Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna —atvinna — atvinna
Hafnarfjörður —
blaðberar
Blaðbera vantar í Setbergshverfi.
Upplýsingar í síma 51880.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða kennara í tölvu-
og viðskiptagreinum í rekstrardeild Tækni-
skóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsing-
um um námsferil og störf sendist mennta-
málaráðuneytjnu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja-
vík, fyrir23. júlínk.
Menntamálaráðuneytið,
23. júní 1986.
Sölumaður
hjúkrunarvara
Heildverslun í miðborg Reykjavíkur óskar
að ráða stúlku í fullt starf við sölu á hjúkr-
unarvörum.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi eða mann-
eskju með hliðstæða menntun/reynslu.
Starfsreynsla við skrifstofu- eða verslunar-
störf væri kostur en ekki skilyrði.
Hér er um að ræða líflegt og sjálfstætt starf
sem krefst aðlaðandi framkomu, dugnaðar
og samviskusemi. Ákjósanleg vinnuaðstaða
og góð laun íboði.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og öllum verður svarað.
Umsóknir/fyrirspurnir sendist augld. Mbl.
fyrir 3. júlí nk. merktar:
„Hjúkrunarvörur — 5653“.
Starfskraftur óskast
Starfskraftur óskast í sal og uppvask. Vakta-
vinna. Upplýsingar á staðnum og í síma
37737.
Múlakaffi.
3ja árs
viðskiptafræðinemi
óskar eftir starfi til loka september og jafnvel
hlutastarfi eftir það. Hef margs konar reynslu.
Uppl. í síma 616947.
Húsasmiðir
Vantar smið í mótauppslátt.
Til greina koma tveir samhentir menn sem
gætu komið og tekið að sér afmörkuð verk-
efni og farið annað á milli.
Upplýsingar sendist augld. Mbl. Merkt: „H-
5729“ fyrir28. júní.
Vantar mann
til afgreiðslustarfa og útkeyrslustarfa.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
til augld. Mbl. Merkt: „V-5730".
Nýr veitingastaður
í miðbænum óskar eftir framreiðslumönnum
og starfsfólki ísal.
Umsóknir sendist augld. Mbl. fyrir laugar-
daginn 28. júní merktar: „L — 247“.
Au Pair
Norsk hjón óska eftir Au Pair.
Umsóknir sendist til:
Særún Jóhannsdóttir Hegaslia 23,
1352 Kolsas, Norge.
Opinber stofnun
óskar að ráða lögfræðing til starfa við
innheimtu.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf
sendist í pósthólf 5172,125 Reykjavík.
Afgreiðslufólk
Vörumarkaðurinn hf. óskar að ráða starfsfólk
í matvörudeild. Um er að ræða framtíðar-
störf.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjórinn á
staðnum í dag og næstu daga þar sem jafn-
framt liggja frammi umsóknareyðublöð.
©
Vörumarkaðurinn ht.
Trésmiðir
Vantar nú þegar þrjá vana og vandvirka tré-
smiði í mótauppslátt. Mikil vinna framundan
Uppl. hjá verkstjóra að Rauðarárstíg 35 milli
kl. 8-18, eftir það í síma 53324.
Laus staða
Við Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla
íslands er laust til umsóknar starf sérkennara
(2/3Stöðu) sem ætlað er að starfa með for-
stöðumanni lesvers. Nánari upplýsingar á
skrifstofu skólans, sími 91-84566 og hjá
skólastjóra í síma 91 -31781.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um
námsferil og störf, sendist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 105 Reykjavík, fyrir
23. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið,
23. júní 1986.
Tækniteiknarar
Rótgróin verkfræðistofa í Reykjavík óskar að
ráða tækniteiknara sem fyrst. Fjölbreytt
framtíðarstarf fyrir hæfan teiknara.
Umsóknir sendist augld. Mbl. fyrir 1. júlí
merktar: „Teiknari — 248"
Afgreiðslustúlka
Afgreiðslustúlka óskast nú þegar hálfan
daginn, eftirhádegi.
Upplýsingar veittar á milli kl. 4 og 6 í dag
og á morgun (ekki í síma).
EgillJacobsen hf., Austurstræti 9.
Grundarfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Grundar-
firði.
Upplýsingar hjá afgreiðslunni í Reykjavík í
síma 91-83033.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖÐUR
Lagerstarf
Starfsmaður óskast á lager. Upplýsingar
veitir innkaupastjóri á skrifstofutíma í síma
681200-309.
Reykja vík 25. júni 1986.
BORGARSPÍTALINN
O681200
Starfskraftur
óskast
Óskum að ráða duglegan og fjölhæfan
starfskraft.
Um er að ræða fjölbreytt en ábyrgðarmikið
starf sem felur m.a. í sér rekstur hljóðvers,
auglýsingagerð og almenningstengsl og
ýmiss konar hljómplötugerðar- og hljómleika-
haldsstörf.
Umsóknir ásamt uppl. um aldur, menntun
og fyrri störf sendist augl.deild Mbl. fyrir 7,
júlí nk. merkt „Strax—3142“.
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað vantar
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til sumaraf-
leysinga.
Uppl. gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97-7403.
Rútubílstjóri óskast
Leitum að hæfum meiraprófsbílstjóra með
vélavit til að annast akstur og rekstur á 40
manna langferðabíl.
Óreglulegur vinnutími, en góð laun í boði
fyrir réttan mann.
Uppl. ísíma 14039.
Matreiðslumaður
óskar eftir góðu starfi. Hef 15 ára reynslu í
faginu. Hef sæmilega reynslu við kjötiðnað.
Tilboð sendist augld. Mbl. merkt: „J — 683“.
Sumarafleysingar
Óskum að ráða starfsmann til sumarafleys-
inga í verslun okkar. Um er að ræða verslun
með rafeindaefni. Umsækjandi þarf að hafa
einhverja þekkingu á þessu sviði.
Enskukunnátta er æskileg.
Nánari uppl. veitir Júlíus Karlsson í síma
84779millikl.9og 17.
Umsóknum skal skilað til augldeildar Mbl.
merktar: „Tölvusalan hf — 0501“ eða til
Tölvusölunnar hf., Suðurlandsbraut 20.