Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÖJUDAGUR 3.JÚNÍ 1986
27
UPC-vörumerki. Þegar þetta
merki er sett undir rafeinda-
skynjara birtist saga framleiðslu
og ferill ákeðinnar vörutegund-
ar.
er notuð talsvert til að lengja
geymsluþol ýmissa matvæla en það
er tiltölulega stutt síðan að farið
var að tala um að nota aðferðina
við fískgeymslu. Bent var á í um-
ræðunum að menn yrðu að gæta
fyllstu varfæmi í notkun C02. Gasið
drepur ekki alla gerla heldur lamar
vöxt þeirra og tímgun. Mesta hætt-
an er á að botulinum-gerlar komist
í fískinn sem þá verður baneitraður.
Það eykur á hættuna að eitrun frá
þessum gerli er Iyktar- og bragð-
laus.
Tilraunir hafa verið gerðar til að
fá vitneskju um hvort botulinum-
gerilinn sé að fínna í fiski í eðlilegu
umhverfí hans. Svo að segja enginn
botulinum-gerill fannst í fiski úr
söltum sjó en í vatnafíski reyndust
43% hafa gerilinn.
Sérfræðingarnir töldu að með
þessu væri ekki einhlítt að ekki
kæmist botulinum-gerill í saltvatns-
físk, þar sem vitað væri að gerillinn
lifir í sjó við viss skilyrði.
Þá vom gerðar tilraunir á
geymsluþoli físks sem botulinum-
gerlar höfðu verið settir í og síðan
pakkað í C02 gasfylltar umbúðir.
Tilraunir voru gerðar við 4, 10 og
26 stiga hita, bæði með 100% car-
bon dioxide og blöndu með 70%
C02 og 30% súrefni. Tilraunimar
sýndu eftirfarandi: Við 4ra stiga
hita var eitrun komin í fískinn eftir
21 dag. Við 10 stiga hita á 6.-8.
degi. I 26 stiga hita myndaðist
eitrun á 24 klukkustundum. Niður-
staða nefndarinnar var að ítreka
enn að gæta bæri fyllstu varúðar
við notkun C02 til að lengja
geymsluþol fisks.
Smásala fisks á
rafeindaöld
Eldri Reykvíkingar muna þá tíð
er Guðmundur sál. Grímsson, sá
heiðursmaður, ók fískvagni sínum
um götur bæjarins og kallaði til
húsmæðra: „Glæný ýsa syndir
heim. Má eg færa í hana, frú?“ Jón
og Steingrímur breyttu þessu físk-
sölufyrirkomulagi með Fiskhöllinni,
uppaf Elíasarbryggju sem hvarf
þegar „Sprengisandur" var byggð-
ur. Þetta var á þeim ámm er rauð-
magavagnar karlanna af Gríms-
staðaholtinu á Pósthúshominu vom
fyrsti vorboði bæjarbúa.
Hvað kemur þetta nú málinu við
í frásögn af fískimálaráðstefnu
vestur í Ameríku? Ekkert annað en
að minna á það gamla þegar nýtt
kemur í staðinn. Eitt af dagskrár-
málum á NFI-ráðstefnunni var
skýrt á eftirfarandi hátt: „Við eig-
um við vandamal að stríða en við
kunnum ráð við því: Það er UPC
og vigtun físks í misstómm stykkj-
um.“
UPC er skammstöfun á „Univer-
sal Product Code“ sem kalla mætti
framleiðsluyfírlitsmerkjamál, eða
það sem auðveldara er, að halda
sig við skammstöfunina UPC. Þessi
rafeindavömmerking hefír farið
eins og eldur í sinu um alla Ameríku
frá því hún kom fyrst fram árið
1973. 95% allra vömtegunda sem
nú em á markaðnum em UPC-
merktar, ferhymdu merki á stærð
við frímerki með svörtum strikum
og tölustöfum. í þessu tilliti em
geymdar allar nauðsynlegar upplýs-
ingar um vömna, frá framleiðslu-
stigi, pökkun, flutningi, geymslu,
birgðastöðu, verði og álagningu.
Þegar varan fer um borð hjá gjald-
kera í verslun fer merki gegnum
rafeindageisla, en upplýsingamar
frá merkinu era fluttar samstundis
inn á tölvukerfi verslunarinnar.
Vandamálið hvað fisksöluna
snertir er ekki sala á ákveðnum
einingum í samfelldri þyngd, t.d.
eitt pund af frystum físki er og
verður eitt pund. En þegar ferskur
fískur er seldur í stykkjum með
mismunandi þyngd vandast málið.
