Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 29
Morgunblaðið/Einar Falur
Fimm bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins í Hafnarfirði, f.v.: Valgerður Guðmundsdóttir, Ingvar Viktorsson,
Guðmundur Árni Stefánsson, Jóna Ósk Guðjónsdóttir og Tryggvi Harðarson.
meirihluta, skipting atkvæða á
milli hinna flokkanna skiptir líka
máli,“ sagði Agnar Friðriksson,
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Garðabæ. Flokkurinn
hélt meirihluta sínum í Garðabæ.
„Við hefðum auðvitað viljað
halda fímmta manninum inni, en
það er ekki um það að fást. Við
erum með 53% atkvæða, sem er
næstbesta útkoma sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur fengið í Garðabæ.
Við erum einn af örfáum kaupstöð-
um þar sem Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig atkvæðum. Kjósendum
fjölgaði hér talsvert og var töluverð
óvissa um úrslitin. Við getum því
verið sáttir við okkar hlut.
Meirihlutinn stendur eftir _sem
áður mjög traustum fótum. Ég á
ekki von á miklum breytingum í
bæjarstjóminni. Við höfúm reyndar
ekki eins sterka stöðu í nefndum
bæjarins, en það breytir ekki okkar
starfí," sagði Agnar.
Helga Kristín Möller,
A-lista:
„Náðum okkar
takmarki“
„VIÐ teljum að þetta sé glæsileg-
ur sigur og erum því mjög
ánægð. Við náðum okkar tak-
marki, það er að endurheimta
sæti í bæjarstjórninni, og er
Alþýðuflokkurinn núna orðinn
næst stærsti flokkurinn í
Garðabæ,“ sagði Helga Kristín
Möller, efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins í Garðabæ.
„Ég tel að þetta sé þvi að þakka
að við rákum málefnalega kosn-
ingabaráttu og tókst að koma okkar
sjónarmiðum á framfæri. Við vomm
með góðan framboðslista og traust
fólk sem vann fyrir okkur í kosning-
unum. Þá er því ekki að leyna að
fólk er orðið þreytt á of miklum
meirihluta Sjálfstæðisflokksins og
sýna úrslitin að bæjarbúar vilja
veita honum meira aðhald.
Það er ómögulegt að segja hvetju
þetta breytir. Við munum reyna að
koma okkar fólki sem víðast f
nefndir og ná sem mestum áhrifum
og auðvitað vonumst við til að geta
komið fram ýmsum breytingum.
Við munum berjast fyrir því að
okkar stefnumál nái fram að ganga.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka Garðbæingum kærlega fyrir
stuðninginn og vona að við reyn-
umst traustsins verð,“ sagði Helga
Kristín.
Seltjarnarnes:
Guðmar Maguússon,
D-lista:
„Hæsta hlutfall
atkvæða á
landinu“
„VIÐ þurfum ekki að kvarta. Við
fengum hærra hlutfall atkvæða
en nokkur annar framboðsaðili
á landinu. Við héldum okkar hlut
nokkurn veginn, en vegna ein-
staklega óhagstæðrar skiptingar
atkvæða féll fimmti bæjarfull-
trúinn,“ sagði Guðmar Magnús-
son, annar maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins á Seltjarnarnesi.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 4
menn kjörna og hélt meirihluta
sínum í bæjarstjórninni.
„Það er ekki með neinu móti
hægt að túlka þessi úrslit sem
vantraust á störf okkar. Það munaði
örfáum atkvæðum að við héldum
okkar fulltrúatölu, en það er hend-
ing hver fer inn þegar svona litlu
munar. Alþýðuflokkurinn bauð ekki
fram að þessu sinni á Seltjamamesi
og sýnist mér að atkvæði þeirra
hafí að mestu færst yfir á Alþýðu-
bandalagið. Þetta hefur ekki önnur
áhrif en þau að inn í bæjarstjómina
kemur félagsfræðingur í staðinn
fyrir verkfræðing, sem ég tel slæm
skipti þó félagsfræðingurinn sé í
sjálfu sér alls góðs maklegur. Þetta
. mun ekki hafa nein áhrif á stefnu
okkar. Við þurfum að þjappa okkur
betur saman og ræða málin vel í
okkar hópi.
Ég vil koma á framfæri þakklæti
til allra stuðningsmanna okkar og
þeirra sem unnu fyrir okkur í kosn-
ingabaráttunni, ekki síst unga fólk-
inu sem svo sannarlega lét ekki
sitt eftir liggja," sagði Guðmar.
Guðrún K. Þorbergs-
dóttir, G-lista:
„Tvímælalaust
mikill sigur“
„ÞAÐ er stór stund hjá okkur
að fá annan mann. Ég átti von á
að við fengjum aukið fylgi, en
að við fengjum annan mann datt
mér ekki í hug,“ sagði Guðrún
K. Þorbergsdóttir, efsti maður á
lista Alþýðubandalagsins á Sel-
tjarnarnesi, en listinn vann einn
mann af Sjálfstæðisflokknum.
