Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986
13
OLE KORTZAU
Myndlist
BragiÁsgeirsson
Það er flölhæfur danskur list-
hönnuður, Ole Kortzau að nafni,
sem um þessar mundir er kynntur
í kjallarasölum Norræna hússins.
Ole Kortzau sækir fyrirmyndir
að verkum sínum í efnivið náttúr-
unnar og hér er það einfaldleikinn
og stór form sem eiga hug hans
allan. "
Listamaðurinn er húsameistari
að mennt, en hefur öðru fremur
hlotið frægð og viðurkenningu fyrir
listhönnun á mörgum sviðum, hann-
ar grafík, textflmynstur, postulín,
silfurmuni og húsgögn. Hann er
ekki einasta afkastamikill á breiðu
sviði heldur einnig mjög iðinn við
að kynna list sína og þannig eru
sýningar hans orðnar hvorki fleiri
né færri en 25 á 13 árum. Fyrstu
sýningu sína hélt hann í Marienborg
árið 1973, en síðast hefur athafna-
semi hans á vettvanginum náð um
allan heim.
Svona gerist þetta úti í hinni
stóru veröld.
Það er eitthvað létt og austur-
lenzkt í list Ole Kortzau og er líkast
því sem hann hafí tileinkað sér kín-
verskan lífsmáta um einfalt líf við
útfærslu verka sinna.
Formin í myndum gerandans eru
stór og hrein og mjög í anda
danskrar erfðavenju í list og listiðn-
aði — iðulega skerast þau svo af
smáformum tengdum hlutveruleik-
anum. Heildin verður létt og leik-
andi, næsta loftræn, ef svo má að
orði komast.
Danskur listiðnaður er víðfrægur
fyrir þessar eigindir og hér getum
við séð eina útgáfu hans. Þessi sér-
stöku einkenni eru sprottin upp
beint frá danskri náttúru og um-
hverfí, vel að merkja. Það skiptir
svo miklu máli í allri list, að um-
hverfið sé kveikja listsköpunnar
einstaklingsins en f ferskri og lif-
andi útgáfu og í bland við heimslist-
ina. Þannig verður þjóðleg list al-
þjóðleg. Þannig spratt ogeinnig upp
máltækið „Öll þjóðleg list er léleg.
Öll góð list er þjóðleg."
Þetta skilst m.a. svo, að ekki
megi kæfa litsköpunina í hinu þjóð-
lega né drekkja henni í alþjóðlegum
straumum, en að uppruninn og
umhverfi listamannsins sé ávallt
aðal listar hans.
Það er mikilsvert að fá sýningar
sem þessa hingað til landsins f
þeirri miklu uppbyggingu sem ís-
lenzkur listiðnaður og listhönnun
er í um þessar mundir. Slíkir
munir, sem þeir á sýningunni, eru
verzlunarvara af æðri gráðu og
menn taki eftir því hve öllu er vel
fýrir komið og smekklega frá hveij-
um hlut gengið. Hvergi er um of-
hleðslu að ræða þrátt fyrir að þétt
sé setinn bekkurinn á þessari fjöl-
þættu sýningu og hefði hér margt
getað farið úrskeiðis í höndum
óvanra. Þó má segja, að það sé
nokkur verzlunarbragur á sýning-
unni, sem kann að hafa sínar eðli-
legu skýringar í ljósi þess, að það
er listmunaverslun (Epal) sem
gengst fyrir kynningunni. Verzlun-
in hefur gert mikið af því að kynna
danska listhönnun hér á landi, sem
að sjálfsögðu er þakkarvert. Maður
saknar þess, að engin sýningarskrá
fylgir þessari vönduðu kynningu en
hins vegar gefst kostur á að glugga
í einn ritling og nokkur laus blöð.
Eiginlega er útilokað að setja upp
slíka sýningu í þessum ágætu sölum
án þess að þessi hlið sé í lagi og
þetta ættu ábyrgir að huga að.
Það sem er einna athyglisverðast
á þessari sýningu í ljósi fjölbreytni
hennar er hve formhugsun gerand-
ans er hrein og bein, — persónuleiki
listamannsins og viðhorf hans til lífs
og listar kemur fram í hverjum
einstökum hlut. Gengur eins og
rauður þráður um alla sýninguna
og gildir hér einu í hvaða efni hann
vinnur.
Ég sé hér greinilegan skyldleika
hinna þokkafullu rósamynstra við
silfurmunina og postulfnið — allt
listiðnaður í háum gæðaflokki.
Listamaðurinn Ole Kortzau hefur
hlotið frægð og frama fyrir listmuni
sína og eru það í sjálfu sér góð
meðmæli. En það varðar þó mestu,
að margir munanna á sýningunni í
kjallarasölum Norræna hússins
staðfesta að sóminn er verðskuldað-
ur. Og það gerir sýninguna heim-
sóknar virði.
Stálkerra, burðargeta 1000 kg. Innanmál
257x142x40 cm. Ljósabúnaður, bremsu-
búnaður, sturtubúnaður, opnanlegur að
aftan og framan. 64.000.—
★
Stálkerra, burðargeta 500 kg. Innanmál
170x115x40 cm. Ljósabúnaður, 13“ dekk.
38.000.—
★
Hvítar harðplastkerrur. Burðargeta 450 kg.
Innanmál 170x15x40 cm. Ljósabúnaður,
13“ dekk. 36.000.—
Bíla- og lyftaraflutnlngskerrur.
Vönduð vinna, unnið úrnýju efni affagmönnum.
Víkur Vagnar hf.
Víkí Mýrdal
Sölustaðir: GísliJónsson og Co. hf.,
Sundaborg 11, sími 686644.
Smíðum allar gerðir af
t.d. bátakerrur.
og kerrum,
M'4 !.:*
s
BORCARS KRÁIIN
Gulabókin
sem allir fa öteypis í haust
Þúsundir fyrirtðdgavetóa með, hvað með þitt fyrirtæki ?
4$vart d fivítu Borgartúni 29, sími 622229.