Morgunblaðið - 03.06.1986, Síða 1

Morgunblaðið - 03.06.1986, Síða 1
80 SIÐURB STOFNAÐ 1913 120. tbl. 72. árg.________ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986_ Prentsmiðja Morgunblaðsins Davíð Oddsson borgarstjóri um úrslit kosninganna; Sjálfstæðismenn uppskáru árang- ur verka sinna í Reykjavíkurborg' Sjálfstæðisflokkurinn styrkti enn stöðu sína í Reykjavík. Alþýðuflokkurinn jók fylgi sitt, fékk hreinan meirihluta í Kefiavík. Fylgi stjórnarflokkanna minnkaði. Alþýðubandalagið bætti aðeins við sig. Kvennalistinn tapaði fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn styrkti stöðu sina í Reykjavík í sveitar- stjórnarkosningnnum á laugar- daginn og hlaut öruggan meiri- hluta i borgarstjórn, 9 menn af 15. Telur Davíð Oddsson, borgar- stjóri, að kosningaúrslitin í höf- uðborginni sýni, að Sjálfstæðis- flokkurinn uppskeri árangur verka sinna frá síðasta kjörtíma- bili. Fylgi flokksins í heild minnkaði og mest á svæðinu frá Akranesi til Vestmannaeyja, þar sem Alþýðuflokkurinn vann á. Mestur var sigur Alþýðuflokks- ins i Keflavík, þar sem hann fékk hreinan meirihluta, og í Hafnar- firði. Framsóknarflokkurinn missti meirihluta á Dalvik og fylgi Alþýðubandalagsins á Nes- kaupstað, þar sem það fer með meirihlutastjórn, minnkaði veru- lega. Sjálfstæðisflokkurinn vann meirihluta í Ólafsfirði og Grund- arfirði, en tapaði honum í Njarð- vík og Vestmannaeyjum. Sjálf- stæðismenn héldu meirihluta sín- um á Seltjarnarnesi, í Garðabæ og Stykkishólmi og i Hverga- gerði og Mosfellssveit, þar sem þeir juku fylgi sitt. Í sveitarstjómarkosningunum 1982 sótti Sjálfstæðisflokkurinn á um land allt. Þá guldu Alþýðuflokk- ur og Alþýðubandalag afhroð miðað við kosningamar 1978. Framsókn- arflokkurinn stóð í stað 1982 miðað við kosningamar 1978, þegar hann tapaði miklu fylgi. Nú hélt fylgi framsóknarmanna áfram að minnka um 2,9% miðað við 1982, hlaut hann alls 16.135 atkv. eða 13,3%. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði 2,5% og hlaut samtals 51.823 at- kvæði eða 42,7%, en 1982 jók flokk- urinn fylgi sitt um 5,5%. Alþýðu- flokkurinn jók fylgi sitt um 4,7% og hlaut 20.035 atkvæði eða 16,5%, Mynd þessa tók Ólafur K. Magnússon, Morgunblaðsins, af hinnm nýja borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna í gær. í aftari röð frá vinstri eru varaborgarfulltrúamir Sólveig Pétursdóttir, Anna K. Jónsdóttir, Haraldur Blöndal, Helga Jóhannsdóttir, Hulda Valtýsdóttir, Þórunn Gestsdóttir og Guðrún Zoéga. í fremri röð Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna frá vinstri eru borgarfulltrúamir Árni Sigfússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Páll Gíslason, Katrin Fjeldsted, Davíð Oddsson, Magnús L. Sveinsson, Hilmar Guðlaugsson, Júlíus Hafstein og Jóna Gróa Sigurðardóttir. Á myndina vantar Siguijón Fjeldsted, Ingólf S. Sveinsson og Guðmund Hallvarðsson. en 1982 tapaði hann 4,9%. Al- þýðubandalagið jók fylgi sitt um 