„Það er greinilegt að málflutn-
ingur okkar hefur fengið hljóm-
grunn, við lögðum mikla áherslu á
útlit bæjarins og vemdun Valhúsa-
hæðar. Það hefur verið léleg stjóm
á bænum undanfarin ár. Okkur
datt ekki í hug að við gætum fellt
meirihlutann sem hefur stjómað hér
í 25 ár, en þetta er tvímælalaust
mikill sigur, og gagnrýnin á stjóm
bæjarins kemur fram með þessum
hætti.
Meirihlutinn verður að taka
miklu meira tillit til minnihlutans
næstu árin en hann hefur gert og
það er áreiðanlegt að þeir þora
ekki að hrófla við Valhúsahæðinni
á næsta kjörtímabili," sagði Guð-
rún.
Keflavík:
Ingólfur Falsson,
D-lista:
„Kosningalof-
orð sem enginn
getur efnt“
„Alþýðuflokkurinn var með
þau slagorð á lofti að gera Kefla-
vík aftur að þeim sjávarútvegsbæ
sem hann var áður. Þetta eru
kosningaloforð sem enginn getur
staðið við, því miður, en þau
virðast hafa hrifið," sagði Ingólf-
ur Falsson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Keflavík.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði
tveimur bæjarfulltrúum, fékk
tvo menn en hafði fjóra áður.
„Ég tel að þessi slagorð Alþýðu-
flokksins hafí skipt mestu máli, en
því er heldur ekki að leyna að
miklar mannabreytingar vom á
framboðslistunum og virðist Al-
þýðuflokkurinn hafa náð að höfða
til yngra fólksins. Ég á ekki von á
að miklar breytinar verði hér í
bænum. Þetta var auðvitað mikill
sigur hjá Alþýðuflokknum og óska
ég þeim góðs gengis. Þeir biðluðu
mjög stíft til okkar fyrir kosning-
amar og virðist það hafa haft áhrif,
en engan óraði fyrir að þeir fengju
meirihluta bæjarfulltrúa.
Þeir taka við góðu búi, bærinn
stendur vel. Þetta verður samt erfitt
hjá Alþýðuflokknum, því þetta er
mikið til óvant fólk. Hjá okkur verða
vissar breytingar því við lendum
nú í stjómarandstöðu. Mjög gott
samstarf hefur verið í bæjarstjórn
en núna verður maður að breyta
um hugsunarhátt til að veita meiri-
hlutanum aðhald," sagði Ingólfur.
Guðfinnur Sigur-
vinsson, A-lista:
„Krafa um
endurreisn
sjávarútvegs“
„ÉG HEF trú á að ýmislegt hafi
spilað saman. Við vorum með
góðan framboðslista og mikill
kraftur í baráttunni. Við höfum
líka haft forystu í umræðunni
um endurreisn sjávarútvegsins
hér,“ sagði Guðfinnur Sigurvins-
son, efsti maður á lista Alþýðu-
flokksins í Keflavík. Alþýðu-
flokkurinn vann sigur í Keflavík,
fékk fimm menn kjöma í bæjar-
stjórn og náði þannig hreinum
meirihluta.
„Sjávarútvegsfyrirtækin voru
lengi í fjársvelti, en menn reyndu
þó að halda skipum sínum gang-
andi. Síðan keyrði um þverbak
þegar kvótinn kom en skipin hér
hafa almennt mjög lítinr. kvóta.
Fyrirtækin eru að fara yfírum hvert
á fætur öðru og eru menn orðnir
mjög reiðir. Bæjarbúar skildu það
sem við vorum að segja og ég tel
að stefna okkar í sjávarútvegsmál-
unum hafí gert útslagið í þessum
kosningum og glæsilegum sigri
okkar.
Því er alltaf klínt á okkur að við
höfum þó flugvöllinn, en það er
ekki réttmætt. Það er svo margt
annað sem við höfum ekki á móti.
Til dæmis greiðir vamarliðið ekkert
aðstöðugjald til sveitarfélaganna.
Ég tel að það væri sanngjamt að
láta það greiða aðstöðugjald eins
og aðra vinnuveitendur en það
gæti verið eitthvað ákveðið hlutfall
af launum. Annars blönduðust
vamarmálin ekkert inn í kosning-
amar hér.
Sigur okkar er krafa um endur-
reisn sjávarútvegsins hér. Við
munum byija á því að ræða við sjáv-
arútvegsráðherra og knýja á um
aukinn kvóta fyrir skipin okkar.
Við sátum eftir þegar uppbyggingin
var í sjávarútvegi og teljum okkar
geta farið fram á þetta með fullum
rétti,“ sagði Guðfinnur.
Grindavík:
Eðvarð Júlíusson,
D-lista:
„Misskilningur að
kratarnir bjargi“
„ÚRSLITIN koma mér ekki á
óvart. Síðastliðin tvö ár hefur
verið alda hér á Reykjanesi, alls-
konar atvinnumálaráðstefnur
verið haldnar og Karl Steinar
Guðnason framsögumaður á
þeim flestum, svo skrítið sem það
nú er,“ sagði Eðvarð Júlíusson
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Grindavík. Flokkur-
inn fékk tvo menn kjörna, missti
einn.
