Morgunblaðið - 03.06.1986, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986
63
Hæ, hæ,
alltof
stutti
þáttuí
— spjallað við Valtý
Björn Valtýsson sem
tekið hefur við þættin-
um „Lög unga fólksins“
altýr Björn Valtýsson sem
nú hefur tekið við þættinum „Lög
unga fóksins“ af Þorsteini J.
Vilhjálmssyni, sá um sinn fyrsta
þátt í gærkvöldi. Morgunblaðið
spjallaði við Valtý á dögunum
og var hann fyrst spurður hvern-
ig honum litist á að taka við
þessum gamalgróna þætti.
„Mér líst bara vel á það — mig
hefur lengi langað til að vinna
eitthvað í sambandi við útvarp
og þetta gæti verið byijunin. Ég
hef áhuga fyrir að halda áfram
í einhveiju svona ef ég fæ tæki-
færi til þess.
- Ætlar þú að gera einhveijar
breytingar á þættinum?
Nei, ég tek bara við þættinum
eins og hann er og held áfram með
hann. Það getur verið að maður fái
einhverjar hugmyndir um breyting-
ar þegar maður er kominn inn í
þetta, en þá er auðvitað spumingin
hvort þær verða samþykktar.
— Hefurðu sjálfur verið tryggur
hlustandi þessa þáttar?
Ég hef oft hlustað á hann en
kannski þó ekki alveg reglulega.
Það er mjög stór hlustendahópur
sem þessi þáttur hefur, það sýnir
hlustendakönnun Ríkisútvarpsins
sem gerð var fyrir skömmu - það
eru hlustendur á öllum aldri sem
hlusta á „Lög unga fólksins".
- Stundum hefur málfarið í
þessum þætti verið gert að umtals-
efni af málvöndunarmönnum sem
gagnrýna málfar eins og: Æðisleg-
ar niðursoðanar stuðkveðjur o.s.frv.
Ætlar þú að halda áfram að lesa
upp slíkar kveðjur?
Ég leiðrétti hiklaust ef um mál-
villur er að ræða og laga kveðjumar
til. En ef einhver viss lína er í
kveðjunni, einhver ferskleiki hjá
krökkunum sjálfum, þá reynir
maður að breyta því sem minnst.
- Ertu nokkuð farinn að skoða
póstinn?
Já, já, maður er farinn að líta á
þetta.
- Er það mikill póstur sem
kemur?
Já, það berst mjög mikið af bréf-
um og það er ekki nema brot af
kveðjunum sem kemst í þáttinn.
- Hversu mikill hluti kemst í
þáttinn?
Það em um 10 kveðjur í hveijum
þætti held ég en að jafnaði koma
svona 40 bréf í hverri viku þannig
að það er mikið sem verður útund-
an. Það hefur breytt þættinum töl-
vert hve löng lögin em orðin, þau
em tölvert lengri en áður var. Lögin
núna em varla mikið undir fjórum
mínútum. Ég man að þegar ég var
að senda kveðjur hér áður vom
lögin svona um tvær mínútur og
þá komst allveg hellingur af kveðj-
um. í þáttinn. Nú era lögin orðin
svo löng að ekki nærri eins mikið
af kveðjum kemst með. Það þyrfti
eiginlega að lengja þennan þátt
tölvert eins og sést á því að margar
kveðjumar heíjast á: „Hæ, hæ,
alltof stutti þáttur".
Morgunblaðið/Júlfus
Valtýr Björa Valtýsson, hinn nýi umsjónarmaður þáttarins Lög unga
fólksins.
Votur veitingastaður
E igendur veitingastaðar eins í Sviss telja sig hafa fundið upp á
nýjung sem eigi eftir að draga að viðskiptavinir i stórum hópum.
Þeir hafa látið gera hjá sér útisundiaug, sem að sjálfsögðu er upp-
hituð, þar sem gestirnir geta fengið morgunverð framreiddan á
flotbökkum hvort sem hann samanstendur af venjulegum mat eða
megrunarfæði. Þeir telja þetta stórsnjalla hugmynd og segja að
mjög heilsusamlegt sé að neyta matar síns niðri i vatni.
COSPER
— Ég mátti svo sem vita það, fulltrúi skattstjórans er mættur.
Útsala
15°/o-60%
Viö rýmum fyrir nýjum vörum. Seljum í
dag og næstu daga alls konar keramik
og stell meö hressilegum afslætti.
Allt að 60%.
HÖFÐABAKKA 9 — REYKJAVÍK
Sími 685411.
Innritun
Innritun í Fjölbrautaskólann í Garðabæ fyrir haustönn 1986
stendur nú yfir. Boðið er upp á kennslu á þessum brautum:
EÐ- Eðlisfræðibraut
Fé- Félagsfræðibraut
FI- Fiskvinnslubraut
F2- Fiskvinnslubraut
FJ- Fjölmiðlabraut
H2- Heilsugæslubraut 2
H4- Heilsugæslubraut 4
12- íþróttabraut 2
14- íþróttabraut 4
LS- Latínu- og sögubraut
MÁ- Málabraut
TÓ- Tónlistarbraut
TT- Tækniteiknun
TÆ- Tæknifræðibraut
T4- Tölvufr. — viðskiptabraut 4
U2- Uppeldisbraut 2
U4- Uppeldisbraut 4
V2- Viðskiptabraut 2
V4- Viðskiptabraut 4
NÁ- Náttúrufræðabraut
Umsóknir skal senda til Fjölbrautaskólans í Garðabœ, Lyngáai 7—9, 210 Garðabœ.
Skrífstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.00—16.00, sfmar 52198 og 52194. Þeir
sem óska geta fengið send umsóknareyðublöð. Innrítun stendur til 6. júni nk. Skólameist-
arí er til viðtals f skólanum alla virka daga kl. 9.00—12.00.
SKÓLAMEISTARI
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Lyngási 7—9 — 210 Garöabæ. S: 52193 og 52194.
(4 ára nám)
(4 ára nám)
(1 árs nám)
(2 ára nám)
(4 ára nám)
(2 ára nám)
(4 ára nám)
(2 ára nám)
(4 ára nám)
(4 ára nám)
(4 ára nám)
(4 ára nám)
(1 árs nám)
(2 ára nám)
(4 ára nám)
(2 ára nám)
(4 ára nám)
(2 ára nám)
(4 ára nám)
(4 ára nám)
Stór b íla þ vottastöð
Verð á sumarþvotti er eftirfarandi:
Stórir flutningabílar með aftanívagn 990 kr.
Stórirflutningabílar 780 kr.
Stórar rútur 780 kr.
Stórirsendiferðabílar 480 kr.
Minni sendiferðabílar 480 kr.
Jeppar og fleiri 480 kr.
Ef menn vilja tjöruhreinsun eða skumm þá
reiknast það aukalega.
Stöðin er opin virka daga kl. 9—19.
Stórbflaþvottastöðin,
Höfðabakka 1, sími 688060.