Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
!ás
Noregnr:
Statoil gerir
500 milljarða kr.
gassölusamning
Ósló.AP.
NORSKA ríkisolíufélagið Statoil
hefur gert samning við vestur-
þýskt fyrirtæki, Ruhr Gas, um
sölu á jarðgasi fyrir um 500
milljarða norskra króna, að því
er talsmaður Statoil greindi frá
í gær, og er þetta einn af stærstu
samningum í iðnaðarsögu Nor-
egs.
Talsmaðurinn, Hákon Lavik,
sagði, að enn hefði ekki verið gengið
formlega frá öllum samningsatrið-
um.
Hann sagði, að vestur-þýska
fyrirtækið hefði samið fyrir hönd
sex helstu gassölufyrirtækja í Vest-
ur-Evrópu. Hin fyrirtækin eru BEB
og Thyssengass í Vestur-Þýska-
landi, Gasunie í Hollandi, Distrigas
í Belgíu og franska fyrirtækið Gaz
de France.
Samningurinn hljóðar upp á sölu
á 450 milljörðum rúmmetra af
jarðgasi að verðmæti um 500 millj-
arðar n. kr. (um 2.900 milljarðar
ísl. kr.) á árabilinu frá 1993 til
2020.
Ame Oeien, olíu- og orkumála-
ráðherra Noregs, sagði, að „sölu-
samningur þessi er stærri að vöxt-
um en nokkur Norðursjávarsamn-
ingur, sem Norðmenn hafa gert“.
Gasið, sem samið hefur verið um
sölu á, kemur að mestu frá Troll-
svæðinu fyrir utan Björgvin. Hluti
þess verður þó væntanlega frá
Sleipnis-svæðinu, sem er sunnar.
Vegna samningsins er áætlað að
veija um 60 milljörðum n. kr. í fjár-
festingar í nýjum leiðslum og bor-
pöllum.
Aætlað er, að á Troll-svæðinu séu
1.200-1.300 milljarðar rúmmetra
af jarðgasi að verðmæti um 1.000
milljarðar n. kr. (um 5.300 milljarð-
ar ísl. kr.).
Flokkur Ozals
fékk 10 borgar-
stjóra af sextán
Ankara, Tyrklandi. AP.
Födurlandsflokkur Turguts
Ozals, forsætisráðherra Tyrk-
lands vann tlu borgarstjóra af
sextán í borgarstjórakosningum
á sunnudag.
Föðurlandsflokkurinn fékk um
42 prósent greiddra atkvæða. Al-
þýðudemókratar komu næstir, unnu
þrjá borgarstjóra og 28 prósent
atkvæða. í þriðja sæti var miðflokk-
ur sem nýtur stuðnings Demirels
fyrrverandi forsætisráðherra með
20 prósent atkvæða, en engan
borgarstjóra kjörinn.
Kork‘0‘Plast
Sænsk gæöavara
KORK-gólfflísar
með vinyl-plast-
áferd.
Kork*o*Plast:
í 10 geröum.
Veggkork
í 8 geröum.
Ávallt
til á
lager.
Aörar korkvörutegundir á lager:
Undirlagskork í þremur þykktum
Korkvélapakkningar í tveimur þykktum
Gufubaðstofukork
Veggtöflu-korkplötur í þremur þykktum
Kork-parkett venjulegt, í tveimur þykktum
Einkaumboö á íslandi fyrir WICANDERS KORK-
FABRIKER:
Hringiö eftir ókeypis sýnishorni og bæklingi.
bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
CO 'Armúla 16 sími 38640
AP/Ljósmynd .
Sparkað í andlit stjórnarandstæðings
Það er ekkert lát á óeirðunum í Suður-Kóreu og harkan slík að
við þekkjum slíkt tæpast hér á Vesturlöndum nema af afspurn.
Myndin sýnir sérþjálfaðan lögreglumann í þvi að bæla niður óeirð-
ir, sparka í andlit ungs stjórnarandstæðings. Námsmaðurinn var
nýlentur á öryggisdýnu eftir að hafa hoppað niður af annarri
hæð bankabyggingar i Seoul. Andstæðingar stjórnvalda tóku
bygginguna og héldu þar til i tvær klukkustundir áður en þeir
voru hraktir brott.
Fiskveiðisamningur
Grænlendinga og Japana:
Selja tungumála-
vandkvæði strik
í reikninginn?
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
HEIMASTJORNIN í Grænlandi “
verður nú að viðurkenna, að
grænlenskir sjómenn geta ekki
unnið um borð í japönsku verk-
smiðjutogurunum, sem ætlunin
er að stundi veiðar við Græn-
landsstrendur í sumar. Heima-
stjórnin taldi það eina af grund-
vallarforsendum fiskveiðisamn-
ings síns við Japani, að græn-
lenskir sjómenn fengju tækifæri
til að læra fiskveiðitækni um
borð í japönsku veiðiskipunum.
Jens Geisler, þingmaður Inuit
Ataqatigiit, sem er vinstriflokkur,
upplýsti á þingfundi í Nuuk (Godt-
háb), að ókleift hefði reynst að fínna
lausn á tungumálavandkvæðunum,
sem skapast mundu um borð í skip-
unum.
Onnur grundvallarforsenda
samninganna var, að Græniending-
amir mundu læra flökun og aðra
vinnslu á karfa fyrir Japansmarkað.
En nú er sá möguleiki einnig úr
sögunni.
Samningurinn kveður á um, að
Japanir fái að veiða um 35.000 tonn
af fiski, aðallega karfa, á græn-
lenskum miðum — gegn allt að 25
milljónum danskra króna (um 125
millj. ísl. króna) greiðslu á ári.
Sjávarútvegsráðherra Islands,
Halldór Asgrímsson, hefur harðlega
gagnrýnt þennan samning Græn-
lendinga og Japana. Halldór segir,
að veiðar Japananna muni leiða til
rányrkju á íslensk/grænlenska
karfastofninum og hafí hann hvað
eftir annað, án sýnilegs árangurs,
vakið athygli grænlenskra yfírvalda
á þeirri staðreynd.
LENI
ELDHÚSRÚLLUR
LENI
SALERNISPAPPÍR
í stórum og smáum pakkningum
LENI á minnið fyrir næstu
innkaupaferð og það mun ekki bregðast
Þú feerð úrvalsvöru á hagstæðu verði
■
MuniðLENI!
VERSLUNARDEILD
^&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI681266