Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 61
Minning:
Leifur Guðmunds-
son forsljóri
Þegar ég gerðist skáti fyrir rétt-
um 50 árum, var einn af forustu-
mönnum í Skátafélaginu Væringj-
um hæglátur maður, sem barst
ekki mikið á daglega í starfínu, en
sem stjórnaði með þeirri festu og
öryggi sem eru einkenni góðrar og
árangursríkrar stjórnar. Þetta var
Leifur Guðmundsson sem þá var
einn af aðalforingjum félagsins og
varð reyndar félagsforingi Vær-
ingja 1937, en jafnframt í stjórn
Bandalags íslenskra skáta
1936—1938. Leifur gekk ungur í
Skátafélagið Væringja, sem fá
stofnun þess 1913 hafði verið í
samvinnu við KFUM enda séra
Friðrik stofnandi beggja hreyfing-
anna.
Gekk Leifur að þessu skátastarfi
með þeirri alúð og samviskusemi,
sem einkenndu öll hans störf síðar.
Við sem þekkjum uppeldisgildi
skátastarfsins erum viss um að þau
áhrif, sem það hefur á unglingsár-
unum, verða oft varanleg og mót-
andi á skapgerð og viðhorf manns
alla ævi.
Leifur var alinn upp á stóru
heimili, því þau systkinin voru mörg
og í dag væri sagt að þau hefðu
getað myndað heilan skátaflokk.
Það er ekki sagt í hugsunarleysi
því að samheldnari fjölskyldu hefí
ég ekki kynnst bæði á gleði- og
sorgarstundum. Það er ekki lítils
virði fyrir ungan skátaforingja, að
alast upp við þessi skilyrði.
Enda voru Leifí sífellt falin
ábyrgðarmeiri störf í skátastarfínu.
Hann stofnaði Skátafélag á ísafirði
1928 og var síðar kosinn heiðurs-
félagi Skátafélagsins Einheija.
Sameining og endurskipulaguing
skátastarfs í Reykjavík fór fram
1938 og var Leifí falin forusta um
það starf. Hann varð fyrsti félags-
foringi hins nýskipaða Skátafélags
Reykjavíkur. Gegndi hann því starfí
í mörg ár.
Alltaf bar Leifur sama hug til
skátafélagsins og þó að annir for-
stjórastarfs við hið stóra fyrirtæki,
Mjólkurfélag Reykjavíkur, væri
umfangsmikið, þá gaf hann sér
alltaf tíma til að sinna beiðnum við
aðstoð. Var hann um tíma áhrifa-
maður í samtökum blóðgjafa, sem
stofnuð voru fyrir allmörgum árum.
En fyrir 50 árum skipulagði Leifur
einmitt Blóðgjafarsveit skáta, sem
sá spítölunum að mestu fyrir blóði.
Lengi býr að fyrstu gerð.
Skátahreyfíngin og æskulýðs-
starf á íslandi á mikið að þakka
slíkum forustumönnum, sem Leifur
var.
Við minnumst hans með virðingu
og þökk og óskum honum góðrar
heimferðar nú að ævilokum.
Páll Gíslason
Leifur Guðmundsson fyrrv. forstjóri
Mjólkurfélags Reykjavíkur lést
sunnudaginn 25. maí eftir stutta
legu í sjúkrahúsi, 75 ára að aldri.
Með Leifí er genginn vænn maður
og vinsæll og einn af þeim sem
má segja að hafí sett svip á bæinn
eins og stundum er tekið til orða
um menn úr athafnalífínu.
Leifur fæddist á ísafírði 30.
maí 1910, en foreldrar hans voru
þau hjónin Nikólína H.K. Þorláks-
dóttir og Guðmundur Guðmundsson
bakari þar í bæ.
Árið 1914 tekur Guðmundur sig
upp með ijölskylduna og flyst á
brott frá ísafírði til Reykjavíkur en
í leiðinni eru þau eitt ár í Olafsvík.
Guðmundur Guðmundsson bak-
ari, faðir Leifs, Iést laust fyrir 1930
og stóð þá ekkjan uppi með barna-
hópinn sinn, 10 börn á ýmsum
aldri. Þar sem Leifur var elstur
bamanna má nærri geta, að oft
reyndi á aðstoð hans við framfærslu
heimilisins, en þó tókst honum af
litlum eða nánast engum efnum að
ljúka prófí frá Verslunarskóla ís-
lands 1932.
