Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25:JÚNÍ 1986 21 Holland: Sjómenn veiða umfram kvóta Wageningen. Frá Eggert H. Kjartanssyni, fréttantara Morgunbladsins í Hollandi. INNAN Efnahagsbandalagsins eru hollenskir sjómenn og útgerðar- menn ötulastir við að sprengja þann kvóta sem þeim hefur verið úthlutaður. Framkvæmdaráð EB hefur fengið sig fullsatt af ofveiði þeirra og hótar nú að draga þá fyrir dómstól EB í Luxemborg. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var af framkvæmdaráðinu fyrir skömmu og tekin verður til umræðu í Luxemborg í dag, miðvikudag. Ráðherrar EB landanna sem fjalla um fiskveiðistefnu bandalagsins munu þá gera upp sameiginlega stefnu síðustu þriggja ára og árang- ur hennar. Fyrir um það bil tveim árum síð- an uppgötvuðu eftirlitsmenn EB tilvist svonefnds „grá-markaðar“ í Hollandi. Á þeim markaði gekk fiskur kaupum og sölum sem hvergi var skráður í bækur fiskmarkað- anna, hvað þá ráðuneytisins. Sjáv- arútvegsráðuneyti Hollands var gert viðvart og síðan þá hefur smátt og smátt verið hert á eftirliti. Skemmst er í því tilfelli að minnast þess, að öllum fiskiskipaflota Holl- ands var lagt síðustu vikurnar 1985, þar sem kvótinn hafði verið fylltur og rúmlega það. MacMillan veikur London, AP. HAROLD MacMillan, fyrrver- andi forsætisráðherra Breta, sem orðinn er 92 ára gamall, varð að afboða komu sina á hátíð- arfund í háskólanum í Oxford á þriðjudag, þar sem hann hafði fengið slæmt kvef. MacMillan hefur verið aðlaður og er nú yfirleitt nefndur Stockton lávarður. Hann er heiðursrektor Oxford-háskóla og átti að stjóma þar fundi sl. þriðjudag, þar sem afhenda átti heiðursviðurkenning- ar. Barnabam hans, Alexander MacMiIlan, sagði að læknar hefðu sagt, að afi hans væri ekki alvarlega veikur, en á hans aldri yrðu menn að fara vel með sig. Hollenskir útgerðarmenn fjár- festu mikið í nýjum skipum á sjö- unda áratugnum. Stærri og full- komnari skip hafa ekki aðeins aukna möguleika til þess að draga meiri fisk úr sjó, heldur og einnig stóraukinn kostnað í för með sér. Margir útgerðarmenn eiga því um fátt annað að velja en að leggja bátunum fyrir fullt og allt eða að ýta reglugerðunum til hliðar og „einbeita sér að veiðunum". Framkvæmdaráð EB ætlar sér greinilega að ná betri tökum á fiski- markaði bandalagsins. Hollenskum yfirvöldum hefur verið gert ljóst að það verði fylgst mun betur með aðgerðum útgerðarmanna og að þess sé vænst af eftirlitsmönnum sjávarútvegsráðuneytisins að þeir fylgist vel með því sem er að gerast varðandi veiðarnar. Minnt er á að enn sé allt of lítið eftirlit, t.d. var landað 90.650 tonnum af makríl í Hollandi 30. apríl 1984 en ekki nema 27.550 tonn færð í bækurnar. I öðrum löndum bandalagsins er víða pottur brotinn varðandi eftirlit með þeim afla sem berst á land. T.d. hafa frændur okkar og fyrrum nýlenduherrar, Danir, ekki tekið skrásetningu aflans nógu föstum tökum. Þannig hafa hollenskir út- gerðarmenn uppgötvað og nýtt sér að það er engum vandamálum háð að landa afla eigin skipa í Dan- mörku og senda aflann sðan með kælibílum til Hollands. Við landa- mærin er engin tollskoðun og aflan- um er síðan ekið beint til heildsal- anna en ekki á fiskimarkaðina. Við þetta minnkar eftirspurnin á mörk- uðunum í mörgum tilfellum og það þýðir lægra verð fyrir annan fisk. Á þennan hátt er hægt að halda verðinu lægra en í nágrannalöndun- um, því hér er um töluvert magn að ræða ef þær tölur sem gefnar eru upp eru réttar. Sala á People Express íhuguð Newark, New Jersey, AP. BANDARÍSKA flugfélagið People Express, sem olli byltingu í flug- samgöngum í Bandaríkjunum með lágum fargjöldum sinum, tilkynnti á mánudag að það kannaði nú möguleika á sölu félagsins alls eða á hluta þess. Talsmenn félagsins neituðu að ræða mögulega sölu þess frekar, en sögðu að yfirlýsingin væri gefin út vegna sögusagna um fjárhags- erfiðleika félagsins og vegna mikill- ar sölu á hlutabréfum í félaginu. Félagið er fímm ára gamalt og flýg- ur einkum á leiðum innanlands, auk flugs til Lundúna og Brussel. