Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986
44
Laxasleppingar eru
ekki gagnslausar
Gildrubúnaður í Lárósi. Lárvatn í baksýn.
eftirEinar
Hannesson
Fyrir nokkru var hér í heimsókn
norskur vísindamaður á sviði nátt-
úrufræði, Hans Nordeng að nafni.
Nordeng hefur mjög ákveðnar skoð-
anir í sambandi við lífsferil laxins
og göngur hans m.a. í hafínu og
skýringu á því hvemig hann fínni
sína heimaá. Nordeng byggir á
svonefndri feromona-kenningu eða
lyktarslóð, sem hann hefur sett
fram. Vegna þessarar tilgátu telja
ýmsir, sem trúaðir eru á hana, að
seiðasleppingum í ár og vötn hafí
veriðáglæ kastað.
Tilgáta Hans Nordeng er umdeild
í Noregi og málflutningur hans er
af ýmsum talinn öfgakenndur.
Deilur hafa því verið uppi í þessu
efni í Noregi og hafa menn eins
og gengur skipst í flokk með og á
móti. Vissulega er ástæða til að
v taka til sérstakrar skoðunar málið
þegar deilur þessar eru fluttar
hingað til lands.
Það er í sjálfu sér ekkert nýtt
mál, að talið sé að lyktarskyn ráði
ferðalagi laxins. Sú skoðun er
gömul, því Frank Buckland hélt
þessu fram þegar 1880, að lax
notaði lyktarskyn til að fínna
heimaána, og White (1934), að lykt
af laxaseiðum í straumvatni dragi
að sér fullorðinn físk. Flestir eru á
þeirri línu, að þetta eigi við þegar
laxinn sé kominn nærri heimaslóð-
um, t.d. Hasler (1966), eftir langt
ferðalag um hafíð. En hitt er
umdeilt, sem Nordeng heldur fram,
að einskonar vörðuð lykt viðkom-
andi stofns ráði ferðalaginu öllu um
víðáttur hafsins. í framhaldi af því
þrengist mjög, að unnt sé að vera
með stofnblöndun í ám. Það sé
nánast eyðilegging á viðkomandi
stofni, þ.e. eiginleikum hans til að
rata sína leið. Skoðum þetta ögn
nánar, en áður skulum við athuga
í hveiju tilgátan um lyktarslóð er
fólgin.
Lyktarslóðarkenningin
Þrátt fyrir miklar framfarir í
rannsóknar- og tilraunastarfí hin
síðari ár eru ýmis atriði í sambandi
við laxinn enn á huldu svo sem það
hvað það er sem stýrir átthagavísi
hans, en hún er með ólíkindum.
Hvemig laxinn getur farið til fjar-
lægari staða í hafínu og skilað sér
aftur til heimkynna sinna, er óráðin
gáta.
I örstuttu máli er gangur máls í
sambandi við lyktarslóðarkenning-
una þessi: Laxaseiði sem ganga til
sjávar úr á gefa frá sér lykt og
myndast þannig lyktarslóð í hafínu,
vegna þess að seiði úr sömu á synda
í mörgum hópum á mismunandi
tíma, og varða þannig leiðina, ef
svo má segja. Þegar á leiðarenda
er komið fá „ættingjar" nýkomna
físksins sem dvalist hafa á afréttin-
um skilaboð um að halda heimleiðis
og fylgja eftir hinni vörðuðu leið.
Svo einfalt er þetta mál!
Gönguseiðin skila sér
á sleppistað
Sem fyrr segir, er þessi kenning
„Hefur verið reynt að
gera sleppingar laxa-
seiða tortiyggilegar og
í þvi sambandi hefur á
öfgafuUan hátt því ver-
ið haldið fram, að um
hreint skemmdarverk
hafi verið að ræða
gagnvart laxastofni
viðkomandi ár.“
um lyktarslóðina mjög umdeild
vegna þess m.a. að hún þrengir
mjög fískiræktarmöguleika, ef hún
er tekin sem góð og gild vara.
Helsti sérfræðingur Norðmanna um
áratugaskeið, Leiv Rosseland, taldi
að þessi kenning stæðist ekki, þ.e.
væri ekki fullnægjandi skvring á
ratvísi laxins í hafínu, enda hafí
slepping gönguseiða af laxi í Noregi
úr einni á í aðra sýnt endurheimtu
í síðamefndu ánni. í þessu sam-
bandi má minna á, að hér á landi
er af mörgu að taka um dæmi í
sömu veru. Merkt gönguseiði af
laxi úr Kollafjarðarstöðinni sleppt
í Elliðaár skiluðu nær 100% heimtu
í veiðinni í Elliðaám, þ.e. 8 af
hundraði þeirra sem skiluðu sér
heim á annað borð. Sama hefur
gerst með merkt gönguseiði úr
Kollafírði, sem sleppt hefur verið
víða, t.d. hjá Lárósi. Þau hafa skilað
góðum heimtum í Lárós, svo að
athygli hefur vakið. Þá er athyglis-
vert að laxaseiði af stofni úr ám í
Ámessýslu, alin í Kollafírði og
sleppt hjá Vogalaxi, skiluðu sér í
stöðina á Vatnsleysuströnd þar sem
þeim var sleppt í sjó. Auk þess má
minna á, að ýmsar ár og ársvæði
hafa verið ræktuð upp með aðflutt-
um laxaseiðum.