Verslun og skyld störf voru hans
verkefni og að loknu prófí fór hann
að starfa í Verslun Gunnars Gunn-
arssonar í Reykjavík og seinna í
versluninni Novu þar sem hann
vann næstu árin.
Árið 1941 byijar hann að starfa
hjá Heildverslun Eggerts Kristjáns-
sonar hf. og er þar samfleytt til
ársins 1963 og síðustu árin sem
skrifstofustjóri.
Þá ræðst Leifur til Mjólkurfélags
Reykjavíkur sem framkvæmda-
stjóri og sinnir þvi starfí til ársins
1980, er hann lætur af störfum
fyrir aldurs sakir.
Leifur kvæntist Katrínu Hansen
27. maí 1939, og eignuðust þau 3
böm, en þau em Hlíf húsmóðir í
Reykjavík, Guðmundur verksniiðju-
stjóri í fóðurblöndunarstöð Mjólkur-
félags Reykjavíkur og Valdimar
dagskrárgerðarmaður. Hjónaband
þeirra Katrínar var farsælt og gott
og bamalán mikið, en 1977 syrti í
álinn, er Katrín féll frá um aldur
fram. Seinni kona Leifs er Ragn-
heiður Guðbrandsdóttir og lifír hún
mann sinn.
Leifur var maður félagslyndur
og starfaði mikið í ýmiskonar fé-
Gunnlaugur Hall-
grímsson - Minning
Fæddur 16. júní 1930
Dáinn 27. maí 1986
í dag verður til moldar borinn
Gunnlaugur Hallgrímsson hér í
borg.
Gunnlaugur fæddist á Isafirði
sonur hjónanna Þorgerðar Guð-
mundsdóttur og Hallgríms Péturs-
sonar byggingameistara. Sem
drengur fluttist Gulli eins og hann
var alltaf kallaður með foreldmm
sinum og systkinum Þóri og Ásdísi
til Reykjavíkur. Þórir bróðir Gulla
lést fyrir fáeinum áram langt um
aldur fram.
Faðir Gulla reisti hús við Brá-
vallagötu 16 í Reykjavík og bjó
Gulli þar alla tíð þar til fyrir tveimur
ámm að hann gekk að eiga eftirlif-
andi eiginkonu Önnu K. Ragnars-
dóttur og stofnuðu þau myndar-
heimili að Kvisthaga 4, þar sem þau
fluttu inn fyrir aðeins fáeinum vik-
um.
í raun fannst manni Gulli vera
að byija lífið, því núna hafði hann
eignast sitt eigið heimili.
Eftir að faðir Gulla lést hélt hann
alltaf heimili með móður sinni og
reyndist henni alveg framúrskar-
andi vel síðustu árin þegar heilsu
hennar fór að hraka, en móðir hans
lést á síðastliðnu ári. Hvem hefði
órað fyrir því þá þegar hann sat
við kistu móður sinnar síðastliðið
sumar að nokkram mánuðum
seinna væri hann allur. Gulli var
einstaklega hógvær og hlédrægur
maður, heiðarlegur og mátti ekki
vamm sitt vita, þótt skapmaður
væri hann þegar því var að skipta.
Gulli var drengur góður og því
sorglegt til þess að vita að nú þegar
hann var búinn að eignast góða
konu og yndislegt heimili skyldi
hann vera burt kallaður, svo snögg-
lega.
Gulli vann hjá Hafrannsókna-
stofnun ríkisins í yfír tuttugu ár
allt til síðustu stundar.
Við sendum eiginkonu hans og
oáLL
„Eitt er
nauðsynlegt“
lagsskap en þó einkum í skátahreyf-
ingunni. Hann var einn af stofnend-
um skátafélagsins Einheija á
ísafirði 1928 og heiðursfélagi
þeirra.
Þá var hann um skeið félags-
foringi í Væringjum og skátafélagi
Reykjavíkur var þar einnig heiðrað-
ur á sama hátt.
