Morgunblaðið - 03.06.1986, Síða 34
34
MORGIJNBLADID, ÞRIDJUDAGUR3. JÚNÍ1986
Miles
vann
Timman
Bugojno. AP.
ANTHONY Miles frá Bretlandi
vann Hollendinginn Jan Timman
á sunnudag' i 6. umferð skák-
mótsins í Bugojno í Júgóslavíu
og var því efstur á mótinu eftir
þá umferð. Miles, sem hafði hvítt
og beitti enskri byrjun, sigraði
andstæðing sinn eftir 39 leiki.
Önnur úrslit í 6. umferð voru
þau, að jafntefli varð hjá Lajos
Portisch og Anatoly Karpov og
Boris Spassky og Artur Yusupov
en skák þeirra Andreis Sokolov og
Ljubomirs Ljubojevic fór í bið. Miles
er því efstur með 3 V2 vinninga,
en næstir komu þeir Spassky,
Ljubojevic og Sokolov með 2'/2
vinning hver og tvær biðskákir, þá
Yusupov með 2 vinninga og eina
biðskák og loks Timman með IV2
vinning og eina biðskák.
Könnun á kynlífi
bandarískra kvenna:
Ein af hverjum
fimm nota ekki
verjur fyrr en
eftir þriðju þungun
Washington, AP.
FJÓRAR af hveijum fimm
einhleypum bandarískum
konum á þrítugs aldri lifa
reglubundnu kynlífi, ein af
hverjum þremur verður van-
fær að minnsta kosti einu
sinni og fjörutíu prósent
þeirra láta ijúfa fyrstu þung-
un að því er segir í opinberri
skýrslu sem hefur verið gerð
eftir könnun á málinu.
Ein af hveijum þremur hefur
búið með karlmanni og ein af
hveijum sex lifa kynlífi án þess
að nota getnaðarveijur, ein af
hveijum fimm nota ekki getnað-
arveijur að staðaldri fyrr en eftir
að þær verða ófrískar í 3. sinn.
Þessi könnun var gerð fyrir
þremur árum, en langan tíma
hefur tekið að vinna úr niður-
stöðunum. Árið 1983 ólu bam
íjögur hundruð þúsund ein-
hleypar konur af 3,1 milljón á
þessum aldri og 660 þúsund
fengu fóstureyðingu. Þetta er í
fyrsta skipti sem skipuleg at-
hugun fer fram á kynlífsatferli
bandarískra kvenna á þessum
aldri.
Punjab:
Lögregla köll-
uð frá Gullna
musterinu
Amritnar, Indlandi. AP.
YFIRVÖLD hafa ákveðið að
kalla lögreglu- og öryggissveitir
frá Gullna musterinu í Punjab,
helgasta stað sikha trúflokksins,
en ekki er fullljóst hvort þær
hafa allar verið kallaðar brott
eða hvort einhveijar þeirra hafa
verið skildar eftir.
Opinber tilkynning um þessa
ákvörðun var gefin út í gær, á
öðmm degi Þjóðarmorðsvikunnar,
sem öfgasinnaðir sikhar boðuðu til
til þess að minnast þess að tvö ár
em liðin frá því að indverski herinn
gerði innrás í Gullna musterið.
Öfgamenn sikha myrtu einn
hindúaleiðtoga Kongress flokksins
í Punjab í gær. Ram Lubaya, sem
sæti átti í héraðsstjóminni, dó þegar
er tveir menn á vélhjóli skutu á
hann í Parabhawali þorpinu.
AP/Ljósmynd
MANNRÆNINGJAR HANDTEKNIR
Lögreglumönnum í San Berardino í Kalifomíu hefur hér tekist að hafa hendur í hári mannræningja eftir umfangsmikinn eltingar-
leik í gegnum miðborgina. Mannræningjarair voru tveir og höfðu rænt 19 ára gamalli stúlku, sem um síðir tokst að flyja fra þeim.
Þeir tóku þann kost að yfirgefa bifreið sem þeir voru á og fannst annar þar sem hann hafði falið sig undir bifreið, en hinn var
handtekinn á göngu skammt frá.
Japan:
Þjóðþingið rofið og
boðað til kosninga
Tókíó. AP.