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs var hallinn á félaginu 58 milljón- ir Bandaríkjadala, eða tæpir 2,4 milljarðar isienskra króna. Það jafn- gildir því að eigandi hvers hluta- bréfs hafi tapað 2,33 dölum. Tals- maður félagsins fullyrti að félagið hefði yfir að ráða nægu fjármagni til að mæta skuldbindingum sínum. Hann bætti við að lækkanir á far- gjöldum félagsins undanfarið hefðu aukið mjög bókanir, verð á fargjöld- um nú er svipað og var síðastliðið sumar. Segir í yfirlýsingu félagsins að líkur séu á að sumarið verði hagstætt. Verksmiðjuhrun á Indlandi: Ottast er að 60 manns hafi farist Bombay, AP. Tíu lík hafa fundist í rústum vefnaðarverksmiðju í Taloja, sem hrundi nú um helgina. A.m.k. 60 verkamanna er enn saknað og er óttast að þeir hafi allir látist. Verksmiðjan hrundi í kjölfar mikilla rigninga, sem hafa hetjað á Maharashtra-fylki að undanförnu. Þær hafa einnig tafið björgunar- starfið mjög. Lögregluyfirvöld sögðu að eigendur verksmiðjunnar hefðu fengið áminningu vegna vanrækslu, en ekki er víst hvað olli hruninu. Fregnir stangast enn á um hversu margir hafi verið í verk- smiðjunni þegar hún hrundi, en talið er að þeir hafi verið á bilinu 60-130. Óvissu veldur að ekki er vitað hvort einhvetjir sluppu ómeiddir eða með minniháttar meiðsl. Samkvæmt öruggum heimildum eru sex í sjúkrahúsi vegna slyssins. Sea Shephard, skip hvalfriðunga, við komuna til Þórshafnar sl. fimmtudagskvöld. Hvalfriðungum vísað burt frá Færevjum Kaupmannahöfn, frá fréttaritara Morgunbladsins, H. J. Hansen og AP. SKIPSTJÓRANUM og fimm öðrum úr áhöfninni á skipi hvalfrið- unga, „Sea Shepherd“, var í gær vísað á brott frá Færeyjum. Skýrði Jens Möller, ráðuneytissljóri danska utanríkisráðuneytisins, frá þessu ígær. Möller sagði að honum og mönn- í Þórshöfn síðan á fimmtudaginn unum fimm, sem verið höfðu í haldi var, hefði verið gefinn kostur á Suður-Afríka: „Kirkjan má ekki taka beina afstöðu“ — segir Buthelezi á kirkjuþingi Jóhannesarborg, AP. FULLTRUAR á ársþingi suður- afriska kirkjuráðsins samþykktu á þriðjudag, að halda áfram að ræða hin viðkvæmu deilumál í landinu, eins og til stóð, enda þótt þessi ákvörðun gæti valdið brot- um á ákvæðum neyðarástand- slaganna. Samkvæmt neyðarástandslögun- um eru yfirlýsingar af ýmsu tagi bannaðar, þ.á.m. kröfur um við- skiptaþvinganir á S.Afríku. Við setningu þingsins var beðið fýrir öllum fómarlömbum kyn- þáttaátakanna í landinu, án tillits til litarháttar þeirra. Forseti kirkjuráðsins, lúterski biskupinn Buthelezi, sagði í ávarpi sínu, að kirkjudeildimar gætu ekki leyft sér að taka beina afstöðu í átökunum í landinu. „Nú, þegar dimm ský hvíla yfir landi okkar, verður ljós kirkjunnar að skína alls staðar og minna okkur á loforðið um fyrirheitna landið", sagði biskuDÍnn m.a. Stærsta verkalýðssamband S.Afríku, sem aðallega hefur blökkumenn innan sinna raða, mót- mælti því harðlega í gær, að meiri- hluti leiðtoga þess og fjöldi óbreyttra liðsmanna hefðu verið handteknir undanfarna daga. Handtökurnar vom sagðar stofna í voða margra ára uppbyggingar- starfi samtakanna. Tvær sprengjur spmngu með stuttu millibili í miðborg Jóhannes- arborgar í gær, 17 slösuðust. Yfir- völd kenna venjulega skæmliðum afríska þjóðarráðsins um slík til- ræði, en samtökin segjast beina spjótum sínum að hernaðarlega og pólitískt mikilvægum skotmörkum. Háttsettur fulltrúi bresku stjórn- arinnar átti í gær fund með Oliver Tambo, forseta Afríska þjóðarráðs- ins. Fram til þessa hefur Thatcher- stjórnin neitað að ræða við fulltrúa ráðsins á þeim forsendum, að skæmliðar þess væm hryðjuverka- menn. því að fara frá Færeyjum annað hvort með flugvél eða halda á brott á skipi sínu. Skipstjóranum, Bandaríkja- manninum Paul Watson, var bann- að að koma til Færeyja í þtjú ár og hinum fimm í eitt ár. Sagði Jan Möller, að þessi ákvörðun hefði verið tekin til þess að koma í veg fyrir frekari tmflanir af hálfu hval- friðunga á hefðbundnum grind- hvalaveiðum Færeyinga. Sea Shephard er í eigu alþjóð- legra umhverfisverndarsamtaka, sem bera sama nafn og skipið. Það kom til Færeyja í síðustu viku gagngert í þeim tilgangi að mót- mæla grindhvaladrápi Færeyinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.