Leifur Guðmundsson tók við
forstjórastöðu hjá Mjólkurfélagi
Reykjavíkur af Oddi heitnum Jóns-
syni, sem var þekktur að hagsýni
og dugnaði, og það var ekki vanda-
laust. En Leifur var aðgætinn versl-
unarmaður og vinnusamur og
blómstraði reksturinn í höndum
hans. Ég held að á engan sé hallað
þó sagt sé, að Leifur hafi verið
aðaldriffjöðrin í því að stofna Korn-
hlöðuna hf. í Sundahöfn, en þetta
fyrirtæki er sameign MR, Fóður-
blöndunnar og SLS og hefír marg-
sannað ágæti sitt.
Hagur fóðurverksmiðjanna er
sameiginlegur í þessu fyrirtæki,
Komhlöðunni, en það gerir kleift
að gera stór sameiginleg innkaup
á fóðri, en við það nást yfirleitt
betri samningar en á smáslöttum.
þama er einnig góð sameiginleg
geymsla og fóðurbirgðir til nokk-
urra mánaða sem er hægt að nýta
eftir hendinni. Þetta fyrirtæki hefír
einn starfsmann en forstjórar aðild-
arfyrirtækjanna þriggja mynda
stjóm, og er reglan sú að formanns-
starfíð og önnur embætti hreyfast
innbyrðis frá ári til árs.
Leifur var góður og öraggur
starfsmaður og vann MR feiknavel
af dugnaði og trúmennsku. Á þess-
um tímamótum, þegar vinur okkar
er nú allur, viljum við færa þakkir
og heiðra minningu þessa ágæta
vinar okkar og félaga. Við kveðjum
Leif með þökk og virðingu og send-
um aðstandendum samúðarkveðjur.
Stjóm Mjólkurfélags Reylya-
víkur
systur og öðrum ástvinum innileg-
ustu samúðarkveðjur.
V aktu minn Jesú, vaktu í mér
vakaláttumigeinsíþér.
Sálinvaki, þásofnarlíf
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgr. Péturs.)
Frændsystkinin
„Eitt er nauðsynlegt“
Sigurður Pétursson, gerlafræð-
ingur, birtir grein í Morgunblaðinu
15. maí í tilefni af predikun Jónasar
Haralz bankastjóra í Dómkirkjunni
16. mars þar sem lagt var út af
frásögn þeirri í Lúkasar guðspjalli
þegar Jesús kom í hús þeirra systra
Mörtu og Maríu. María settist við
fætur Jesú og hlýddi á orð hans
en Marta kvartaði undan því að
María skyldi ekki hjálpa sér en
Jesús svaraði: „Marta, Marta, þú
ert áhyggjufull og mæðist í mörgu
en „eitt er nauðsynlegt. María hefur
valið góða hlutann og hann skal
ekki frá henni tekinn."
Sigurður gerir lítið úr gildi þess
að setjast við fótskör Krists og
læra. Hann segir að viskan verði
ekki í askana látin og að Kristur
sé aðeins einn af spámönnunum.
Hinn 21. maí birtir dr. Þorkell Jó-
hannesson prófessor grein þar sem
hann áréttar skoðun Sigurðar og
skilur ekki í hví „Mörtur" era settar
á lægra þrep hjá meistaranum.
Þetta er merkileg niðurstaða hjá
tveim háskólagengnum mönnum
því enginn hefur gagnrýnt gildi
vinnu og efnahagsstarfsemi og
auðvitað veitir vinnan fyllingu
þegar menn eru svo lánssamir að
hafa starf við sitt hæfí. En til þess
að vinna geti orðið arðsöm leita
menn sér fyrst þekkingar.
Ef þekktir og viðurkenndir gerla-
eða efnafræðingar kæmu til Islans
til fyrirlestrahalds mundu Sigurður
og Þorkell sennilega vera mættir
til að hlýða á mál þeirra. En þó að
gerlafræði og efnafræði séu í alla
staði gagnlegar fræðigreinar
hversu háleitara er ekki fræðslusvið
Krists konungs.
Hann vill betrambæta mennina,
gefa lífí manna nýja eiginleika, já,
gjörbreyta þeim. Hann kom til að
gefa okkur líf og nægtir. Það grúfa
dökk ský yfír jörðinni. Þessi dökku
ský stafa af starfsemi neikvæðra
afla á jörðinni, starfsemi Satans.
