Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1986 Undanúrslitaleikirnir á HM íkvöld: Leika tvær Evrópuþjóðir til úrslita á sunnudag? eða getur enginn stöðvað Maradona? NÚ þegar undanúrslit í heimsmeistarakeppninni eru að hefjast með leikjum Frakklands og V-Þýskalands, og Argentínu og Belgíu, eiga Evrópuþjóðir betri möguleika en nokkru ainni fyrr að vinna titilinn í Ameríku. Argentfna er eini fulltrúi Ameríku f keppninni þegar fjögur lið eru eftir og þó Argentfna eigi á pappírunum auðveldustu leiðina í úrslitaleikinn munu þeir örugglega mœta þar Evrópuliði. Eins og áður í heimsmeistará- keppni hefur gengið á ýmsu í Mexíkó að þessu sinni. Erfitt hefur reynst að finna keppnisfyrirkomu- lag sem allir geta sætt sig við. Lengi voru sextán lið í úrslitum, en á Spáni 1982 og í ár eru þau 24. í síðustu fjögur til fimm skipti sem keppnin hefur veriö haldin hefur ávallt verið reynt nýtt fyrir- komulag, og líklegt er að næst verði enn á ný reynt að finna annað fyrirkomulag en nú er haft. Gagnrýnendur — þjálfarar, leik- menn og blaðamenn — hafa bent á aö riðlakeppnin hafi tekið langan tíma og þar sem aðeins átta lið af 24 hafi fallið út eftir hana, þá hafi margir leikir verið þýðingarlitlir og leiðinlegir. Þá hefur það verið gagnrýnt að þau lið sem stóðu sig best í riðlunum, Danmörk, Sovót- ríkin og Brasilía, hafi ekki notið þess þegar lengra var komiö í keppninni, á meðan lið eins og V-Þýskaland og Belgía, sem aðeins unnu einn leik meö naumindum í riðlakeppni, eru nú komin í undan- úrslit. Bent hefur verið á að nær væri að iáta fleiri lið falla úr keppni eftir riðlakeppnina, og að lið ættu á einhvern hátt að taka meö sér stig úr riölunum í áframhaldið — líkt og gert er í HM í handknattleikn- um. Einnig er almenn óánægja með það að þrjú af liðunum í undanúrslitunum skuli komast í þau án þess að sigra í átta liöa úrslitum - heldur með því að vinna vítakeppni. ARGENTÍNA - BELGÍA Argentína er sú eina þessara -t Slmamynd/AP • Frakkar verða f sviðsljósinu f kvöld er þeir mæta Vestur-Þjóðverj- um. Margir tippa á þá sem næstu heimsmeistara enda ekki furða eftir stóríeik þeirra og Brasiifumanna f 8 liða úrslitunum. Hér er Luis Femandez með hörkuskot að marki ítala í sigurieiknum í 16 liða úr- slrtunum. Fólagi hans, Dominique Rochetau og ftalski leikmaðurinn, Antonio Cabríni, fylgjast með. Morgunblaðiö/Símamynd/AP • Vestur-þýska landsliðið æfði f Quertaro f gær, en þar leika þeir einmitt gegn Frökkum f kvöld. Á myndinni eru frá vinstri: Beckenbauer landsliðsþjálfari, Höness, Brigel, Rolff, Hergert, Rummenigge, Völler, Eder og Matheus. þjóða sem er í undanúrslitum án þess að hafa þurft vítaspyrnu- keppni til. Argentínumennirnir eru sigurstranglegri í þessum leik á sama hátt og Sovétmenn og Spán- verjar voru sigurstranglegri á móti Belgíu. Og bæði þau lið lutu í lægra haldi fyrir Belgíu, því liði sem mest hefur komið á óvart í keppninni. Þjálfari liðsins, Guy Thys, hefur reynst fremstur þjálfara í keppn- inni í því að láta lið sitt leika skyn- samlega. Á móti Sovétmönnum beittu þeir skyndisóknum upp miðjuna, þar sem sovéska vörnin var veikust fyrir, og á móti Spán- verjum, sem skoruðu 5 mörk gegn Dönum, lék liðið ákaflega agaöan varnarleik. En vandamál Thys er stærra núna: Hvernig á hann að stöðva Diego Maradona? Hinn 25 ára Argentínumaður er nú óum- deilanlega orðinn maður þessa móts, eftir að hafa slegið út Eng- lendinga nánast upp á eigin spýt- ur. Bilardo, þjálfari Argentínu, hefur sagt að þaö sé sama hve vel sé reynt að gæta Maradona — alltaf sleppi hann tvisvar til þrisvar í hverjum leik — og það sé nóg fyrir