Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
63
Bregðumst mannlega við
vanda íbúa Reykhóla
Velvakandi.
Þörungavinnslan á Reykhólum
er nú enn einu sinni í fjölmiðlum
með þeim upplýsingum, að verk-
smiðjan hafi verið tekin til gjald-
þrotaskipta vegna hallarekstrar og
gífurlegrar skuldasöfnunar, sem nú
nemur um 120 milljónum króna og
er að mestu í eigu ríkissjóðs.
í Reykhólasveit búa um 230
manns, þar af um 100 manns á
Reykhólum sem hafa framfæri sitt
af verksmðjunni.
Haft er eftir Vilhjálmi Sigurðs-
syni oddvita Reykhólasveitar, að
byggin í sveitinni mundi smám
saman lognast út af ef þessi þétt-
býliskjami, sem myndast hefur í
tengslum við verksmiðjuna, færi í
eyði, því sveitin hefði mikinn stuðn-
ing af þesu þéttbýli, en það mundi
gerast ef rekstri verksmiðjunnar
yrði hætt.
Nú hafa hagsmunaaðilar í Reyk-
hólasveit stofnað hlutafélag til þess
að reyna að haldá starfsemi verk-
smiðjunnar áfram, ef ríkissjóður
fengist til að leigja félaginu hana
til reynslu.
Peningastofnanir ríkisins og rík-
issjóður eru alltaf öðru hvom að
taka að sér fjárskuldbindingar, sem
nema mörg hundmð milljónum
króna, vegna taprekstrar fiskiskipa
o.fl. T.d. hefur ríkissjóður lagt í
saltverksmiðjuna á Reykjanesi
hundmð milljóna króna og er enn
að því, þó hæpið sé, að nokkur
árangur náist í rekstri þess glæfra-
fyrirtækis.
Ekki em þar á bak við 230
manns, sem eiga afkomu sína að
öllu leyti undir rekstrinum, eins og
er raunin með Þömngavinnsluna í
Reykhólasveit.
Því ekki að bregðast mannlega
við þessum miklu vandræðum íbúa
Reykhóla og lána starfsmönnum
(hluthöfum) verksmiðjuna endur-
gjaldslaust til áramóta? Á þeim tíma
gætu þeir áttað sig á því, hvort
þeir ættu að gera tilraun með
kaupum á verksmiðjunni.
Engin fjarstæða væri að bjóða
félaginu verksmiðjuna fyrir hálf-
virði eða um 50 milljónir króna og
afskrifa afganginn, ef það gæti
orðið til bjargar sveitinni frá því
að leggjast í auðn. Ef þessi byggð-
arkjami, sem myndast hefur á
Reykhólum og telur 100 manns,
legðist í eyði, yrði upphæð sú, sem
ríkissjóður þyrfti að afskrifa, álíka
og verðmæti íbúðarhúsa þess fólks,
sem þaðan yrði að flýja, auk þess
sem á eftir kæmi fólksflótti úr
Reykhólasveit.
Og hvað yrði svo um verksmiðj-
una ef hún stæði auð og yfírgefin
árum saman? Verðlaus ruslahrúga,
þó tölur upp á 100 milljónir stæðu
eitthvað áfram í ríkisbókhaldinu.
Það er tvímælalaust þjóðarhagur,
að verksmiðjan starfi áfram, jafnvel
þó ríkissjóður afhenti íbúum Reyk-
hólasveitar hana endurgjalds-
laust, ef það gæti orðið til þess,
að starfsemi hennar héldi áfram og
íbúar sveitarinnar gætu áfram unað
glaðir við sitt.
Ef verksmiðjan hættir rekstri og
drabbast niður í verðlausan rusla-
haug og íbúar Reykhólasveitar
hrökklast í burtu, verður þjóðhags-
legt tjón margfalt á við hugsanlegt
tap ríkissjóðs við að tryggja áfram-
haldandi reksturverksmiðjunnar.
Ólafur Á. Kristjánsson
Þangskurður við Breiðafjörð.
Hvaðan er orða-
tiltækið?
Verður er verkamaður-
inn launa sinna
Þetta orðastef er að finna í Lúk-
asarguðspjalli, 10, 7, þar sem segir
frá því að Jesús sendi sjötíu læri-
sveina, tvo og tvo saman, á undan
sér til hvers þess bæjar eða staðar
sem hann hugðist koma til. Hann
leggur þeim lífsreglumar og segir
m.a. að þeir skuli eta og drekka
það sem þeim verði boðið, „því að
verður er verkamaðurinn launa
sinna“.
(Dagbladenes pressetjeneste)
Um 200 mílurnar
Börðust hart við Breta her
að bjarga fiski og landi.
En tvö hundruð mílur ekkert er,
ef dreginn ert í bandi.
E.J.
STÚDENTA-
STJARNAN
14 karata
gull
hálsmen
eða
prjónn
Jón Sigmundsson,
skartgripaverslun hf., Laugavegi 5, sími 13383.
21212
LOKSINS
Unglingaball í Hollywood. Sig-
urvegarar úr Músíktilraunum
’86, Greifarnir, mæta á svæðið
með gott program. Hollywood
Models með frábæra tískusýn-
ingu og síðast en ekki síst Axel
Guðmundsson, íslandsmeist-
ari í diskódansi, sleppir sér
algerlega á gólfinu og svo hið
frábæra diskótek í Hollywood
frá 22—01.
Aldur 16—18 ára
H0UJW00D
og vímulaus æska
* * * * **
Áskriftcirsíminn er 83033