„Þeir hafa verið að lemja á þessa
daufu hönd Sjálfstæðisflokksins
sem á að vera hér yfir og Framsókn-
arflokksins reyndar líka. Fólk er
farið að óttast um sinn hag, sem
er ekki nema eðlilegt og hefur
Alþýðuflokkurinn spilað inn á það:
En að kratamir bjargi þessu, það
er alger misskilningur, sem á eftir
að koma í ljós. Ég hef verið að
vara við þessu ástandi, en þetta er
ekki bæjarmálapólitík nema að litl-
um hluta. Ég tel að þetta sé lexía
sem við sjálfstæðismenn höfum
haft gott af upp á seinni tíma.
Við höfum hafíð viðræður við
Framsóknarflokkinn um áfram-
haldandi meirihlutasamstarf og á
ég von á að samningar takist.
Samstarfíð gekk mjög vel á síðasta
kjörtímabili og vil ég halda því
áfram,“ sagði Eðvarð.
Magnús Olafsson,
A-lista:
„Breytingar með
nýjum mönnum
„ÉG ER mjög ánægður með úr-
slitin þó að við hefðum ætlað
okkur að fá þijá menn kosna.
Úrslitin koma þó engan veginn á
óvart,“ sagði Magnús Ólafsson,
efsti maður á lista Alþýðuflokks-
ins í Grindavík. Þar bætti flokk-
urinn við sig einum manni í
bæjarstjórn og er nú með tvo.
„Meirihlutinn hélt velli þó báðir
flokkamir, það er Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsóknarflokkur, hafi
tapað manni. Þeir munu sjálfsagt
halda áfram samstarfinu ef þeir ná
saman. Því er ekki við miklum
breytingum að búast. Hjá okkur er
þetta gjörbreyting, því við fáum
menn í nefndir og bæjarráð. Við
erum líka opnir fyrir viðræðum um
meirihlutasamstarf við þá sem það
vilja.
Úrslitin á Reykjanesskaganum í
heild eiga örugglega eftir að hafa
einhverjar breytingar í för með sér
í framtíðinni, þó ég viti ekki ná-
kvæmlega hvemig þær verða.
Verulega dregur úr áhrifum Sjálf-
stæðisflokksins, en mesta breyting-
in felst þó vafalaust í verkum þeirra
nýju manna sem víða eru að taka
við,“ sagði Magnús.
________IMJarðvík:________
Rag'iiar H. Hall-
dórsson, A-lista:
„Tímamót í
sögu Njarðvíkur“
„VIÐ erum yfir okkur ánægðir
með það traust sem bæjarbúar
hafa sýnt okkur. Ég vil þakka
þeim fyrir það, og ekki síst þeim
sem unnu fyrir okkur í kosning-
unum,“ sagði Ragnar H. Hall-
dórsson, efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins í Njarðvík. Al-
þýðuflokkurinn vann einn mann
af Sjálfstæðisflokknum og féll
meirihluti Sjálfstæðisflokksins
við það.
„Eg tel að við höfum verið með
sterkan lista sem fólkið bar traust
til og að það hafí ráðið úrslitum.
Þetta eru tímamót í sögu Njarðvík-
ur því Alþýðuflokkurinn er í fyrsta
skipti orðinn stærsti flokkurinn í
Njarðvík.
Ég á von á því að við munum
reyna að mynda meirihluta með
fulltrúa Framsóknarflokksins sem
hefur oddaaðstöðu og auglýsa eftir
nýjum bæjarstjóra. Stefna allra
flokkanna hefur verið svipuð og
munum við ekki söðla stórt um þó
auðvitað séu alltaf einhvetjar
áherslubreytingar. Við munum
leggja sérstaka áherslu á atvinnu-
málin og umhverfís- og fegrunar-
mál. Ég á von á að góð samstaða
náist í bæjarstjóminni, sama hvar
menn standa í pólitíkinni," sagði
Ragnar.
Mosfellssveit:
Aðalheiður Magnús-
dóttir, G-lista:
„Leifar af
gamalli
ættarpólitík“
„VERST að við fengum ekki
tvo,“ varð Aðalheiði Magnús-
dóttur, efsta manni á G-listanum
í Mosfellshreppi að orði. Al-
þýðubandalagið, sem í síðstu
kosningum bauð fram með
Framsóknarflokknum, fékk einn
fulltrúa kjörinn. „Fylgi okkar
var töluvert, en Sjálfstæðisflokk-
urinn er nú með hreinan meiri-
hluta og framsókn dottin út. Mér
finnst þetta skrítið, vegna þess
að alla kosningabaráttuna var
fólk að lýsa yfir óánægju sinni
með meirihlutastjórnina. Þetta
sýnir bara hvað íhaldið er ráð-
andi flokkur í sveitinni.“
Fyrir þessar kosningar samein-
uðust tvær stórar ættir í Mosfells-
hreppi um að styðja Sjálfstæðis-
flokkinn, að sögn Aðalheiðar. „Við
búum ennþá við leifar af gamalli
ættarpólítík, þar sem eru gömlu
landeigendumir. Til þess að styðja
við bakið á D-listanum vartil dæmis
gefið út blaðið „Varmá“ þar sem