1,8% og hlaut 23.420 atkvæði eða 19,3%, en 1982 tapaði flokkurinn 6,8%. Kvennalistinn hlaut samtals 4.828 atkvæði eða 4% og tapaði 1,9% frá 1982. í kosningunum vom kosnir 416 sveitarstjómarmenn, 307 karlar hlutu kosningu (73,8%) og 109 konur (26,2%) í 23 kaupstöðum og 37 kauptúnahreppum. Eftir sveitar- stjómarkosningamar 1978 var hlutfall kvenna í sveitarstjómum 8,5% en 16,9% eftir kosningamar 1982. Alls vom 151.008 á kjörskrá, 124.360 kusu eða 82.35%, 2810 seðlar á landinu öllu vom auðir eða ógildir. Sjá forystugrein í miðopnu, kosningaúrslit á bls. 24 og 25, 46 og 47, samtöl við sveitarstjóraar- menn og flokksforingja á bls. 4, 28, 29, 30, 31, 38, 40 og 41 og frétt um meiri- hlutaviðræður á baksíðu. Yelena Bonner við komuna til Moskvu: Ræddi við blöð til að leiðrétta Moskvulvei Moskvu. AP. YELENA Bonner sagði við komuna til Moskvu í gær að ástæðan fyrir því að hún sneri aftur til Sovétrikjanna væri endurfundimir við eiginmann sinn, Andrei Sakharov. Vinir Sakharov-hjónanna tóku á móti Bonner á flugvellinum í Moskvu ásamt vestrænum sendifulltrúum og tugum blaðamanna. Frú Bonner sagði tilfinningar sínar blendnar við komuna til Sovét- ríkjanna, þar sem hún hefði orðið að segja skilið við íjölskyldu sína, sem búsett væri í Bandaríkjunum. Á blaðamannafundi á flugvellin- um í Moskvu sagðist frú Bonner hafa rofið loforð um að ræða ekki við blaðamenn á Vesturlöndum til þess að leiðrétta „allar lygamar sem komið hafa héðan frá Moskvu" um þau hjónin. Frú Bonner kvaðst ætla að dvelja í þrjá til fjóra daga í Moskvu áður en hún héldi til Gorkí, hinnar lokuðu borgar, þar sem maður hennar er í útlegð. Hún var mjög þreytuleg við komuna eftir flugferð frá Ítalíu. Frá flugvellinum hélt hún inn til borgarinnar í fylgd tveggja banda- rískra þingmanna. Var þeim ekið í bifreið bandaríska sendiráðsins. Lögregian handtók Serafím Yevsukov, einn vina Bonner-hjón- anna, á flugvellinum. Dóttir hans afhenti frú Bonner blómvönd er hún kom út úr flughöfninni. Serafim hefur reynt að fá leyfi til að flytjast úr landi fyrir sig og íjölskyldu sína frá 1978. Sjá „Hver andlega heill maður . . .“ábls. 32 AP/Símamynd Yelena Bonner hallar sér upp að Alexei Semyonov, syni Andrei Sakharov, á flugvellinum í Mílanó í gærmorgun. Frú Bonner hélt í gær til Sovétríkjanna eftir hálfs árs dvöl á Vesturlöndum. Herfor- ingi f lýr Islamabad. AP. HERFORINGI í flugher Afgan- istans hefur gengið tíl liðs við skæruHða og er nú í búðum þeirra í Pakistan. Hann segir skæruliða hafa eyðilagt 40 afganskar herflugvélar og laskað rúmlega 40 síðasta árið. Hershöfðinginn, Mir Alam Khan, var yfírmaður Bagram- flugstöðvarinnar norður af Kabúl. Þar er gert við flugvélar, sem laskast í bardögum sovézka inn- rásarliðsins og afganska stjómar- hersins við skæruliða. Khan segir sovézka innrásarlið- ið í Afganistan hafa misst a.m.k. jafnmargar herflugvélar og stjómarherinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.