Ávöxtur þeirrar iðju er: deilur,
metingur, mannvonska, öfund,
ærumeiðingar, baktal, illkvittni,
lygi, rætni, eigingimi og hverskonar
ósiðsemi. Er kynslóð okkar siðlaus
og hórsek eins og Einar Gíslason
heldur fram? Fjölmiðlar og jafnvel
leiksýningar, sem bomar era uppi
af almannafé í menningarskyni,
boða oft siðleysi, lauslæti og fram-
hjáhald. Það virðast vera ótal púkar
á sveimi í mannlífínu. Þessu þarf
að breyta en verður ekki breytt
nema með viðleitni.
Ef við geramst lærisveinar Krists
gefur hann okkur innsýn inn í nýjan
himin og nýja jörð. Hlutverk Krists
var og er að vera tengiliður milli
Guðs og mannkynsins í heild, opna
sálir manna fyrir andlegum inn-
blæstri, vekja hið blundandi eilífðar-
eðli í bijóstum þeirra, glæða og
efla hveija raunveralega andlega
þrá, hlúa að hinu minnsta fræi
göfugrar og sannrar guðstrúar og
guðrækni og færa þeim sem mót-
tækilegir era frið og blessun þeirra
andlegu hæða sem hann sjálfur
hefur náð. Kristur er æðsti prestur
„Þeir sem gerast læri-
sveinar Krists vaxa í
kærleika, langlyndi o g
gæsku og öðlast gleði
og frið.“
mannkynsins, því aðalinntak boð-
skapar hans „kærleikurinn" er
innsti kjarni allra annarra trúar-
bragða.
Sterkasta græðslu- og lækninga-
aflið sem þekkist í þessari verald-
legu tilvera er einfaldlega „kærleik-
urinn“. Kærleikurinn sem streymir
frá nægtabranni hjartans til vemd-
ar litla baminu, eða eiginkonu eða
eiginmanni. Kærleikurinn sem
streymir til bróður eða systur, vinar
eða elskhuga í ástúðlegri gleði.
Þegar maðurinn úthellir sjálfum sér
í kærleikskrafti og þakkargjörð til
Guðs síns, stígur upp ljósgeisli frá
áranni. Þessir geislar snerta orku- -
stöðvar hærri vitundarstöðva sem
opnast og endurkasta kærleiks- og
græðiorku aftur til þeirra sem eru
veikir, lasburða og einmana í mann-
heimi.
Kristur kom í heiminn til að vísa
mönnum leiðina til meiri lífsham-
ingju og lífsfyllingar. Þeir sem
gerast lærisveinar Krists vaxa í
kærleika, langlyndi og gæzku og
öðlast gleði og frið. Þess vegna var
hlutverk Maríu „hið allra nauðsyn-
legasta".
í húsi föður míns era margar
vistarverur, sagði Kristur. I fram-
haldslífinu era mörg tilverusvið sem
hæfa þroska einstaklinganna. Við
andlátið hverfur sálin inn á af-
markað tilverasvið sem maðurinn
hefur afmarkað eða valið sér með
breytni sinni hér í jarðlífinu.
Enginn kemst langt hinum megin
án þess að endurfæðast, hreinsast
og vaxa í Kristi.
Á efri sviðum himnanna búa
þroskaðar og fagrar verar. Ein
þeirra nefnist „Veran fagra". Henni
er lýst á þessa leið.
Hún birtist ekki sem maður eða kona
heldur sem ljómi í mannsmynd.
Kyrtillhennarskínsemsólára. -t
Rödd hennar er sem vorblær.
Bros hennar er sem sælublik
semekkieigaorð.
Ef þessi lýsing á við „Verana
fögra" hvaða orð í íslenskri tungu
eigum við þá til að lýsa Kristi sem
var sonur Guðs og var vegurinn,
sannleikurinn og lífíð.
Engin.
Mannkynið á að vera á verði svo
það tapi ekki áttum í málum hins
umkomulitla heims sem er á leiðinni
að meistara borðinu með öll sín
skökku dæmi.
Höfundur er eltilifeyrisþegi, iður
kaupmaður og bankamaður.
Legsteinar
ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
I 1 J0£i $tm¥ Ut^lb
s Gódan daginn!