Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986 17 og var fært til skímar í Fljótshlíð. Tóftir í Húsadal bera þessari byggð glögg merki. Ymsar þjóðsögur hafa myndast í Þórsmörk. Sóttarhellir er norð- vestan í Valahnúk. Eitt sinn gistu í hellinum 18 gangnamenn. Um kvöldið var glaumur og gleði í hell- inum og tóku allir þátt í því nema einn piltur. Hann var síðar sendur eftir vatni, en þegar hann kom aftur að hellinum, var einum félaga hans kastað niður brekkuna. Var sá dauður og skömmu síðar var öðm líki hent. Pilturinn flúði í ofboði til byggða og sagði frá. Liði var safnað og var kirkjuklukkan á Stómmörk tekin með til halds og trausts, og var henni hringt stöðugt alla leiðina inn eftir. Hefur þetta líklega vamað vemnni í hellinum frá því að ráðast á byggðamenn. Klukkan var hengd upp í hellinum og farið með lfkin að Stómmörk og þau greftmð þar. Furðuleg vera á að sveima um Þórsmörk á einum fæti. Einfætling- urinn hrekkti flöiskyldumar sem bjuggu í Húsadal í byijun 19. aldar, en engum gerði hún mein. Söguna um hellinn Snorraríki þekkja flestir. Hellirinn er um þrjár mannhæðir uppi í móbergsbjargi. Þangað leitaði skjóls Snorri nokkur undan fjölmörgum fjendum sínum. Þeir ætluðu að svelta hann út, en gáfust upp, þegar Snorri kastaði sauðasíðu út. Héldu þeir þá að hann hefði gnótt matar og hættu umsátr- inu. Gönguleiðir Fjölmargar gönguleiðir em um Þórsmörk og Goðaland, bæði leiðir á fjöll og eins hringleiðir og leiðir út af þessum svæðum. Merktar gönguleiðir em aðeins tvær, og er önnur gönguleiðin milli Þórsmerkur og Landmannalauga. Hún liggur norður upp Almenninga og Emstr- ur. Hin gönguleiðin er yfir Fimm- vörðuháls, milli Goðalands og Skóga. Sú leið er ákafféga fögur og liggur upp frá Báum, með Strákagili, upp á Morinsheiði og Fimmvörðuháls og þaðan niður Skógaheiði. Af öðmm leiðum, en ómerktum, má nefna fjölmargar og em þær helstu merktar á meðfylgjandi kort/mynd. Fiestar em þær stuttar, allt frá 1 klst. upp í 6-8 klst. Framtí ðaráform Samkvæmt nýútkomnu frétta- bréfí Ferðafélags íslands er ætlunin að reisa göngubrú yfír Krossá til hagræðis fyrir ferðamenn. Krossá getur verið skaðræðisvatn, eins og fram hefur komið, og margir vita. Teikning hefur verið gerð af brúnni og fyrirhuguð staðsetning hennar er nokkm neðan við Skagafjörðs- skála. í fréttabréfínu segir svo um staðsetninguna: „Heppilegasta brúarstæðið virt- ist nokkru fyrir neðan Skagfjörðs- skála, þar sem áin rennur í af- mörkuðum farvegi upp að rótum Valahnúks. (Venjulega fellur Hvanná skammt frá í Krossá.) Styst haf er þama á milli tveggja kletta, sem að sögn kunnugra standa uppúr við sumarrennsli í ánni.— „Göngubrú yfir Krossá mun leysa margan vandann. í fyrsta lagi yrði óþarft að fara með bifreiðir í Krossá nema í undantekningartilvikum. í öðm lagi flyttust bifreiðastæðin frá skálanum en oft er mikill ami af þeim flota bíla, sem lagt er í Langadal vegna þess erils. í þriðja lagi yrðu gönguferðir um Merkur- svæðið mun auðveldari en til þessa hefur verið og brúin til stóraukins öryggis. í ijórða lagi myndi brúin gerbreyta aðstæðum í vetrarferð- um, en þá hefur Krossá oft verið erfið vegna ótraustra ísalaga og mikilla skara." Svo segir Höskuldur Jónsson, forseti Ferðafélags íslands, í frétta- bréfinu. Víst er að göngubrúin myndi gerbreyta aðstæðum, en meira þarf svo ve! sé. Það er skoðun þess, sem þetta ritar og margra annarra, að breyta þurfti tjaldaðstöðu í Þórs- mörk og Goðalandi með hliðsjón af stórauknum ferðamannastraumi í nánustu framtíð. Nú sækja nærri 20.000 manns Þórsmörk heim á hveiju sumri og gistir stór hluti þessa fólks. Ljóst er að gróursvæðin standa ekki undir miklu meiri fjölda, enda eru grasflatir illa famar undan átroðningi eftir hvert sumar og á vorin eru svæðin mjög sein til. Nauðsynlegt er að friða Þórs- mörkina algjörlega, gera hana að þjóðgarði undir umsjón Náttúru- vemdarráðs. Uppbygging Þórs- merkur og Goðalands mætti taka mið af uppbyggingu þjóðgarðsins í Skaftafelli. Þar hefur verið byggt upp tjaldsvæði frá gmnni á aumum fyrir neðan Skaftafellsheiði. Það kemur örugglega sterklega til greina að gera það sama á nokkmm stöðum í Þórsmörk og Goðalandi. Græða mætti upp áraurana fyrir framan Húsadal, gróðursetja birki og annan tijágróður til skjóls. Sama mætti gera t.d. undir Alfkirkjunni