JAPANSKA þingið var rofið í
gærmorgun og þingkosningar
boðaðar í landinu í næsta mán-
uði. Er 6. júlí talinn líklegasti
kjördagurinn. Las Michita Sak-
ata, forseti neðri deildarinnar,
upp keisaralegt bréf um þingrof-
ið og var því ákaft fagnað af
þingmönnum Fijálslynda flokks-
ins, sem farið hefur með völd í
landinu.
Flestir þingmenn stjómarand-
stöðunnar voru flarverandi á fund-
inum. Fullyrða þeir, að hin opinbera
ástæða Yasuhiro Nakasone forsæt-
isráðherra fyrir þingrofinu sé
yfirskin í þeim tilgangi einum að
styrkja stöðu Fijálslynda flokksins.
Nakasone heldur því fram, að
nauðsyn beri til að leiðrétta mis-
vægið milli kjördæma landsins, að
því er snertir kjósendaQölda og
þingsæti.
I kosningunum verður kosið til
neðri deildar þingsins, þar sem 511
þingmenn eiga sæti, en samtímis
verður kosið um helming þingsæta
í efri deild þingsins, þar sem 252
þingmenn sitja. Talið er, að með
því að láta þessar kosningar fara
fram samtímis, þá verði þátttakan
í þeim mun meiri en ella, en mikil
kosningaþátttaka er álitin Fijáls-
Yasuhiro Nakasone, forsætísráðherra.
lynda flokknum í hag.
Fijálslyndi flokkurinn hefur nú
250 þingsæti í neðri deildinni og
með aðstoð smáflokks eins, sem
ræður yfir 8 þingsætum, hefur
japanska stjómin þar 258 þingsæti
eða nauman meiri hluta. I efri deild
þingsins hefur Fijálslyndi flokkur-
inn 138 þingsæti. „Markmið fijáls-
lynda flokks hlýtur að vera að fá
hreinan meiri hluta eða minnst 257
þingsæti í neðri deildinni," sagði
Nakasone í fréttaviðtali í gær.
Sú skoðun er mjög almenn, að
með 'því að styrkja stöðu flokksins
á þjóðþinginu, vonist Nakasone til
þess að geta sniðgengið flokksregl-
ur, sem koma í veg fyrir, að hann
geti verið forsætisráðherra áfram,
en samkvæmt núgildandi reglum
ætti embættistímabili hans sem
forsætisráðherra að ljúka í nóvem-
ber nk.
Flokkur jafnaðarmanna er helzti
stjómarandstöðuflokkurinn í Japan
og hefur hann uppi áform um að
leita til dómstóla til þess að koma
í veg fyrir kosningamar í næsta
mánuði á þeim forsendum, að kjós-
endum hafi ekki nægilega tíman-
lega verið gerð grein fyrir hinum
nýju lögum um úthlutun þingsæta,
en þau voru samþykkt 22. maí sl.
Dómari í Bandaríkjunum:
13 ára stúlka ræður því
hvort hún lætur eyða fóstri
New Brunswick, New Jersey. AP.
DÓMARI hefur úrskurðað að
móðir 13 ára gamallar stúlku
hafi rétt tíl að sannfæra hana
um að gangast undir fóstureyð-
ingu, en endanleg ákvörðun þar
að lútandi hljóti að vera stúlk-
unnar sjálfrar.
Samtök, sem beijast gegn
fóstureyðingum, höfðuðu málið
0g óskuðu eftir því að stúlkunni
yrði skipaður forsjármaður, sem
hún gæti ráðfært sig við um hvort
hún vildi eignast bam sitt eða
ekki. Dómarinn úrskurðaði að
móðir stúlkunnar hefði til þess
rétt eins og sérhvert foreldri að
reyna að sannfæra bam sitt.
Samtökin ættu ekkert með að
hafa afskipti af stúlkunni, velferð
hennar væri á ábyrgð móðurinnar
og stofnana þjóðfélagsins, sem
hefðu með mál bama og unglinga
að gera.
Stúlkan er komin þijá mánuði
á leið og hefur ekki ljáð máls á
því að eyða fóstrinu. Hann sagði
að endanleg ákvörðun um fóstur-
eyðingu hlyti að vera stúlkunnar.