu og kom það fram í máli Sigurðar Skúla að brýn nayðsyn væri að flýta uppbyggingu vega hingað á Snæfellsnes. Beindi hann í því nokkrum orðum til þingmanna kjördæmisins. t Móðir okkar, KRISTJANA ELÍSABET JÓNSDÓTTIR Hólagötu 33, Ytri-Njarðvfk verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 22. maí kl. 14.00 Börn og tengdabörn. SVAR MITT eftir Billy Graham Nýttlíf Hvaða nauður rekur okkur til þess að vera kristnir, ef okkur er kleift að breyta vel án Krists? Frá hverju þarf eg að „frelsast“, ef eg er hvorki óheiðarlegur né saurugur? Kristur kom ekki aðeins til þess að gera menn hreinlífa, heiðarlega og góða. Hann kom til að gefa lífi manna nýja eiginleika og endurleysa þá um tíma og eilífð. Hann kom ekki til að betrumbæta þá, heldur til að gjörbreyta þeim. Hann sagði: „Eg er kominn til þess að þeir hafi líf og hafí nægtir." Að sjálfsögðu sprettur rétt hegðun af nýja lífínu, sem hann gefíir. í raun og veru kennir Biblían, að okkur sé um megn að breyta eins og okkur ber, nema við eigum hlutdeild í lífí hans. Biblían fellir afdráttarlausan dóm yfir öllum mönnum. „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.“ Þér spyrjið, hvaða nauðsyn sé á frelsun, ef við getum orðið siðfáguð án Krists. Fyrst og fremst segir Biblían, að syndin hafí skotið svo djúpum rótum meðal mannanna, að ekki sé til neinn maður fullkominn að breytni. En jafnvel þótt einstæður maður nálgaðist slíka fullkomnun, væri enn ástæða til að veita Kristi viðtöku, sú, að öðlast það nýja líf, sem hann einn getur veitt. „Ollum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs böm, þeim, sem trúa á nafn hans“. Víst veit eg, að það er hart að þurfa að viðurkenna, að við þörfnumst frelsara. En látið dramb ekki aftra yður frá því að eignast undursamlegasta samfélag, sem til er á þessarijörð, sameininguna við Krist. Hjónaminning: Sigurborg Sveinsdóttir ogMatthías Sigfússon Hún Bogga mín er dáin. Minningamar vakna og birtast, eins og myndir úr bemsku minni. Þær em fullar af sólskini, söng og fallegum litum. Sólskinið og birtan í minningunni er svo sterk, að mér hlýnar allri og fínnst birta í kringum mig. Það er svo margs að minnast, en tregt tungu að hræra. Bogga var söngelsk og sérlega lagviss. Hún hafði hreina og milda rödd. Hún söng oft fyrir okkur krakkana og lék undir á orgelið. Oft lék hún og söng fyrir mig eina. Þá valdi ég að sitja á gólfínu, skáhallt við Boggu og orgelið, svo ég sæi fram- an í hana og yfír alla stofuna. Sólin baðaði allt, og blómin svo stór og falleg. Hljómamir, sólin, blómin, og við Bogga urðum eitt. Matthías Sigfússon listmálari, eða Matti eins og hann var kallaður af fíölskyldunni og vinafólki, var einn skemmtilegasti, og besti mað- ur sem ég hef kynnst. Þeim varð tveggja sona auðið, sem báðir em búsettir í Reykjavík. Þegar ég var tveggja ára, komu þær systur sorg og gleði að húsinu okkar heima. Sorgin var lát pabba. Gleðin var sú, að þá tóku þau hjón Bogga og Matti mig til sín um tíma. Við bjuggum öll við sömu götu, og þau gættu þess að ég hitti mína fjölskyldu nær daglega. En þama kynntist ég þeim eins vel og hægt er að kynnast fullorðnu fólki á öðm heimili. Það reynir á hvem mann við höfum að geyma, að gera lítið bam hamingjusamt. Bömin em næmustu gestimir. Bogga og Matti stóðust svo sannarlega þá raun hvað mig snertir. Nú em þau hjon horfin okkar sjónum. Eftir sitjum við vinir þeirra og ættingjar, við syrgjum þau vissu- Iega mikið, en um leið gleðjumst við yfir góðum minningum. „Sorgin er gríma g leðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, varoftfullaftárum. Og hvernig ætti það öðruvisi að vera? Þeim mun dýpra sem soigin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur þaðrúmað. Er ekki bikarinn, sem geymir vín þitt, brendur í eldi smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan, sem mildar skap þitt, holuð innan með hnífum? Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glað- ur, og þú munt sjá, að aðeins það, sem vald- ið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran) Blessuð sé minning Boggu og Matta. Ingibjörg Þórðardóttir Flokkur mannsins býður fram á Selfossi FLOKKUR Mannsins á Selfossi hefur lagt fram framboð sitt til bæjar- og sveitarstjórnarkosn- inga 31. þessa mánaðar. Framboðslistann skipa: 1. Davíð Kristjánsson, Álftarima 4. 2. Einar G. Axelsson, Birkivöllum 14. 3. Lilja Jónsdóttir, Fossheiði 52. 4. Sigríður Haraldsd. Fagurgerði 9. 5. Sævar H. Geirsson, Tryggvagötu 14. 6. Guðný K. Axelsd., Birkivöllum 14. 7. Benedikt Þ. Axelss., Tryggva- gotu Zö. ö. öieiau l'ctuioson, Tryggvagötu 4. 9. María Haf- steinsd., Austurvegi 33. .10. Lúðvík P. Jónass., Starengi 9. 11. Haraldur Magnúss., Tryggvagötu 22. 12. Haraldur Skarphéðinss., Engjavegi 38. 13. Niels Joensen, Víðivöllum 15. 14. Bergur Siguijónss., Austur- vegi 25. 15. Þorvaldur Sigurðss., Hjarðarholti 5. 16. Sigurður R. Óttarss., Háengi 6. 17. Guðmundur S. Ólafss., Úthaga 11. 18. Sigríður Einarsdóttir, Tryggvagötu 26. Stykkishólmur: Félagshyggjumenn bjóða fram EFTIRTALDIR kjósendur í Stykkishólmi skipa framboðs- lista Félagshyggjumanna við sveitarstjórnarkosningar í Stykkishólmi 31. mai n.k. S—listinn: 1. Magndís Alexand- ersdóttir, féhirðir. 2. Hörður Karls- son, vélfræðingur. 3. Elín Sigurðar- dóttir, ljósmóðir. 4. Snorri Ágústs- son, vélstjóri. 5. María Helga Guð- mundsdóttir, húsmóðir. 6. Vilborg Jónsdóttir, tækniteiknari. 7. Sigríð- ur Bjömsdóttir, húsmóðir. 8. María Sigfúsdóttir, bankamaður. 9. Þórð- ur Siguijónsson, búnaðarráðunaut- ur. 10. Margrét Guðmundsdóttir, ljósmóðir. 11. Heiðrún Leifsdóttir, verslunarmaður. 12. Þórir Halldórs- son, nemi. 13. ína Jónasdóttir, hús- móðir. 14. Þórður Þórðarson, versl- unarmaður. Til sýslunefndar: Þórður Þórðar- son, verslunarmaður til vara: Þórð- ur S. Magnússon, veghefílsstjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.