sunnan Langadals og mætti sá staður og tjaldsvæðið í Húsadal vera í umsjón ferðafélagsins. Norð- an Bása mætti gera það sama og væri það svæði t.d. í umsjón Útivist- ar. Önnur tjaldsvæði myndu vera lögð af og jafnframt komið í veg fyrir akstur utan tjaldsvæða að langmestu leyti. Fyrir vikið mætti skipuleggja tjöldun mun betur og koma málum þannig fyrir að hægt sé að gera gróðri kleift að þroskast og dafna án umtalsverðrar áníðslu. Ferðamögnleikar Fjölmargir aðilar bjóða ferðir inn í Þórsmörk og Góðaland. Fyrst má telja ferðafélagið Útivist sem býður upp á ferðir jnn í Bása í Goðalandi, Ferðafélag íslands er með ferðir í Langadal og Austurleið hefur verið með daglegar ferðir á sumrin inn í Húsadal, þar sem fyrirtækið hefur nýlega tekið í notkun glæsilegan skála með flestum þægindum. Hér er sérstaklega mælt með ferðafélöguhum, en í þeim eru ávallt kunnugir fararstjórar til leiðsagnar og skipulagðar eru gönguleiðir um þá staði í Þórsmörk og Goðalandi sem hvað forvitnilegastir eru. Á vegum áðumefndra þriggja aðila er boðið upp á gistingu í húsum. Höfundur var ritstjóri tímaritsins Áfanga, en starfar nú sem blm. og hefur undanfarið skrifað greinar um ferðamáJ í Morgun- blaðið. 'Œm Snorraríki, hellirinn þarsem Snorri varðist. Það er eins og innrétting þotunnar sé úr ævintýrinu 1001 nótt. Eik, marmari og þykk teppi í hólf oggólf. Islenskir atvinnuflug- menn í heimsreisu með bandaríska auðkýfinga Þeir Kjartan Norðdahl flugmaður (t.v.) og Björn Guðmundsson flug- stjóri eiga fyrir höndum, þegar þetta er skrifað, 10 daga reisu frá Ameríku, um Evrópu og aftur vestur um haf. Á hveijum áfangastað biða þeir eftir farþegum sínum, sem eru bandarískir auðkýfingar, og enginn asi á ferðum eins og í áætlunarfluginu. Á myndina vantar þriðja áhafnarmeðliminn, Stefán Jónsson. Það er ekki á hveijum degi sem íslenskum atvinnuflug- mönnum býðst að fljúga lúxus- þotum heimshornanna á milli en það gerðist einmitt fyrir skömmu þegar ein slík millilenti á Kefla- víkurflugvelli með flugmenn frá Flugleiðum við stjómvölin. Þessi þota, af gerðinni Boeing 727-100, er sams konar og minni Boeing vél Flugleiða. Flugleiðavélin er innréttuð með 131 sæti en Iúxus- þotan hins vegar með iburðar- mikla innréttingu og ætluð til einkanota. Flugstjóri um borð var Bjöm Guðmundsson, flugmaður Kjartan Norðdahl og flugvélstjóri Stefán Jónsson. Þeir millilentu á Keflavík- urflugvelli á leið frá Sviss til Banda- ríkjanna. í borginni Betel í Massa- chusetts ganga um borð bandarískir auðkýfíngar sem leigja þotuna í 12 daga viðskiptaferð um Evrópu og verður höfð 1-2 daga viðkoma í borgum eins og París, Róm og London. Þessi íburðarmikla þota er í eigu svissneska fyrirtækisins Jet Aviat- ion en það býður lúxusvélar sínar til leigu og em viðskiptavinimir einkum þjóðhöfðingjar, auðmenn og stórfyrirtæki. Eins og fyrr segir er þotan sem hér hafði viðkomu glæsilega inn- réttuð með eik, marmara og þykk teppi í hólf og gólf. Fyrir aftan stjómklefann er stórt baðherbergi, síðan kemur svefnherbergi, fjarrita- herbergi og eldhús. Við vænginn er borðstofa, sjónvarpskrókur, skrifstofuaðstaða, bar og homsófa- sett. í afturhlutanum er svo farang- ursgeymsla, salemi og tveir af- slöppunarkrókar. En hvers vegna eru íslenskir flug- menn á vél sem þessari? Ástæðan er sú, að Flugleiðum barst beiðni frá írsku Parc áhafnar- leigunni um að útvega flugmenn en Flugleiðir hafa átt gott samstarf við fyrirtækið um áhafnarskipti. A.m.k. einu sinni flugu flugmenn frá Flugleiðum svipaða ferð, með John Anderson forsetaframbjóð- anda frá Bandaríkjunum. Samkv. meðfylgjandi ljósmynd- um ætti ekki að væsa um auðkýf- ingana um borð hjá þeim Bimi og félögum, en það skal hér látið ósagt hvort áhöfnin fái að einhveiju leyti notið þægindanna fyrir aftan stjómklefann. í auglýsingum frá Jet Aviation segir ekkert um Ieiguverð svöna vélar en væntanlegum viðskiptavin- um er bent á að hafa samband við Jet Aviation, því verðið sé trúnaðar- mál í hvert sinn. Líklega er það algjör óþarfí fyrir okkur Frónbúa að vita símanúmerið hjá þessu virta svissneska lúxus- þotufyrirtæki. , i, , , Morgunblaðið/Trausti Tómasson. Svissneska luxusþotan er somu gerðar og nunni Boeing 727 vélin sem Flugleiðir nota á Evrópuleiðum i og rúmar 131 farþega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.