Stykkjavaran misþunga er eitt at-
riði í þeim 5% fískverslunarinnar,
sem ekki er merkt með UPC-hætti.
Það er vandalítið að fínna aðferð
til þess að UPC-merkja misþunga
stykkjavöm. Þetta er gert t.d. hvað
kjöt snertir og aðrar stykkjavömr
með því að sameinast um samræmt
merlq'amál fyrir hveija vömtegund
fyrir sig. En físksalar hafa ekki eða
vilja ekki sameinast um þetta. Eins
og er hafa margar kjörverslanir sitt
eigið merkjamál sem ekki er í
samræmi við önnur. Þetta veldur
mglingi og það er úr þessu sem
NFI vill reyna að bæta með því að
fá samkomulag um sameiginlegt
UPC-mál.
Markmið NFI
Tilgangur og markmið NFI er
að stuðla að aukinni fiskframleiðslu
og bæta markaðsaðstöðu fyrir sjáv-
arafurðir. Talið er að þessu marki
verði best náð með því: 1. Að auka
framleiðslu á físki, 2. Að vinna að
auknum skilningi neytenda og
áhuga á neyslu sjávarafurða, og
3. Að styrkja einkaframtakið í físk-
iðnaðinum og stuðla að hagkvæm-
um rekstri og ágóða á öllum sviðum
iðnaðarins.
NFI er þeirrar skoðunar að það
sé nauðsynlegt að fijáls verslun um
allan heim ríki um hráefnisöflun.
Það er talið nauðsynlegt að koma
í veg fyrir að eiturefnum sé fleygt
í sjó.
Til aukningar og stuðnings
fijálsu framtaki mun NFI hafa nána
samvinnu við og fylgjast með að-
gjörðum ríkisstjórna og löggjafar-
þinga, sem hallast að aukinni af-
skiptasemi yfírvalda. Til að treysta
fijálst framtak í framleiðslunni mun
NFI fylgjast vel með aðgerðum ríkis
og þings og vera á verði gegn
ágangi á frelsi manna og reyna að
draga úr tilhneigingu hins opinbera
til að lejrfa og banna að ástæðu-
lausu.
Kynntu þér kosti Canon A-200
Tímaritið COMPUTER BUYER'S
GUIDE AND HANDBOOK
gefur Canon A-200 sín
allrabestu meðmæli
á kr. 156.400,-
útborgun 25% og
eftirst. á 8 mán.
Canon
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
í könnun tímaritsins
TODAY'S COMPUTERS
um hagkvæmustu tölvukaupin lenti
Canon A-200 í efsta sæti.
ATHUGIÐ!
Tökum allar gerðir a£ Apple tölvum
upp í verð á nýrri Canon A-200.
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR:
Canon A-200 256K vél
með 12" qrænum skjá
10 Mbyte nörðum disk
og innb. 360K drifi
ásamt
Canon PW-1156
17" prentara,
prentar 160 stafi á sek.
heimsþekkt merki á sviði hátækni
Þrír listar í kjöri í
Barðastrandarhreppi
Innri-Múla, Barðaströnd.
ÞRÍR listar eru í kjöri hér í
Barðastrandarhreppi við sveitar-
stjórnarkosningarnar 14. júní
næstkomandi. Fimm efstu sæti
listanna skipa eftirtaldir:
H-listi
Einar Guðmundsson, Seftjörn,
Hákon Bjarnason, Haga,
Ingi Haraldsson, Fossá,
Hákon Pálsson, Vaðli,
Einar Pálsson, Laugarholti.
F-listi
Torfi Steinsson, Krossholti,
Ragnar Guðmundsson, Bijánslæk,
Finnbogi Andersen, Grand,
Einar Kristinsson, Kjarrholti I,
Gísli Ásberg Gíslason, Rauðsdal.
J-listi
Finnbogi Kristjánsson, Breiðalæk,
Jóhann Ó. Steingrímsson, Miðhlíð,
Þórður Sveinsson, Múla,
Bjami Kristjánsson, Auðshaugi.
1 hreppsnefnd sitja fimm menn.
Á kjörskrá em 123. Enginn listi
kom fram til sýslunefndar.
—SJÞ
IFALLEGUNI
LITUM
■fegram húsin
Nú er rétti tíminn. Eigum alls konar málningu.
Utanhússseminnan.
Einungis vönduð vara, góð vörumerki.
Ráðg jöf - reynsla - vöruval
Síðumúla 15, sími 84533
Gódan daginn!
\
3
1
*