hann. Argentínumenn hafa leikið mjög agaða knattspyrnu, þeir hafa sterka vörn og hinir ungu miövall- arleikmenn, Batista og Burruc- haga, eru engir aukvisar. Liðin mættust í síðustu heims- meistarakeppni og þá unnu Belgar með einu marki gegn engu. Leikir þeirra hingað til í keppninni hafa farið á þessa leiö: Argentína — Suöur Kórea 3:1 Argentfna — Ítalía 1:1 Argentína — Búlgaría 2:0 Argentína — Uruguay 1:0 Argentína — England 2:1 Belgfa — Mexfkó 1:2 Belgla — frak 2:1 Belgla — Paraguay 2:2 Belgfa — Sovótríkln 4:3 Belgla — Spánn 6:6 (v) FRAKKLAND — VEST- UR-ÞÝSKALAND Þessi lið mættust í undanúrslit- unum í síðustu heimsmeistara- keppni og í eftirminnilegum leik sigruðu Þjóðverjar eftir vítaspyrnu- keppni. Það var í þeim leik sem Harald Schumacher braut svo hrottalega á Battiston hinum franska að hann var á sjúkrahúsi með brotin andlitsbein og rifbein og innvortis blæðingar, svo mán- uðum skipti. Það var í þeim leik sem Frakkar höfðu yfirburði lengst af og komust í 3:1 í framlengingu, Sfmamynd/AP • Hið umdeilda mark sem Diego Maradona skoraði (með hendi) f leiknum gegn Englendingum á sunnudagskvöld. Miklar umræður hafa verið um þetta mark, en þessi mynd kemur upp um kappann, það er enginn vafi. en létu Þjóðverja jafna með tveim- ur mörkum á síðustu mínútu. Og það var í þeim leik sem Bossis, miðvörður Frakka, brenndi af víta- spyrnunni sem færði Þjóöverjum sigur. Hann hafði fram að því verið vítaskytta bæði lands síns og fé- lagsliðs — síðan hefur hann ekki tekið eitt einasta víti. Það kemst því aðeins eitt að hjá Frökkum: Hefnd. Á pappírun- um eru þeir með mun sterkara lið og miðjumennirnir þeirra frábæru, Tigana, Giresse, Fernandez og Platini, hafa eflst með hverjum leik í þessari keppni. En ekki er allt sem sýnist. Frakkar hafa nefnilega svip- aða minnimáttarkennd gagnvart Þjóöverjum í knattspyrnu og ís- lendingar hafa gagnvart Svíum í handknattleik — þeir trúa því varla sjálfir að þeir geti unniö þá þegar það skiptir máli. Vestur-Þjóðverjar hafa sem kunnugt er einstakt lag á því að seiglast áfram í stórmótum, og eru sem fyrr komnir langt þó þeir hafi aðeins skoraö fjögur mörk í keppn- inni til þessa. Vörn þeirra er hins- vegar mjög sterk og Schumacher er öflugur í markinu. Það sem vinnur þó helst með þýska liðinu er geysilegur líkamlegur kraftur. Það sást í leiknum gegn Mexíkó — þá lágu Mexíkanarnir meira og minna á vellinum í framlengingunni með krampa í fótum á meöan Þjóð- verjarnir hlupu um sem óðir væru. Og það þrátt fyrir hita og loftslag sem hæfði Mexíkönum en ekki þeim. Það býður því Frakkanna erfitt verk í kvöld. Leikir liöanna á HM til þessa hafa farið á þessa leið: Frakkland — Kanada 1:0 Frakkland — Sovétrfkin 1:1 Frakkland — Ungverjaland 3:0 Frakklaeand - Italla 0:2 Frakkland — Braaitfa 5:4 (v) V-Þýskaland — Uruguay 1:1 V-Þýskaland - Skotland 2:1 V-Þýskaland — Danmörk 0:2 V-Þýakaland — Marokkó 1:0 V-Þýskaland — Mexíkó 4:1 (v) Leikur Frakka og Þjóðverja hefst klukkan 18 í dag og leikur Argent- ínumanna og Belga klukkan 22. Báðir verða sýndir í beinni útsend- ingu í sjónvarpinu. Símamynd/AP • Það er ekki öll vitleysan eins. A krá einni í Antwerpen í Belgfu hafa veríð veðmál í gangi fyrir leiki landsliðsins. Ekki eru peningar lagðir undir heldur hárið. Velgengni belgíska landsliðsins hefur kostað 92 menn hárið og hangir það í plastpokum uppi á vegg á kránni. Á mynd AP, sem tekin er af nokkrum sem þátt tóku í veðmálinu, sóst að þeir til vinstri hafa greinilega tapað hári sínu og ef myndin prentast vel má sjá hárpokana á veggnum fyrir aftan þá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.