Morgunblaðið - 03.06.1986, Page 1
80 SIÐURB
STOFNAÐ 1913
120. tbl. 72. árg.________ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986_ Prentsmiðja Morgunblaðsins
Davíð Oddsson borgarstjóri um úrslit kosninganna;
Sjálfstæðismenn uppskáru árang-
ur verka sinna í Reykjavíkurborg'
Sjálfstæðisflokkurinn styrkti enn stöðu sína í Reykjavík. Alþýðuflokkurinn jók fylgi sitt, fékk hreinan meirihluta
í Kefiavík. Fylgi stjórnarflokkanna minnkaði. Alþýðubandalagið bætti aðeins við sig. Kvennalistinn tapaði fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn styrkti
stöðu sina í Reykjavík í sveitar-
stjórnarkosningnnum á laugar-
daginn og hlaut öruggan meiri-
hluta i borgarstjórn, 9 menn af
15. Telur Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, að kosningaúrslitin í höf-
uðborginni sýni, að Sjálfstæðis-
flokkurinn uppskeri árangur
verka sinna frá síðasta kjörtíma-
bili. Fylgi flokksins í heild
minnkaði og mest á svæðinu frá
Akranesi til Vestmannaeyja, þar
sem Alþýðuflokkurinn vann á.
Mestur var sigur Alþýðuflokks-
ins i Keflavík, þar sem hann fékk
hreinan meirihluta, og í Hafnar-
firði. Framsóknarflokkurinn
missti meirihluta á Dalvik og
fylgi Alþýðubandalagsins á Nes-
kaupstað, þar sem það fer með
meirihlutastjórn, minnkaði veru-
lega. Sjálfstæðisflokkurinn vann
meirihluta í Ólafsfirði og Grund-
arfirði, en tapaði honum í Njarð-
vík og Vestmannaeyjum. Sjálf-
stæðismenn héldu meirihluta sín-
um á Seltjarnarnesi, í Garðabæ
og Stykkishólmi og i Hverga-
gerði og Mosfellssveit, þar sem
þeir juku fylgi sitt.
Í sveitarstjómarkosningunum
1982 sótti Sjálfstæðisflokkurinn á
um land allt. Þá guldu Alþýðuflokk-
ur og Alþýðubandalag afhroð miðað
við kosningamar 1978. Framsókn-
arflokkurinn stóð í stað 1982 miðað
við kosningamar 1978, þegar hann
tapaði miklu fylgi. Nú hélt fylgi
framsóknarmanna áfram að
minnka um 2,9% miðað við 1982,
hlaut hann alls 16.135 atkv. eða
13,3%. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
2,5% og hlaut samtals 51.823 at-
kvæði eða 42,7%, en 1982 jók flokk-
urinn fylgi sitt um 5,5%. Alþýðu-
flokkurinn jók fylgi sitt um 4,7%
og hlaut 20.035 atkvæði eða 16,5%,
Mynd þessa tók Ólafur K. Magnússon, Morgunblaðsins, af hinnm
nýja borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna í gær. í aftari röð
frá vinstri eru varaborgarfulltrúamir Sólveig Pétursdóttir, Anna
K. Jónsdóttir, Haraldur Blöndal, Helga Jóhannsdóttir, Hulda
Valtýsdóttir, Þórunn Gestsdóttir og Guðrún Zoéga. í fremri röð
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna
frá vinstri eru borgarfulltrúamir Árni Sigfússon, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Páll Gíslason, Katrin Fjeldsted, Davíð Oddsson,
Magnús L. Sveinsson, Hilmar Guðlaugsson, Júlíus Hafstein og Jóna
Gróa Sigurðardóttir. Á myndina vantar Siguijón Fjeldsted, Ingólf
S. Sveinsson og Guðmund Hallvarðsson.
en 1982 tapaði hann 4,9%. Al-
þýðubandalagið jók fylgi sitt um
1,8% og hlaut 23.420 atkvæði eða
19,3%, en 1982 tapaði flokkurinn
6,8%. Kvennalistinn hlaut samtals
4.828 atkvæði eða 4% og tapaði
1,9% frá 1982.