Til nánari fróðleiks má geta þess,
að fyrir nokkmm ámm vom flutt
gönguseiði af stofni árinnar Lagan
í Vestur-Svíþjóð í laxlausar ár á
austurströnd Danmerkur. I stað
þess að laxinn kæmi til baka í
Lagan, kom laxinn í dönsku ámar,
og það þrátt fyrir að enginn villt
seiði vörðuðu leiðina þangað, eins
og lyktarslóðarvömkenning Nord-
eng gerði ráð fyrir.
Þá er ennfremur þess að geta,
að gerð var tilraun í Noregi á sínum
tíma til þess að ganga úr skugga
um hald fyrrgreindrar kenningar,
sem gerði ráð fyrir lyktarvörðum í
hafínu. Það var rannsóknarstofnun
í fískifræði í Ási, sem vann þetta
verkefni. Tilraunin var framkvæmd
sumarið 1980 í ánni Imsa hjá Stav-
angri. Ákveðið var að stöðva allar
göngur laxaseiða úr ánni til sjávar
með því að taka seiðin í gildru, sem
komið var fyrir neðarlega í ánni.
Seiðin vom síðan sett í sjávartjöm.
Til þess að tryggja sem best, að
lykt af laxi í ánni neðan við gildmna
fyndist ekki, var rafveitt á svæðinu
og síðan fískim eytt með eiturefni.
Biðu menn nú spenntir eftir að sjá
hvað myndi gerast síðari hluta
sumars, en það er hinn venjulegi
göngutími laxins í ána. Laxaganga
úr sjó í ána hafði verið um 80-100
laxar árlega. Þrátt fyrir að göngu-
seiði af laxi úr ánni fæm ekki sína
venjulegu leið og vörðuðu þannig
gönguleiðir laxins, eins og lyktar-
slóðarkenningin gerði ráð fyrir,
kom laxinn úr hafi í ána eins og
áður.
Mönnum hefur verið það ljóst hér
á landi, að jafnaðarlega sé best við
sleppingu á seiðum í ár, að nota
stofn úr viðkomandi vatnasvæði.
Þessi vegna hefur það aldrei verið
opinber stefna hér að blanda stofn-
um saman, þó að því hafi verið
haldið fram af aðilum, sem ættu
að vita betur.
Eins og fyrr segir, hefur verið
reynt að gera sleppingar laxaseiða
tortryggilegar og í því sambandi
hefur á öfgafullan hátt því verið
haldið fram, að um hreint skemmd-
arverk hafí verið að ræða gagnvart
laxastofni viðkomandi ár. Lyktar-
vörðukenningin á m.a. að sanna
þetta. Túlkun þessarar kenningar
ber keim af trúarbrögðum frekar
en vísindum. Hins vegar hefur það
á liðnum tíma oft reynst erfítt að
útvega slík seiði. Með tilkomu eldis-
stöðva víðsvegar um land og fjölda
þeirra, verður auðveldara en áður
að sinna þeirri þörf, sem fyrir hendi
er um fá seiði. Með tilkomu eldis-
stöðva víðsvegar um land og fjölda
þeirra, verður auðveldara en áður
að sinna þeirri þörf, sem fyrir hendi
er um að fá seiði til sleppingar úr
viðkomandi á eða vatnasvæði.
Einar Hannesson
raðauglýsingar — raöauglýsingar —- raðauglýsingar
tilboö — útboö
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi:
RARIK-86007: Nýbygging verkstæðis- og
geymsluhúss á Selfossi.
Opnunardagur: Miðvikudagur 18. júní 1986,
kl. 14.00.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum
Rafmagnsveitna ríkisins við Austurveg 44,
Selfossi og Laugaveg 118, Reykjavík frá og
með miðvikudeginum 4. júní 1986 gegn kr.
5.000 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík,
fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á
sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi merktu:
„RARIK-86007 Húsnæði á Selfossi".
Reykjavík 2. júní 1986,
Rafmagnsveitur Ríkisins.
húsnæöi óskast
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu einbýlishús,
raðhús eða sérhæð, helst í Árbæjar- eða
Breiðholtshverfi. Tvennt í heimili.
Vinsamlegast hringið í síma 75713 milli kl.
09.00-14.00 næstu daga.
REYKJALUNDUR
Húsnæði óskast
í Mosfellssveit
Viljum leigja húsnæði fyrir einn af læknum
stofnunarinnar frá 1. júlí nk.
Upplýsingar á skrifstofu Reykjalundar í síma
666200.
Reykjalundur,
endurhæfingarmiðstöð.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er í miðborg Reykjavíkur rúmlega
100 fm skrifstofuhúsnæði sem skiptist í 5
herbergi. Húsið er laust nú þegar.
Upplýsingar verða veittar í dag og næstu
daga á skrifstofutíma í síma 29666.
Fyrirtæki óskasttil kaups
Leitum að meðalstóru fyrirtæki til kaups.
Verðhugmyndir á bilinu 3-5 millj. Ýmislegt
kemur til greina svo sem: Heildsala/innflutn-
ingur, iðfyrirtæki/framleiðsla, fyrirtæki í þjón-
ustuiðnaði.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir nk. föstudag
6. þ.m. merkt: „T — 86“. Með öll tilboð
verður farið sem trúnaðarmál.