í kosningunum vom kosnir 416
sveitarstjómarmenn, 307 karlar
hlutu kosningu (73,8%) og 109
konur (26,2%) í 23 kaupstöðum og
37 kauptúnahreppum. Eftir sveitar-
stjómarkosningamar 1978 var
hlutfall kvenna í sveitarstjómum
8,5% en 16,9% eftir kosningamar
1982. Alls vom 151.008 á kjörskrá,
124.360 kusu eða 82.35%, 2810
seðlar á landinu öllu vom auðir eða
ógildir.
Sjá forystugrein í
miðopnu, kosningaúrslit á
bls. 24 og 25, 46 og 47,
samtöl við sveitarstjóraar-
menn og flokksforingja á
bls. 4, 28, 29, 30, 31, 38,
40 og 41 og frétt um meiri-
hlutaviðræður á baksíðu.
Yelena Bonner við komuna til Moskvu:
Ræddi við blöð til að
leiðrétta Moskvulvei
Moskvu. AP.
YELENA Bonner sagði við komuna til Moskvu í gær að ástæðan
fyrir því að hún sneri aftur til Sovétrikjanna væri endurfundimir
við eiginmann sinn, Andrei Sakharov.
Vinir Sakharov-hjónanna tóku á móti Bonner á flugvellinum í
Moskvu ásamt vestrænum sendifulltrúum og tugum blaðamanna.
Frú Bonner sagði tilfinningar
sínar blendnar við komuna til Sovét-
ríkjanna, þar sem hún hefði orðið
að segja skilið við íjölskyldu sína,
sem búsett væri í Bandaríkjunum.
Á blaðamannafundi á flugvellin-
um í Moskvu sagðist frú Bonner
hafa rofið loforð um að ræða ekki
við blaðamenn á Vesturlöndum til
þess að leiðrétta „allar lygamar sem
komið hafa héðan frá Moskvu" um
þau hjónin.
Frú Bonner kvaðst ætla að dvelja
í þrjá til fjóra daga í Moskvu áður
en hún héldi til Gorkí, hinnar lokuðu
borgar, þar sem maður hennar er
í útlegð. Hún var mjög þreytuleg
við komuna eftir flugferð frá Ítalíu.
Frá flugvellinum hélt hún inn til
borgarinnar í fylgd tveggja banda-
rískra þingmanna. Var þeim ekið í
bifreið bandaríska sendiráðsins.
Lögregian handtók Serafím
Yevsukov, einn vina Bonner-hjón-
anna, á flugvellinum. Dóttir hans
afhenti frú Bonner blómvönd er hún
kom út úr flughöfninni. Serafim
hefur reynt að fá leyfi til að flytjast
úr landi fyrir sig og íjölskyldu sína
frá 1978.
Sjá „Hver andlega heill
maður . . .“ábls. 32
AP/Símamynd
Yelena Bonner hallar sér upp að
Alexei Semyonov, syni Andrei
Sakharov, á flugvellinum í
Mílanó í gærmorgun. Frú Bonner
hélt í gær til Sovétríkjanna eftir
hálfs árs dvöl á Vesturlöndum.
Herfor-
ingi f lýr
Islamabad. AP.
HERFORINGI í flugher Afgan-
istans hefur gengið tíl liðs við
skæruHða og er nú í búðum
þeirra í Pakistan. Hann segir
skæruliða hafa eyðilagt 40
afganskar herflugvélar og
laskað rúmlega 40 síðasta árið.
Hershöfðinginn, Mir Alam
Khan, var yfírmaður Bagram-
flugstöðvarinnar norður af Kabúl.
Þar er gert við flugvélar, sem
laskast í bardögum sovézka inn-
rásarliðsins og afganska stjómar-
hersins við skæruliða.
Khan segir sovézka innrásarlið-
ið í Afganistan hafa misst a.m.k.
jafnmargar herflugvélar og
stjómarherinn.